Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 77
Jón Scheving Tliorsteinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Baugi, hefur verið í sex vikna fœðingarorlofi, á eigin kostnað að tveimurþriðju,
vegna fœðingar sonar stns, Ara, sem nú er orðinn tæþlega ellefu mánaða. Vinnuveitandi Jóns hefurgreitt honum þriðjungs laun og vinnur hann
að heiman í gegnum tölvu og síma þegar sonurinn sefur eða dundar sér. Dóttirin Vera, 4 ára, var á leikskólanum þegar myndin var tekin.
FV-mynd: Geir Ólafsson
- En hvernig tekst þér að sinna barninu, heimilinu og vinnunni
og öllu jafn vel þegar þú ert með svo mörg járn í eldinum?
„Þetta er eitthvað sem þjálíast hjá fólki,“ svarar Jón og kveðst
orðinn vel þjálfaður í því að takast á við mörg verkefni í einu.
„Eg er með Jjölda lítilla verkefna í vinnunni og hef alla tíð ver-
ið. Rekstur heimilis er ekkert ósvipaður því. En ég reyni að
hafa lokað fyrir símann og tölvuna á morgnana og vinna frekar
þegar drengurinn sefur eða dundar sér.“
Bjartsýnn í jafnréttismálum Sviptingar hafa verið í jafnréttis-
málunum á síðustu misserum og ekki er hægt að taka viðtal
við Jón Scheving Thorsteinsson án þess að ræða við hann um
stöðuna í jafnréttismálum þjóðarinnar en hann sat um nokk-
urra ára skeið í Karlanefnd Jafnréttisráðs. Búið er að leggja
Jafnréttisráð niður og hefúr ný stofnun tekið til starfa með að-
setur á Akureyri. I Jafnréttisráði sátu fulltrúar ýmissa hags-
munasamtaka, sérstaklega á vinnumarkaði, og tókust þar á en
í Karlanefndinni voru ekki fulltrúar neinna samtaka, aðeins
áhugamenn um jafnréttismál. Karlanefndin átti því mun hæg-
ara um vik í sínu starfi og gat brugðist við eftir þörfum meðan
starf Jafnréttísráðs var þyngra í vöfum. Karlanefndin segir
hann að hafi því að vissu leytí verið „órólega deildin" í Jafnrétt-
isráði. Karlanefndin var lögð niður um leið og Jafnréttísráð.
Jón er jákvæður og bjartsýnn í jafnréttismálum. Hann telur
að nýir vindar blási um Samtök atvinnulífsins með þeim Ara
Edwald, framkvæmdastjóra SA, og Olafi Stephensen kynning-
arstjóra en Olafúr sat einmitt með Jóni í Karlanefnd um skeið.
Jón bendir á að hjá Baugi séu fleiri konur í stjórnunarstöðum
en nokkru öðru íslensku fyrirtæki og telur að þannig sé fyrir-
tækið að ryðja brautina. Jón vill líka koma á framfæri ánægju
sinni með nýju lögin og hrósa ríkisstjórninni fýrir það „póli-
tíska stórvirki". I lögunum sé í meginatriðum gengið eins langt
og Karlanefndin hafi óskað eftír og það sé frábært. „Með þess-
um lögum erum við íslendingar komnir í fremstu röð í fæðing-
arorlofsmálum. Eg vona að þessi nýju lög hvetji karla til að taka
sér fæðingarorlof, ekki síst karla í stjórnunarstörfum því að
þeir þurfa ekkert síður en aðrir karlar að mynda góð tengsl við
börn sín og stýra þeim vel til manns,“ segir hann.
Sítengdur við vinnuna
„Þegar dóttir okkar fæddist tók ég sex vikna orlof og þegar strákurinn flýtti sér í heiminn fór ég í sex vikna
leyfi. Ég er í launalausu leyfi að tveimur þriðju en fæ þriðjungs launagreiðslu frá vinnuveitanda. í staðinn
er ég sítengdur við vinnuna í gegnum tölvu og síma og vinn þegar sonur minn sefur og dundar sér. Það eru
auðvitað ekki allir í þessari aðstöðu en ég hef viljað nota tækifærið og fylgjast með börnunum."
77