Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 82
FJARMAL
Búist er við að bankinn verði með 34 milljarða í eignavörslu
um miðjan janúar og að eignaumsýslan fari í 15 milljarða á fyrsta
starfsári.
- En ef við tölum um þig sjálfan, hvenær ákvaðst þú að verða hag-
fræöingur?
„Þegar ég byrjaði í háskóla gat ég ekki ákveðið hvort ég ætl-
aði að læra stærðfræði eða hagfræði þannig að ég lærði hvoru-
tveggja á fyrsta árinu mínu. En svo hugsaði ég mitt ráð. Eg
gerði mér grein fyrir að mér byðust fyrst og fremst kennslu-
störf ef ég lærði stærðfræði því að á þessum tíma var tölvu- og
hugþúnaðariðnaðurinn ekki orðinn jafn öflugur eins og hann
er i dag. Eg ákvað því að verða hagfræðingur. Taldi að það yrði
skemmtilegra og að mér byðust fleiri starfsmöguleikar. Hag-
fræðin hefur líka þann möguleika að blanda saman stærðfræði
og hagfræði og ég gerði það í mínu námi,“ svarar hann.
Yngvi Örn er alinn upp á Sauðárkróki, sonur Kristins
Karlssonar múrara og Huldu Ingibjörgu Pétursdóttur sjúkra-
liða. Yngvi Örn er kvæntur Guðrúnu Höllu Tulinius fram-
haldsskólakennara og eiga þau ijögur börn, 9, 15, 17 og 19
ára. Yngvi Örn flyst utan um áramótin og elsti sonurinn með
honum. Aðrir í ijölskyldunni koma svo þegar skólarnir eru
búnir næsta vor. Guðrún Halla ætlar að leggja stund á fram-
haldsnám og börnin setjast að sjálfsögðu á skólabekk í Lúx-
emborg.
badminton, sund og margt fleira. Hann leggur mikið upp úr til-
breytingu í lífinu og hefur allsérstæða kenningu um það.
„Við höfum ekki verið sauðtrygg einstökum áhugamálum.
Maður getur ekki gert það sama allt lífið. Það er nauðsynlegt að
þreyta til því að það lengir lífið og gerir það meira spennandi. Eg
hef það mottó að læra eða leggja stund á eitthvað nýtt á hverju
einasta ári. Kenning mín er sú að að manni finnist tíminn líða svo
hratt vegna þess að maður er alltaf að gera það sama. Þetta er
eins og hjá börnunum. Ef maður prófar eitthvað nýtt líður tím-
inn hægar. Þess vegna reyni ég að gera eitthvað nýtt á hverju
ári,“ segir hann.
Veiðir, syndir og gengur á fjöll Sem dæmi um nýjung í sínu lífi
nefnir hann svigskíði, sem hann kveðst ekkert hafa kunnað á í
gamla daga og því tekið sig til og lært á. „Svo hef ég reynt að
læra á seglbretti. I ár hef ég verið að læra skriðsund. Svo var það
jeppinn eitt árið, að fara á fjöll á jeppa. Eg er í þadminton tjórum
sinnum í viku, var áður í blaki í mörg ár, svo syndi ég, hleyp og
geng á fjöll, skýt hreindýr, gæsir og rjúpur. Eg held að það sé
ekki svo vitlaust að vinna markvisst að einhverju nýju þvr' að þá
líður tíminn ekki eins hratt,“ segir hann.
- Ertu pólitískur?
„Nei, en ég er markaðssinnaður alþjóðasinni. Eg hef trú á opnum
hagkerfum, frelsi til viðskipta milli landa og markaðslausnum."
MottÓ að fá tilbreytingu Þegar Yngvi Örn er spurður um áhuga-
málin kemur í ljós að hann er mikill áhugamaður um veiðar,
hverju nafni sem þær nefnast, en svo kemur smám saman í ljós
að áhugamálin eru miklu fleiri; göngur og fjallaferðir á jeppa,
- Eins og allir hagfræðingar?
„Þetta eru meginniðurstöður hinnar viðurkenndu hagfræði en
þó að allir hagfræðingar hafi lært þær er ekki þar með sagt að
þeir fylgi þeim.“ H3
I www.airiceland.is
Flugkortið er greiðslu-
og viðskiptakort
ætlað fyrirtækjum í viðskiptum við Flugfélag íslands
Flugferðir
Hótel
Veitingar
Allt að 30% alsláttnr til fíugkortshala
Með Flugkortinu má greiða flugfarseðla með Flugfélagi íslands,
bílaleigubíl, hótelgistingu, mat á veitingastöðum og ýmsa aðra
þjónustu hjá völdum fyrirtækjum í samstarfi við Flugkortið.
Notkun kortsins hefur einnig i för með sér ýmsa sérþjónustu og
fríðindi ásamt því hagræði sem fylgir sundurliðuðu reiknings-
yfirliti sem Flugkortshafa er sent mánaðarlega.
Bílaleiga
1
Fundaraðstaða
BiHHH
Eldsneyti
Uppiýsingar hjá Fyrirtækjaþjónustu
Flugfélags íslands
sími 5703606. Fax 570 3001
Netfang: flugkort@airiceland.is
Umtalsverður sparnaður
Viðskipti með Flugkorti hafa í för með sér allt að 30% afslátt af
viðskiptum við Flugfélag íslands og Flugkortshöfum eru ætíð
tryggð betri kjör hjá samstarfsaöilum en annars staðar, séu
gæðin lögðtil grundvallar.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fyrirtækjaþjónusta
82