Helgarpósturinn - 03.10.1994, Side 42
42
MORGUNPÓSTURINN SPORT
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
Ummælin
Dmumaleikmannahóp
urinn í NBA- deildinni
keppninni gegn New York. Óvíst er
um framtíð hans hjá félaginu enda
vill hann ólmur komast þaðan og
stjórnin vill lítið með svona prím-
adonnur gera.
6. Charles Barkley, Phoenix
Suns. Það fór ekki mikið fyrir
Barkley á síðasta
tímabili vegna
slæmra bakmeiðsla.
Hann minnti þó
rækilega á sig gegn
Golden State í úr-
slitakeppninni þegar
hann skoraði 56 stig.
7. Latreil
S p r e we 11,
Golden State
Wa rri o rs.
Frami hans
hefur verið æv-
intýri líkastur.
Frábær varnar-
maður alla tíð
en enginn trúði
að hann væri
eins knár sóknarmaður og raun er.
8. Alonzo Mo-
urning, Charl-
otte Hornets.
Það fer mikið íyrir
Mourning hvar
sem hann fer enda
vill hann í sífellu
minna á sig með
orðagjálfri. Er þó
meira en bara orð-
hákur. Varnarleikurinn er frábær
og sóknarleikurinn batnar með
hverju árinu.
9. Karl Mal-
one, Utah
Jazz. Meistara-
titill er það eina
sem vantar til að
fullkomna feril
hans. Hann er
tröll að vexti en
undarlega lipur
miðað við lík-
amsburði.
Að þessu sinni eru það aðstand-
endur hins nýja Stúdentablaðs sem
eiga ummælin sem vert er að
staldra við. I fyrsta tölublaðinu,
sem kom út í byrjun september, var
nemendum sagt að þar sem Há-
skólinn er staðsettur á KR-svæðinu
væri þar með sjálfgefið að nemend-
ur hans væru KR-ingar. Þeir sem
héldu annað væðu í villu og svíma.
Greinarhöfundar blaðsins hafa
greinilega hvergi slakað á þessum
hugmyndum sínum í nýjasta tölu-
blaðinu, en þar segir orðrétt:
gulltryggði titilinn með því að
skora 71 stig í síðasta leiknum. Ro-
binson er líkur Olajuwon að því
leyti að hann er mun hreyfanlegri
en flestir aðrir miðherjar. Það verð-
ur fróðlegt að sjá hvernig leikur
hans mun breytast við brotthvarf
John Lucas en Robinson er afar
ósáttufcvið að hann sé farinn.
3. Shaquille O’Neal, Orlando
Magic. Vin-
sælasti og
frægasti leik-
maður NBA-
deildarinnar
bætti sig mikið
í fyrra þrátt
fyrir hrakspár.
I sumar hefur
hann æft sig
jafnvel enn
betur en áður og má því búast við
að hann komi endurnýjaður til
leiks. Kraftar hans eru hrikalegir og
þá notar hann óspart við að ryðja
andstæðingum úr leið sinni að
körfunni.
4. Patrick Ewing, New York
Knicks. Enginn varð fyrir eins
miklum vonbrigðum síðasta vor
eins og hann. New York komst alla
leið í úrslit eftir mikla baráttu en
þurfti að lúta í lægra haldi fyrir
Houston. Ewing þaggaði niður í
gagnrýnisröddum sem höfðu hald-
ið því lengi fram að hann gæti ekki
leitt Knicks í úrslitin. Það er líklega
nú eða aldrei fyrir Ewing að krækja
sér í titil.
5. Scottie Pippen, Chicago
Bulls. Tók við
leiðtogahlut-
verki í Chicago
eftir brotthvarf
Jordan og spil-
aði frábærlega.
Það varpaði þó
stórum skugga
á tímabilið þeg-
ar hann neitaði
að fara inn á
undir lok þriðja leiks í úrslita-
Stórlaxarnir Hakeem Olajuwon og Patrick Ewing eru báðir í liðinu.
„Frá því snemma í sumar hefur
knattspyrnulið KR verið nær
ósigrandi á knattspyrnuvellinum
og m.a. landað einum bikarmeist-
aratitli í óspennandi leik gegn
Grindvíkingum. Skömmu síðar
tóku KR-ingar hina svonefndu ís-
landsmeistara í bakaríið uppi á
Skaga og hafa unnið alla leiki sína
síðan þá.
Með það til hliðsjónar að KR
sigraði aukinheldur hina svoköll-
uðu Islandsmeistara ÍA í bikar-
keppninni (sem við var að búast
býsna auðveldlega) hafa heyrst
háværar raddir um að KR fái líka
tslandsbikarinn heim í Frosta-
skjól enda eigi þeir hann skilinn,
Skagamenn skittapa um allt land
um þessar mundir. Háskólinn
hlýtur að taka undir með þessum
skynsemisröddum enda Háskól-
inn í KR, eins og fram kom í síð-
asta tölublaði.“
Það væri synd að segja að skoð-
anir væru skiptar á ritstjórn blaðs-
ins hvað fótboltann varðar. Rönd-
ótt hugarfar er í hávegum haft og
aðrir virðast beygja sig undir það.B
Nú er farið að styttast í að snill-
ingarnir í NBA fari að reima skóna,
teipa ökkla og setja sig í réttu skot-
stellingarnar. Það er alltaf gaman
að bera leikmenn deildarinnar
saman og hefur MORGUNPÓSTUR-
INN nú valið tólf bestu leikmenn
deildarinnar; hinn fullkomna leik-
mannahóp. Leikmönnunum er
raðað eftir styrkleika og er sá besti
að sjálfsögðu númer eitt.
1. Hakeem Olajuwon, Hou-
Ston Rockets. Hakeem átti sann-
kallað draumatímabil í fýrra og var
besti leikmaður undankeppninnar
sem og úrslitakeppninnar. Hann er
fullfær um að leika hvaða leikstíl
sem er þar sem hann hefur bæði
líkamsstyrk og snerpu til að kljást
við hvern sem er. Undir forystu
hans verður Houston illviðráðan-
legt í vetur og á Hakeem ágæta
möguleika á að upplifa á ný líkt
tímabil og það síðasta.
2. David Robinson, San An-
tonio Spurs. Aðmírállinn varð
stigakóngur síðustu leiktíðar. Hann
10. Reggie Miller, Indiana
Pacers. Besta skytta NBA-deild-
arinnar. Hann náði að sanna sig
endanlega með ótrúlegri skotsýn-
ingu gegn New York síðastliðið vor.
Verður áreiðanlega áberandi í vet-
ur.
11. John
Stockton,
Utah Jazz.
Hefur um ára-
bil verið besti
leikstjórnandi
NBA. Leiddi
deildina í stoð-
sendingum í
fyrra og hefur
nú gert það í
átta ár sam-
fleytt. Einn alræmdasti boltaþjófur
í sögu deildarinnar.
12. Shawn Kemp, Seattle
SuperSonics. Hinn 24 ára gamli
kraftframherji bætir sig með hverju
árinu sem
líður. Eng-
inn efast um
hæfileika
hans. Á eftir
að verða
einn besti
leikmaður
deildarinnar
á næstu ár-
um. ■
Hvers vegna HM?
Var það af sjálfbirgingshætti
stjórnar HSl, eða til að þóknast
„strákunum okkar“ eða kannski af
einskærri heimsku að sótt var um
HM á íslandi? Nei, ekkert af þessu
lá að baki þessari ákvörðun.
Það var af öðrum ástæðum og
ólíkum að forysta HSÍ (og þjóðar-
innar á sínum tíma) lagði út í það
þrekvirki að sækja um og ætla sér
að skipuleggja hér heimsmeistara-
mót í handknattleik.
Ferðamannastraumur
íslendingar hafa af miklum
krafti reynt að auka hingað ferð-
mannastraum. Til að mynda hefur
miklu fjármagni verið varið í aug-
lýsingar í blöðum og tímaritum er-
lendis, skipulagðar hafa verið sýn-
ingar listamanna í stórborgum,
auglýstar hvataferðir, styrkir veittir
farandsýningum, blaðamönnum
boðið hingað til lands og listamað-
ur hefur jafnvel verið skipaður
sendiherra. Þessi áróður hefur skil-
að árangri. Þetta og meira til hefur
skilað árangri í ferðamálum á Is-
landi. Bændagisting hefur tífaldast,
jökla- og Lónsferðir orðnar algeng-
ar, vetrarferðir yfir ísalög, ráð-
stefnusalir útbúnir, hótel náð góðri
nýtingu og margt fleira. Skyldi ekki
heimsmeistaramót í ólympíugrein,
íþróttagrein sem leikin er í yfir
fjörutíu löndum, skapa umtal og
eftirtekt?
Þetta sáu menn fýrir og lögðu sig
eftir að sækjast eftir keppninni
hingað til lands. Sjónvarpað verður
Kjaiiari 1
& Ólafur SCHRAM
frá þessari keppni, hingað má bú-
ast við 3-400 fréttamönnum og
þær milljónir sem hafa áhuga á
þessari vaxandi íþróttagrein leggja
á minnið hvar Island er. Sagan
verður síðan að segja okkur hve
margt af þessu fólki tekur ákvörð-
un í framhaldinu um að koma ekki
hingað í ffíinu sínu.
Virðing forráðamanna erlendra
handknattleikssambanda fyrir ís-
lenskum handboita er ótvíræð.
Þessi litla eyþjóð hefur skarað fram
úr, ekki bara einu sinni, heldur
samfellt í 25 ár og er núna sjöunda
besta handknattleiksþjóð heims.
Það eru undur og stórmerki þegar
íþróttafféttamaður frá litlu landi
vinnur til verðlauna en það kemur
fyrir. Síðan er ekki minnst á land
hans í langan tíma. Hér eru aðrir
hlutir á ferð. Örríki eins og Island
hefur verið í fararbroddi í áratugi
og, það sem meira er, í hópíþrótt.
Slíkt er nánast kraftaverk. Fyrir
þessar sakir mætti umsókn íslands
velvild á þingum IHF.
Til gamans má geta þess að þeg-
ar Japan lagði inn umsókn sína fyr-
ir HM ‘97 voru mættir 32 fulltrúar
japanska sambandsins, fulltrúi
ráðherra, borgarstjóri Kumamoto
þar sem úrslitaleikurinn á að fara
fram, túlkar, sýningarflokkur auk
fréttamanna, alls um 75 manns.
Þetta ætti að sýna hversu mikla
áherslu þeir leggja á að fá þessa
keppni til sín.
Betri árangur
Oftlega hefur sárvantað stuðn-
ing áhorfenda þegar til stórmóta er
komið. Ég er ekki í vafa um að við
hefðum lagt Frakkana að velli og
unnið bronsið í Barcelona ef við
hefðum verið á heimavelli. Og hver
man ekki árangur Islands í B-
keppninni í Frakklandi ‘89? Þar var
liðið hvatt áfram af dyggum
áhangendum sem gerðu sér lítið
fyrir og skelltu sér til Parísar tii þess
að hvetja liðið. Þar sýndi stuðning-
ur við liðið frá vel hressum áhorf-
endum hverju hægt er að áorka.
Og menn hugsuðu; ef stórmót væri
á Islandi, mætti þá ekki búast við
góðum árangri okkar manna? Með
því að færa keppnina hingað ætti
það að takast. Þetta vakti fyrir um-
sækjendum keppninnar.
Manst þú hvar þú varst 3. ágúst
1992 klukkan átta um morguninn,
sunnudag í verslunarmannahelgi.
Það veit ég — þú varst fyrir framan
sjónvarpið að fylgjast með Islandi
sigra Kóreu á Ólympíuleikunum í
Barcelona. 83% þjóðarinnar sáu
þennan leik! Ekki lítið. Svona er nú
handboltinn vinsæll hér heima.
Með því að koma heimsmeist-
arakeppninni hingað heim er
meiningin að koma til móts við
þessa dyggu aðdáendur og bjóða
þeim upp á það besta í heiminum.
HM á Islandi gerir það. Þetta
höfðu umsækjendur keppninnar í
huga.
Undirbúningurinn hefur staðið í
langan tíma en frá 1. mars 1993 hef-
ur nefndin haft fastan starfsmann,
Hákon Gunnarsson fram-
kvæmdastjóra, og síðar bættust í
hópinn þau Ásdís, Sigurjón,
Geir, Telma og Pétur. Að mörgu
þarf að huga. Hingað til lands
koma fulltrúar 23 þjóða, keppnislið
fjögurra heimsálfa. Aldrei fyrr hef-
ur svo stór keppni verið skipulögð
hér á landi. Huga þarf að leikja-
plani, æfingaáætlun, rútuferðum
keppenda, gistingu, viðurværi,
prentun, læknisþjónustu, útgáfú-
starfsemi, miðasöíu, standsetningu
húsanna, lyfjaeftirliti, samskiptum,
safna sjálfboðaliðum, leiðsögu-
mönnum, útbúa verðlaunapen-
inga og fleira og fleira. Afla þarf
tekna, halda kostnaði í lágmarki,
skipuleggja opnunarhátíð og loka-
athöfn, fínna til þjóðfána og þjóð-
söngva, og ekki síst að skipuleggja
lokaundirbúning landsliðsins okk-
ar. Að auki má búast við tignum
gestum og fögru fylgdarliði.
Halda þarf vel á spiiunum því
HSl er ekki að undirbúa neina
Þjóðvegahátíð og getur ekki farið
100 milljónir ffam úr kostnaðar-
áætlunum eins og sumir.
Óbeinar gjaldeyris-
tekjur
Draumur okkar HSÍ-manna er
að hingað komi harðir kjarnar
handboltaáhangenda 23 liða, og
fyrir utan að styðja sín lið eiri hér á
landi og kynnist þjónustu og gest-
risni íslendinga og síðast en ekki
síst skilji hér eftir drjúgan gjaldeyri.
Og aðrar tekjur eiga líka að skila
sér jjótt á annan hátt verði.
Áætlað hefur verið að til keppn-
innar komi allt að 3-400 frétta-
menn. Eitthvað stoppa þeir mis-
lengi hér á landi en eflaust verða
þeir flestir þegar nær dregur úrslit-
um. En með því að koma upp
góðri aðstöðu á keppnisaðstöðu
fyrir þá til að koma efni sínu sem
fyrst frá sér ætlum við að skapa
rýmri tíma fyrir þá milli leikja.
Þennan frítíma verðum við öll, ís-
lendingar, að nýta sem best til
landkynningar. Ég treysti mér ekki
til að reikna út hvað mikla auglýs-
ingu landið getur hlotið og hvað
við þyrftum ella að greiða fyrir
slíka umfjöllun, enda kannski ekki
málið, heldur hitt að umfjöllunin
verður. Nú ríður því á að vel takist
til, aðstaða þeirra verði góð, þjón-
usta lipur, samgöngur greiðar og
aðbúnaður sómasamlegur. Með
gestrisnu viðmóti almennings geta
allir lagt sitt af mörkum til land-
kynningar og takist vel upp þá
nægir sá árangur einn og sér til að
réttlæta HM á Islandi 1995.
Góða skemmtun.
Höfundur erformaðurHand-
knattleikssambands íslands.