Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 97

Frjáls verslun - 01.11.2000, Page 97
Eftir Vigdísi Stefónsdóttur Asgeir Johansen er fram- kvæmdastjóri Rolf Jo- hansen & Company ehf. sem er einn stærsti umboðsað- ili hér á landi fyrir tóbak og áfengi. „Við höfum breytt nokkuð um stefnu að undan- förnu og seldum frá okkur bæði snyrtivöru- og matvöru- deildirnar til að geta einbeitt okkur að því að byggja upp víndeildina,“ segirÁsgeir. „Nú erum við með vín frá nánast öllum heimshornum og leggj- um sérstaka áherslu á að þjóna veitingahúsunum vel. Við höf- um bætt við okkur umboðum og markmiðið er að vera fyrsti valkostur veitingahúsa þegar þau leita eftir samstarfsaðila varðandi áfengi og tóbak en um leið að vera með gott úrval til sölu í áfengisverslunum ÁTVR hverju sinni.“ Ásgeir segir áherslu fólks hafa breyst nokkuð þegar vín sé annars vegar. Frönsk, ítölsk og spænsk vín hafi ekki lengur sömu yfirburði og áður. „Eftir að innflutningur áfengis var gefinn frjáls í árslok 1995 hefur víntegundum fjiilgað gífurlega hér á landi og fólk hefur sýnt áhuga á því að prófa tegundir frá „nýja heiminum", þ.e. frá Ástralíu, Kaliforníu, Suður-Afr- íku og Suður-Ameríku, svo nokkuð sé nefnL Þegar fólk áttaði sig á því að það gat feng- ið sambærileg gæði frá þess- um nýju svæðum jókst salan á tegundum þaðan,“ segir hann. ,Annars seljum við áfengi af öllum tegundum, s.s. vodka, gin, romm, freyðivín, kampa- vín, koníak, armaníak, líkjöra, bjór, o.s.frv. „Ég spái því til dæmis að vodkinn okkar, Iceberg, sem er frá Kanada, slái í gegn á næstunni því hann hefur gæðin til þess og hefur farið sigurför þar sem hann hefur verið kynntur." Ásgeir er fæddur og uppal- inn í Laugarásnum, yngstur, ásamt tvíburasystur sinni, sex systkina en hin eru Agnes, Thulin, Svava, Berglind og Kristín. „Það var gott að alast upp í Laugarásnum og oft mikið ijör heima hjá okkur með alla þessa krakka," segir hann. „Ég fór snemma að stunda íþróttir og hef verið viðloðandi þær nokkrar. Spil- aði fótbolta með Þrótti frá sex ára aldri en handbolta með Þrótti og Ármanni til skiptis. Við vorum nokkrir sem flökk- uðum á milli félaga, svona eftir því hvar best var að vera hverju sinni. Svo prófaði ég körfúbolta hjá IR og stundaði hann um tfrna. Þar fyrir utan hef ég stundað keilu mér til ánægju, byijaði á því þegar Keiluhöllin í Öskjuhlíðinni opnaði. Ég álpaðist þar inn á Reykjavíkurmót þegar ég var 15 eða 16 ára og lenti í 2. sæti. Mér þótti gaman að þessu sporti en myndi varla ná nein- um árangri í dag, held ég. Ég hef líka keppt í snóker, í 2. deild, og hef mjög gaman af þeirri íþrótt án þess þó að kunna mikið fyrir mér.“ % M&á ; > Ásgeir Johansen, framkvœmdastjóri Rolf Johansen & Comþany ehf, „Það vargott að alast uþþ í Laugarásnum. “ FV-mynd: Geir Olafsson flsgeir Johansen, Rolf Johansen & Company Ásgeir fór í Verzlunarskól- ann eftir grunnskólanám og þaðan til Bandaríkjanna. Hann ætlaði í University of North- Carolina við Chapel Hill en komst að því þegar hann sótti um að hann vantaði svonefnt SAT próf. Sú sem sá um inn- ritunina taldi hann á að sækja um í Guilford College í Norður-Karólínufylki og koma svo aftur að lokinni einni önn svo fremi að hann næði tilskilinni einkunn. Ás- geir náði henni en ákvað að vera um kyrrt þar sem hann kunni ljómandi vel við sig í þessum litla skóla. Þá hafði hann kynnst þar eiginkonu sinni, hinni japönsku Aki Is- hise-Johansen. Þau eiga í dag þijú börn og von á því fjórða innan skamms. Eftir skólann vann Ásgeir í eitt ár hjá RJ. Reynolds Tobacco Company þar sem hann kynntist m.a. því að vera sölumaður og ferðast um hæðir Karolínu- og Virginiu- ríkja og svo því að vinna á dreifingardeildinni í höfuð- stöðvum fyrirtækisins þar sem hann segist hafa lært margt nýtt og nýtilegt sem komið hafi sér vel heima. „Helstu áhugamál mín nú eru heima við, þ.e. börnin mín og kona,“ segirÁsgeir. „En ég hef líka áhuga á því að horfa á fótbolta, er „köttari“ og „pool- ari“. Ég hef því miður ekki komist á eins marga leiki og ég hefði óskað hjá Þrótti en bæti það upp með því að horfa á Iiverpool í sjónvarpinu sem og á ameríska fótboltann sem ég hef einnig gaman af.“ Þar fyrir utan stundar Ásgeir golf eftir því sem tími vinnst til, „á einum af skemmtilegustu golfvöllum landsins, hjá golf- klúbbnum Oddi.“ Hann segist þó hafa allt of lítinn tíma til að sinna áhugamálum sínum því fjölskyldan gangi fyrir öllu öðru. Ferðalög eru ekki á áhugalistanum þvi þau eru svo mörg og tíð í sambandi við vinnuna. „Ég hef það sem ákveðna reglu að vinna ekki um helg- ar þvi sá tími er helgaður íjöl- skyldunni. Við búum í Garðabænum og það er hreint frábært hvað vel er stutt við ijölskyldur með börn þar. Bæjarstjórnin þar á mikið lof skilið fyrir frammi- stöðu sína,“ segir hann. S3 97

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.