Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 27
OLGEIR KRISTJÓNSSON MAÐUR ÁRSIWS
að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu í fyrra en auk þess var gefið út
nýtt hlutafé í tengslum við kaupin á Hugi. Nær allir starfsmenn
nýttu sér það. Þess má geta að árið 1993 buðum við öllu starfs-
fólki okkar að kaupa hlutabréf á mjög hagstaeðu gengi. Það voru
aðeins um 15 manns sem nýttu sér það en þá var einfaldlega ekki
i tísku að eiga hlutabréf. Hluthafar eru nú nálægt 700 talsins."
UM ÚTFLUTNING A HUGBÚNAÐI...
Þið hafið náð merkum árangri í útflutningi á vörustjórnunarkerf-
inu MMDS. Lýstu þessu öfluga kerfi ykkar?
„Þetta er kerfi sem stýrir og stjórnar öllu vöruflæði í verslana-
keðjum og skilar færslum inn í fjárhagsbókhaldið. En það er
fyrst og fremst varan sjálf sem er í brennidepli. Kerfið heldur
utan um vörulýsingar, verðupplýsingar, birgðir í verslunum,
pantanir, samninga við birgja, söluátök og fleira sem snýr að
vöruflæðinu. Upphafið að þessu kerfi má rekja til þess þegar
tölvuvæðing Hagkaups var boðin út árið 1991. EJS náði þeim
samningi og hugbúnaðurinn Retailer 1 frá NCR var valinn sem
vörustjórnunarkerfi Hagkaups. Síðan hefur þetta kerfi verið
stórlega endurbætt af okkur og telst núna íslenskt kerfi. Við
seljum það erlendis undir nafninu MMDS.“
Hver er stefiia EJS varðandi útflutning á hugbúnaði?
„Til að fyrirtækið vaxi í framtíðinni eins og hingað til verðum
við að auka útflutning okkar og starfsemina erlendis. Við höf-
um markað okkur þá framtíðarsýn að gera EJS að þekkingar-
fyrirtæki í fremstu röð og að það verði kjölfestan i alþjóðlegri
fyrirtækjasamsteypu. Við sjáum vörustjórnunarkerfið MMDS
sem eina af mörgum útflutningsvörum okkar í framtíðinni.
Með kaupunum á Hugi í fyrra og því að gera EJS að samstæðu
fyrirtækja erum við að búa til massa, stækka fótsporið hér
heima til þess að geta farið út og stækkað markaðinn. Islensk
fyrirtæki geta ekki vænst árangurs ytra nema að standa sig
fyrst vel heima. Það nær enginn árangri með því að fara út og
flýja raunveruleikann. Það er sitthvað flótti eða útrás.“
Eruð þið jafiigóðir og keppinautar ykkar erlendis?
„Eg tel að EJS sé að öðru jölhu jafhgott og erlendu fyrirtækin sem
það er að keppa við. Það sem okkur vantar er markaðsþekking,
orðspor og nærvera á erlendum mörkuðum. Tæknin er í sjálfu
sér alþjóðleg. Verkkunnáttan er jafngóð hér og annars staðar. Við
höfum átt því láni að fagna að koma okkur upp gæðastjórnun og
vinna skipulega. Við höfiim getað flaggað gæðavottuninni í út-
löndum og þar er hún tekin alvarlega. Erlendis þykir sjálfsagt að
fyrirtæki, sem bjóða þjónustu í hugbúnaðargeiranum, séu vottuð.
Útflutningur, eins og við stundum á hugbúnaði og þekk-
ingu, er flókið mál. Þetta er ekki bara spurning um tæknikunn-
áttu, þekkingu á verkefnisstjórnun, forritun, kerfum og tölvu-
samskiptum heldur eru það ekki síður mannlegu þættirnir
sem skipta máli, m.a. traust og kúltúr. Þú þarft að vera á staðn-
um, hafa gott orðspor og bjóða af þér góðan þokka. Það kaup-
ir enginn tölvukerfi fyrir hundruð milljóna króna án þess að
hafa kynnt sér fyrirtækið sem skipt er við. Verið er að stofna til
langtímaviðskipta, kerfin skipta oft sköpum fyrir reksturinn og
geta sett viðkomandi á höfuðið ef þau vinna ekki rétt. Ekki
Laugavegi 36 ■ Sími: 551 1945
", OIVfSVgn««*rftJunln
<M>) OPTIK
'-----' Laekiarloigl
Gleraugna,.
Sirnöjcn
Kringlan - Sími: 588 9988
Laugavegi 65 ■ Simi: 551 8780
hinlQlf ArniinlAraiinii
rjuioivt;i |juijiui ciuíju
Við kynnum fjölskerpugleraugu, Rodenstock
Cosmolit Office, sem gefa þér aukið svig-
rúm að sjá fjær og nær án þess að þurfa
sífellt að taka gleraugun niður, setja þau
upp eða horfa framhjá þeim.
RODENSTOCK
Cosmolit Office fjölskerpugleraugun eru hönnuð til að gera
þér kleift að horfa á umhverfi þitt frá venjulegri lesnálægð,
eða 40 sentimetrum, til allt að 4 metrum, eins og myndin
hér að ofan sýnir. Rauða línan sýnir svið venjulegra lesgler-
augna, sem taka þarf niður eða horfa yfir til að líta frá sér.
Græna línan sýnir svið venjulegra gleraugna, sem taka þarf
niður eða skipta út til að líta nær sér. Appelsínugula línan
sýnir svið hinna nýju gleraugna. Þau þarf hvorki að taka
niður né horfa framhjá.
Þú nýtur þessara gleraugna ekki aðeins á vinnustað, heldur líka heima, í leik og starfi.
27