Helgarpósturinn - 03.10.1994, Side 12

Helgarpósturinn - 03.10.1994, Side 12
12 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994 Hillaty lætur ekki hugfallast Þrátt fyrir að allt gangi á afturfót- unum með heilbrigðisfrumvarpið sem Hillary Clinton hefur barist hart fyrir, þrátt fyrir að forsetafrúin sé sögð í hópi verst klæddu kvenna í Ameríku, þrátt fyrir að margir Bandaríkjamenn telji að hún sé hinn raunverulegi húsbóndi í Hvíta húsinu - þrátt fyrir þetta ætlar Hill- ary Clinton ekki að gefast upp. Hún ætlar ekki að draga sig í hlé og setj- ast inn í betri stofur forsetabústað- arins. Þegar Hillary baðaði sig í sviðs- ljósi fjölmiðla áamt Nainu, konu Boris Jeltsíns, í síðustu viku not- aði hún tækifærið til að bera til baka frásagnir fjölmiðla um að hún ætli að halda sig meira til hlés á næstunni. Þvert á móti mun Hill- ary ætla að halda áfram að berjast fyrir hugmyndum sínum um heilsugæslu og eins ætlar hún að Hillary og Bill aðstoða bróður sinn, Hugh Rod- ham, sem er í framboði í kosning- um um sæti í öldungadeild Banda- ríkjaþings. ■ Betrítíð f Albaníu Eftir aldalangar nremmingar, k> aldalangar nremmingar, sem þó urðu kannski einna verstar síðustu hálfu öldina, eiga Albanir líklega skilið að lifa betri og glaðari tíma. Og nú hafa þeir runnið upp, því í Albaníu er þessa stundina mestur hagvöxtur í öllum ríkjum Mið- og Austur-Evrópu. Ekki spill- ir heldur að verðbólga fer mjög hjaðnandi. Albaníu var sérstaklega hrósað á fundi Alþjóða gjaldeyrissjóðsins sem nú stendur yfir í Madrid. Þar kom fram að hagvöxturinn yrði átta prósent á þessu ári, en verð- bólga færi lækkandi og stefndi nú niður fyrir tíu prósentin. Hún var 226 prósent fyrir tveimur árum. Þrátt fyrir þetta verður þess lík- lega langt að bíða að Albanir geti baðað sig í peningum. Hjá þeim byrjaði hagvöxturinn hérumbil í algjöru núlli en þegar valdatíma kommúnista lauk var nánast allt lamað og ónýtt í land- Vopnin tala á Haítí A Haítí er enn langt I frá að stillt hafi verið til friðar. Bandaríkjaher hefur lítt haft sig í frammi og stuðningsmenn her- foringjastjórnarinnar fráfarandi eru enn gráir fyrir járnum. Það gerir illt verra að óaldarflokkar ýmsir ganga lausir með illa fengin vopn, en bandarískir hermenn veigra sér við afskipti, þar sem pólitísk skilaboð úr Hvíta húsinu hafa ekki verið skýr. Indland Plágan í rénun? Indverjar reyna að bera sig vel þótt vofa plágunnar fari þar um héruð. í gær var ákveðið að skólar í Delhi yrðu opnir á nýjan leik, enda telja indversk heilbrigðisyfirvöld að þau hafi náð að hefta útbreiðslu plágunnar. Þrátt fyrir það hefur sjúkdómstilfellum farið fjölgandi. Alþjóða heilbrigðisstofnunin telur að það muni koma í Ijós á næstu tveimur dögum hvort plágan haldi áfram að breiðast út. í gær var tala þeirra sem grunur hefur leikið á að séu sýktir komin í tæplega 3500. Heilbrigðisyfirvöld á Indlandi hafa þó sagt að af þeim hópi séu aðeins um 204 raunveru- lega sýktir. Hinir þjáist ekki af al- varlegri sjúkdómum en kvefi eða inflúensu. Þrátt fyrir þetta fara þjóðir heims að öllu með gát. Pakistanar hafa meinað útlendingum að koma inn í landið frá Indlandi og Bangla Desh hefur meinað Qórum indverskum skipum að koma þar í höfn. Sex ríki við Persaflóa hafa rofið allar flug- samgöngur við Indland og ýmis Evrópuríki krefjast þess að farþegar sem koma frá Indlandi gangist undir læknisskoðun. Indversk yfir- völd halda því fram að þetta séu mun harkalegri viðbrögð en efni standi til. Spillingarmál í Frakklandi Forsetaframþjóðend- ur fara í skotgrafímar Stjómmál í Frakklandi taka nú æ meiri lit af því að forsetakosningar nálgast. Á sama tíma geisar heiftar- leg umræða um spillingu stjórn- málamanna sem mun áreiðanlega hafa rnikil áhrif á kosningarnar. Sósíalistaflokkurinn, flokkur Mitt- errands forseta, er í molum eftir innbyrðis átök og hneykslismál sem hvað eftir annað hafa skekið flokk- inn. En það eru fleiri sem hafa óhreint mjöl í pokahorninu. Á sama tíma og Laurent Fabius, fyrrverandi forsætisráðherra sósíal- ista, er til rannsóknar vegna þáttar síns í blóðgjafahneykslinu marg- umtalaða varð Edouard Balladur, forsætisráðherra, að fyrirskipa op- inbera rannsókn á þremur sam- herjum sínum í ríkisstjórn. Það eru valdamiklir menn, Frangois Léot- ard, varnarmálaráðherra, Gérard Longuet, iðnaðarráðherra og Alan Madelin, sem er ráðherra efna- hagsþróunar. Það þykir skaða Ball- adur nokkuð að hann hefur hikað í þessu máli, enda eru ráðherrarnir þrír meðal helstu bandamanna hans. Allir liggja þeir undir grun um misferli sem tengist fjárfram- lögum í kosningasjóði, en einnig er talið að Longuet hafi eignast glæsi- hús við Rívieruna með vafasömum hætti. Það skiptir þó kannski ekki mestu máli. Hitt er mikilvægara hvernig þetta getur gagnast and- stæðingum Balladurs sem hefur verið vinsælasti stjórnmálamaður Frakklands allan tíma sinn sem for- sætisráðherra. Sá stjórnmálamaður sem mest gagn hefur af því að koma höggi á Balladur er Jacques Chirac, borgarstjóri í París og leið- togi flokks gaullista, RPR. Sá flokk- ur og flokkur Balladurs, UDF, starfa reyndar saman í ríkisstjórn en þegar út í forsetaslaginn er kom- ið stoðar slík vinátta lítt. Chirac hefur löngum dreymt um að verða forseti og reynt fyrir sér í forsetakosningum, en án árangurs. Eftir því sem óvinsældir Mitterr- ands hafa aukist síðari árin virtist hagur Chiracs vænka. En þá kom Balladur til sögunnar og virðist nú öllu sigurstranglegri kandídat en Chirac. Honum er því alls ekki á móti skapi að vinir Balladurs verði uppvísir að spillingu og margir álíta reyndar að upplýsingar um hneykslismál séu komin beint úr herbúðum Chiracs. En á meðan er ljóst að það eru engir kandídatar sem gætu veitt Balladur eða Chirac keppni í for- setakosningum. Eins og staðan er geta sósíalistar ekki vonast til að fá nema rúm tíu prósent. Nema. Ef. Sá eini sem gæti breytt þessu er Jacques Delors, framkvæmda- stjóri Evrópubandalagsins. Hann Slóvakía Boxari vinnur kosningasigur Þjóðernissinninn Vladimir Meciar vann stórsigur í þingkosn- ingum í Slóvakíu í gær. Meciar var forsætisráðherra Slóvakíu þangað til í mars síðastliðnum þegar hann missti sæti sitt eftir að hafa ekki get- að varist vantrausti stjórnarand- stöðu. Flokkur Meciars fékk næst- um 35 af hundraði atkvæða, en það er talsvert meira en skoðanakann- anir höfðu spáð honum. Þetta eru fyrstu kosningar í Slóvakíu síðan landið sagði skilið við Tékkland í fyrra. Meciar er nú í lykilaðstöðu til að mynda samsteypustjórn er þjóð- ernissinnaður fram úr hófi, hann er fyrrum hnefaleikamaður, og þykir reiðubúinn til að leggja ýmislegt á sig til að auka lýðhylli sína. Til að mynda vann hann nú at- kvæði fjölmargra iðnverkamanna með því að leggjast gegn hugmynd- um um einkavæðingu. Forseti Sló- vakíu, Michal Kovac, lýsti því yfir fyrir kosningarnar að sigur Meciars myndi skaða traust Slóvakíu er- lendis. Nú neyðist hann líklega til að fela Meciar stjórnarmyndun sem þá mun líklega leita til flokka og flokksbrota á hægri væng stjórn- málanna. ■ hefur lengi verið orðaður við for- setaframboð, en ekki sagt af eða á. Það er þó Ijóst að.Delors vill ekki óhreinka sig í átökum á hinum margklofna vinstri væng, heldur vill hann koma eins og „deus ex machina“ af himni Evrópubanda- lagsins. Ef Delors fer ekki fram er víst að vinstri menn eiga enga möguleika. Baráttan um fylgið þeim megin yrði milli smáflokka græningja, kommúnista, Sósíalistaflokksins og klofningsframboða frá honum. Þá er ekki óhugsandi að baráttan um forsetaembættið standi milli tveggja hægrimanna, Balladurs og Chiracs sem eiga von á að fá fylgi á bilinu 20-30 af hundraði í fyrri um- ferð forsetakosninganna. Slíkt fylgi fær enginn vinstrimaður nema Delors. Það yrðu þá þeir sem berð- ust í seinni umferð kosninganna. Þetta þykir stjórnmálaskýrendum nokkuð athyglisverð framtíðarsýn, enda er hefð fyrir því að hægrimað- ur og vinstrimaður berjist um að komast í Elysée-höllina. I þessu tilviki myndi Chirac væntanlega færa sig lengra ■ til hægri. Hann myndi reyna að fá fylgi frá hægri öfgamönnum Jean Marie Le Pen og líka frá andstæð- ingum Evrópubandalagsins. Ball- adur neyddist þá væntanlega til að reyna að laða fylgi frá vinstri væng stjórnmálanna, þótt ljóst sé að hann myndi aldrei fá beinan opin- beran stuðning Sósíalistaflokksins. En allt þetta veltur semsé á Del- ors sem ekkert lætur uppi, heldur hefur sem fyrr álíka opinskátt við- mót og kínverskur mandaríni. ■ Whoopi giftist venjulegum manni Leikkonan Whoopi Goldberg gekk í það heilaga á laugardaginn var með Lyle Trachtenberg, sem er ekki leikari heldur verka- lýðsforingi. Hún er 44 ára en brúðguminn sex árum yngri, 38 ára. Haft er eftir Whoopi að hún hafi aldrei áður verið í þingum við svo venjulegan mann. Meðal gesta í brúðkaupi gam- anleikkonunnar voru Arnold Schwarzenegger, Steven Spi- elberg og Matthew Modine. Fyrrum ástmanni Whoppiar, leikaranum Ted Danson, virðist hins vegar ekki hafa verið boðið. Ýmislegt var til skemmtunar, en eftirminnilegast þótti þegar ótal hvítum blöðrum var sleppt. Það var þó ekki til skemmtunar eða yndisauka, heldur til að byrgja sýn fréttamönnum sem flugu yfir staðnum í þyrlum. ■ fl •i •> •> . % «4 •> ! •i •i

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.