Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Síða 64

Frjáls verslun - 01.11.2000, Síða 64
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar: Stærsta fyrirtækið í stoðtækjaiðnaðinum ■ ■ Ossur hf. er hluti af hinum gríðarlega stóra heilbrigðismarkaði í heiminum. Það sem auðkennir þennan markað er ákveðinn stöðugleiki, sem einkennist af jöfnum og stöðugum vexti ár frá ári. Stoðtækjamarkaðurinn er hluti af þessum markaði og lýtur sömu lögmálum og hann. Þess vegna voru engar kollsteypur á árinu 2000. Breytingarnar koma aðallega frá tækninýjungum sem breyta umönnun sjúklinga og auka möguleika þeirra á að ná heilsu og betra lífi. Við hjá Össuri hf. komum fram með allmargar vörur á árinu, sem hlutu góðar viðtökur. Sú stærsta var ný hulsutegund iýrir sjúklinga með húðvandamál sem sett var á markað í Bandaríkj- unum. En þó að tiltölulega rólegt hafi verið á þessum markaði er ekki hægt að segja hið sama um samkeppnisumhverfið. Þar urðu miklar sviptingar sem flestar má reyndar rekja til okkar. Stærsta breytingin var kaup okkar á Flexfoot í apríl og svo seinna kaup okkar á Century núna í desember. Kaupin á þessum fyrirtækjum voru án efa stærstu fréttirnar í stoðtækjaiðnaðinum á þessu ári,“ segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar. - Hvernig metur þú horfurnar á árinu 2001? „Eins og lýrr sagði einkennir ákveðinn stöðugleiki heilbrigðis- vörumarkaðinn. Margir fjárfestar kjósa að flytja Ijárfestingar sín- ar í fýrirtæki á heilbrigðisvörumarkaði þegar verr árar á hlutaijár- mörkuðum. Þetta er þegar að gerast í nokkrum mæli, eins og gott gengi lyfjafyrirtækjanna undanfarið ber vitni um. Þess vegna virðist mér umhverfi Össurar hf. á komandi ári vera jákvætt Ef litið er til innri mála Össurar hf. er ljóst að árið 2001 verð- ur ekki rólegt frekar en undanfarin ár. Mörg og stór verkefhi þarfnast úrlausnar og ber þar hæst að nú verða öll þau fimm fyrirtæki sem mynda samstæðu Össurar hf. að vinna saman sem eitt. Þessari vinnu verður fram haldið á árinu, hún er kom- in vel á veg og henni mun ljúka á miðju ári. Sú staðreynd að við höfum búið til eitt sterkasta fyrirtækið í stoðtækjaiðnaðinum á svo skömmum tíma, og höldum góðum hagnaði á meðan, veit á gott næsta ár að mínu mati.“ BQ Bogi Pálsson, forstjóri P. Samúelssonar hf: Aukin notkun Netsins í bílaviðskiptum w Arið 2000 hefúr verið mjög í anda þess sem ráð var fyrir gert og er það til marks um það hve miklu þróaðra íslenskt efnahags- lff er orðið en bílamarkaðurinn hefúr ávaflt verið mjög viðkvæmur fýrir efiiahagssveiflum. Sveiflurnar hafa minnkað og stöðugleik- inn komið í staðinn, stöðugleiki í verði, stærð markaðarins og jafn- vel aukinn stöðugleiki í sölusveiflum milli mánaða og árstíða. Það sem einkum einkenndi bílamarkaðinn hér á landi árið 2000 er aukin notkun Netsins á meðal einstaklinga sem farnir eru að nýta sér þennan nýja miðil til undirbúnings að bílkaupum. Væntan- legir viðskiptavinir koma betur upplýstir í sýningarsali, með fleiri spurningar og nota tfrnann betur en þeir gerðu áður til að velta fyr- ir sér hentugum og skynsamlegum valkosti. Þetta hefur leitt til þess að vinna sölumanna á bak við hverja sölu hefúr vaxið mjög,“ segir Bogi Pálsson, forstjóri R Samúelssonar hf. „Annað, sem einkennt hefur árið, er ójafúvægi í verði nýrra og notaðra bíla. Verð nýrra bíla hefur nánast ekkert hækkað vegna sterkrar stöðu íslensku krónunnar. Með hækkandi kaup- mætti hefur hlutfall seldra nýrra bíla verið vaxandi samanborið við selda notaða bíla. Aldursafföll notaðra bíla hér á landi eru langt undir þvi sem gerist að meðaltali í öðrum Evrópulöndum og finnum við fyrir síaukinni kröfu kaupenda um að þessi afföll aukist, enda sést of hátt markaðsverð notaðra bíla best í mikilli birgðasöfnun þeirra meðal allra bílaumboða. Það sem einkum hefur einkennt hinn alþjóðlega bílamark- að og hefúr að sjálfsögðu sín áhrif hér á landi eru sameiningar bílaframleiðenda, rekstrarerfiðleikar sumra þeirra og jafnvel gjaldþrot. Þetta hefur fyrst og fremst haft óbein áhrif á markað- inn hér á landi, enda eðlilegt að upplýstir kaupendur velti því fýrir sér hvar peningum þeirra sé best varið.“ - Hvernig metur þú horfurnar á árinu 2001? „Eg tel að árið 2001 verði fyrst og fremst fínstilling á þeim markaðsaðstæðum sem við búum nú við. Það kann að verða lít- ilsháttar samdráttur á markaðnum sem stjórnast af því hvernig efnahagslífið kemur til með að þróast.“ BQ 64
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.