Helgarpósturinn - 03.10.1994, Síða 27
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FÓLK
27
Guðjón PBU
Arngrímsson jr aMH
blaðamaður: 8| '•
„Hann var vaskur maður
sem afkastaði vel. Hann \M0-
gekk beint til verks, óð ímenn og spurði.
Ég man að það var talsvert kvartað yfir
honum; hann væri ósvífinn og harður,
dónalegur jafnvel. “
Spillingin á kpnnu
Guðmundar Arna
Það var hlutverk Guðmundar
Árna að fjalla um spillingu og skan-
dala sem upp komu, og grafa þá að
öðrum kosti upp. Honum varð vel
ágengt við þá iðju.
Það er kaldhæðnislegt en þegar
afrek hans á ritvellinum eru skoðuð
kemur orðið spilling ótrúlega oft
fyrir. „Ég er ekki spilltur," var til
dæmis fyrirsögnin á yfirheyrslu yfir
Magnúsi H. Magnússyni, fyrrver-
andi ráðherra Alþýðuflokksins. Og
viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson
bar yfírskriffina „Ætli ég sé ekki til-
tölulega óspilltur“. Og hann þefaði
spillinguna uppi víða. Næst tók
Guðmundur Árni nýskipaðan yfir-
borgarfógeta og framsóknarmann,
Jón Skaftason, á beinið í yfir-
heyrslu. Þar kemur fram merkileg
skilgreining blaðamannsins sjálfs á
Guðlaugur
Bergmundsson
blaðamaður:
„Guðmundur
Árni var harður
nagli. Það er
óhætt að segja
að hann hafi verið harður í horn
að taka. Hann varmikið íþess-
um skandalmálum sem voru
áberandi á síðum blaðsins. Og
hann hafði gaman afþví."
pólitískri spillingu. Hann spyr:
„Hvað segirþú um pólitískar emb-
œttisveitingar almennt?
„Hvað áttu við þegar þú talar utn
pólitískar embœttisveitingar?“
Þegar t.d. ráðherra velur flokks-
bróður sinn til ákveðinna starfa og
tekur hann framyfir aðra sem hafa
lengri starfsreynslu í viðkomandi
starfi?“
Með þessu vísaði Guðmundur
Árni til ráðningar Jóns.
Enn bar spillingu á góma í yfir-
heyrslu yfir Vilmundi Gylfasyni,
sjálfum krossfaranum gegn spill-
ingu. Guðmundur Árni sá ástæðu
til að spyrja hann:
„Þú telur þig setn sagt hvítþveginn
af allri þeirri spillingu sem hér við-
gengst? (Oggefur sér þar tneð greitii-
lega spillingu stjórnmálamanna.)
Næstur á beinið var Kjartan Jó-
hannsson. Fyrsta spurningin er
hvöss:
„Nú hafa ýtnsar þíttar embœttis-
ákvarðanir verið umdeildar í meira
lagi. ... Ertu í eðli þínu einráður og
ferð þínar eigin leiðir? Og síðar: „Áð-
ur en þú breyttir reglum Fiskveiða-
sjóðs, þá voru heimiluð fiskiskipa-
kaup til þíns kjördœmis - Reykja-
ness. Var þar um fyrirgreiðslupólitík
að rceða? Varstu að tryggja þig í sessi
í þínu kjördxtni?"
Þorgrímur
Gestsson
blaðamaður:
„Ég man að hann
var alltaf mjög
röskur og ákveð-
inn. Þá var hann
áhugasamur og afkastamikill.
Hann var hvass stundum og
óvæginn í orðum.“
Spillingarþefinn lagði víða. Ein
úttektin snerist um framkvæmda-
stjórastörf Jóns Sólness, fyrrver-
andi þingmanns, við byggingu
Kröfluvirkjunar. Staldraði Guð-
mundur Árni sérstaklega við laun
Jóns og spurði í fyrirsögn: „Ákvað
Jón Sólnes framkvæmdastjóralaun
sín sjálfur?" Eltist hann síðan við
embættismenn og ráðherra til að fá
á hreint hver samdi við Jón. Hann
komst að því að það var iðnaðar-
ráðherra sjálfur.
Rannsóknarblaðamaðurinn
komst oftar í feitt og spurði meðal
annars í fýrirsögn: „Flugmálastjóri
- ríki í ríkinu?“ Þar fletti
hann ofan af háum yfir-
vinnugreiðslum til Agnars
Kofoed-Hansen.
Ættartengsl í íslenskum
stjórnmálum og embættis-
mannakerfi skoðaði Guð-
mundur Árni svo sérstak-
lega undir fyrirsögninni:
,yÆttartré valda og metorða í
stjórnkerftnu“. Þar sá hann
meðal annars ástæðu til að
spyrja nienn hvort þeir
hefðu notið ættar sinnar.
Svo spyr hann Hjörleif
Guttormsson: „Nú starfaðir
þú sjálfur sem yfirmaður
tvíburabróður þíns, er þú
varst ráðherra iðnaðarmála.
Var iðnaðarráðuneytið að
verða ættarveldi?“
Fátækt og
flottræfilsháttur
Þótt hér hafl einkum ver-
ið staldrað við afhjúpun
Guðmundar Árna á hvers
kyns spillingu var fleira sem
til hans friðar heyrði. Rann-
sóknarblaðamaðurinn fjall-
aði óhikað um það sem
miður fór í velferðarþjóðfé-
laginu og oftar en ekki
mátti greina tón beittrar
þjóðfélagsgagnrýni.
Hann fjallaði um fátækt í
Reykjavík og lauk greininni
með þessum orðum: „Það
er því Ijóst ... að fátœkt
finnst í Reykjavík, enda þótt
velferðarþjóðfélagið hafi til-
hneigingu til að sveipa hana
hulu. ... Það liggur fyrir að
þjóðfélagið gerir ekki tnikið
til að upprœta fátcekt eins og
hún liggurfyrir íReykjavík."
Þessu næst fjallaði félags-
málaráðherrann verðandi
um lífsmáta verkalýðsfor-
ingjanna - væntanlega til að
sýna fram á andstæðurnar í
íslensku þjóðfélagi.
Sum þeirra mála sem
Guðmundur Árni vakti at-
hygli á vöktu deilur. Mikið
uppnám varð þegar hann
fjallaði um illa meðferð á
öldruðum á elliheimilinu
Grund. Fyrirsögnin var
„Gaukshreiður ellinnar?"
Birt voru dagbókarbrot
starfsstúlku á elliheimilinu,
sem hafði ekki fagra sögu
að segja. Jafnframt var rætt
við sálfræðing um málið.
Fannst mörgum sem verið
væri að ráðast á Gísla á
Grund og hugtakinu sorp-
blaðamennska óspart veif-
að.
Hér hefur aðeins verið
stiklað á stóru, því afköst
Guðmundar Árna þau ár
sem hann var rannsóknar-
blaðamaður voru óvenju-
mikil. Hann hætti störfum
haustið 1981 staðráðinn í
því að ná langt í pólitík.
Árni Þórarinsson sá eftir
honum af ritstjórninni.
„Við vorum að ræða saman
á barnum á Hótel Borg,
kvöldið sem fyrsta tölu-
blaðið kom út, um pólitík
og nauðsyn þess að fjöl-
miðlar veittu stjórnmála-
mönnum aðhald þegar
hann sagði: „Ég ætla að
segja þér það, að ég ætla að
hella mér á bólakaf í þetta.“
Hvað? spurði ég. „Pólitík."
Það fannst mér hörmulegt
að heyra. Við töluðum um
þetta nokkrum sinnum síð-
ar og ég reyndi að halda
honum í blaðamennskunni
en það var ljóst að hann
ætlaði sér í pólítik - og ná
langt. ■
Ættflokkamunsbin eni vinsæl
kynjanna er jafnt meðal viðskipta-
vina Marks og segir hann kven-
fólkið oft velja sér fallegri munstur
en strákarnir. Rósir eru til að
mynda vinsælar hjá þeim.
„Húðflúrið er einungis tíska hér
á landi. íslendingar fá sér það af
engri annarri ástæðu en þeirri að
húðflúrið þykir flott. Þeir vilja láta
á því bera og þess vegna er vin-
sælla hjá þeim að
láta húðflúra
handleggina á sér
en bakið, sem er
algengara í Bret-
landi.“
Mark kom hingað
til lands í júlí og
hyggst dvelja hér við
að skreyta (slend-
inga eins lengi og
honum er unnt. ■
Mark John Felstead er
breskur húðflúrari sem starfar
um þessar mundir á Húðflúrstof-
unni Skinnlist. Hann kom hingað
til lands í júlí og síðan hefur við-
skiptavinina ekki skort hjá hon-
um. Þeir hafa margir hverjir beð-
ið Mark að flúra á sig ættbálka-
munstur sem eiga rætur að rekja
til fjarlægra landa á borð við
Polýnesíu og Malasíu. Mark
furðar sig ekki á því að (slend-
ingar skuli velja þau frekar en
tákn úr víkingasið.
„Tattótímaritin sem fólk les eru öll
bandarísk og þar sjást þessi munst-
ur. íslendingar eru mjög meðvitaðir
um tísku og verða fyrir miklum áhrif-
Mark John Felstead:
„íslendingar eru mjög meðvitaðir
um tísku og verða fyrir miklum
áhrifum frá Bandaríkjunum."
um frá Bandaríkjun-
um,“ segir Mark.
Til samanburðar
bendir hann á að
Bretar séu þjóðern-
issinnaðri og velji
sér frekar munstur
úr eigin menning-
arheimi. Hlutfall
Litlir léttir
; ■
Hagenuk MT 2000
& liprir
Þrír vandaðir farsímar
fyrir nýja GSM farsímakerfið.
Lítill og léttur
GSM farsími
frá Motorola
á góðu verði.
Sendistyrkurinn
er 2 wött. Símanum fylgir
innbyggt, óbrjótanlegt loftnet
sem draga má út. Flipi er á símanum
sem lokar takkaborðinu. 100 númera
skammvalsminni er í símanum. Aukarafhlaða
og fullkomið borðhleðslutæki fylgir.
Ericsson Pocket GH
Léttur og handhægur GSM
farsími, hentugur í vasa og
veski. Ericsson Pocket vegur
aðeins um 197 gr og sendi-
styrkurinn er 2 wött.
Minni fyrir númer og nöfn.
Hleðsluspennir fyrir rafhlöðu
■ Fjöldi fylgihluta fáanlegur.
Traust viðgerðar- og varahlutaþjónusta.
Hagenuk síminn er ódýr og sterkur
GSM farsími með innbyggðum sím-
svara fyrir nöfn og talnaboð. Síminn
er einfaldur í notkun. Síminn hefur
99 númera skammvalsminni, bæði
fyrir númer og nöfn. Hleðsluspennir
fyrir rafhlöðu.
*
4
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeild Ármúla 27, sími 91-63 66 80
Söludeild Kringlunni, sími 91-63 66 90
Söludeild Kirkjustræti, 91-63 66 70
og á póst- og símstöðvum um land allt.
VISA og Eurocard
raðgreiðslur.