Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 28

Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 28
OLGEIR KRISTJÓNSSON IVIflÐUR flRSINS verður af viðskiptum fyrr en komin eru á góð kynni og traust ríkir milli lykilstjórnenda kaupanda og seljanda.“ Þið leggið núna megináherslu á Bretlandsmarkað en sl. fiögur ár virtust þið vera að hasla ykkur völl í Hong Kong. Hvers vegna þessi kúvending? „I Hong Kong nota um 350 verslanir í keðjunni 7Eleven MMDS vörustjórnunarkerfið frá okkur og þessum verslunum þjónum við ennþá með svonefndri bakþjónustu. Við erum með mjög góð samstarfsfyrirtæki þar. Það er því of mikið sagt að við höfum sagt skilið við Hong Kong, þar eru enn tækifæri fyrir okkur. Hins veg- ar var okkur ljóst að ef við ætluðum að ná meiri árangri í Asíu yrð- um við að stofiia þar sérstakt fyrirtæki. Okkar niðurstaða var sú að ef við ætluðum að stofna fyrirtæki erlendis væri einfaldara að vera nær. Þess vegna tókum þá ákvörðun að reyna fyrir okkur á Bretlandsmarkaði, hann er stutt frá okkur, kúltúrinn þar er likari okkar, tungumálið er ekki þröskuldur og síðast en ekki síst er markaðurinn stór. Bredand er væntanlega annar stærsti markað- urinn í heimi á eftir Bandaríkjunum fyrir vörustjórnunarkcrfi." Þið gerðuð afar athyglisverðan samning í nóvember sl. við ykkar fyrsta viðskiptvin í Englandi, breska stórfyrirtældð WH Smith. „Þetta er samningur við bókaverslanakeðjuna WH Smith, eða öllu heldur dótturfélag hennar, sem nefnist WH Smith Travel og sér um um verslunarrekstur í flughöfnum, lestum og brautarstöðvum og selur þar bækur, tímarit og fleira. Vinna er hafin við að aðlagast þeirra kröfum og tengjast þeirra gömlu kerfum. Fyrsti fasinn af fjórum verður farinn í gang á apríl á næsta ári. WH Smith veltir 200 milljörðum króna og Travel- armurinn um 40 milljörðum. Ég vil árétta að þetta samstarf við WH Smith er enn á byrjunarreit - en vonandi verður það okk- ur farsælt. WH Smith Travel rekur yfir 200 verslanir." Hvernig útfærðuð þið markaðssókn ykkar inn á Bretlands- markað? „Það var um tvennt að velja fyrir okkur við að komast inn á Bret- landsmarkað. Annars vegar að kaupa hugbúnaðarfyrirtæki sem væri í fullum rekstri og allir þekkja. Það er frekar dýrt dæmi. Eða þá að mynda viðskiptasambönd við fyrirtæki sem eru í svip- uðum viðskiptum og við hér. Við fórum þá leiðina núna. Þetta fyrirtæki heitirTorex og er með 1.500 starfsmenn og sinnir hug- búnaðarþjónustu fyrir t.d. verslanakeðjur. Markaðsverðmæti þess er um 20 milljarðar. Við höfum efnt til samvinnu með þeim og það var í gegnum þá og þeirra sambönd sem við náðum samningum við WH Smith. Við kynntumst fyrirtækinu Torex fyrir fjórum árum og síðan hefur það vaxið hratt. Ekki varð úr samstarfi þá en við tókum upp þráðinn aftur.“ Þið eruð inni í 200 verslunum i þriðju stærstu stórmarkaðskeðju Astraliu, Franklin’s, og nýlega gerðuð þið samning um tilrauna- verkefrii fyrir 100 lyfytverslanir í Ástralíu. „Þetta er tílraunaverkefni sem við vinnum í samstarfi við til- tölulega lítið fyrirtæki í Ástralíu sem við kynntumst úti í Singa- pore. Við eigum sameiginlegan viðskiptavin þar, ástralska fyr- irtækið var með kassakerfið en við vorum með okkar miðlæga búnað. Tengslin við heilsugeirann eru þau að þetta ástralska fyrirtæki er í eigu annars alþjóðlegs fyrirtækis sem er mjög stórt og lifir á því að selja heilsugeiranum upplýsingar. Þetta til- raunaverkefni er nokkuð ofarlega á lista hjá okkur. Ef vel tekst til gætu yfir eitt þúsund lyljabúðir í Ástralíu tengst búnaði okk- ar. En fyrst í stað verða þær um eitt hundrað. Það athyglisverða við þetta verkefni er að hugbúnaðurinn keyrir héðan frá íslandi í lytjaverslunum í Ástralíu, hinum megin á hnettinum, í gegn- um Vefinn. Þetta sýnir vel hvernig tæknin brúar fjarlægðir." UM FRAMTÍÐ ÍSLENSKS ATVINNUUFS... Hvernig metur þú framtíð íslensks atvinnulífs? „Ég er bjartsýnn að eðlisfari og fullur góðra væntinga. En mér finnst að staldra þurfi við og spyija um stefnumörkunina fyrir Island hf. Hvernig ætíum við að vinna fyrir okkur? Ætlum við að gera það með því að selja ódýra raforku til stóriðju, lifum við á fiski til eilífðarnóns? Hvar liggja möguleikar okkar? Við eig- um frekar lítið af hefðbundnum náttúruauðlindum og það er ekki í tísku lengur að gefa land undir stóriðju. Aðrar þjóðir munu gæta þess að við gerum það ekki. Það sem við höfum jafnt á við aðra er þekking og hugvit - og á þeim sviðum þar sem þekkingin er alþjóðlegust, til dæmis í upplýsingatækni. En ekkert gerist af sjálfu sér. Við þurfúm að marka stefnuna fyrir þjóðfélagið í heild sinni líkt og fyrirtæki móta stefnu sína. Ef þjóðin telur að möguleikar hennar felist í þekkingu og hugviti verður hún strax að hefjast handa við að leggja grunninn, setja aukið fé í menntun ella getur það orðið of seint síðar þegar aðr- ir hafa náð samkeppnisyfirburðum.“B!j Burnham International er ungt og framsækið Burnham starfar í náinni samvinnu við erlend vlrobréfafvrirtæki Burnham International er ungt og framsækið íslenskt verðbréfafyrirtæki sem sér einstaklingum, fyrirtækjum og stofnanafjárfestum fyrir faglegri fjármálaþjónustu. Það hefur á skömmum tíma skapað sér sérstöðu í fjármálaheiminum. Burnham starfar í náinni samvinnu við erlend vi til að tryggja greiðan aðgang að arðbærum fjárfestingartækifærum á öllum mörkuðum. En starfið sem skiptir mestu máli er á ístandi. Arðbært samstarf við trausta íslenska viöskiptavini. Burnham International þakkar árangursrík viðskipti á árinu sem er að líða. ‘e9 BURNHAM BURNHAM INTERNATIONAL Á ÍSLANDI HF. VEGMÚLI 2, 108 REYKJAVÍK SÍMII 510 1600, FAX: 510 1610. NETFANG: BURNHAM@BURNHAM.IS, VEFFANG: NTERNATIONAL WWW.BURNHAM.IS 28

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.