Helgarpósturinn - 03.10.1994, Page 11

Helgarpósturinn - 03.10.1994, Page 11
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 11 Tillögu um afsögn Guðmundar Árna vísað frá Stóðaf sér Á flokkstjórnarfundi Alþýðu- flokksins á Hótel Loftleiðum í gær var tillögu, um að Guðmundur Árni Stefánsson segði af varafor- mennsku og ráðherradóm, vísað frá með miklum mun. Tillagan var borin upp af stjórnarmönnum í Fé- lagi frjálslyndra jafnaðarmanna, auk fjögurra stjórnarmanna í Al- þýðuflokksfélagi Reykjavíkur og formanni Félags ungra jafnaðar- manna í Reykjavík. Formaður flokksins, Jón Baldvin Hanni- balsson, lagði hins vegar til að til- lögunni yrði vísað frá þar sem þing- flokkurinn hefði gefið út yfirlýs- ingu og því væri tillagan ótímabær. Leynileg kosning var um frávísun- artillöguna og var hún samþykkt með 67 atkvæðum gegn 13. Tveir seðlar voru auðir eða ógildir. „Það er verið að fresta því að taka afstöðu í málinu. Við teljum að öll efnisatriði sem skipta máli séu fram komin og vildum því taka afstöðu strax. Hins vegar var það niður- staða flokkstjórnar að fá frekari upplýsingar frá óháðum aðila, Rík- isendurskoðun. Það er þeirra réttur og við höfum ekkert við það að at- huga þó við séum ósammála,“ segir Margrét S. Björnsdóttir, formað- ur FFJ, en hún mælti fyrir tillög- unni á fundinum. Hún sagði að nú myndu þau bíða eftir niðurstöðum Ríkisendurskoðunar og ekki hefði verið rætt hvert framhaldið yrði. Þessi niðurstaða kom okkur ekki á óvart. Við vissum það fyrirfram að flokkstjórnin myndi samþykkja til- lögu þingflokksins. Við vorum henni bara ósammála og vildum vera sjálfum okkur samkvæm.“ Jón Baldvin tilkynnti í upphafi fundar að hann myndi bera fram frávísunartillögu ef tillagan um af- sögn yrði borin upp. Margrét segir það ekki skipta máli því að í kosn- ingu um frávísunina hafi menn í raun verið að greiða atkvæði um efnisatriði málsins. Guðmundur Árni sagði eftir fundinn að þetta væri sigur fyrir sig og komið hefði í ljós að andstöðuhópurinn væri fá- mennur en hávær. 1 tillögunni segir: Flokkstjórnar- una fundur Alþýðuflokksins skorar á Guðmund Árna Stefánsson að segja af sér embætti varaformanns flokksins svo og ráðherrastöðu sinni. Með slíkri ákvörðun setti Guð- mundur Árni hagsmuni flokksins í öndvegi. Það er mat flokkstjórnar að Guðmundur Árni styrki stöðu sína í íslenskum stjórnmálum til lengri tíma með því að axla ábyrgð á þeirri atburðarás sem valdið hefur trúnaðarbresti innan Alþýðu- flokksins. Undir þessa tillögu skrifa Margr- ét S. Björnsdóttir, Ágúst Einars- son, Hildur kjartansdóttir, Vil- hjálmur Þorsteinsson og Örn Karlsson sem öll sitja í stjórn Fé- lags frjálslyndra jafnaðarmanna, Gunnar Ingi Gunnarsson, Hulda Kristinsdóttir, Jónas Þór Jónas- son og Rúnar Geirmundsson í stjórn Alþýðuflokksfélags Reykja- víkur og Bolli Valgarðsson, for- maður Félags ungra jafnaðar- manna í Reykjavík. Fyrir utan þá sem skrifuðu undir tillöguna hafa því aðeins þrír greitt atkvæði gegn frávísun formannsins. -pj l\. flokksstjórnarfundi Alþýðuflokks- ins í gær var ýmislegt sagt sem flokka má undir öfugmæli og annað látið ósagt sem skar í eyru. Til að skilja full- komlega hvað fram fór þurftu fundar- menn því að lesa milli linanna og beita skynfærunum til hins ítrasta. Þá flugu margar skemmtilegar sögur á göngun- um yfir kaffibolla. að fyrsta sem vakti athygli blaða- manna, þegar þeir skimuðu yfir salinn, var sú staðreynd að þeir fáu stólar, sem ekki voru setnir, voru í námunda við liðsmenn Félags frjálslyndra jafnaðar- manna. Krati, sem rætt var við, sagði skýringuna augljósa - þeir sem ekki vildu láta kenna sig við þá, sem báru upp tillöguna um að Guðmundi Árna Stefánssyni bæri að segja af sér, héldu sig í hæfilegri fjariægð frá þeim frjáls- lyndu... Gu Guðmundur Arni Stefánsson Greiðir atkvæði með frávísun á tillögu um að honum beri að segja af sér. í humátt á eftir hon- um er bróðir hans, Gunnlaugur Stefánsson, sem barist hefur eins og herforingj við hlið Guðmundar. r uðmundur Árni lét fréttamenn heyra það í upphafi framsöguræðu sinnar, án þess þó að segja nokkurt styggðaryrði um þá. Ráðherrann sagði það til marks um að kratar hefðu ekk- ert að fela að fundurinn væri opinn fjölmiðlum. Hann sætti sig hins vegar greinilega illa við að fréttamennirnir skyldu raða sér á fremsta bekk. Hann sagði eitthvað á þá leið - og horfði hátt yfir fréttamennina eins og hann sæi þá ekki - að honum þætti athyglisvert í ljósi undangenginnar atburðarásar að fjölmiðiamennirnir sætu fremst en kærum flokksfélögum væri raðað þar fyrir aftan. Varla þarf að skýra þessi ummæli... Ctudmundur Árni mismælti sig á neyðarlegan hátt án þess að taka eftir þvi sjálfur þegar hann var að ræða um greinargerð sína og þá ákvörðun þing- flokksins að fá Ríkisendurskoðun til þess að gera úttekt á embættisfærslum hans og Jóns Baidvins. Hann sagði að þeir menn, sem kölluðu slikt kattar- þvott, ættu að sýna sama hugrekkið. Síðan kom þetta, nokkurn veginn orð- rétt: „Ég treysti því að þeir stjórnmála- menn sem halda slíku fram gangist undir svipaðan kattarþvott og ég.“ Af þessum ummælum að dæma þá þykir ráðherranum sjálfum varla rnikið til þess koma sem hann hefur gert til að hreinsa sjálfan sig af ávirðingunum... rfnast nánari skýringa CFJ fram skýrslu þarsem sjö embættisfærslur GuðmundarÁma eru harkalega gagnrýndar. lögfræðings segir að eftir standi: „Að Guðmundur Árni réð til starfa án samráðs við embættismenn ráðuneytisins mann nákominn sér, en Hrafnkell er náfrændi Guð- mundar Árna (af öðrum og þriðja). Hrafnkell er gjaldþrota. Áð það verður að teljast vafasamt, svo ekki sé sterkar að orði kveðið, að opin- berir hagsmunir einir hafi ráðið vali Hrafnkels til að vinna þá skýrslu sem hér um ræðir. Benda má á að Hrafnkell hefur ekki þá sérþekkingu á sviði bótaréttar al- mannatrygginga sem t.d. er að ftnna hjá lögfræðingum Trygging- arstofnunar. Að upphæðin sem greidd var fyrir skýrsluna er há og því aðeins réttlætanleg að skýrslan sé bæði ítarleg og umfangsmikil. Tregi Guðmundar Árna við að upplýsa umfang hennar bendir ekki til að svo sé.“ Mál Steens Johansens Um kynningarfulltrúann Steen Johansen segir: „Guðmundur Árni hefur viðurkennt að laun Ste- ens hafi verið „of há“. Hér var al- mannafé sóað að því er virðist full- komlega að ástæðulausu og af víta- verðu ábyrgðarleysi. Ekkert bendir til annars en að ráða hefði mátt Ste- en, eða annan kynningarfulltrúa sem Guðmundur Árni treysti, á venjulegum kjörum slíkra starfs- manna. Guðmundur Árni sýndi í þessu máli skilningsleysi á hugsan- legum afleiðingum þess að ráða einstaka starfsmenn hins opinbera utan kjarasamninga með þessum hætti. Hvers vegna eiga suntir að sætta sig við ákvæði kjarasamninga en aðrir ekki? Á að taka upp það kerfi almennt hjá ríkinu að gera kjarasamning við hvern og einn starfsmann? Er Alþýðuflokkurinn trúverðugur gagnvart öðrum opin- berum starfsmönnum, sem verða að sætta sig við önnur og mildu lak- ari kjör? Boðskapur Alþýðuflokks- ins urn ráðdeild og ítrustu hag- kvæmni í ríkisrekstri, sem m.a. hef- ur birst í sársaukafullum niður- skurði í heilbrigðismálum, verður lítt trúverðugur í augum kjósenda þegar bruðlað er með fé í æðstu yf- irstjórn þeirra mála undir stjórn ráðherra Alþýðuflokks.“ Mál Jóns H. Karlsson- ar Um aðstoðarmanninn Jón H. Karlsson segir að eftir standi: „Að Guðmundur Árni hefur sagt að „eftir á að hyggja“ hafx skipun Jóns sem formanns stjórnarnefndar Rík- isspítala „verið umdeilanleg“. Að seta Jóns H. Karlssonar í 12 stjórn- um, ráðum og nefndum og tekjur af henni voru langt utan þeirra venja sem viðteknar hafa verið varðandi aðstoðarmenn ráðherra. Að svo lítur út sem meira rnáli hafi skipt að drýgja tekjur Jóns H. Karlssonar en að velja hæfasta manninn til að gegna hverju starfi, m.a. með tilliti til þess tíma sem þarf til að sinna hverju þeirra svo vel sé.“ Ráðstöfun íbúðar í eigu Hafnarfjarðarbæjar Um íbúð í eigu Hafnarfjarðar sem leigð var frænku Guðmundar Árna segir að eftir standi: „Greinar- gerð Guðntundar Árna svarar því engu hvort hann eða embættis- menn eftir hans fyrirmælum hafi ráðstafað umræddri íbúð til frænk- unnar. Greinargerð Guðmundar Árna svarar því engu hvort íbúðin hafi verið tekin úr sölu eftir að frænkan flutti inn. Svo virðist sem Guðmundur Árni hafi í þessu máli sem öðrum sýnt það dómgreindar- leysi að hygla sér nærstöddu fóki, framhjá þeim vinnugangi og vinnureglum sem aðrir þurftu að sæta. Hvaða skilaðboð sendir þetta þeim borgurum sem fylltu sam- viskusamlega út eyðublöð, upp- fýlltu skilyrði hins félagslega kerfis og biðu í biðröðum eftir úthlutun íbúða?“ Fjármál og stjórnun Listahátíðar í Hafnarfirði Urn íjárntál og stjórnun Listahá- tíðar í Hafnarfirði segir: „Skipulag og íjármál Listahátíðar í Hafnar- firði voru í fullkomnum ólestri. Á því ber Guðmundur Árni Stefáns- son fulla ábyrgð, þótt hann og stjórn hlutafélagsins kjósi að skella skuldinni á Arnór Benónýsson sent var sérstaklega ráðinn af Guð- mundi Árna sem vektaki til að sinna verk- og fjármálastjórn. Eng- in skýring hefur verið gefin á því einkennilega fyrirkomulagi að reka hátíðina sem hlutafélag með stjórn sem hafði enga fjárhagslega ábyrgð, þvert á almennar viðskiptavenjur og lög um hlutafélög, Hver átti hlutaféð? Hvernig áatti að fara með hagnað eða tap félagsins? Hver var þóknun stjórnarmanna? Hvernig var kostnaðarskipting milli hlutafé- lagsins og bæjarsjóðs? Hver er staða kröfuhafa í hlutafélagið? Hvernig var hagað endurskoðun reikninga og skattskilum þess? Stóðst þessi rekstur, og ýmsir málamynda- gjörningar honum tengdir, lög um hlutafélög og bókhald?“ Biðlaun Um biðlaun segir að „eftir stapp og eftirgangsmuni" hafi Guð- mundur fallist á að hætta töku biðlauna en aldrei hafi komið fram hvort hann endurgreiddi það sem hann hafði þegar fengið. I saman- tektinni segir: „Á þetta atriði er ekki ninnst í greinargerð Guðmundar Árna. Hann var þó minntur á það á fundi sem stjórn FFJ átti með hon- um og formanni Alþýðuflokksins til að fara yfir áhyggjuefni stjórnar FFJ í þessu máli.“-pj Ágúst Einarsson og Vilhjálmur Þorsteinsson Skoruðu á Guð- mund Áma að segja af sér vara- formennsku og ráðherradómi. Tillögu þess efnis var vísað frá með 67 atkvæðum gegn 13.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.