Helgarpósturinn - 03.10.1994, Page 26
26
MORGUNPÓSTURINN FÓLK
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
r
Yfirheyrsla
Rannsóknarblaðamaðurinn
gegn ráðherranum
Rannsóknarblaðamaðurinn „En nú heyrast alltíðar Ráðherrann „En við erum skyldir eins og raunar vel-
sögusagnir þess efnis, að þú hyglir vinum þínum og flestir íslendingar ef út í það er farið. Afi minn og faðir
öðrum nákomnum, en neitir öðrum. Hverju viltu svara hans voru bræður. Það réði þó engu um að ég óskaði
slíku?“ hans álitsgerðar..."
„Einhvers staðar er einhver
að leggja mig í eineltiu
Á árunum 1979 til 1981 var Guðmundur Árni Stef-
ánsson blaðamaður á Helgarpóstinum. Spurningarn-
ar, sem hér fara á eftir, eru hans eigin frá þeim tíma og
sýna að hann tók viðmælendur sína engum vettlinga-
tökum, ekki síst þegar spilling var til umræðu. Það er
athyglisvert að skoða ýmis ummæli hans og svör við
ávirðingum sem bornar hafa verið á hann á undan-
förnum vikum, í samhengi við spurningarnar sem
hann lagði fyrir viðmælendur sína fyrir fimmtán ár-
um. Svörin, sem fýlgja spurningunum, eru því jafn-
framt hans eigin og gefin á ýmsum vettvangi á undan-
förnum vikum, á þeim tíma sem gjörningahríðin hef-
ur staðið á honum.
Rannsóknarblaðamaðurinn: „Okkur var að detta í
hug ... hvort þú væri tilleiðanlegur til að spjalla við
okkur um... “ hp 27.2. 'st
Ráðherrann: „Það er nýtt að þið reynið að hringja í
mig.“
Pressan 15.9. '94
Rannsóknarblaðamaðurinn: „Þú vilt ekki svara spurn-
ingum okkar um...“ hp27.2:81
Ráðherrann: „Nei, veistu það ..., ég segi ekki sannara
orð; tímabundið held ég að ekki séu nokkur efni til
þess að við eigum samtöl saman. Það virðist ekki
skipta nokkru máli fyrir ykkur hvaða skýringar ég kem
með.“ Prcssan 15.9.’94
Rannsóknarblaðamaðurinn: „Það er haft á orði að
rnenn verði spilltir af þátttöku í stjórnmálum. Ertu
spilltur stjómmálamaður?" hp 1.6. >9
Ráðherrann: „Það er alveg ljóst að einhvers staðar er
einhver að leggja mig í einelti. Ég býð DV velkomið í
hóp þeirra sem taka þátt í þessum galdrabrennum og
ofsóknum. Þessir svokölluðu fjölmiðlar hafa varað sig
á því að spyrja mig um eitt eða neitt í þessu sambandi
eða greina frá því að langflest hefur þetta verið full-
komlega rakalaust ogþvættingur." dv3.9.94
Rannsóknarblaðamaðurinn:„Þú telur þig sem sagt
hvítþveginn af allri þeirri spillingu sem hér viðgengst?"
HP 20.7. '79
Ráðherrann: „Einstaka maður hefur farið fram á af-
sögn mína takist mér ekki að gera nánari grein fyrir
málstað mínum gagnvart þeim ávirðingum sem á mig
hafa verið bornar. Eg vænti þess að þessi ítarlega
greinargerð taki af öll hugsanleg tvímæli um raun-
veruleika mála. Greinargerð GÁS 26.9:94
Rannsóknarblaðamaðurinn: „Nú er það stundum
sögð almenn regla hjá þingmönnum að eiga erfitt með
að viðurkenna sín mistök. Hvernig horfir það við
þér?“ hp 13.3:81
Ráðherrann: „Ég segi enn og aftur, að ég er ekki full-
kominn, fremur en nokkur annar. í þessari greinar-
gerð játa ég að ég hefði getað staðið betur að tilteknum
málum; s.s. í málum tryggingayfirlæknis og hvað varð-
ar upphæð greiðslu til upplýsingafulltrúa. Það viður-
kenni ég. Um önnur mál kunna að vera skiptar skoð-
anir. Og enn önnur njóta almennrar viðurkenningar
Og stuðnings. Greinargerð GÁS 26.9:94
Rannsóknarblaðamaðurinn: „Nú er sagt að þú hafir
safnað í kringum þig fámennum og traustum hópi já-
bræðra sem þú hyglir í krafti valda þinna en þeir síðan
myndi kosningamaskínu fyrir þig í prófkjörsslagsmál-
um. Er þetta rétt?“ hp 23.1:81
Ráðherrann: „Ég held ... að óhætt sé að fullyrða að ...
ég hafi ævinlega reynt af bestu getu að liðsinna fólki og
það án þess að gera nokkurn mannamun, hvorki
draga fólk í dilka eftir stjórnmálaskoðunum eða stöðu
í lífinu að öðru leyti, heldur hafi ég reynt að þjóna öll-
um jafnt. ... Þetta vil ég sérstaklega undirstrika í ljósi
þeirrar ósönnu umræðu sem hafin er, að ég hafi í
störfum mínum sem bæjarstjóri farið í manngreina-
álit, horft til þröngs hóps sérstakra vina minna, flokks-
félaga og ættmenna í störfum mínum sem bæjarstjóri.
Ég vil fullyrða að hér er verulega réttu máli hallað og
þvert á móti hafi öll störf mín helgast af öðrum grund-
vallarsjónarmiðum.“ GmnargcrðGAs 26.9:94
Rannsóknarblaðamaðurinn: „En nú heyrast alltíðar
sögusagnir þess efnis, að þú hyglir vinum þínum og
öðrum nákomnum, en neitir öðrum. Hverju viltu
svara slíku?“ hpís a’so
Ráðherrann: „Vakin hefur verið athygli á þeirri stað-
reynd að Hrafnkell Ásgeirsson lögmaður hefði unnið
fyrir mig sem heilbrigðisráðherra lögfræðilega álits-
gerð. Hefur það verið gagnrýnt í því ljósi að hann væri
náskyldur mér. Það er ekki rétt. En við erum skyldir
eins og raunar velflestir íslendingar ef út í það er farið.
Afi mii^n og faðir hans voru bræður. Það réði þó engu
um að ég óskaði hans álitsgerðar...
Ég ráð'stafaði ekki íbúð í Asparfelli til tiltekinna
hjóna á niðursettum kjörum og framhjá hinu venju-
bundna ferli varðandi meðferð félagslegra leiguíbúða,
eins og ítrekað hefur verið haldið fram. ... Sú tilviljun,
að kona mannsins sem íbúðina leigði er dóttir bróður
afa míns, hafði engin áhrif á afgreiðslu málsins."
Greinargcrð GÁS 26.9.'94
Rannsóknarblaðamaðurinn: „Nú verða menn títt fyrir
skeytum í stjórnmálunum. Verður þú sár og svekktur
þegar þú finnur fyrir mótbyr, ef til vill kannski úr eigin
herbúðum?“ hp 13.3:81
Ráðherrann: „Ég met mína stöðu ágætlega en vissu-
lega mun svona grjótkast og skothríð fjölmiðla, sem
byggir að verulegu leyti á mjög veikum grunni og
stundum ósannindum, sitja eftir að einhverju leyti.
Það tekur vikur og mánuði að leiðrétta að fullu allar
rangfærslur en ég gefst ekki upp baráttulaust.“
GáS, DV8.j>.Vj ■
Samstarfsmenn Guðmundar Árna á
Helgarpóstinum lýsa honum sem hörðum nagla
sem hafi ekkert óttast og gengið hart fram í því
að fletta ofan af spillingu og skandölum.
Og haft gaman af því. Þá hafi viðmælendur hans
kvartað yfir ósvífni og jafnvel dónaskap.
Styrmir Guðlaugsson skoðaði blaðamanninn
Guðmund Árna.
Harði naalinn
Þegar Helgarpósturínn hóf göngu
sína árið 1979 kvað við nýjan tón í
íslenskri blaðamennsku. Hinir
ungu og kappsömu menn, sem
skipuðu ritstjórnina, gáfu hvorki
valdamönnum þjóðarinnar né for-
stjórastéttinni grið til að segja það
sem þeim þótti henta. Þeir kröfðust
svara og sögðu hvers kyns spillingu
stríð á hendur. Vísir að rannsókn-
arblaðamennsku varð til á íslandi.
Einn af þessum ungu mönnurn var
Guðmundur Árni Stefánsson,
núverandi félagsmálaráðherra, þá
tæpra 24 vetra.
„Við réðum Guðmund Árna áð-
ur en við byrjuðum með blaðið
tímabundið til að brúa bil þar til
Halldór Halldórsson kæmi til
starfa, en hann átti að vera odda-
maður okkar í rannsóknarblaða-
mennsku. Hann hafði verið eitt-
hvað á Alþýðublaðinu og ég man
að einhverjir kratar vöruðu okkur
við honum. En okkur fannst fengur
að Guðmundi Árna og hann reynd-
ist þvílíkur starfskraftur að við
fengum leyfi til að halda í hann eft-
ir að Halldór kom.“ Þannig lýsir
Árni Þórarinsson, fyrsti ritstjóri
Helgarpóstsins, tildrögum þess að
Guðmundur Árni Stefánsson gerð-
ist rannsóknarblaðamaður og fletti
ofan af hverju spillingarmálinu á
fætur öðru.
Árni segir að helsti kostur Guð-
BBjörn Vignir
SlGURPÁLSSON
RITSTJÓRNAR-
FULLTRÚi:
„Guðmundur
Arni var töffari.
Hann gekk hreint
til verks og spurði beittra spurn-
inga en þó ekki leiðandi. Við iit-
um á það sem hlutverk þessa
blaðs að róta upp í spillingunni.
Hann gekk hart fram íþví. Hann
fór djúpt íhlutina og gat verið
býsna grimmur. Það erþví
óhætt að kalla hann rannsókn-
arblaðamann. “
Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra hefur þurft að
svara erfiðum spumingum aðgangsharðra blaðamanna á síðustu vikum.
Fyrir fimmtán árum var það hann sem spurði og krafðist svara sem
blaðamaður á Helgarpóstinum.
mundar Árna hafi verið hversu
óhræddur hann var og djarfur,
honum hafi aldrei vaxið neitt í aug-
um. Það má strax sjá þegar fyrsta
tölublaði Helgarpóstsins er flett.
Hann hóf rannsóknarblaða-
mennskuferilinn með ítarlegri út-
tekt á fíkniefnaheiminum. I sama
blaði yfirheyrði hann einnig Björn
Guðmundsson, formann Félags
íslenskra atvinnuflugmanna, og
kom strax að kjarna málsins í fýrstu
spurningunni;
„Hvað réttlætirhin háu launflug-
manna?“
Þarna gaf Guðmudur Árni tón-
inn fyrir það sem koma skyldi á
næstu misserum. Hann gaf við-
mælendum sínum engin grið og
gekk af krafti til hvers verks. En þá
sá hann væntanlega ekki fýrir sér að
hann ætti eftir að þurfa að svara
svipuðum spurningum aðgangs-
harðra blaðamanna fimmtán árum
síðar.
Kollegar Guðmundar Árna á HP
eru sammála um að legið hafi vel
BÁRNI
Þórarinsson
RITSTJÓRi:
„Guðmundur
Árni var bestur í
því snarpa við-
talsformi sem við
kölluðum yfirheyrslu og ég held
ég megi segja að hann hafi lagt
grunn að þeirri tegund blaða-
mennsku. Hann sýndi þar
óvenjumikla hörku og snerpu.
Svo varhann líka í svokölluðum
rannsóknarverkefnum, en mér
fannst hann ekki njóta sín alveg
eins vel þar.
Stóri kosturinn við Guðmund
Árna var hvað hann var
óhræddur og djarfur, lét ekkert
stoppa sig; honum óx ekkert í
augum. Þar af leiðandi náði
hann stoffi sem aðrir náðu ekki.
En hann var stundum dálítið
glannalegur og átti til að fara
fram úr sjálfum sér. “
ftUK: #nw» «{ tnro>*P»éUr*6ii«ra IIIHILÍ: ftjHato II. t*t
tt VutmaukMt 22 b i Veslaanucnia fjétiHUÖUÍWtCfl. Mjftt Ijtnaltttfr i( titi |h 4 fecr*
Uttnt i tit fetra tra fjrr* tfmkmii ItflBMfKR: U{» lUeUNH: Mirt- l«tf. Ui H
s<f«imit*r. toflamsU •{ afetfk m «ittfei»i ti Ufet.
ÉG ER EKKI SPILLTUR
< laci nn_hotgcsrpóskjrinrí. \
fyrir honum að fást við hörð frétta-
mál. „Hann var mesti fréttahaukur-
inn af okkur og hörðu fréttamálin
lágu kannski betur fyrir honum en
okkur hinum,“ segir Guðlaugur
Bergmundsson. Guðjón Arn-
grímsson vill skýra það út frá ka-
rakternum, Guðmundur Árni hafi
verið ófeiminn og óhræddur við að
vaða í hlutina. Annar ritstjóranna,
Björn Vignir Sigurpálsson, segir
hann geta hafa verið grimman og
það kom fyrir að viðmælendur
hans kvörtuðu undan ósvífni og
jafnvel dónaskap blaðamannsins
unga. Hann afkastaði miklu, var
hörkuduglegur en gat verið glanna-
legur, að sögn Árna.
Spilling, spilling... Rannsóknarblaða-
mennskuferill Guðmundar Árna Stef-
ánssonar snerist að verulegu leyti um
að fletta ofan af hvers kyns spillingu.
; saSíKWSíS
assssis&'Æ «í
I fSSö.
I
r