Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 37

Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 37
María Pitt, að láta slag standa. Þau flytja austur með fjölskylduna efdr áramótín. „Virðingarvert," segja margir um þessa ákvörðun þeirra hjóna. í Sjöunda himni Það hefur eðlilega sína kosti og galla að flytja austur. Fyrir Elfar er örugglega um spennandi verkefni að ræða, enda hefur lengi legið í loftinu að faðir hans og afi, sem orð- inn er 78 ára gamall, væri að setjast í helgan stein. Fjölskylda Elfars, Aðalsteinn, Guðlaug og aðrir ættíngjar, eru auðvitað í sjöunda himni yfir því að fá þau austur. Fyrir fjölskylduna er það ný og spennandi lífsreynsla að búa úti á landi og gott að fá tækifæri til að kynnast íjölskyldu Elfars betur. Elfar og Anna María munu halda heimili á Eskifirði og flytja þangað en ætla ekki að selja húsið sitt í Reykjavik. A Eskifirði eru blendnar tilfinningar meðal bæjarbúa en almennur velvilji ríkir í garð Elfars og fjölskyldu hans í bænum. Margir telja ánægjulegt að stóríjölskyldunni takist að halda yfirstjórn fyrirtækisins innan fjölskyldunnar. Uppruní Elfar Aðalsteinsson er fæddur 1. júní 1971. Hann ólst upp á Eskifirði en flutti 16 ára gamall til Reykjavíkur og settist á bekk í Verzl- unarskóla íslands. Hann hefur ekki búið á Eski- firði eftír að hann fór að heiman, kom þangað að vísu til að byija með á sumrin en síðustu árin hefur hann einungis komið í heimsóknir og á stjórnarfundi í HE. Aðalsteinn Jónsson og Guðlaug Stefánsdóttir ólu Elfar upp og ættleiddu hann. Nú tek- ur Elfar við Hraðfrystihúsi Eskifjarðar af uppeldisfoður stnum og afa, aðeins 29 ára gamall. Mynd: Geir Ólafsson Foreldrar Móðir hans er Björk Aðalsteinsdótt- ir, fædd 26. maí 1952, gift Þorsteini Kristjáns- syni, skipstjóra á Hólmaborginni, sem gerð er út frá Eskifirði. Faðir hans er Rúnar Marvinsson, eigandi veitíngastaðarins Við Tjörnina. Foreldr- ar Bjarkar, Alli ríki, Aðalsteinn Jónsson á Eski- firði, og Guðlaug Stefánsdóttir, ólu Elfar upp og lítur Elfar á þau sem foreldra sína en þau voru um fimmtugt þegar þau tóku við honum. Hann var ættleiddur 14-15 ára gamall. Ættleiðing var eðlileg þróun uppeldisins. Hann hefur þó alltaf haft mjög gott samband við móður sína og fjölskyldu hennar fyrir austan og sambandið við föðurfólkið hans hefur aukist verulega eftir að hann settist að í Reykjavík. Systkini Systkinahópurinn er stór. Elfar er 15 árum yngri en yngsta barn Aðalsteins og Guðlaugar en lítur samt á börnin þeirra þijú sem systkini sín. Fyrir utan Björk eru það Kristinn, umboðsmaður Skeljungs á Austurlandi, og Eiríka Elfa, sem lést árið 1999. Elfar lítur jafnframt á börn Bjarkar og Þorsteins sem systkini sín en þau eru þijú, tveir bræður og ein systir. Þau eru Daði Þorsteinsson fasteignasali, Erna Þorsteinsdóttir nemi og Aðalsteinn Jónsson Þorsteinsson nemi. í föðurætt á Elfar tvo bræður og tvær systur, Sumarliða, Gunnar Pál og Jennýju Rúnarsbörn og Kristínu Þorgeirsdóttur. Fjölskylda Elfar er kvæntur Önnu Maríu Pitt, sem er fædd 20. desember 1972, dóttir Davíðs Pitt, stórkaupmanns, og Svölu Lárusdóttur. Anna María og Elfar eiga soninn Hralhkel Ugga, tæpra tveggja ára. Fyrir átti Elfar Alexander Sæ, sem er tæplega fimm ára. Anna María bjó í Frakklandi í fimm ár og stundaði nám í hótel- og veitingarekstri. Elfar og Anna María höfðu vitað hvort af öðru í mörg ár þegar þau tóku saman árið 1997. Þau giftu sig sumarið 1998. Menntun Var eitt ár skiptinemi í Bandaríkjunum og lauk stúdentsprófi ffá Hagfræðideild Verzlunarskóla íslands. Persóna Gott barn, einlægur í sér, hæfileikaríkur, bráð- greindur og fljótur að læra og tileinka sér efni en nennti ekki að liggja of mikið yfir bókunum. Enginn prakkari en heldur enginn engill í æsku. Verndaður og að sumu leyti „ofdekraður“ sem yngsta barnið hjá Aðalsteini og Guðlaugu en er sagður hafa þolað það. I dag er Elfari lýst sem opnum manni, sjálfstæð- um og bjartsýnuin ævintýramanni sem gangi vel í þvi sem hann tekur sér fyrir hendur. Heimsborgari. Hreinn og beinn og fylginn sér. Hann er sagður tilbúinn til að skoða nýja mögu- leika og ný tækiíæri. Félagslyndur, öfgalaus og slær ekki um sig en er óþolinmóður og jafhvel hvatvís, ofskipulagður og þver eftir að ákvörðun er tekin. Hann er góður og umhyggjusamur faðir sem sinnir strákunum sínum vel. Nær góðu sambandi við 37

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.