Helgarpósturinn - 03.10.1994, Síða 18
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNODAGUR 3. OKTÓBER 1994
HVERS VEGNA NOTAR ÞÚ
RAUTT EÐAL
GINSENG?
Gunnar Eyjólfsson, leikari og
skátahöfðingi:
Það eflir einbeitinguna.
Sigurður Sveinsson
handboltamaður:
Það er nauðsynlegt fyrir svona
gamla menn eins og mig til að
geta haldið endalaust áfram í
handboltanum.
Ásta Erlingsdóttir, grasalæknir:
Ég fmn að það gerir mér gott.
Dýrleif Ármann, kjólameistari:
Það gefur mér kraft og lífsgleði
við saumaskapinn.
Alda Norðíjörð, eróbikkkennari:
Það stóreykur úthald, þrek og þol.
Hildur Kristinsdóttir, klínikdama:
Til að komast í andlegt jafnvægi
og auka starfsþrek.
Rautt Eðal Ginseng
skerpir athygli
og eykur þol.
Alþýðubandalagsmenn leita að kandídat í formannsslaginn gegn
Steingrími J. Sigfússyni
„Margir hafa leitað til mín“
segir Margrét Frímannsdóttir, þingmaðurAlþýðubandalagsins á Suðurlandi.
Margrét Frímannsdóttir,
þingmaður Alþýðubandalagsins á
Suðurlandi, segist hafa fengið fjöl-
margar áskoranir um að bjóða sig
fram til formannsembættis í
flokknum. Samkvæmt innanhúss-
reglum í Alþýðubandalaginu verð-
ur Ólafur Ragnar Grímsson, nú-
verandi formaður, að láta af for-
mennsku á næsta flokksfundi, sem
haldinn verður í nóvember á næsta
ári. Steingrímur J. Sigfússon,
núverandi varaformaður, hefur
þegar tilkynnt að hann ætli sér að
bjóða sig fram til formanns. Stein-
grímur gældi reyndar lengi við það
í fjölmiðlum fyrir síðasta flokks-
fund, sem haldinn var fyrir tæpu
ári, en guggnaði þá. Margrét segir
að sér komi ákvörðun Steingríms
nú ekki á óvart.
„Steingrímur lýsti því yfir á síð-
asta ári að hann ætlaði að gefa kost
á sér í formanninn. Þá átti Ólafur
Ragnar hins vegar eftir eitt ár og
Steingrímur dró sig þá til baka. Ég
bjóst ekki við öðru en að Stein-
grímur myndi bjóða sig fram næst,
enda hefur hann lengi stefnt að
þessu."
Aðspurð hvort það komi tii
greina að flokksfundi Alþýðu-
bandalagsins verði flýtt þannig að
hægt verði að kjósa formann fyrir
kosninga.r í vor segir Margrét það
ólíklegt. „fig held að menn hljóti nú
að hugsa fyrst og fremst um Al-
þingiskosningarnar, hvort sem
þeim verður flýtt eða ekki. Það
skiptir ekki máli hvort nýr formað-
ur er kosinn fyrir þessar kosningar.
Einnig er það svo að kosningaút-
koma flokksins hlýtur að hafa áhrif
á hvaða menn koma til álita sem
formenn flokksins. Útkoma ein-
stakra þingmanna í sínum kjör-
dæmum hlýtur að ráða einhverju
þar um.“
MORGUNPÓSTURINN náði tali af
þremur þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins. Tveir þeirra, þeir
Svavar Gestsson og Hjörleifur
HAUSTLEIKUR
í tilefni af 1 árs aftnæli Aðalsólbaðsstofiinnar
og nýju húsnæði í Þverholti 14, ætlum við að
efiia til ferðahappdrættis.
Það verða dregnir út tveir
ferðavinningar að verðmæti
kr. 25.000 í enda hvors mánaðar
október og nóvember,.
Einnig verða dregin út ljósakort.
Það eina sem þú gerir er að
kaupa 10 tíma ljósakort,
3ja mánaða og þá fer nafnið á
Usta og síðan verða vinningshafar
dregnir út á Bylgjunni.
sólbaóstofan
Þverholti 14 • 105 Reykjavík
Sími 618788 Fax. 618780
Margrét Frímannsdóttir „Út-
koma einstakra þingmanna í sín-
um kjördæmum hlýtur að ráða
einhverju um hver verður næsti
formaður Alþýðubandalagsins."
Guttormsson, lýstu yfir stuðningi
við framboð Steingríms en Guðrún
Helgadóttir sagði allt of snemmt
að taka ákvörðun um hvern hún
styddi. Hún sagðist vilja bíða og sjá
hverjir yrðu í framboði. Sjálf úti-
lokaði hún ekki að fara í framboð.
Margrét segist hafa nægan tíma
til að ákveða hvort hún lætur til
skarar skríða eður ei. „Ég hef sagt
þeim sem til mín hafa leitað að ég
gefi mér tíma framyfir kosningar,"
segir hún. -GB
Bjöm
Grétar
útilokar
ekki þing-
mennsku
- segirað verkalýðs-
hreyfingin þurfí að hafa
meiri áhrif á Alþingi
I samtali við
MORGUNPÓSTINN
segist Björn Grétar
Sveinsson, for-
maður Verka-
mannasambands-
ins, ekki hafa hug-
leitt að bjóða sig
fram til formanns.
Hann segist vera
ljómandi ánægður í
starfi formanns
Verkamannasambands fslands og geri
ekki ráð fyrir að láta af því starfi á næst-
unni. „Mér þykir vænt um að Guðrún
Helgadóttir vill veg minn sem allra
mestan, en þetta var sagt í hita leiksins,
ég geri ekki mikið úr þvr,—segir Björn
Grétar. „Þetta er bara sápukúla."
Björn Grétar stóð að stofnun Fram-
sýnar, sem hugsað er sem bakland fyrir
verkalýðsarm Alþýðubandalagsins í
Reykjavík. Félagið var að hans sögn
stofnað í þeim tilgangi að styrkja verka-
lýðsarm flokksins, sem gæti veitt foryst-
unni meira aðhald. Líklegt er að félagið
vilji reyna að koma sínum manni inn á
þing fyrir Alþýðubandalagið í Reykja-
vík. Aðspurður hvort hann ætli að gefa
kost á sér til þingmennsku segist Björn
ekki útiloka það.
„Það hefur ekkert verið rætt. Það eru
mörg þingmannsefni sem koma til
greina. Ég hef sagt að okkur í verkalýðs-
hreyfmgunni beri skylda til þess að
reyna að hafa meiri áhrif á þingi ef til
okkar er leitað. Þá er ekkert endilega átt
við mig. En mér finnst við eigum að
reyna að hafa áhrif hvar sem við getum.
Á þingi eru jú teknar þær ákvarðanir
sem við verðum að lifa með. Ég mun
skoða málið með sjálfum mér þegar
nær dregur þingkosningum."
„Það má alltaf gera betur,“ segir
Björn aðspurður hvort flokksforystan í
Alþýðubandalaginu sinni verkalýðs-
málum ekki nógu vel. „Það má segja að
við sem erum í verkalýðsbaráttunni,
hvar í flokki sem er, verðum að beita
okkur af alefli innan flokkanna." -GB