Frjáls verslun - 01.11.2000, Síða 68
ÁRAMÓTAVIÐTÖL
Jónína Benediktsdóttir, forstjóri Planet Pulse:
Heilsurækt unglinga og
lífeyrisþega mun aukast
aldrei verið meiri. 55 útskrifuðust nú fýrir jólin. Samkeppni er
talsverð á markaðnum en svo virðist sem stöðvarnar hafi
trygga viðskiptavini og lítið flakk er á milli þeirra. Við lítum
björtum augum á Planet City sem opnar 6. janúar í Austur-
stræti ásamt Fitness Café,“ segir Jónína Benediktsdóttir,
forstjóri Planet Pulse.
Fjöldi þeirra sem stunda líkamsrækt
hefur aukist mjög. Nýting heilsu-
ræktarstöðva eykst um 57% milli ára í
Bandaríkjunum. Þetta stafar af því að
kyrrsetulíf kemur í veg fyrir árangur í
þekkingarsamfélagi því sem við nú
búum við og að í harðnandi sam-
keppni dugar ekki annað en að vera
vel á sig kominn líkamlega. SPA iðn-
aðurinn er einnig í hröðum vexti. I
hraða nútímans er ekki síður mikil-
vægt að huga að andlegum og sálar-
legum hliðum lífsins og það gerir fólk
eingöngu í rólegu, fallegu umhverfi
þar sem áreiti er takmarkað. SPA
skóli Planet Pulse vakti athygli víða
um heim þar sem alltaf er skortur á
„SPA-fræðingum“. Skólinn útskrifaði
átta slíka og starfa nokkrir nú hjá
keðjunni. Einkaþjálfaraskólinn FIA
starfar nú þriðja árið í röð og svo virð-
ist sem áhugi fólks á einkaþjálfun hafi
- Hvernig metur þú horfurnar á árinu
2001?
,Áhugi og þörf fólks fyrir hreyfingu á eft-
ir að aukast. Það sem ég tel að verði með-
al nýjunga er meiri heilsurækt fyrir jaðar-
hópana, sem eru börn og lífeyrisþegar.
Fólk krefst þess að því sé sinnt á réttan
hátt og mesta áherslan er lögð á hvatn-
ingu og umbun fyrir ástundun og árang-
ur. Hrein líkamsrækt höfðar eingöngu til
20% þeirra sem stunda hreyfingu, 20%
hætta, hversu góð sem þjónustan er, en
60% hreyfa sig vegna þess að starfsfólk
stöðvanna er vel að sér í öllu því sem að
heilsu snýr. Heilsurækt snýst fyrst og
fremst um að þjálfa kraftinn sem í hverri
manneskju býr. Kraftinn til þess að takast
á við lífið í allri sinni fegurð. Þessi kraftur
nýtist síðan fólki til þess að öðlast enn
meiri kraft sem leiðir af sér nýja sigra. Að
finna sigurvegarann í sjálfum sér getur
verið lykillinn að hvers konar sigri." BO
68