Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 50

Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 50
Bogi Þór Siguroddsson, forstjóri Húsasmidjunnar, bendir m.a. á óvenju glæsilegan vef um sumarhús í Toscana, wuiw.chianti- farm.com. Mynd: Geir Ólajsson Bogi Þór Siguroddsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, hefur mest dálæti á frétta- og viðskiptatengdum vefjum. Hann notar mest mbl.is, sem honum finnst aðgengi- legur og þægilegur varðandi almennar fréttir, og skoðar einnig talsvert visi.is. „Viðskiptavefurinn þar er sá besti af þeim íslensku," segir hann. WWW.Strik.iS Mjög skemmtilegt er að fylgjast með strik.is - honum fylgir sami ferski andblærinn og maður finnur fyrir á Skjá Einum. WWW.landSbref.iS Af íslenskum fjármálavefjuni nota ég landsbref.is mest, en isbank.is nota ég mest sem netbanka. WWW.leit.iS Aðrir íslenskir vefir sem ég nota talsvert eru leit.is, ef ég finn ekki hluti á simaskra.is, sem er að verða frábær. WWW.cnn.com Af erlendum vefjurn nota ég mest cnn.com og cnnfh.com. A þessum vefjum er óendanlegur brunnur upplýsinga með góðri framsetningu sem sífellt er verið þróa. WWW.smartmoney.comSmartmoney.com er góður en einnig skoða ég stundum vef „American Marketing Associ- ation“ til að fylgjast með því nýjasta sem er að gerast í mark- aðsfræðunum; ama.org. WWW.amazon.comAmazon.com er sá erlendi bókavefur sem ég hef notað og finnst mjög skemmtilegur. WWW.COStumenatiOnal.com Frumlegur og skemmtilegur vefur sem ég hef rekist á er costumenational.com um „trend“ og tískusveiflur. WWW.Chianti-farm.COm Einstaklingur í Toscana gerði óvenjulega glæsilegan vef til að kynna sumarhúsið sitt í Toscana, sem tengdaijölskylda mín leigði til vikudvalar í haust, en hann er chianli-farm.com. SQ FYRIRTÆKIN Á NETINU Kv. og mbk. w Avarps- og kveðjuorð taka breytingum með Netinu eins og svo margt annað í þjóðfélaginu. Bréfaskriftirnar, sem í gamla daga voru efnismiklar, persónulegar og sæmilega tíðar, stundum jafnvel á hátíðlegu máli, tíðkast varla í dag. Eng- inn skrifar lengur löng og falleg sendibréf með fréttum af sjálf- um sér eða úr daglegu lífi. í dag ganga skeytin á milli ættingja og vina og þau fara á augabragði til viðtakandans um Netið. Skilaboðin eru hnitmiðuð og ópersónuleg og ávarps- og kveðjuorðin taka mið af því. Heiðraði viðskiptavinur Textarnir í skeytunum byrja yfirleitt á staðlaðan og ópersónulegan hátt. Algengustu ávarpsorðin eru „heill og sæll“, „sæll og blessaður“, „sæl“ eða „komdu sæl“, jafnvel í bréfum fyrirtækja til viðskiptavina. „Kæri“ eða „bless- aður“ eru kumpánleg orð sem gefa til kynna nokkurn kunn- ingsskap enda ekki óalgengt orðalag milli vinkvenna. Stöku sinnum má sjá upphafsorð á borð við „góðan daginn" og í bréf- um til viðskiptavina sést stundum „heiðraði viðskiptavinur". Það er þó sennilega með því allra hátíðlegasta sem berst um Netið. Avörpin léttast og verða kæruleysislegri og kunnuglegri eftir því sem bréfaskiptunum ljölgar. Smám saman fara að sjást ávörp á borð við „sæll aftur", „sæl vertu“ eða „halló“ og „hæ, hæ“ er eitthvað sem helst sést í skeytasendingum milli vina og kunningja. Þegar enskusletturnar birtast og málfarið verður kæruleysislegra er greinilegt að kunningsskapur, jafnvel vin- átta, er á milli manna. Þakklæti og góðar Óshir All nokkur fjölbreytileiki er í niður- lagsorðunum á Netinu, kveðjunum fylgir gjarnan þakklæti og góðar óskir, sérstaklega þegar bréfritari þekkir móttakandann vel. í lok bréfs má einstaka sinnum sjá hátíðleika á borð við „með vinsemd og virðingu" en algengast er að sjá „kveðja", „með bestu kveðju", „bestu kveðjur“, „kær kveðja“, „kveðja og þakklæti", „með fyrirfram þakklæti" og „þakka samstarfið - bestu kveðjur". Þegar vinátta er á milli manna má sjá kæruleys- islegri kveðjur á borð við „heyri frá þér“, „heyrumst", „bið að heilsa og vona að þú eigir góðan dag“. Kunningjarnir senda „baráttukveðjur", „bæ í bili“ og gefa þar með til kynna að þeir verði fljótlega í sambandi aftur. Styttingar á borð við „kk.“, „kv.“ eða „kv/“ og „mbk“ verða stöðugt algengari, sérstaklega hjá þeim sem eru vanir miklum skeytasendingum á Netinu. Þeir nota styttingarnar með glans og láta nafnið sitt eða upp- hafsstafinafylgjameð. Gaman væriaðvitahvaðís- lenskumennirnir segja um þetta... 35 Æ Guðrún Helga Sígurðardóttir. ghs@talnakonnun.is 50

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.