Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Síða 44

Frjáls verslun - 01.11.2000, Síða 44
Starfsmenn Verðbréfastofunnar, frá vinstri Björn Ólafsson, Eyjólfur Krist- jánsson, Ágústa Símonardóttir og Sigurður Þór Sigurðsson verðbréfa- miðlarar. Verðbréfastofan hefur vaxið ört. Þegar starfsemin hófst árið 1996 voru starfsmennirnir aðeins þrír talsins. í dag eru þeir 13 og fram- kvæmdastjórarnir tveir, auk Jafets er það Þorbjörn Sigurðsson. Hjá fyrirtækinu starfa sex verðbréfamiðlarar. Hluthafar eru um 70 og á enginn þeirra meira en 10 prósent í fyrirtækinu. Hlutafé er 110 millj- ónir króna og eigið fé er um 260 milljónir. Verðbréfastofan er aðili að Verðbréfaþingi íslands. Dreift eignarhald Verðbréfastofan er sjálfstætt fyrirtæki sem ekki tengist öðrum fjár- málastofnunum. Fyrirtækið leggur áherslu á að veita óháða ráðgjöf og miðlun verðbréfa og starfrækir því enga hlutabréfa- eða verðbréfa- sjóði. Það hefur sjóði flestra íslenskra verðbréfafyrirtækja í umboðs- sölu, bæði hlutabréfa- og skuldabréfasjóði, tekur að sér eignastýringu á verðbréfasöfnum og veitir ráðgjöf vegna erlendra verðbréfavið- skipta. „Fyrirtækið rekur ekki sína eigin sjóði og er því ekki í samkeppni við viðskiptavini sína. Dreift eignarhald tryggir óhæði okkar, við erum ekki háðir einum stórum hluthafa, og við höfum fengið mörg verkefni út á þetta. Menn eru viljugri en ella til að láta okkur hafa trúnaðarupp- lýsingar vegna þess að þeir vita að við höfum ekki annarra hagsmuna að gæta," segir Jafet. Verðbréfastofan er flutt í stærra og betra húsnæði að Suðurlandsbraut 18 í Reykjavík: Áhersla á sjálfstæði og óháða ráðgjöf Verðbréfastofan er ört vaxandi fyrirtæki sem rekur ekki eigin hlutabréfa- og skuldabréfasjóði heldur leggur áherslu á sjálf- stæði og óháða ráðgjöf. Verðbréfastofan er í samstarfi við verðbréfafyrirtæki, bæði í Skandinavíu og Bandaríkjunum. „Verðbréfamarkaðurinn hefur stækkað gífurlega mikið. Frá því við byrjuðum fyrir fjórum árum hefur markaðurinn rúmlega þrefaldast og viðskiptin eru gjörólík því sem þau voru þegar við lögðum af stað. Við höfum átt því láni að fagna að vera farsæl í viðskiptum. Við höfum boðið til kaups og sölu það sem markaður- inn vill versla með. Oft er einblínt of mikið á hlutabréfamarkaðinn en hér er einnig mjög öflugur skuldabréfamarkaður," segir Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri Verðbréfastof- unnar hf. Verðbréfastofan flutti nýlega í nýtt og helmingi stærra húsnæði í haust og er nú til húsa að Suðurlandsbraut 18 í Reykjavík, „í miðju fjármálahverfinu, sem að okkar mati markast af Ármúla og Suðurlandsbraut. Við erum mitt á milli tveggja risa, Landsbréfa og Kaupþings, og þar líður okkur mjög vel," segir Jafet. Fjárfest í framsækni Verðbréfastofan hefur sérhæft sig í að kaupa og selja hlutabréf á Norðurlöndunum, sérstaklega í Svíþjóð. „Við höfum sérhæft okkur í verðbréfaviðskiptum á Norðurlöndum og mælum með þeim markaði fyrir fjárfesta vegna þess að efnahagslíf á Norðurlöndum er mjög stöðugt. Aðstæður þar eru að sumu leyti likar okkar aðstæðum. Við þekkjum mörg góð fyrirtæki á Norðurlöndum. Þjóðirnar hafa verið framsæknar í tækni- og símageiranum, einnig í heilsu- og lyfjageiranum. Fyrirtækin eru framsækin á heimsvísu og þar nægir að nefna tvö dæmi, Ericsson og Nokia. Þessi fyrirtæki eru þekkt um allan heim og eru bæði skráð í kauphöllum á Norðurlöndum og í Bandaríkjunum," segir hann. Undanfarin þrjú ár hefur Verðbréfastofan verið í samstarfi við eitt af stærstu og virt- ustu verðbréfafyrirtækjum Norðurlandanna, Carnegie, sem hefur alls um 600 starfsmenn í höfuðborgum hinna Norðurlandanna. Fyrir- tækið rekur skrifstofu í London og New York og banka í Lúxemborg. Carnegie rekur fjölda HllrH'Mlilrfilli'líllllflHI Verðbréfastofan ertil húsa að Suðurlandsbraut 18, Reykjavík. Þar er aðgengi gott og næg bílastæði fyrir utan húsið. 44
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.