Frjáls verslun - 01.11.2000, Qupperneq 91
Einkenni svokallaðra
„lifandi fyrirtækja" er
áhersla á mannauð og
þekkingarsköpun.
Greinarhöfundur, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, er þjálfari hjá Stjórnendaþjálfuninni, sem er hluti af IMG-hópnum.
gamalt, hóf starfsemi sína með framleiðslu á byssupúðri en
stundar í dag í allt aðra starfsemi.
Samkvæmt Arie de Geus skera langlíf íyrirtæki,eins og
Stora og DuPont, sig úr vegna þess að þau hafa tilfinningu og
næmni gagnvart umhverfinu sem þau lifa í og búa yfir hæfileik-
anum til að laga sig að breyttum aðstæðum. Þessi fyrirtæki eru
lifandi - þau þróast stöðugt og aðlagast umhverfinu og oftar en
ekki hafa þau færst langt frá upprunalegri starfsemi sinni.
Tvenns konar fyrirtæki Helsta ástæða þess að mörg fyrir-
tæki deyja ung er samkvæmt de Geus sú að stjórnendur
þeirra eru of uppteknir við efnahagslegar hliðar mála. Litið er
á fyrirtækin sem efnahagslegar einingar, eða nokkurs konar
hagnaðarvél, þar sem megináherslan er á framleiðslu vöru
og veitingu góðrar þjónustu. Þessi fyrirtæki skorti hæfileik-
ann til að læra og eigi því erfitt með að aðlagast og þróast í
takt við breytingar í umhverfinu.
Einkenni svokallaðra „lifandi fyrirtækja“ á hinn bóginn er
áherslan á mannauðinn og þekkingarsköpun. Þau sinna raun-
verulega hlutverki sínu, þ.e. samfélagi starfsmanna, og eru
stöðugt að bæta sig og laga sig að breytilegu umhverfi. Þau eru
í takt við umhverfi sitt og þannig vaxa þau og dafna og verða
eins öflug og þau ætla sér. Lifandi fyrirtæki má að vissu leyti
líkja við lífverur. Markmið þeirra er að lifa af og vera varanleg
og stöðug. Meðlimir samfélagsins, eða fyrirtækisins, hafa
sterka sameiginlega skírskotun og þar ríkir mikil samheldni.
Spurningin sem de Geus veltir upp og svarar í bókinni er
sú hvort fyrirtæki þurfi endilega að lifa lengi. Hann svarar
þessari spurningu játandi því samkvæmt honum er það í eðli
fyrirtækja, líkt og lífvera, að halda sér gangandi. Ef litið sé á
fyrirtæki sem lífræna heild þá búi það yfir samfélagi starfs-
manna sem sé óijúfanlegur hluti heildarinnar. Þetta samfélag
skapi fyrirtækinu sterkan vilja til að lifa áífam. Það að fyrir-
tæki deyi hafi alvarleg og djúp áhrif á marga þætti: Vinnulíf
einstaklinga, samfélagið og efnahaginn.
Að lifa af sem fyrirtæki Það eru einkum þrjú atriði sem hafa
áhrif á þróun fyrirtækja og möguleika þeirra til að lifa af og ná
samkeppnisforskoti. í fyrsta lagi verður að skapa einstakling-
um möguleika og skilyrði til nýsköpunar til þess að þeir þrói
með sér nýja hæfni og hagnýti sér umhverfið á nýjan hátt. Við
höfum tilhneigingu til að sjá aðeins það sem við höfum þegar
upplifað. „Það sem mannshugurinn hefur ekki reynt áður,
eða þreifað á, getur hann ekki séð,“ segir Arie de Geus og
Langlíf fyrirtæki
Langlíf fyrirtæki stunda íhaldssama fjármálastefnu. Þau taka frekar áhættu með eigið fjármagn heldur en
með lánsfé. Þannig geta þau sjálf stjórnað vexti, framrás og þróun fyrirtækisins en ekki þriðji aðili.
91