Helgarpósturinn - 03.10.1994, Page 48

Helgarpósturinn - 03.10.1994, Page 48
.íYrangur Selfossliðsins í 1. deildinni í handbolta hefur vakið mikla eftir- tekt og eru menn sammála um að hinn nýi þjálfari liðsins sé að gera góða hluti. Á Selfossi naga menn sig víst aðallega í handarbökin þessa dagana og spyrja sig hvernig árangur- inn hefði orðið ef hann hefði komið fyrr þegar allar stórstjörnurnar voru tilstaðar... ICristinn Jakobsson var útnefndur besti dómarinn á lokahófi knatt- spyrnufólks á laugardagskvöld. Valið er óneitanlega glæsilegt hjá Kristni þegar haft er í huga að hann er yngsti 1. deildar dómarinn auk þess að vera nýliði. Höfðu menn á orði að þetta hefði verið góð lexia fýrir alla FIFA- dómarana sem ekki komust á blað... ]VIarka- kóngurinn MihajloBi- bercic mun enn vera að velta fyrir sér möguleikum varðandi næsta keppn- istímabil. KR-ingar munu vera á höttunum eftir framherjanum snjalla og eins hafa fýrirspurnir borist frá neðri deildar liðum í Evrópu. KR- ingar eru þó vongóðir þar sem miklir kærleikar munu vera á milli Mikka, eins og hann er kallaður, og Guðjóns Þórðarsonar, þjálf- ara KR... órður Guðjóns- son gerði sigurmark Bochum í þýsku úr- valsdeildinni á föstudagskvöld. Bochum sigraði þá Duisburg með einu marki gegn engu og skoraði Þórður markið rétt undir lok leiksins. Þetta var í fýrsta sinn á tímabilinu sem Þórður lék í byrjunarliðinu... Falur sá um GrincMkinga! KR-ingar tóku við sérí síðari hálfleik og sigruðu Gríndvíkinga í hörkuleik. KR-ingar tóku á móti Grindvík- ingum, sem margir spá íslands- meistaratitlinum, á Seltjarnarnesinu í gærkvöld. Leikurinn var æsispenn- andi í lokin eftir að Grindvíkingar höfðu virst hafa gert út um leikinn í fýrri hálfleik. Grindvíkingar byrjuðu mun bet- ur en KR-ingar og höfðu góða for- ystu mestan hluta leiksins. Sóknar- leikur KR í fyrri hálfleik var oft á tíð- um ráðleysislegur og oftar en ekki endaði með því að KR-ingar þurftu Guðmundurí vandræðum Mörg lið eru á höttunum eftir hinum frábæra framherja Guð- mundi Benediktssyni úr Þór. Hann hefur leikið frábærlega í sumar og helst hafa nöfn í A, KR og Fram verið nefnd. Hins vegar munu erfiðir samningar Guð- mundar við belgíska liðið Eker- en, þar sem hann lék sem at- vinnumaður, torvelda samnin- gaumleitanir. ■ Lárus Orri lOdegaá Skagann Lárus Orri Sigurðsson, mið- vallarspilari Þórsara, er líklega á förum til íslandsmeistara Skaga- manna fyrir næsta tímabil. Lárus Orri lenti sem kunnugt er í deilum við Þórsara vegna hrottreksturs föður hans, Sigurðar Lárusson- ar þjálfara, seint á tímabilinu. Lár- us Orri lék með yngri flokkum Skagamanna og er úr 1973-ár- gangnum svokallaða sem margir frægir kappar eru úr, til dæmis Þórður Guðjónsson og tvíbur- arnir Arnar og Bjarki Gunn- laugssynir. ■ að taka léleg skot. Það var Ingvar Ormarsson sem hélt KR-ingum á floti fyrstu mínúturnar með frá- bærri hittni. Hinum megin réð Guðmundur Bragason ríkjum. Hann skoraði 14 stig í fyrri hálfleik og hitti úr 6 af 8 skotum sínum. I hálfleik var staðan 32-44 Grindvík- ingum í vil. í byrjun síðari hálfleiks leit út fyr- ir að það sama héldi áfram en KR- ingar tóku hamskiptum þegar Tóm- as Hermannsson var rekinn úr húsi fýrir að koma inn á leikvöllinn án heimildar. Sú ákvörðun Leifs Garðarssonar, dómara, vakti mikla óánægju viðstaddra enda kom Tómas inn á til þess eins að stumra yfir Nökkva Má Jónssyni sem lá meiddur inni á velli. Sam- kvæmt reglunum var ákvörðun Leifs óumdeilanleg en kannski þyrfti að endurskoða það; hættuleg slys geta átt sér stað í leiknum og oft er þá mikilvægt að einhver bregðist skjótt við. Vonandi fara dómarar ekki að refsa mönnum fyrir að bjarga mannslífum ef þannig ber undir. Við brotthvarf Tómasar fýlltist KR-liðið miklum eldmóði og hóf smám saman að saxa á forskot Grindvíkinga. Grindvíkingar klúðr- uðu hverri sókninni af annarri í síð- ari hálfleik og skyttur KR-inga hrukku í gang. Þegar sjö mínútur voru eftir var staðan 66-69 fyr'r Grindavík og KR fór þá að spila ákafa pressuvörn og Falur Harðar- son var eins og í annarri vídd. Hann skoraði frábærar körfur undir lokin og var frábær í vörninni. Banda- ríkjamaður Grindvíkinga, Gregory Bell, tapaði knettinum þrisvar á síð- ustu 30 sekúndunum og átta sinn- um í leiknum og skoraði aðeins Ijögur stig! Eitthvað mikið þarf að gerast hjá Bell ef honum verður ekki hent beint upp í næstu vél heim. KR nýtti sér mistökin og gerði út um leikinn með frábærum lokakafla þar sem Ingvar og Falur fóru á kostum. Lokatölurnar urðu 79-77. Bestur hjá Grindvíkingum var Guðmundur Bragason, skoraði 22 stig og tók 18 fráköst. Nökkvi Már var traustur undir körfunni og skor- aði 15 stig. Helgi Jónas Guðfinns- son kom sterkur inn í byrjun en ekki bar mikið á honum í síðari hálfleik. Guðjón Skúlason skoraði aðeins 11 stig en menn hafa vanist stærri hlutum ffá honum enda er hans eina hlutverk að skora. Bestir hjá KR voru Irtgvar Or- marsson og Falur Harðarson og virðast þeir kunna vel við sig á Nes- inu. Falur átti í erfiðleikum með að stjórna sóknarleiknum í fyrri hálf- leik en tók svo leikinn í sínar hendur þegar mest lá við. Hermann Hauksson átti ekki sinn besta dag, skoraði aðeins 7 stig og hitti illa. Grindvíkingar sýndu ágætisleik í fyrri hálfleik en náðu ekki að nýta þau tækifæri sem þeir fengu til hraðaupphlaupa. KR- ingar voru kærulausir í vörninni þangað til undir lokin og Grindavík átti góðan möguleika á að gera út um leikinn í fýrri hálfleik en nýttu ekki færið. KR-ingar sýndu klærnar svo sann- arlega í síðari hálfleik og verða þeir óárennilegir er útlendingur bætist í liðið. Barátta KR-inga var frábær og verða þeir sterkir í vetur ef fram fer sem horfir. Ingvar Ormarsson sagðist eftir leikinn kunna mjög vel við sig í Vesturbænum og að sigra leikinn hafi verið frábært: „Það var mjög gott að vinna leikinn á vítalínunni því við höfúm átt í erfiðleikum með vítaskotin.“ Falur sagði það hafa gert gæfúmuninn að liðið hafi farið að spila góða hjálparvörn i síðari hálfleik en bakverðir KR tóku oft miklar áhættur í vörninni. Þessar áhættur eiga eftir að borga sig enn betur þegar liðið fær stóran mann inní teiginn. -ÞK Landsliðsþjálfari kvenna eftirsóttur Hvað gerir Logi? Það væri synd að segja að vel- gengni íslenska kvennalandsliðsins hefði ekki vakið athygli. Árangur þess er enda mjög glæsilegur og hefur enn á ný vakið athygli á sigur- göngu þjálfarans, Loga Ólafsson- ar. Samkvæmt heimildum MORG- UNPÓSTSINS hafa nokkur lið sett sig í samband við Loga varðandi þjálfun á næsta tímabili og helst hefur nafn FH verið nefnt í því sambandi enda Logi gamall FH- ingur og liðið þjálfaralaust eftir brotthvarf Harðar Hilmarssonar sem tekið hefur við liði Vals. Samkvæmt heimildum blaðsins er ljóst að miklar breytingar verða á leikmannahóp FH-liðsins fyrir næsta tímabil. Margir leikmanna liðsins hafa ekki í hyggju að endur- nýja samninga sína en sú staða gæti þó breyst ef Logi yrði fenginn til að taka við liðinu. ■ Kandídatarnir lágu á Nesinu Grindvíkingar misstu niður unninn leik gegn hinu unga liði KR-inga í gærkvöldi. Hart var barist í leiknum og oft sást mönnum ekki fyrir. FerAtti til Eyja? Eyjamenn leita nú dyrum og dyngjum að þjálfara fyrir næsta keppnis- tímabil. Snorri Rútsson náði frábærum árangri með liðið í sumar en er hættur af persónulegum ástæðum. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa Eyjamenn helst augastað á þeim Atla Eðvaldssyni þjálfara HK og Kristni Björnssyni fyrrum þjálfara Vals. ■ Yfir íslandi er heldur minnkandi 1030 millibara hæð sem þokast suðsuð- austur. Fleiri lægðir eru yfir Skandin- avíu og Norðursjó. Veðurhorfurnar á landinu næsta sólarhringinn eru þær að hæg breytileg átt og léttskýjað verður fyrst um sinn. Frost verður mjög breytilegt eða á bilinu 1 til 10 stig. Á morgun verður hæg vestlæg átt og skýjað með köflum vestan- og norðanlands en léttskýjað í öðrum landshlutum. Hiti verður 0 til 7 stig að deginum. Veðurhorfur næstu daga verða þær að á þriðjudag verður hæg- viðri og léttskýjað um mest allt land í fyrstu en snýst síðan í vaxandi sunna- nátt og þykknar upp vestanlands. Hiti verður 3 til 10 stig. Á miðvikudag verður sunnan og suðaustan strekk- ingur og rigning, mest þó um landið sunnan- og vestanvert en léttir til suð- austan lands. Fréttavaktin 2 1900 Kjörkassinn MORGUNPÓSTURINN hefur sett á laggirnar Kjörkassann, símsvara þar sem almenningur getur svarað brennandi spurningum dagsins í dag. Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99-15 16, hlustar á spurninguna og greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á símtækinu þínu. Á mið- vikudaginn verður síðan talið upp úr Kjörkassanum og niðurstöðurnar birtar í fimmtudagsblaði MORGUNPÓSTSINS. Fyrsta spurningin er... r x Hlustum allan sólarhriuginn 2 1900

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.