Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 81

Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 81
Yngvi Örn Kristinsson, bankastjóri Bunad- arbanki International S.A., leggur mikið upp úrtilbreytingu í lífinu. „Maður getur ekki gert það sama allt lífið. Það er nauð- synlegt að breyta til því að það lengir lífið og gerir það nieira spennandi. Ég hef það mottó að læra eða leggja stund á eitthvað nýtt á hverju einasta ári." ur alþjóðasinni þeirri niðurstöðu að kaup á banka væri lakari kostur en að stofiia banka. Stofnun banka erlendis felur í sér að fá starfsleyfi, leggja honum til eigið fé, finna húsnæði og koma upp annarri nauðsyn- legri aðstoð eins og símum, tölvum og starfsfólki, sem er eitt það mikilvægasta fyrir nýjan banka,“ svarar Yngvi Örn. „Bankaþjón- usta er fyrst og fremst sala á hugvití." Nýi bankinn verður tíl húsa miðsvæðis í Lúxemborg og þar verður búið að opna dyrnar fýrir viðskiptavinum um miðjan jan- úar. Búist er við að starfsmennirnir verði 15 talsins í upphafi og samkvæmt lauslegum áætlunum verða þeir orðnir 25 eftír tvö ár. Eigið fé bankans verður 18 milljónir evra tíl að byija með en að sjálfsögðu verður því íjármagni komið f ávöxtun og tekið lán til að nýta það svigrúm sem reglur um lágmark eigin l]ár selja. Bankastjórar Bunadarbanld Internatíonal eru tveir, eins og svokölluð „fjögurra augna reglan" í Lúxemborg kveður á um. Yngvi Örn mun starfa við hlið Alf Muhlig, sem einnig er gamal- reyndur úr bankaheiminum og hefur búið lengi í Lúxemborg. Muhlig mun sjá um útlánastarfsemi og rekstur bankans en á verksviði Yngva Arnar verða verðbréfaviðskiptí, sérbankaþjón- usta og fjárstýring. „Þessi regla um tvo bankastjóra tengist því að annar þeirra sé alltaf tíltækur til samskipta við fjármálayfirvöld og opinbera eftírlitsaðila,“ segir Yngvi Örn. Norðurlönd og Eystrasaltsríkin Meginstarfsemi nýja bankans verður á sviði lánastarfsemi og verðbréfaviðskipta. Lánastarf- semin er lyrst og fremst hugsuð fyrir lánastofnanir, sveitarfélög og stærri fýrirtæki og svo kalla verðbréfaviðskiptí oft á lánsfjár- mögnun af ýmsu tagi. „Við þurfum að koma okkur upp við- sldptatengslum hjá öðrum lánastofnunum og þar nýtum við þau sambönd sem Búnaðarbankinn hefur erlendis við öflun lánsfjár. Við nýtum okkur einnig að einhverju leytí þá þekkingu sem Búnaðarbankinn hefur á lánamöguleikum hér heima en bindum ekki útlánastarfsemina við ísland. Hugmyndin er að leita eftir Oármagni og lánum á Norðurlöndunum og hugsanlega líka í Eystrasaltsríkjunum," segir hann. I verðbréfaviðskiptunum mun bankinn einnig Iryggja á við- skiptasamböndum starfsmanna sinna og þeim viðskiptasambönd- um sem Búnaðarbanld Islands hefur og mun móðurbankinn heima á Islandi „beina til okkar viðskiptavinum sem hentar betur að eiga í viðskiptum við bankann í Lúxemborg en bankann hér heima." 81

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.