Helgarpósturinn - 03.10.1994, Síða 16

Helgarpósturinn - 03.10.1994, Síða 16
16 MORGUNPÓSTURINN VIÐSKIPTI iWlUDÍÍíSÖR 3. OKTÓBER 1994 Grafgötur Kurr í hluthöfum vegna tapreksturs Flugleiða Mér er spurn Óskar Finnsson, eigandi veitingastaðarins Argentínu spyr. „Hér í bænum eru líklega 95-100 salir sem fé- lagasamtök eiga. í þessum sölum eru haldnar árshátíðir og ýmsar uppákomur þar sem fólk greiðir fyrir mat og drykk. Það má gefa sér að hver salur taki um áttatíu manns, þannig að í þessum sölum eru samankomnir um 800 manns um hverja helgi og ef hver eyðir 4 þúsund krón- ím rúlla þarna í gegn um 30 milljónir á venjulegu föstudags- eða laugar- lagskvöldi. Og af þessum peningum eru engin gjöld og skattar greidd. S>essir „svörtu“ salir eru að drepa veitingahúsin og ég vil spyrja skatt- rannsóknarstjóra af hverju það er ekki tekið á þessu máli af hörku.“ „I spurningunni felst að fyrir- spyrjandi telur að það sé ekki tekið á málunum. Ég vil fullvissa hann um að þeim skattsvikum, sem eiga sér stað á þessum vettvangi, er sinnt af hálfu embættisins eins og öðrum skattsvikum, að svo miklu leyti sem það hefur mannafla til. Við höfum átt samstarf og sam- vinnu við Samband veitinga- og gistihúsa og átt ágætis viðræður og samstarf við framkvæmdastjóra þess félags. Hann hefur komið á framfæri við stofnunina upplýs- ingum um starfsemi sem þar er stunduð og á þessu ári hafa all- Skuldastaða 1981-1995 60% af VLF- 20,; 81 ’83 '85 ’87 ’89 ’91 ’93 ’95 g margir aðilar sem þannig er ástatt um sætt rannsókn hjá embættinu og endurákvörðun í kjölfar þess væntanlega og síðan refsimeðferð, ýmist hjá Rannsóknarlögreglu rík- isins eða yfírskattanefnd. Þetta er einmitt dæmi um svarta starfsemi sem er raunverulega mjög erfitt að taka á. Innkaup hrá- efnis eru oftast nær gerð í almenn- um verslunum og maturinn jafn- vel framleiddur annars staðar, og svo eru salir leigðir til að framreiða ofan í fólk. Því get ég alveg tekið undir það með Óskari að þetta er ástand sem ekki er hægt að sætta sig við og stofnunin tekur á því að svo miklu leyti sem hún hefur kraft til. En meginvandamálið er að sjálfsögðu ásókn viðskiptamanna í viðskipti af þessu tagi.“ Skúli Eggert Þórðar- son ríkisskattstjóri.B Skúli Eggert Þórðarson ríkis- skattstjóri. „Meginvandamálið er að sjálfsögðu ásókn viðskipta- manna í viðskipti af þessu tagi.“ ’81 ’83 ’85 ’87 ’89 ’91 ’93 ’95£ Greiðslubyrði 1981-1995 % af útflutningstekjum í greinargerð með fjárlagafrum- varpinu er birt þjóðhagsspá um ástand og horfur í efnahagsmál- um á næsta ári. Viðskipta- jöfnuður 1981-1995 10„ 81 ’83 '85 ’87 ’89 ’91 ’93 ’95 £ Samkvæmt spánni mun skulda- staða þjóðarbúsins gagnvart út- löndum lækka á næsta ári. Spáin er enn bjartsýnni varðandi greiðslubyrði af erlendum lánum. Hún gerir ráð fyrir mikilli lækkun. Samkvæmt spánni mun batinn á viðskiptajöfnuðinum stöðvast. Ekki verður sagt að hinn almenni hluthafi í Flugleiðum sé skýjum of- ar vegna afkomu flugfélagsins und- anfarin ár. Tap varð á rekstrinum árið 1992 upp á tæpar 134 milljónir og sömuleiðis 1993 upp á rúmar 187 milljónir. Forráðamenn félagsins hafa borið höfuðið hátt þrátt fyrir þetta og gefið vonir um betri tíð og blóm í haga. Á fyrri helmingi þessa árs varð 732 milljóna króna tap á rekstri fé- lagsins, sem er 160 milljónum meira en fyrir sama tímabil í fýrra. Á síðustu fimm árum hefur eigin- fjárhlutfall félagsins hrapað úr 42% í 13%. Forráðamenn fyrirtækisins hafa getað vísað til þess kreppu-. ástands sem ríkt hefur hérlendis sem og á meginlandi Evrópu og í Bandaríkjunum undanfarin ár til að skýra tap á rekstrinum. Hins vegar eru teikn á lofti um að rekstr- arskilyrði hafi farið batnandi und- anfarið, enda hefur farþegafjöldi aukist, sætanýting batnað og tekjur aukist. T.d. voru Flugleiðir með bestu sætanýtinguna af öllum flug- félögum á Evrópuleiðum í júlí sl. eða 82% og þá þriðju bestu á Norð- ur-Atiantshafsfluginu eða 89%. Fjöldi farþega jókst hjá félaginu í júlí um 15% miðað við árið í fyrra og um 17% í ágúst. Reyndin virðist vera sú að hagnaður af rekstrinum sé yfirleitt meiri á seinnihluta ársins en þeim fyrri. Á þetta var m.a. bent í fyrra en þrátt fyrir það varð heild- arniðurstaðan neikvæð þegar upp var staðið. Sú spurning gerist því æ áleitnari hversu lengi hinir fjölmörgu hlut- hafar í Flugleiðum halda þolin- mæði sinni gagnvart þeim sem stjórna fyrirtækinu. Þrátt fyrir að ýmis fyrirtæki eins og t.d. líknarfé- lög setji önnur markmið framar hagnaði þá getur það ekki átt við um flugfélag sem á í sívaxandi sam- keppni, eða þjónar það nokkrum tilgangi að reka flugfélag sem ekki skilar arði? Dagfinnur Stefánsson, fyrr- verandi flugstjóri og stjórnarmeð- limur í Loftleiðum, er einn smærri hluthafa í Flugleiðum. Hann segist hafa áhyggjur af rekstrinum en hef- ur þó ekki misst trú á að fyrirtækið geti borið sig. „Forráðamenn Flug- leiða hafa ábyggilega reynt að gera sitt besta. Mér finnst það þó áber- andi með reksturinn að að honum koma margir ungir menn sem ekki hafa mikla reynslu í flugrekstri. Flestir þeirra hafa einhverjar menntagráður í hagfræði eða ein- hverju slíku. Það gengur bara ekki Dagfinnur Stefánsson: Mér finnst það þó áberandi með reksturinn að að honum koma margir ungir menn sem ekki hafa mikla reynslu í flug- rekstri. Bengt Scheving Thorsteinsson: Það liggur í augum uppi að það er ekki beinlínis gáfulegt að fjárfesta í fyrirtæki sem ekki skilar arði. almenna hluthafa. „Þegar einn aðili eins og Eimskip á stærstan hluta eða eitthvað um 35% þá þarf hann ekki að hlusta á nokkurn mann. Það hefur lengi verið svo að hinn almenni hluthafi veit voða lítið um fyrirtækið. Það veldur því að smærri hluthafar þora ekki að taka til máls um skýrslur stjórnar og reikninga á aðalfundunr því enginn telur sig vita neitt og enginn vill upplýsa fáfræði sína.“ Bengt líkir aðalfundum Flugleiða við halelújasamkundur eða flug- eldasýningar. Þeir séu nánast formsatriði því ákvarðanir sem lagðar séu fyrir fundina hafi löngu áður verið teknar á skrifborðshorn- inu hjá forstjóranum. Hann bætir því þó við að breyting hafi orðið til batnaðar undanfarin ár hvað upp- lýsingastreymi til almennra hlut- hafa varðar. Líkt og Dagfinnur heldur Bengt því fram að margir þeirra sem sitja í stjórn Flugleiða hafi litla þekkingu á flugrekstri. „Eimskip er fyrst og fremst flutningafyrirtæki á sjó en ekki í lofti. Hvað eiga þeir að vita um farþegaflug? Það er spurning hvort þessir menn hjá Eimskip séu þeir heppilegustu til að standa í rekstri flugfélags. Til eru menn sem þekkja þennan rekstur út og inn og sýnt hafa árangur. Sem dæmi má taka Birki Baldvinsson, sem stundað hefur flugrekstur í Lúxem- borg, hann hefur sýnt að hægt er að græða á tá og fingri á flugrekstri. Flugleiðum væri fengur að honum og hann virðist hafa áhuga á rekstri félagsins, enda er hann orðinn einn stærsti hluthafinn (Birkir er fjórði stærsti hluthafinn, á 2,24%).“ Með hliðsjón af bágri afkomu af rekstri Flugleiða telur Bengt að réttlæta megi þá spurningu hvort það þjóni einhverjum tilgangi að reka fyrirtækið áfram. „Það liggur í augum uppi að það er ekki beinlín- is gáfulegt að fjárfesta í fyrirtæki sem ekki skilar arði. Það virðist stundum vera svo að fyrirtækinu sé haldið gangandi fyrirtækisins vegna en ekki vegna hluthafanna. Þeirrar tilhneigingar gætir hjá mörgum hlutafélögum að þeir stjórnunarað- ilar sem ná yfirhöndinni eiga til að missa sjónar á því til hvers og fyrir hvern fyrirtækið var í upphafi stofnað." Bengt bendir á að Atlanta græði á tá og fingri á sama tíma og Flug- leiðir tapi. Honum finnst Flugleiðir sinna leigufluginu of lítið, það sé miður, því Atlanta hafi sýnt að slíkt skili arði. Innanlandsflugið blóraböggull Flestir þeirra hluthafa sem MORGUNPÓSTURINN ræddi við eru Afkoma á fyrri helmingi síðustu fimm ára. :100 milljónir á verölagi hymáfi* “ 100: 300 -400; -500 -600 700 tSÍ upp, því menn verða að hafa reynslu í flugrekstri til að kunna á þetta. Það væri fyrirtækinu til góðs ef leitað væri eftir ráðgjöf eldri starfsmanna fyrirtækisins sem þekkja flugrekstur út og inn. Þetta var allt annað hjá Loftleið- um þegar ég var í stjórn þar, þar voru margir flugmenn í stjórn. Stjórnarfundir voru mildu oftar en nú er. Menn komu ekki bara saman einu sinni í mánuði, snæddu há- degisverð og hlustuðu á skýrslu for- stjóra. Það var oft fundað annan hvern dag eða um leið og einhver mál komu upp og þau voru þá rædd og leyst. Þeir menn sem núna stjórna ráða öllu. Hinir fljóta bara með. Mér finnst ekki vera nógu gott samband milli stjórnar og starfsmanna eða framkvæmdastjóranna og starfs- manna.“ Bengt Scheving Thorsteins- son, annar hluthafi í Flugleiðum, hefur ásamt Dagfinni barist fyrir því að teknar verði upp marg- feldiskosningar í stjórn Flugleiða. Hann segir að í lögum um hlutafé- lög sé kveðið á um margfeldiskosn- ingar til að vernda þá sem í minni- hluta eru. Ekki sé hægt að beita þessari reglu varðandi kosningu í stjórn Flugleiða þar sem einungis sé kosinn helmingur stjórnar í senn, fjórir til fimm menn í stað níu. Væru allir níu kosnir í einu gæti minnihlutinn sett nífalt atkvæða- magn á einn mann og þar með komið sínum manni að. Bengt seg- ist lengi hafa hamrað á þessu án ár- angurs. Líkt og Dagfinnur segir Bengt að stjórn Flugleiða hlusti lítið á hinn Kom hluthöfum á óvart að fýrírtækinu var skipt upp Kvartað yfir þekkingarieysi stjómarmanna á flugrekstri og sambandsleysi þeirra við hinn almenna hluthafa. Aðalfundi líkt við halelújasamkundur.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.