Helgarpósturinn - 03.10.1994, Page 44
44
MORGUNPÓSTURINN SPORT
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
Bestur á Islandi
Sigursteinn
leikmaður
ársins
Það kom víst fæstum á óvart að
Skagamaðurinn Sigursteinn
Gíslason skyldi hljóta útnefning-
una, leikmaður t. deildar, fyrir árið
1994. Ekki frekar en útnefning
Margrétar Ólafsdóttur, Breiða-
bliki, sem besta leikmanns 1. deildar
kvenna.
„Þetta kom skemmtilega á óvart,“
sagði Sigursteinn eftir að útnefning-
in lá fyrir. „Það hafa margir verið að
gauka þessum möguleika að mér en
ég vildi ekki slá neinu föstu fyrir-
fram.
Þetta kemur á mjög skemmtileg-
um tíma fyrir mig, nú held ég til
Svíþjóðar með Rúnari Kristins-
syni að kanna aðstæður hjá
Örgryte. Ef það gengur upp verð ég
þar í vetur en annars er ég á þriggja
ára samningi hjá ÍA og klára hann.“
Ertu sáttur við sumarið?
„Ég get ekki verið annað en sátt-
ur. Við erum meistarar þriðja árið í
röð, eigum markakónginn enn einu
sinni og besta leikmanninn. 1 sumar
hefur verið mikið um vangaveltur
og samanburð á liðinu nú og í fyrra.
Þessi samanburður er mér ekki að
skapi þar eð velgengnin var með
hreinum ólíkindum í fyrra. Þá unn-
um við tvöfalt, áttum markahæstu
menn, besta manninn og þann efni-
legasta auk þess sem við gerðum
góða hluti í Evrópukeppninni. Það
er mjög vafasamt að biðja um mikið
af slíku ár eftir ár.“ Margrét Ólafs-
dóttir var ekki síður kát með titil-
inn. „Þetta er meiriháttar og
skemmtunin ætlar aldrei að taka
enda. Breiðablik er með langbesta
lið landsins og samt má segja að lið-
ið sé mjög ungt og efnilegt. Þjálfun-
in og allar aðstæður gera það að
verkum að maður fær tækifæri til
að láta ljós sitt skína. Síðan spillir
gott gengi kvennalandsliðsins ekki
fyrir og allt vinnur þetta saman.“B
Bestur Skagamaðurinn Sigursteinn Gíslason átti eftirminnilegt tímabil
með (slandsmeisturum Skagamanna. Hann átti hvem stórleikinn á
fætur öðrum, var fastamaður í landsliðinu og nú eru allar líkur á að
hann leiki erlendis í vetur.
Markamínútan fundin
Hér má sjá hvenær leiks mörkin í deildinni voru skoruð. Markamínútan er tvímælalaust sú 68., en níu mörk
voru skoruð á henni í sumar. Reyndar kemur fram að ellefu mörk hafi verið skoruð á 90. mínútu, en hún er
vitaskuld lengsta „mínútan", því til hennar teljast allar mínútur, sem bætt er við vegna tafa.
10 mörk----------------------------
Stjömumenn
skoruðu fæst
enfengufíest
íslandsmeistararnir 1994 Skagamenn skoruðu mörkin í sumar og
fengu einnig fæst á sig. Liðið vann titilinn þriðja árið í röð og tryggði
sig eftirminnilega í flokk sigursælustu liða íslandssögunnar.
Sigurvegarar Hörður Helgason
gerði Akurnesinga að meisturum
í ár og komst þar með aftur í flokk
toppþjálfara eftir nokkur mögur
ár. Ekki hefur enn verið ákveðið
hvort hann verður með liðið á
næsta tímabili. Það sama má
segja um markakónginn Mihajlo
Bibercic, sem sterklega hefur
veríð orðaður við KR.
Múrinn fallinn Gulldrengurinn
Guðjón Þórðarson réð sig í brúna
hjá Vesturbæjarliðinu KR með eitt
markmið: Að rjúfa aldarfjórð-
ungsgömul álög sem hvílt hafa á
liðinu með titlaleysi. Sigur vannst
í bikarkeppninni í glæsilegum úr-
slitaleik við Grindvíkinga og nú
segja menn að fátt verði til að
stöðva liðið á komandi árum.
Stjörnumenn hljóta margvísleg-
an „heiður“ í uppgjöri íslands-
mótsins. Þegar tölurnar eru skoð-
aðar kemur í ljós að engin tilviljun
var að liðið hafnaði í neðsta sæti.
Leikmönnum tókst aðeins átján
sinnum að koma knettinum í mark
andstæðingsins, eða einu sinni í
hverjum leik, en þeir voru hins veg-
ar liða duglegastir við að taka á
móti mörkum, alls 39 sinnum. Sig-
urður Guðmundsson markvörð-
ur hlýtur því þann vafasama heiður
að hafa fengið flest mörk á sig af
markmönnum deildarinnar. ■
Skómir á hilluna Blikastúlkan
Ásta B. Gunnlaugsdóttir hefur
gefið þá yfirlýsingu að hún sé
hætt að leika knattspyrnu. Ásta
hefur lengi verið í allra fremstu
röð íslenskra knattspyrnukvenna
og ekki er hægt að segja annað
en hún hætti með stæl; íslands-
og bikarmeistari með Breiðabliki
auk þess að vera fastamaður í
sigursælasta landsliði íslendinga
fyrr og síðar.
Efnilegastur Það kom líklega fáum á óvart að Valsmaðurinn Eið-
ur Smári Guðjohnsen skyldi vera útnefndur efnilegasti leikmaður
deildarinnar í lokahófinu. Drengurinn sló eftirminnilega í gegn í
sumar og tætti oft varnir andstæðinganna í sig með tækni sem fá-
um er gefin. Litlar líkur eru á því að íslendingar fái að sjá meira af
drengnum hér heima, nema þá í landsleikjum, því erlend stórlið
bíða í röðum eftir að njóta hæfileika hans og líklega fer hann utan
von bráðar.
Eiður Smári og
Katrín efnilegust
Á lokahófi knattspyrnumanna voru
valdir efnilegustu leikmennirnir í 1. deild-
um karla og kvenna. Ekki er hægt að segja
að valið hafi komið á óvart, Eiður Smári
Guðjohnsen úr Val og Katrín Jóns-
dóttir, UBK, voru útnefnd af félögum
sínum í boltanum og voru að sjálfsögðu
mjög ánægð með heiðurinn.
Eiður Smári segir útnefninguna
skemmtilega og setja punktinn yfir i-ið á
skemmtilegu sumri.
„Þetta er búið að vera mjög gaman og
lærdómríkt fyrir mig. Mér hefur gengið
vel og það hefur vakið áhuga erlendra
liða. Mörg þeirra eru í viðræðum við um-
boðsmann minn og verður bara að koma
í ljós hvað úr verður.
Ég er afar ánægður í herbúðum Valsara
og þar hefur allt verið pottþétt. Ég er ekki
samningsbundinn liðinu og hef ekki
fengið neinar greiðslur frá þeim. Þannig
er alveg ljóst að fari ég ekki utan í haust
verð ég áfram í Val og hvergi annars stað-
ar.
Hvað erlendu liðin áhrærir líst mér
best á hollenska liðið PSV Eindhoven og í
raun benda mér flestir á að kanna það
mál nánar. Ég fór þangað í kynnisferð um
daginn og fannst aðstæðurnar hreint frá-
bærar. Unglingastarfið er mjög upp-
byggjandi og þeir eru sérfræðingar í að
gera góða drengi að góðum knattspyrnu-
mönnum. Eins og er myndi ég því velja
PSV ef ég mætti ráða.“ ■