Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 96
FÓLK
Andrés Pétur Rúnarsson rekurfasteignasöluna Eign.is. Ahugamálin eru
næg, líkamsrœkt, stjórnmál og útivist um landið.
kom heim frá námi. „Ég fór í
FB, lauk þaðan verslunarprófi
og starfaði síðan hjá Tölvu-
þjónustu Kópavogs hf. og
Bæjarfógetanum í Kópavogi.
Eftir það stofnaði ég mína
fyrstu fasteignasölu, Kaup-
miðlun hf., og starfrækti í tvö
ár en seldi hana þegar ég
ákvað að fara utan til náms.
Ég fór þá til Edinborgar og
hóf nám í viðskiptum en kom
síðan heim og tók við starfi
hjá EYC, samtökum ungra
hægrimanna í Evrópu, ásamt
þvi að reka kaffihús í mið-
borginni. Hjá EYC var ég
framkvæmdastjóri. Ég ferðað-
ist töluvert í tengslum við
starfið og hitti margt
skemmtilegt fólk frá flestum
Evrópuþjóðum, m.a.
Thatcher og Heath, bæði fyrr-
um forsætisráðherrar Bret-
lands. Ég man hvað Thatcher
var hrifinn af íslenska þjóð-
búningnum sem ég var
klæddur.
Meginmarkmiðið þessara
unnar Eign.is, þar sem hann
sá mikla möguleika á Netinu
varðandi fasteignasölu og
áhuginn lá þar að mestu. „Að
vísu er Fasteignablað Morgun-
blaðsins svo sterkt að ekki er
unnt að stunda sölu einungis á
Netinu og þvi er nauðsynlegt
að auglýsa þar. Það er synd að
fasteignasalar, eða Félag fast-
eignasala, gefi ekki út sitt eigið
blað, td. hálfsmánaðarlega.“
Andrés segist ekki hafa
mikinn tíma aflögu en, að
vísu hafi það þó skánað eftir
að hann flutti í húsið sitt eftir
fimm mánaða kvöld- og helg-
arvinnu við innréttingu þess.
Andrés segist þó þrisvar til
ijórum sinnum í viku stunda
líkamsrækt, í Hreyfingu í
Faxafeni. Hann er formaður
Félags sjálfstæðismanna í
Langholtshverfi og í stjórn
fulltrúaráðs flokksins. Þá hef-
ur hann gaman af því að vera
með vinum sínum, „við borð-
um gjarnan saman og förum
stundum í ferðalög og lax-
Andrés Pétur Rúnarsson, Eign.is
Efdr Vigdísi Stefánsdóttur
Andrés Pétur Rúnarsson
rekur fasteignasöluna
Eign.is sem staðsett er í
„Bláu húsunum" við Suður-
landsbraut. „Það er ljóst að
Netið verður meira notað við
fasteignasölu í framtíðinni en
verið hefur,“ segir Andrés.
„Nafninu Eign.is er ætlað að
vekja athygli og sýna fram á
tengslin við Netið. Auk þess
er nafnið sterkt, stutt og auð-
velt að muna það. Eign.is hef-
ur nýlega opnað nýjan vef þar
sem sjá má hundruð mynda
og sjónvarpsauglýsingar frá
fasteignasölunni, en við vor-
um iyrstir til að birta leikna
sjónvarpsauglýsingu sem
hægt er að skoða á Eign.is. Á
vef okkar má einnig sjá strax
á mánudagsmorgni fasteigna-
auglýsingar sem birtast í
Morgunblaðinu á þriðjudegi."
Þar er einnig boðið upp á net-
áskrift, upplýsingar fyrir
kaupendur og seljendur, fast-
eignaleit og auk þess getur
fólk skráð eignir sínar til sölu
og fengið gróft verðmat. Þar
er einnig að finna fleiri nýj-
ungar sem Andrés segir
nauðsynlegar til að halda
áhuga kaupenda vakandi og
veita góða þjónustu.
Eign.is er ungt og framsæk-
ið fyrirtæki en hjá því starfa nú
fimm manns og að sögn Andr-
ésar hefur það gengið mjög vel
að undanförnu, enda tæpast
komið sú eign á sölu sem ekki
hafi selst fljótt
Andrés er fæddur árið
1971 og alinn upp í Borgar-
nesi til 10 ára aldurs en þá
flutti hann tíl Reykjavíkur, í
Heimana, og er auðvitað mik-
ill Þróttari; spilaði með þeim á
yngri árum, en hann fluttí aft-
ur í sama hverfi eftír að hann
samtaka var að kenna og
hjálpa ungum hægrisamtök-
um í Austur-Evrópu að fóta
sig í nýfengnu sjálfstæði,
m.a. að leiðbeina þeim um
það hvernig reka eigi lýðræð-
islega kosningabaráttu og
fleira sem tilheyrir starfi
stjórnmálahreyfinga. Annað
verkefni EYC var að kynna
viðhorf til stjórnmála í aðild-
arlöndunum."
Eftír að starfinu hjá EYC,
sem Andrés stundaði í tvö ár,
lauk fór hann fljótlega að vinna
aftur við fasteignasölu, fyrst á
fasteignamiðluninni Berg og
síðar hjá Bifröst. „Ég hafði
alltaf áhuga á að stofna aftur
eigin fasteignasölu og ákvað
því að hefja nám tíl að fá lög-
gildingu sem fasteignasali."
Hann tók löggildingarpróf í
Háskóla íslands og við lok
námsins tók hann að leggja
drög að stofnun fasteignasöl-
veiði. Annars er ég talsverður
spennufíkill og hef gaman af
því að fá útrás á „leiktækjun-
um“ mínum,“ segir hann. Þau
eru mótorkross hjól og
vélsleði, sem geymd eru í
sumarbústað ijölskyldunnar í
Borgarfirði, en þangað segist
hann oft fara, bæði sumar og
vetur. „Þar er yndislegt að
vera í kolniðamyrkri á vet-
urna, liggja í pottinum og
horfa á stjörnurnar og hafa
gaman af. Svo ferðast ég tals-
vert um landið og nýt nátt-
úrufegurðarinnar sem svo
víða finnst hér á landi, sem
betur fer. Mest fer ég þó í
Borgarijörðinn, enda ættaður
þaðan. Þar er að finna þver-
skurð af landinu, svo sem
bergvatnsár, jökulár, veiði-
vötn, hraun og hella. Svo er
þar líka undirlendi og grösug-
ir dalir og allt er héraðið girt
fögrum ijallahring.“ S5
96