Helgarpósturinn - 03.10.1994, Side 34

Helgarpósturinn - 03.10.1994, Side 34
34 MORGUNPÓSTURINN BÍLAR MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994 BkAR95 Saab Litlar breytingar verða á Saab-bifreiðum. Þó fær Saab 9000 CD smáandlitsupplyftingu á fram- og afturenda. Framendinn verður í stíl við Saab 9000 CS og afturend- inn eilítið rúnnaðri en hann er í dag. Þá verður í boði ný V6 3ja lítra 210 hestafla vél. ■ Skoda Það verða ekki mikl- ar breytingar á 1995-árgerðinni af Skoda, enda voru miklar breytingar gerðar á bílnum 1993. Von er á tveimur nýjum bílum frá Skoda á næsta ári. ■ Subaru Legacy breyttist mikið á síðasta ári og verður árgerð ‘95 óbreytt frá síðasta ári. Bílar sem fluttir eru inn í minna magni eins og Nissan Maxima og Nissan 200 SX verða mikið breyttir frá síðasta ári. ■ Toyota kynnir þessa dag- ana nýja bílinn, RAV 4. Bílnum er ætlað að sameina kosti jeppa og fólksbíls. Hann er útbúinn 2 lítra, 4 strokka og 16 ventla vél, og sí- tengdu aldrifi. Bíllinn verður fáan- legur eftir áramót og kemur til með að kosta kr. 2.289.000. Ný útgáfa af Toyota Carina, Carina Catchy, er nú á sérstöku tilboðs- verði. Bíllinn er útbúinn 2,0 lítra, 133 ha., 16 ventla vél með beinni innsprautun og ýmsum aukabúnaði og á að kosta 1.599.000 kr. Annars verða einu útlitsbreyting- arnar á öðrum gerðum Toyota- bíl- anna nýir litir og nýjar tegundir sætaáklæðis. ■ Volkswagen Engar breytingar verða á milli ára á Volks- wagen en um miðjan nóvember kynnir umboðið nýjan bíl, Volks- wagen Polo. Polo verður fáanlegur með 1300, 55 ha. vél og 1000, 45 Birgir Bieltvedt, framkvæmdastjóri Dominos FordMustang „Ég er búinn að eiga bílinn í tvö ár. Ég keypti hann af strák sem flutti hann inn frá Bandaríkjunum og bíllinn var búinn að liggja óhreyfður í bílskúrnum hjá hon- um lengi. Það eru til þrír eða fjórir alveg eins bílar á landinu, en ég held að minn sé sá eini í fullri notkun allt árið um kring.“ Vekur btllinn ekki mikla at- hygli? „Ég varð líklega mest var við hana fyrst bara hjá vinunum. Annars er bíllinn þannig á litinn að hann felur sig aðeins.“ Hvemig lýsirðu karakter bíls- ins? „Orginal. Það þarf að læra á hann. Það var ekki gott að keyra hann fyrst en svo þegar hann venst verður hann fínn. Það er enginn glamúr í kringum þennan bíl og óþarfa aukabúnaður. Hann er orginal og besta dæmið um það er líklega að það næst ekkert ann- að en kaninn í útvarpinu." Hvað skiptir höfuðmáli í satn- bandi við bíl? „Að hann fari í gang á morgn- ana og komi manni á milli staða.“ Er hœgt að sjá út persónuleika manna á bílnum þeirra? „Nei, ég held ekki.“ ■ ha. vél. Bíllinn mun kosta frá kr. 875.000. ■ Volvo 1.8 kemur með minni vél. Fimm dyra bíllinn verður á kr. 1.448.000 en fernra dyra á kr. 1.498.000. Annars verða engar breytingar á milli ára á Volvo. ■ Limmó til leigu Það er eitthvað dularfuilt og spennandi við limósínur. Þær eru yfirleitt svartar með skyggðum rúð- um svo ekki er hægt að sjá hver er á ferðinni, maður verður forvitinn og veltir fyrir sér hvaða milljóner sé aft- ur í bílnum. Þessar glæsikerrur tengjast yfirleitt frægu fólki og pen- ingum og það er virðuleiki yfir þeim þar sem þær líða um göturnar. Það er lítið um „stjörnur“ á Is- landi og fræga fólkið er yfirleitt leik- arar sem fá borgað eftir taxta Þjóð- leikhússins, og svo popparar sem eiga oft í vandræðum með að borga leiguna því að pöbbinn sem þeir spiluðu á síðast er ekki enn búinn að gera upp við þá. Stjörnurnar okkar eiga nóg með að láta enda ná saman og fara því varla að leigja sér limósínur. Þó er starfrækt fyrirtæki í höfuð- borginni sem heldur úti einni lim- ósínu til leigu og það er töluvert að gera. Þetta ágæta fyrirtæki heitir Eðal- vagnar hf. og eigandi þess er Hjalti Garðarsson. Hann segir töluverða eftirspurn eftir limósínu þeirri er hann leigir út, sem er tæplega 8 metra langur Cadillac Brougham árgerð 88. „Ég keypti bílinn hjá stórri bílasölu í New York sem sér- hæfir sig í breyttum bílnum. Öll klæðning innan í bílnum er úr leðri og póleraðri hnotu. Þetta er dýrasta standard-innrétting sem hægt er að fá. í bílnum er sjónvarp, myndband, bar og þrír símar." Bílinn þarf að panta með 2-3 daga fyrirvara og leigan fyrir klukkustund er kr. 4.500. Ef fólk vill leigja bílinn til lengri ferða er hægt að borga kílómetragjald sem er kr. 180 á kílómetrann og sleppa þá við tímagjaldið. Hjalti segir að fólk sé smám sam- an að átta sig á að það sé til alvöru limósínþjónusta á íslandi, en það hafi skemmt fyrir honum hvað lim- ósínþjónusturnar sem starfræktar hafi verið á landinu áður hafi boðið upp á lélega bíla; fólk hafi pantað limósínu og fengið Benz sem einnig Friðrik Halldórsson, formaður ferðaklúbbsins 4x4 Toyota Extmcab V6i, árgero 1990 „Ég keypti bílinn fyrrihluta árs 1990 og er búinn að gera töluvert mikið fyrir hann; setja í hann lór- an, Gufunestalstöð, CB og bíla- síma, hækka hann upp, setja á hann kanta og stærri dekk.“ Hvernig er karakter bílsins? „Ljúfur, mjög ljúfur, enda eru allar breytingar sem gerðar eru á honum miðaðar við það. Þó er hann svolítið „viskí“, það er svolít- ill ruddi í honum. Ég vil ekki hafa hann of mikinn dúkkulísubíl.“ Hvað skiptir mestu máli í sam- bandi við bíla? „Ég hef nú alltaf verið dálítið veikur fyrir vélum og vil hafa bíla spræka svo að maður sitji ekki eftir þegar eitthvað á að fara að gerast! Bensíneyðsla skiptir mig meira og meira máli þar sem ég er fjöl- skyldumaður.“ Er hœgt að segja til um persónu- leika matins útfrá bílnum hans? „Já, ugglaust. Maður sér kannski ekki karakterinn en fer ósjálfrátt að ímynda sér hann. Til dæmis hlýtur maður á stórum jeppa að vera rusti og kona á jeppa er ábyggilega hörkukvendi!" ■ Lamborghini-fyrirtækið varð 30 ára á dögunum. Til að fagna tímamót- unum - og gleðja fastakúnnana sem hafa gaman af að komast hraðar en annað fólk - er að koma á markað nýr bíll frá verksmiðjunum. Hann ber nafnið Lamborghini Dia- blo SE og undir húddi hans leynist 12 ventla, 520 hestafla vél. Diablo, sem þýðir djöfullinn á ís- lensku, er ekki nema 4 sekúndur að skjótast upp í hundrað kílómetra hraða, og á aðeins lengri tíma er hægt að koma honum upp í 360 kílómetra hraða. Lamborghini-fyrirtækið hefur átt í . töluverðum fjárhagserfiðleikum undanfarin ár en það er von manna að með tilkomu Djöfulsins séu þau vandræði úr sögunni. ■ SKODA Sigurður Gröndal Ellen Kristjánsdóttir Hallur Helgason Jón Múli Arnason Steinn Ármann Ásgeir Óskarsson V0LV0 Ellert B. Sighvatur Björgvinsson Hallur Hallsson Óli H. Þórðarson HYUNDAI sentitr fra ser nytt tryllitæki hafi verið notaður sem leigubíll. Hann bjóði hins vegar upp á ekta limósínu sem ekki sé notuð til neins annars en það sem hún akkúrat er hönnuð fýrir. En hverjir taka limósínu á leigu á íslandi? „Bíllinn hefur verið mikið notað- ur í brúðkaup og svo þegar fýrirtæki hafa þurft að láta ná í einhverja stór- laxa út á flugvöll. Einnig hefur það færst í vöxt að nokkur hjón taki sig saman, ef ætlunin er að lyfta sér upp, og leigi bílinn, enda er það ódýrara en ef öll pörin taka leigubíl hvert í sínu lagi. Svo eru það alltaf einhverjir rómantískir sem vilja eiga eftirminnilegt kvöld með kærastan- um eða kærustunni og leigja þá bíl- inn,“ segir Hjalti. Hjalti segir einnig að það komi fyrir að hann keyri þjóðhöfðingja sem koma til landsins og eru vanir meiri lúxus en þeim sem Hreyfill eða Bæjarleiðir geti boðið upp á. „Ég keyrði Hinrik Danaprins eftir að opinberri heimsókn hans lauk og hann fór að skoða sig um sjálfur; ar- abíski furstinn sem kom til landsins var farþegi minn; bandarískur öld- ungadeildarþingmaður leigði bílinn í sumar; og svo Gordon Ghetty, af- komandi milljarðamæringsins Pauls Ghetty.“ Það er augljóst að stundum er á ferð ansi merkilegt fólk í limósín- unni hans Hjalta og því vel þess virði að rembast við að rýna í gegn- um skyggða glerið til að sjá hver þar er á ferð. ■ Jón Baldvin Hannibalsson Jóhanna Sigurðardóttir Bryndís Schram JEPPAR i Kjartan Gunnarsson Össur Skarphéðinsson Ásgeir Bolli Kristinsson Jón Ólafsson | Steingrímur Hermannsson Guðmundur Malmquist FIAT Dagur Sigurðsson V0LKSWAGEN Konráð Olavsson Þorgils Óttar Mathiesen Guðmundsson Dr. Gunnlaugur Þórðarson Erla Ftafnsdóttir BENZ Derríck Kristján Jóhannsson 0PEL Ólafur Laufdal

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.