Frjáls verslun - 01.11.2000, Síða 54
„Er ekki framtíbarsýnin sú að bæði karlar og konur verði jafnvirk í at-
vinnulífinu, viðskiþtum og umrœðum þar að lútandi og þá í sameig-
inlegum klúbbum eða á öðrum samkomum?" sþyr Guðný Harðar-
dóttir, framkvæmdastjóri Strá Mri Worldwide ehf.
„Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem eru með sterkt tengslanet eru 40%
fljótari en aðrirað fá stöðuhækkun,"segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
verkefhisstjóri Auðar í krafti kvenna.
g sló að gamni mínu inn
leitarorðin „konur
stjórnun" á Internetinu,'
segir Guðný Harðardóttir
þegar hún hefúr komið sér
vel fyrir á fundarstað og opn-
að fartölvuna sína. „Þótt ég
vissi það fyrir að konur í efstu
stöðum væru fáar, eins og
raunar kom berlega í ljós í
bók Fijálsrar verslunar, 300
stærstu, sem nýlega kom út,
kom það mér verulega á
óvart að aðeins kæmu upp 10
síður. „Eg held að konur séu
nú fyrst að átta sig á þeim tækifærum sem atvinnulífið býður
þeim upp á í dag,“ segir Guðný. „Þetta kemur hægt og bítandi
því öldum saman hafa jú konur verið heima við en karlar unn-
ið úti. Það er ekki fyrr en eftir heimssfyijöldina síðari sem kon-
ur verða fyrst áberandi á vinnumarkaði. Þær hafa þó verið að
sækja í sig veðrið, bæði hvað varðar menntun og starfsframa,
sérstaklega síðustu tíu árin. Konur lenda hins vegar oft í því að
þurfa að velja á milli þess að stofna fjölskyldu eða að ná árangri
í metorðastiganum. Algengt er að vel menntaðar konur sækist
eftir hlutastörfum með rekstri heimilis, en hlutastörfin duga
sjaldnast til mikils frama inn-
an fyrirtækja."
Linda segir muninn á gild-
ismati stórs hóps karla og
kvenna koma sterkt ffarn í því
að eftir nám fari konur í barn-
eignir og detti þá út af vinnu-
markaði um tíma. „Það er erf-
iðara fyrir þær að komast í
toppstöður þegar þær koma
aftur inn á vinnumarkaðinn en
karlana sem ekki hafa tekið
sér frí.“
Fyrirtækjamenning - karla-
menning? „Ég held að það séu margar ástæður fyrir því að
fáar konur séu í stjórnunarstöðum. Ein ástæðan, sem stundum
er einblínt á, er að menning fyrirtækja sé of tengd gildum karla
og konur eigi erfitt með að þrifast og dafna í því umhverfi,"
segir Þorbjörg Helga. „Slikur fyrirtækjabragur er talinn sam-
keppnisdrifinn, yfirborðskenndur í samskiptum og leggja höf-
uðáherslu á laun og titla. Þetta virðist virka fráhrindandi á kon-
ur og veitir þar af leiðandi lítið svigrúm fyrir starfsframa þeirra.
Lausnin á þessu er ekki augljós en breytist líklega smám sam-
an með hverri konu sem kemur inn í fyrirtækið. Menningin í
ÞegarFfjáls verslun fjallabi um forstjóraskipti i 50 stór-
fyrirtækjum á síðustu tveimur árum kom í Ijós að
engin kona var á þeim lista sem viðtakandi forstjóri.
Hvað veldurþessu? Ogþetta er ekki séríslensktfyrir-
bæri. Erþetta lögmál? Því svara þær Guðný Harðar-
dóttir, framkvæmdastjóri Strá Mrí Worldwide ehf, Þor-
björgHelga Vigfúsdóttir, verkefnisstjóri Auðar í krafti
kvenna, ogLinda Pétursdóttir, eigandi Baðhússins.
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur Myndin Geir Ólafsson
54