Helgarpósturinn - 03.10.1994, Side 2
2
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
Breiðadalsheiði
pöddufullur
Aðfaranótt laugardagsins varð
bílvelta á Breiðadalsheiði. Öku-
maður bílsins slapp lítt meiddur en
farartæki hans er talið ónýtt. Öku-
maðurinn var að eigin sögn að
koma úr gleðskap sem fram fór að
Holti í Önundarfirði og sagði við
lögreglumenn sem komu á vett-
vang að hann hefði verið pöddu-
fullur. Lögreglan á ísafirði sagðist
ekki hafa haft neina ástæðu til að
rengja það. ■
Dalvík
Þrírtékka-
falsarar
gripnir
Þrír ávísanafalsarar voru gripnir
glóðvolgir á Dalvík um helgina.
Lögreglunni á Dalvík hafði borist
spurnir af ferð misindismannanna
en þeir hafa undanfarna daga verið
á ferð um landið, svikið og prettað
og skilið eftir sig slóð falsaðra ávís-
ana. Falsararnir voru færðir til Ak-
ureyrar og þar látnir gista fanga-
geymslur. Þess ber að geta að um-
ræddir menn eru ekki norðan-
menn. Einn er Isfirðingur en hinir
úr Hafnarfirði. ■
Akureyri
Hlupuaf
wmKBSSm
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur alfarið tekið yfir rannsóknina á hvarfi Valgeirs
Víðissonar en stjórnendur hennar eru sannfærðir um að hann hafi verið myrtur
Lögreglan hefur að undanförnu leítað liks Valgeirs
Vlðíssonar á Esjubergssvæðínu f nágrennf malar-
náms Steypustöðvarinnar í Kollafirði. Eindregnar
vísbendingar hafa borist um að þar sé Ifkið að
finna. Leitinni er einkum beint að Gljúfurdal sem
örin vísar á. V
'
■
; .
r:
w...
.4. X',
'V:
Erilsamt var hjá lögreglunni á
Akureyri um helgina enda mikið
fyllerí í bænum, sérstaklega á föstu-
dagskvöld. Þá voru meðal annars
Qórir fluttir á slysadeild, tveir eftir
átök og tveir eftir að hafa orðið
fótaskortur sökum ölvunar. Síðla
aðfaranótt laugardags varð það
óhapp að bíl var ekið á vegg við
Kaupvangsstræti. Fjórir ungir pilt-
ar, farþegar í bílnum, hlupu á brott
en lögreglan náði þeim skammt frá
slysstað og færði þá í fangelsi grun-
aða um ölvun. ■
Vestmannaeyjar
Stálu bát
og sigldu
um hofnina
Helgin var með rólegra móti í
Vestmannaeyjum að sögn lögreglu
staðarins. Það bar helst til tíðinda
að aðfaranótt sunnudags var brotin
rúða í Vélskólanum. Um morgun-
inn tóku síðan nokkrir góðglaðir
Eyjapeyjar slöngubát ófrjálsri hendi
og sigldu um höfnina. Ekki olli það
upptæki þó miklum vandræðum
því piltarnir skiluðu sér sjálfir í
land. ■
Þrír liggja undir grun
Famarhafa veríð nokkrarferðirmeð sporhunda til að ieita líks Valgeirs Víðissonará Esjubergssvæðinu í Kollafirði.
Miðlar hafa einnig verið fengnir á staðinn. Þrír menn eru gmnaðir um að hafa myrt hann en athyglin beinist þó eink-
um að einum þeirra.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur í nokkurn tíma unnið út frá
þeirri kenningu að Valgeir Víðisson,
sem hvarf sporlaust frá heimili sínu
19. júní síðastliðinn, hafi verið
myrtur. Aðrar hugsanlegar skýring-
ar hafa nánast verið útilokaðar.
Vísbendingar hafa borist um að lík
hans kunni að vera að finna í ná-
munda við malarnám Steypustöðv-
arinnar hf. í Kollafirði, nánar tiltek-
ið í Gljúfurdal á svokölluðu Esju-
bergssvæði. Þrír menn liggja undir
grun lögreglunnar um að hafa vera
valdir að dauða Valgeirs en þó
beinist rannsóknin einkum að ein-
um þeirra. MORGUNPÓSTURINN
fékk þessar upplýsingar staðfestar
hjá heimildarmanni innan lögregl-
unnar.
RLR tók alfarið yfir rannsókn
málsins 19. september, þremur
mánuðum eftir hvarfið, að sögn
Valgeir
hvarf
sporlaust frá
heimili sínu 19.
júní síðastlið-
inn. Lög-
reglan telur
nánast fullvíst
að hann hafi
verið myrtur og
liggja þrír menn
undir grun um að
hafa verið valdir
að dauða hans.
Jónasar Jóns Hallssonar, varðstjóra
hjá Lögreglunni í Reykjavík. Opin-
berlega er þó ástæðan ekki sú að
morðrannsókn sé hafin. Talsmenn
lögreglunnar fullyrða að enn sé litið
svo á að um mannshvarf sé að ræða
en ekki morðmál. Það mun fyrst og
fremst verið gert til að tryggja
vinnufrið við rannsóknina. Jónas
segir að ríkissaksóknari hafi sett þá
vinnureglu í mannhvarfsmálum
fyrir tveimur árum að RLR taki við
rannsókn af lögregluyfirvöldum á
hverjum stað þremur mánuðum
eftir að síðast spurðist til viðkom-
andi.
Þeir, sem hafa forræði rannsókn-
arinnar hjá RLR í sínum höndum,
verjast allra frétta af gangi mála.
„Ég hef ekkert um málið að segja,“
sagði Jón H. Snorrason, sem stjórn-
ar rannsókninni ásamt Sigurbirni
Víði Eggertssyni, þegar borið var
undir hann hvort lögreglan leitaði
líks Valgeirs á Esjubergssvæðinu.
Þrír heimildarmenn blaðsins,
sem þekkja tii rannsóknarinnar,
auk heimildarnianns innan lögregl-
unnar fullyrða hins vegar að gengið
sé út frá þeirri kenningu að Valgeir
hafi verið myrtur og farnar hafi
verið ferðir með sporhunda á
svæðið. Lögreglan hafi fengið ein-
dregnar vísbendingar um að líkið
sé að finna þar sem enn hafi ekki
tekist að hrekja. Leitin hefur þó
engan árangur borið enn sem kom-
ið er.
Mennirnir þrír, sem grunaðir
eru um verknaðinn, hafa verið
undir smásjánni í nokkurn tíma.
Eins og staða rannsóknarinnar er í
dag er ekki litið svo á að sá eða þeir
sem voru að verki hafi ætlað sér að
myrða Valgeir heldur hafi átt að
lumbra á honum, en með þeim af-
leiðingum að hann hafi látist.
Ættingjar Valgeirs hafa leitað til
nokkurra miðla í þeirri von að þeir
gætu veitt einhverjar upplýsingar
um hvarf hans. Einn þeirra sagði í
samtali við MORGUNPÓSTINN að
annar miðill hafi farið á Esjubergs-
svæðið í fylgd lögreglunnar en vissi
ekki hvort það hefði einhvern ár-
angur borið. Heimildarmaðurinn
innan lögreglunnar sagði að einn
miðill hafi bent á svæðið en fleiri
eindregnar vísbendingar hafi einn-
ig borist. Mun hann einnig hafa lýst
barsmíðum sem leitt hafi til dauða
Valgeirs.
Jón H. Snorrason vísaði því hins
vegar á bug að lögreglan hafi leitað
aðstoðar miðla við rannsóknina.
„Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
aldrei, hvorki fyrr né síðar, leitað til
miðla,“ sagði Jón. „Það hefur aldrei
gerst og hefur enga þýðingu fyrir
rannsókn mála. Svo mikið get ég
sagt þér.“ I þessu svari felst þó ekki
neitun á því að miðill hafi farið í
Kollafjörðinn í fylgd lögrglumanna
þótt frumkvæðið að því hafi komið
frá fjölskyldu Valgeirs. -sg/pj
Uppsagnarjeppinn hans Ásmundar. „Verðmætamat þeirra Víkur-
fréttamanna á jeppanum er út í bláinn en það er aukaatriði. Þetta sýnir
að menn, sem hafa verið í starfi eins og ég var áður í, geta átt í erfið-
leikum með að koma sér fyrir á nýjum vinnustað um leið og það getur
skapað erfiðleika fyrir þeirra vinnuveitendur.“
Jeppinn hans Ásmundar
Samsvarar árslaunum
Skömmu fyrir mánaðamótin síð-
ustu kom Ásmundur Stefánsson,
framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs
íslandsbanka og fyrrverandi forseti
Alþýðusambands Islands, ásamt
starfsmannastjóra bankans í útibú-
ið í Keflavík. Tilefni heimsóknar-
innar var sú ákvörðun að segja upp
níu manns við bankann sem mann-
að höfðu fimm stöðugildi. Að sögn
Jóns Ólafs Jónssonar, trúnaðar-
manns starfsmanna, hafði þetta
vofað yfir um skeið.
Margt við uppsögnina hefur vak-
ið reiði rneðal Suðurnesjamanna og
heyrast nú óstaðfestar fréttir um að
mörg fyrirtæki og einstaklingar séu
að draga sig úr viðskiptum við
bankann. Til dæniis gerði Suður-
nesjablaðið Víkurfréttir það að um-
talsefni að jeppabifreið sú sem Ás-
mundur mætti á hafi að verðgildi
jafngilt árslaunum allra þeirra
starfsmanna sem sagt var upp.
Um þetta sagði Ásmundur að
það væri alltaf erfitt hlutskipti
-óháð bakgrunni nranna - að segja
upp fólki. Um jeppabifreiðina sagði
hann: „Verðmætamat þeirra Vík-
urfréttamanna á jeppanum er út í
bláinn en það er aukaatriði. Þetta
sýnir að menn, sem hafa verið í
starfi eins og ég var áður í, geta átt í
erfiðleikum nieð að koma sér fyrir
á nýjum vinnustað um leið og það
getur skapað vandkvæði fyrir þeirra
vinnuveitendur. Það virðist ósköp
einfaldlega vera skoðun ýmissa að
menn sem hafa verið í starfi eins og
ég var áður í eigi ekki að vera í starfi
eins og ég er í í dag.“
Einnig sagðist Ásmundur telja að
þeirrasem
ems mannúðlega hefði verið staðið
að uppsögnunum og unnt væri.
Öllum sem sagt hefði verið upp
hefði verið boðið nýtt starf í útibú-
um bankans á höfuðborgarsvæðinu
og gat hann þess að einn starfsmað-
ur hefði þegar tekið því. Einnig
hefði mönnum verið gefinn hálfs-
mánaðar umhugunarfrestur til að
ákveða tilflutning. „Ég tel mikinn
grundvallarmun vera á því hvort
fólki er bara sagt upp eða því boðin
vinna annars staðar. Þetta mál á sér
langan aðdraganda. Það hefur verið
verið óumdeilt í útibúinu að þar
þurfi að fækka fólki og það hefur
legið fyrir lengi að það nryndi ger-
ast.“
Starfsmenn hafa bent á að ekkert
tillit var tekið til starfsaldurs þeirra
við uppsagnirnar og liöfðu meðal
hann rak
annars þrír þeirra starfað í yfir 20 ár
hjá íslandsbanka og forrverum
hans. Elsti starfsmaðurinn sem fékk
uppsagnarbréf var 68 ára gömul
kona sern hafði unnið í yfir 25 ár hjá
bankanum. Að sögn Jóns hafði hún
samþykkt í fyrra að fara í 50% starf
sem gerir það að verkum að hennar
bíður aðeins 50% af atvinnuleysis-
bótum.
En einnig hafa yfirlýsingar úti-
bússtjórans, Eiríks Alexanders-
sonar, um að enginn hafi hætt í
bankanum eftir sameiningu, vakið
undrun starfsmanna. Þetta hefur
Eiríkur látið hafa eftir sér í Morgun-
blaðinu og DVen að sögn Jóns Ól-
afs hafa á milli átta og tíu starfs-
menn hætt síðan bankarnir sam-
einuðust.
-SMJ