Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 90

Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 90
STJÓRNUN Eina varanlega samkeppnisforskotid er hœfileikinn til ab lœra: Hvað lifa fyrir- tæki lengi? Af hverju eru fyrirtæki til og hvað lifa þau lengi? Þessu svar- ar Hollendingurinn Arie de Geus í bók sinni The Living Company: Growth, Learning and Longevity in Business sem vakið hef- ur mikla athygli. Titill bókarinnar út- leggst á íslensku „Hið lifandi fyrir- tæki, vöxtur, lærdómur og langlífi í viðskiptum". De Geus starfaði hjá Royal Dutch/Shell í yfir 38 ár í þremur heimsálfúm og stýrði m.a. deild sem hafði það verkefni að skoða framtíð fyrirtækisins í ljósi olíukreppunnar. Hann var einn forvígismanna frægrar rannsóknar sem fyrirtæki hans gerði á skipulagsheildum og líftíma fyrirtækja. Leit hans að svari við spurningunni um það hvort það væri líf fyrir Shell eft- ir olíuna leiddi til ennþá stærri spurningar: Hvað eru fyrirtæki í raun og veru - og af hverju eru þau til og hvað lifa þau lengi? Líftími margra fyrirtækja stuttur Umfangsmiklar rann sóknir á líftíma fyrirtækja í Japan og Evrópu hafa leitt í ljós að LeitArie de Geus að svari við pví kvortpað vœri líffyrir Shell eftir olí- una leiddi til ennpá stærri spurning- ar: Hvað eru fyrirtæki í raun og veru? Afhverju eru pau til og hvað lifa pau lengi? Effir Gylfa Dalmann Aðalsteinsson Myndir. Geir Ólafsson meðalævilengd fyrirtækja er aðeins 12.5 ár, óháð stærð þeirra. De Geus komst að því að jafnvel stór, alþjóðleg fyrirtæki deyja frekar ung - ekki minna en þriðjungur fyrirtækja á Fortune 500 listanum árið 1970 var horfinn árið 1983. Meðallíftími fyrir- tækja á Fortune 500 listanum er á milli 40 og 50 ár. Hér er að mestu leyti um að ræða meðalstór fyrirtæki sem þegar hafa lifað af fyrstu tíu árin, en á því tímabili deyja mörg fyrirtæki. I sumum löndum lifa allt að 40% nýstofnaðra fyrirtækja skemur en 10 ár. Þrátt fyrir að flest fyrirtæki virðist ekki lifa nema í um hálfa öld eru til fyrirtæki sem hafa bókstaflega lifað af aldaraðir breytinga. Sænska fyrirtækið Stora, sem hóf starfsemi sína við námuvinnslu á kopar og framleiðir í dag m.a. pappír og trjákvoðu, er um 700 ára gamalt. Elstu rituðu heimildir um þetta fyrirtæki eru frá árinu 1288. Bandaríska fyrirtækið DuPont, sem er yfir 200 ára Helsta ástœða þess að mörg fyrirtæki deyja ung er sam- kvœmt de Geus sú að stjórnendur þeirra eru ofuþþ- teknir við efnahagsleg- ar hliðar mála.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.