Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 78
VINNUIVIARKAÐUR
80% af heildarlaunum án nokkurs hámarks
Um áramótin komu til framkvæmda lög um fæðingar- og
foreldraorlof, sem tóku gildi í sumar og afnema þau nú
allan mun á rétti fólks eftir því hvort það vinnur hjá hinu
opinbera eða einkaíyrirtækjum. Kostnaður ríkisvaldsins
vegna þessara breytinga nemur um þremur milljörðum króna
á ári og miðast sú tala við árið 2003 þegar breytingarnar verða
komnar að fullu til framkvæmda.
Foreldrar eiga sjálfstæðan rétt til þriggja mánaða hvort
um sig og er sá réttur ekki framseljanlegur. Til viðbótar er
sameiginlegur réttur til þriggja mánaða og má hagræða
honum að vild. Við flölburafæðingar eiga foreldrar rétt á
framlengingu um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.
Réttur föður til fæðingarorlofs eykst smám saman. Þannig
Þannig
Foreldrar áttu rétt á greiðslum lrá Tryggingastofnun ríkis-
ins í fæðingarorlofi, fæðingarsfyrk og fæðingardagpen-
ingum en fæðingardagpeningar féllu niður fyrir þann
tíma sem ekki var nýttur. Móðirin átti rétt á greiðslum í allt að
sex mánuði og faðirinn í tvær vikur. Ef faðirinn nýtti sér ekki
orlofsréttinn féll hann niður.
Fæðingarstyrkurinn nam 33.455 krónum á mánuði og
fullir fæðingardagpeningar 76.917 krónum miðað við fullar
verður hann einn mánuður í byrjun árs 2001, tveir mánuðir
frá og með næsta ári og þrír mánuðir frá og með 1. janúar
2003. Feður öðlast strax rétt til sameiginlegs fæðingaror-
lofs. Þá eiga foreldrar barna undir átta ára aldri rétt á launa-
lausu foreldraorlofi í allt að 13 vikur.
Foreldrar, sem hafa verið samfellt í minnst 25% starfi í sex
mánuði á vinnumarkaði eða eru í námi, eiga rétt á 80 prósent-
um af meðaltali heildarlauna án tillits til þess hve háar tekj-
urnar eru. Fæðingarorlofssjóður, sem er í vörslu Trygginga-
stofnunar, annast greiðslur til foreldra og skal sækja um
greiðslu úr honum sex vikum fyrir áætlaðan fæðingardag.
Sjóðurinn er fjármagnaður með tryggingagjaldi.
var kerfið
vinnustundir eða nám á árinu. Þessar upphæðir eru ekki
tengdar við tekjur og hækka því ekki. Opinberir starfsmenn
fengu hins vegar óskert laun í sex mánuði en engar greiðsl-
ur frá Tryggingastofnun.
Foreldrar, sem nutu óskertra launa í fæðingarorlofi áttu
ekki rétt á greiðslum frá Tryggingastofnun þann tíma sem
launin voru greidd. Atvinnurekanda þurfti að tilkynna um
fæðingaroríof með þriggja vikna fyrirvara.B!]
T í m
inn er ekki afstæður
Tíma- og viðverukerfi Hugar
(Sýnir viðveru og fjarveru starfsmanna svo sem orlof og veikindi
(Reiknar nákvæmlega vinnutíma skv. skilgreindum reiknireglum
(Býr yfir öflugri vaktaskráningu og fjölbreyttri skýrslugerð
(Getur skilað gögnum til flestra launakerfa
(Öflugt tæki til að skrá verkþætti og fylgjast með launakostnaði
(Þrautreynt hjá hundruðum fyrirtækja og stofnana
H U G U R
www.hugur.is TT 540 3000
78