Helgarpósturinn - 03.10.1994, Qupperneq 20
20
MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
Útgefandi
Ritstjórar
Frétttastjóri
Framkvæmdastjóri
Markaðsstjóri
Miðill hf.
Páll Magnússon ábm
Gunnar Smári Egilsson
Sigurður Már Jónsson
Kristinn Albertsson
Þórarinn Stefánsson
Setning og umbrot
Filmuvinnsla og prentun
Morgunpósturinn
Prentsmiðjan Oddi hf.
Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum
og kr. 280 á fimmtudögum.
Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku.
Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 10 prósenta afslátt.
Kosningar í haust?
I stormasaman áratug Trefur Jón Baldvin verið formaður
Alþýðuflokksins, en aldrei lent inni í jafn margslungnu pólit-
ísku völundarhúsi og nú. Ef hann ratar út með sjálfan sig og
flokkinn lítt skaddaðan verður hann óumdeilanlega að teljast
til stórmeistaranna í pólitískri refskák, ef ekki fær hann þau
eftirmæli, með réttu eða röngu, að hafa endanlega gert út af
við Alþýðuflokkinn.
Sá varnarleikur Jóns Baldvins, að senda vandamálapakk-
ann eins og hann leggur sig til Ríkisendurskoðanda, virðist
við fyrstu sýn aulalegur. Þar fæst enginn úrskurður um það
sem um er deilt. Jafnvel þótt svo færi að Ríkisendurskoðandi
gæfi Guðmundi Árna stjórnsýslulegt hreinlætisvottorð
stendur siðferðisþátturinn eftir, og honum verður ekki skot-
ið til opinberra stofnana úti í bæ. Jón Baldvin kemst einfald-
lega ekki hjá því að taka hreina afstöðu í þessu máli. Hann
verður sem flokksformaður að kveða upp úr um það hvort
breytni Guðmundar Árna hafí verið siðleg eða siðlaus.
Gera verður ráð íyrir því, að Jóni Baldvini sé manna ljósast
að undan þessu fær hann ekki vikist, en hann hafi ætlað að
kaupa sér frest með því að vísa stjórnsýsluþættinum til Ríkis-
endurskoðanda. Þetta kann að hafa verið illskásti kosturinn
fyrir flokkinn og formanninn í afar erfiðri stöðu, en bakar
hins vegar ríkisstjórninni ómæld vandræði. Forsætisráðherra
hefur heldur ekki dregið dul á óánægju sína með að málinu
skuli ekki lokið.
Hann sér auðvitað fyrir þá gósentíð, sem er framundan hjá
stjórnarandstöðunni. Fyrst verða langdregnar og hávaða-
samar umræður á þingi um vantrauststillögu á ríkisstjórnina
í heild og þar á eftir sams konar umræður um vantrauststill-
ögu á Guðmund Árna einan og sér. Þetta endist stjórnarand-
stöðunni langt fram eftir hausti og yrði hroðalegt upphaf á
kosningaundirbúningi stjórnarflokkanna.
Það kæmi ekki á óvart þótt forsætisráðherra væri þegar bú-
inn að dusta rykið af þeirri hugmynd að rjúfa þing mjög
fljótlega og efna til kosninga strax í nóvember.
Morgunpósturinn
fslenskur blaoamarkaður er um flest fátækari núna en
hann hefur verið um langt skeið. Eiginleg flokksmálgögn
hafa dagað uppi, vonum seinna, og eru fáum harmdauði.
Þrátt fyrir allt má þó til sanns vegar færa, að þessi blöð hafi
tryggt ákveðna fjölbreytni, og því miður hafa tilraunir til að
fylla þeirra skarð með nútímalegri blaðaútgáfu ýmist orðið
skammlífar eða mistekist með öllu. Um ástæður þess geta
menn leitað fanga í fjárhagslegum vanefnum eða rangri rit-
stjórnarstefnu, nema hvort tveggja kæmi til.
Eftir standa „risarnir“ tveir, Morgunblaðið og DV, ágæt
blöð en átakalítil, og móð af „sólbreyskju góðra daga“.
Það er inn í þetta andrúm, sem MORGUNPÓSTURINN kem-
ur. Honum fylgir engin stærri yfirlýsing úr hlaði, en að von-
andi hefur hann erindi sem erfiði.
Páll Magnússon
Vesturgötu 2, 101 Reykjavlk, slmi 2 22 11,
Beinir símar eftir lokun skiptiborös:
Ritstjórn 24666, tæknideild 24777, auglýsingadeild 24888 og dreifing 24999
Simbréf ritstjórnar 22243 - Símbréf auglýsingadeildar 22241 - Símbréf afgreiöslu 22311
Umrnæli
vikurjnar
Þá er meira að segja sú
veisla farin
„Við höld-
um líka að það
sé liðin tíð að
hcegt sé að
kaupa kjósend-
ur með mikl-
um útgjöldum
réttfyrir kjördag. “
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra.
Verra gat það verið
„Þeir eiga svolítið erfitt með að
bera nafn mittfram hérna, þannig
að þeir kalla mig bara víkinginn.“
Þórður Guðjónsson atvinnuvíkingur.
Alttaf jjafn auðskiljanlegurí
„Kjark þarf til að
viðurkenna að allir er-
um við kettir og mýs í
senn ogfrumstœtt afl
þarf til að hengja bjöll-
una á hvort tveggja
áður en osturinn hefur
verið étinn og engin ný
sending vœntanleg, hvorkifrá okkur
sjálfum né Alþjóðabankanum. “
Guðbergur Bergsson refsivöndur.
Það er alttaf fútt á vara-
mannabekknum
„Ég hef verið hafður algerlega til
hliðar og við það get ég ekki scett
mig. “
Ingi Bjöm Albertsson
stjórnmálaskörungur.
Siðvœðing stjórnmálanna
„Við sem störfum á vettvangi stjómmálanna
hljótum aðfagna því að umrceðafarifram um
siðgœði í íslenskum stjómmálum, því hún erjafn-
framt umrœða um siðgœði í íslenskuþjóðlífi
Embættisfærsla einstakra ráð-
herra hefur verið til mikillar um-
ræðu að undanförnu. Störf ráðherra
eru mjög mikilvæg og það er nauð-
synlegt að þeim sé veitt fyllsta að-
hald af effirlitsstofnunum, fjölmiðl-
um og almenningi. Það er hins veg-
ar nauðsynlegt, ef slíkt aðhald á að
ná tilgangi sínum, að það sé mál-
efnalegt.
I þessu sambandi skiptir Ríkis-
endurskoðun mjög miklu máli. Rík-
isendurskoðun er stofnun Alþingis
til þess að fylgjast með fram-
kvæmdavaldinu og skýrslur hennar
veita mikilvægar upplýsingar um
hvernig staðið er að málum. Alþingi
getur jafnframt falið stofnuninni að
fara ofan í einstök mál og skila urn
það skýrslu.
Alþýðuflokkurinn
og siðgæðið
Alþýðuflokkurinn hefur oft verið
áberandi í umræðunni um siðgæði í
stjórnmálum. Fyrst eftir að ég kom á
Alþingi stóðu þingmenn Alþýðu-
flokksins, með dyggilegum stuðn-
ingi dagblaðsins Vísis, að heiftarlegri
árás á Ólaf Jóhannesson, þáver-
andi formann Framsóknarflokksins.
Þessar árásir voru byggðar á dylgj-
um og sögusögnum. Mér er það
minnisstætt að rauði þráðurinn í
málflutningi þingmanns Alþýðu-
flokksins í þessu máli var að ef hann
hefði haft meiri tíma þá hefði hann
getað rannsakað hitt og þetta og
komist að þessari og þessari niður-
stöðu. Hann gaf sér aldrei þann tíma
en aðeins niðurstöðuna. Þessi árás
er sú ódrengilegasta sem ég hef séð í
íslenskri pólítík — hún var rekin
undir merkjum siðvæðingar — en í
mínum huga skorti fyrst og fremst á
siðgæði þeirra sem að henni stóðu.
Fagna ber umræðu
um siðgæði
Við sem störfum á vettvangi
stjórnmálanna hljótum að fagna því
að umræða fari ffam um siðgæði í
íslenskum stjórnmálum, því hún er
jafnframt umræða um siðgæði í ís-
lensku þjóðlífi. Umfang skattsvika
og margvísleg fjármálamisferli eru
góð dæmi um að það sé hollt að
umræðan fari fram.
Stjórnmálamenn eru og verða
Þungavigtin
Halldór
ÁSGRÍMSSON
Formaður
framsókrtar-
flokksins
meira í sviðsljósi en annað fólk. Það
er eðlilegt að það séu gerðar miklar
kröfur til þeirra og þeir verða að
gera sér grein fyrir hvað er helst að
varast í þeim störfum sem þeir
ffamkvæma.
Almennar siðareglur
stjórnmálamanna
Ég tel nánast óframkvæmanlegt
að setja fram almennar siðareglur
fyrir stjórnmálamenn sérstaklega.
Það er þó þekkt að ýmsar starfsstétt-
ir eiga sér samskipta- og siðareglur
sem eru mikilvægur mælikvarði fýr-
ir viðkomandi stétt. Þetta á ekki síst
við stéttir eins og lögfræðinga, end-
urskoðendur og lækna, sem al-
menningur verður að geta treyst og
reitt sig á það álit sem þeir láta í ljós.
Þrátt fyrir þessar reglur standa við-
komandi stéttir í stöðugri baráttu
við að halda trausti samfélagsins og
margir tapa tiltrú af ýmsum ástæð-
um.
Þótt engar sérstakar siðareglur
hafi verið skrifaðar fyrir íslenska
stjórnmálamenn fer ekki hjá því að
þeir verða að taka mið af þeim siða-
reglum sem gilda um starfsstéttir og
annarri almennri siðfræði. Það er
jafnframt erfiðara að setja á blað ná-
kvæmar reglur vegna þess að stjórn-
málamenn eru almennt að berjast
fýrir framgangi margvíslegra mála
og geta því ekki verið hlutlausir.
Hins vegar geta þeir ekki af siðferði-
legum ástæðum notað hvaða að-
ferðir sem er til að koma þeim í
framkvæmd.
Flokkar sem setja manninn í önd-
vegi telja að öfgastefnur eins og
kommúnismi og fasismi séu sið-
ferðilega rangar af þeirri ástæðu að
viðkomandi stjórnmálaskoðanir
gera ráð fyrir því að einstaklingur-
inn skipti litlu sem engu máli og til-
gangurinn helgi meðalið. Flokkar
sem setja einstaklinginn í öndvegi
þurfa samt að varast margt og verða
að gera ríkar kröfur til þeirra sem
standa í forystu og má þar einkum
nefna hagsmunatengsl og hags-
nrunaárekstra.
Hagsmunatengsl
Stjórnmálaflokkarnir eru í stöð-
ugri baráttu við að fjármagna starf-
semi sína. Þeir þurfa að koma upp-
lýsingum á framfæri, hafa samskipti
við flokksmenn, hagsmunasamtök,
áhugafélög og ýmsar stofnanir á
sviði menningarmála, félagsmála og
annarra þjóðmála. Þeir þurfa jafn-
framt að reka kosningabaráttu og
sinna ýmsum öðrunt skyldum.
Til að framkvæma þetta fá þeir
lítils háttar stuðning frá hinu opin-
bera en jafhframt frá flokksmönn-
um, almenningi og fyrirtækjum.
Þótt flokkarnir séu á ýmsan hátt
háðir slíkum velvilja þarf það ekki
að leiða til að þeir séu háðir honum í
stefnumörkun sinni og stjórnarat-
höfnum. Það fer þó ekki hjá því að
mikill fjárhagslegur stuðningur til
einstakra flokka hlýtur að skapa
grunsemdir um slík tengsl. Því er
nauðsynlegt að setja almennar regl-
ur um þessi mál.
Það er jafnframt ljóst að ef ráð-
herra greiðir skyldmenni hærri laun
en gengur og gerist, þá líta menn svo
á að þar sé um hagsmunatengsl að
ræða. Ef góður vinur ráðherra fær
meiri styrki og stuðning en almennt
gengur og gerist þá vakna grun-
semdir um hagsmunatengsl. Við-
komandi ráðherra verður þá að geta
skýrt hvernig á því stendur og ef
hann getur það ekki, þá verður hann
ásakaður um dómgreindarleysi,
hvort sem honum líkar betur eða
verr.
Traust aimennings
Það er mikilvægt stjórnmála-
mönnum og þjóðfélaginu að þeir
hafi traust almennings. Ráðherrar
hafa að undanförnu verið ásakaðir
um dómgreindarskort og reynslu-
leysi. Við það hefur ríkisstjórnin
misst traust og ver sig fýrst og fremst
með því, að þetta hafi gerst áður.
Það er í sjálfu sér rétt og við getum
vænst þess að það muni jafnframt
koma fýrir í ffamtíðinni.
Það verður hver ríkisstjórn að
taka á því sem upp kemur á hverjum
tíma og standa ábyrg gerða sinna.
Það er gott og vel að hafa áhuga á að
betrumbæta aðra, en alltaf hefur
verið meiri mannsbragur á því, að
taka fýrst til í eigin húsi. ■
I
i
1«
'f
1«
1«
1f
Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir Haarde, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir,
Jón Steinar Gunnlaugsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, ögmundur Jónasson, össur Skarphéðinsson.