Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 41

Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 41
úr hefðbundinni uppstillingu og útliti verða oft mjög skemmtileg en það er sjald- an sem það gerist. Togast á Við merkið Myndir eru vand- meðfarnar, sérstaklega þegar um myndir af starfsmönnum er að ræða. Stefán bend- ir á að fagurfræðilega séð togist myndirn- ar á við merki fyrirtækisins. „Nafii fyrir- tækisins á fyrst og fremst að koma fram á nafnspjaldinu. Ef það gerist á fallegan, skemmtilegan og ffumlegan hátt þá þarf ekkert meira. Stundum er lógóið ekki skemmtilegt og þá má kannski reyna að segja frá viðkomandi fyrirtæki með því að hafa einhverja mynd, áferð eða mynstur á nafnspjaldinu. Ef til er einhver mynd sem er hluti af heildarímynd fyrirtækisins þá vekur hún kannski sömu viðbrögð og ló- Margir safna nafnspjoldum í þar til gerðar möþpur. Þau geta komið sér vel síðar. góið og hjálpar til við að vekja athygli á því hvaða fyrirtæki er um að ræða og hvert starfssvið þess er. Að Stefán tók að sér að skoða hátt í 200 nafnspjöld frá ýmsum hafa myndir af starfsfólki þjónar vissum tilgangi en er sjaldan fyrirtækjum, innan lands og utan, og tilnefna tíu bestu spjöldin fallegt, gæði myndanna eru oftast það lítil," segir hann. með rökstuðningi. Afraksturinn sést hér á síðunum. 10 bestu nafnspjöldin að mati Stefáns Natiispjam frá Oz „Falleg hönnun, bæði varðandi letur, liti og meðferð á myndum. Uppsetn- ingin er frumleg, spennandi og óhefðbundin og lýsandi fyrir fyr- irtækið, sem er framsækið og óhefðbundið en samt með ákveð- inn „klassa“. Nafnspjaldið snýr lóðrétt, ekki lárétt, og aðalatriðin eru sterk. Liturinn er „metallic", spjaldið er plastað og geymist þar af leiðandi betur. Þetta nafnspjald er í stíl við allt annað efni frá Oz.“ SIORlDUR nanna egilsdOttir Adminnlratrv* AwsUnt JÓN ÓLAFSSDN Stjórnarfqrmaður Beinn b(mi: 525 50 10 JON OLAPBSON@SICIFAN.IS Nafnspjald frá Norðurljósum „Litirnir eru óvanalegir og gera það að verkum að nafnspjaldið sker sig frá öðrum. Hér er einnig not- aður „metallic" lit- ur og spjaldið er plastað, þannig er glæsileikanum viðhaldið og það endurspeglar það sem fyrirtækið stendur fyrir. Þetta er stórt fyrirtæki með mörg fyrirtæki undir sinni regnhlíf. I nafnspjaldinu felst ákveðin festa og öryggi. Uppsetningin er hefðbundin en prentað er beggja vegna spjaldsins." Nafnspjald frá McCann í Noregi „Sexhyrnt nafnspjald sem sker sig greinilega úr - mjög óvenjulegt! Iitirnir eru mjög sterkir, bleik- ur á móti grænum sem maður rekur strax augun i og upplýsing- arnar eru svo á bakhliðinni. Nafn- spjaldið þjónar tilgangi sínum því að það sker sig frá öðrum. Auglýsinga- stofur eiga að vera þekktar fyrir að vera frumlegar og hugmyndaríkar. Þetta er ekki fallegasta nafn- spjaldið en örugglega það frumlegasta og athyglisverðasta.“ Guðrún K. Guðmannsdóttir Manager nngötu 7 • *00 lijl|ötður Nafnspjald frá Lífeyrissjóði Vestfirðinga „Hefðbundið en snyrtilegt nafnspjald. Merkið er einfalt, tært og skemmtilegt spjaldið sker sig strax úr. Þó að uppsetningin sé hefðbundin er hún mjög snyrtileg og fal- leg. Litla þykktin á strikinu undir starfs- heitinu lyftir nafnspjaldinu upp. Pappírinn er grófur, upphleypt- ur og vistvænn sem passar vel við laufblaðið. Rauði liturinn á vel við efnisvalið á pappírnum." Mobilc; 89* 2' LlFIÍYRISSJÓÐUR VESTFIRÐINCA Nafnspjald frá Space „Vekur mikla athygli og nær tilætluð- um árangri, nefnilega að gefa til kynna að þetta fyrirtæki sé spennandi og höfði til ungs fólks. Nafnið höfðar til marks- 41

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.