Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 60
Fyrsta flokks símtöl
á hagstæðu verði
btartsmenn Landsnets eht. Fra vinstri Johanna L. Oskarsdottir gjaldkeri, Stefan Snorri Stefánsson framkvæmdastjóri, Víðir Kristófersson tæknistjóri
og Ásgeir Geirsson netsérfræðingur. FV-mynd: Geir Ólafsson.
Landsnet hf. færir út kvíarnar og stefnir að því að bjóða innanlandssímtöl á nýju ári:
Landsnet hf. hefur að undanförnu boðið upp á millilandasímtöl
á 16,50 krónur mínútuna og nú hefur fyrirtækið fjárfest í nýjum
hátæknibúnaði frá Cisco Systems. Á nýju ári er stefnt að því að
bjóða upp á innanlandssímtöl og þurfa fyrirtæki einungis einfalt
lagnakerfi, tölvulögnina, til að geta notfært sér þessa þjónustu.
Sér símalagnir og hefðbundnar símstöðvar verða úr sögunni.
Landsnet ehf. var stofnað árið 1995 og er að 40 prósentum í eigu Stefáns
Snorra Stefánssonar og Jóhönnu Margrétar Steindórsdóttur og 60 pró-
sentum í eigu Skýrr. Landsnet er netþjónustufyrirtæki sem veitir alhliða
ráðgjöf við uppbyggingu og rekstur tölvunetkerfa. Fyrirtækið sér um að
setja upp netbeina („routera"), innhringibúnað, eldvarnarveggi, neteftir-
litskerfi og annan búnað sem tengist netkerfum. Jafnframt þessu býður
Landsnet talþjónustu til útlanda fyrir fyrirtæki og almenning.
Landsnet hefur smám saman fært út kví-
arnar; bætti við sig símaþjónustu milli landa
fyrir einu ári og upp úr áramótum er stefnt að
símaþjónustu innanlands með búnaði frá
Cisco Systems. „Við erum að tala um fyrsta
flokks símtöl með 64kbps bandbreidd með IP
tækni, hliðstætt því sem tíðkast í ISDN sím-
Hafnarstræti 15, Reykjavík.
Sími 562 5050 ■ Fax: 562 5066
www.landsnet.is • upplysingar@landsnet.ís
tækni. Á næsta ári mun þúnaðurinn ráða við enn meiri talgæði með
256kbps bandbreidd sem tekur hefðbundinni símtækni langt fram.
Sveigjanleiki þessara kerfa er mun meiri en í „gamla heiminum", t.d. er
meðalending símstöðvar 2-3 ár, hjá okkur snýst þetta aðallega um upp-
færslu hugbúnaðar. Skiptiborð í IP heiminum er keyrt upp og því stjórn-
að með venjulegum vefvafra, símtækjum er stjórnað með vafra og
sömuleiðis flutningi í annan síma, talhólf o.fl. Tengingar við símaskrár,
t.d. í Outlook eru einfaldar og flutningur símanúmera með starfsmönn-
um, t.d. milli deilda er leikur einn. „Við höfum ekki auglýst mikið en finn-
um mjög fyrir almennum áhuga," segir Stefán Snorri Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Landsnets.
Samstarf við KPNQwest
og Iinu.Net
Landsnet er í samstarfi við hið virta fyrirtæki
KPNQwest í Hollandi um heildsölukaup á
millilandasímtölum. „KPNQwest veitir ekki
sjálft símaþjónustu heldur býður öðrum
samstarf um slíkt. Með þessu samstarfi
fáum við meiri gæði á símtölunum, meiri
60