Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 74

Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 74
VERSLUN höfum samanburðinn þar. Á næstunni verður gerð breyting á versluninni Cöru en við munum loka henni og opna í staðinn Boss konur, þar sem konur geta fengið á sig úrval Boss fatn- aðar, líkt og karlarnir nú.“ segir Siguijón. „Sniðin eru „hreinni" nú en þau hafa verið og vestisföt eru alveg horfin. Við reynum að fylgjast vel með því sem er að gerast erlendis, bæði í verslunum, tískuhúsum og á götunni í stórborgunum, en þar er uppspretta allra nýjunga.“ FÖt lyrir næstum alla Verslanir þeirra Háess-manna ná yfir nær allan skalann í herrafatnaði. Þó ekki unglingafatnað og segja þeir Hákon og Siguijón að ekki standi til að bæta slíkri verslun við. I Blues og Hanz er lína fyrir þá sem yngri eru en Herragarðurinn og Boss búðin selja sígildari línu. Blues býður upp á fatnað fyrir bæði herra og dömur en það mun breytast því Blues er ætlað að selja emgöngu kvenfatnað í framtíðinni. Stórir menn fá þjónustu í Herragarðinum á Laugavegi og þar er rekin sérpöntunarþjónusta ásamt hefðbundinni verslun. í Kringlunni eru Blues, Boss búðin, Herragarðurinn, Hanz, Skóverslun Steinars Waage og Cara en á Lauga- veginum er Herragarðurinn. í Domus Medica er Steinar Waage einnig og í Veltusundi Topp- skórinn. Þar að auki markaðsbúðirnar Topp- skórinn og Herralagerinn á Suðurlandsbraut, þar sem ódýrari vörur er að finna. Fastír starfsmenn fyrirtækisins eru 55 en nokkuð er einnig af lausráðnu fólki. Tískan í dag „í haust kom inn nýr litur, ólífugrænn, og hafa hinir hefðbundnu gráu og svörtu litir hopað í framhaldi af því. Þeir eru þó enn tíl staðar og verða áfram en litír í aukahlut- um munu setja skemmti- legan svip á vortískuna," Netið? Enn er ekki hægt að kaupa vörur frá verslunum Háess í gegnum Netið en eftir áramótín verður hafist handa við að kanna möguleika á því að setja upp Netverslun. Tiltölu- lega auðvelt er að bjóða þannig hefðbundna hlutí eins og boli, sokka, peysur, nærföt og skyrtur en ef til vill erfiðara hvað varðar jakkaföt og buxur. „Það er auðvitað freistandi að skoða þetta en alltaf er spurning um kostnað og árangur," segir Há- kon. „Verslanirnar ganga vel eins og er og við sjáum engin merki þess að það breytist þar sem við bjóðum upp á sérhæfðar vörulínur og góða þjónustu en á sam- keppnismarkaði er mikilvægast að gera vel það sem maður gerir en reyna ekki að gleypa allt mögulegt. Við höfum einkaumboð fyrir þau merki sem við þjónum og teljum okkur geta staðið af okkur samkeppni, þótt hún harðni enn. Með tilkomu Smárans í Kópa- vogi má búast við að samkeppni aukist mest í lágverðsvörum en minna í gæðafatnaði og merkjavöru.“B!j Tískan í dag. Að sögn þeirra Sigurjóns og Hákonar eru sniðin „hreinni" nú en veriðhef- ur og meira verður um liti í fylgi- hlutum með vorinu. Ólífugrœnn er vinsœll sem aðallitur þótt hefð- bundnir svartir, gráir og bláir litir haldi velli. Síten^in^ háhraóa lnternet mr siminn.is Nánari upplýsingar i Þjónustuveri Simans, 800 4000 eða á Netinu. S í M 1 N N 74

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.