Helgarpósturinn - 24.11.1994, Qupperneq 8
8
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1994
Sala stendur nú yfir á auglýsingum í veglegt kynningarrit vegna
heimsmeistarakeppninnar í handbolta á næsta ári. Sala auglýsinganna hefur
gengið treglega vegna þess að á sama tíma hafa Markaðsmenn hf. verið að
safna mun ódýrari auglýsingum fyrir blað á vegum Handknattleikssambandsins.
að stefnir í mikil átök á aðal-
fundi Stangvciðifélags Reykjavíkur,
sem haldinn verður á sunnudaginn.
Enn og aftur er verið að berjast um
stjórnarsæti, sem eru afar eftirsótt
vegna ókeypis veiðileyfa sem hanga
á þeirri spýtu. Nú á að sæta lagi
vegna þess að einn stjórnarmanna,
Þórólfur Halldórsson, fyrrum
fasteignasali, er nú orðinn sýslu-
maður á Patreksfirði og þykir sum-
um sem það hafi komið mjög niður
á stjórnarstörfum hans. Hann ku
ekki hafa getað sótt fundi nema
endrum og eins, en mun þó ætla að
halda áfram í stjórninni. Ýmsir
mektarmenn í félaginu leita hins
vegar logandi ljósi að manni, sem
líklegur þykir til að geta fellt Þórólf
í stjórnarkjörinu. Annars þykir ým-
islcgt benda til þess að það fari að
sneiðast um kosti þess að sitja í
stjórninni því margir almennir fé-
lagsmenn eru búnir að fá sig full-
sadda af því hversu djarftækir ýmsir
stjórnarmenn eru í því að verða sér
úti um ókeypis veiðileyfi...
bíýjasta stjarnan í leikliúsbransan-
um er tvímælalaust Hilmir Snær
Guðnason og er talað um hann sem
hinn nýja Baltasar Kormák og hinn
nýja Ingvar Sigurdsson í senn. Frami
hans innan leikhússins er með mestu
ólíkindum, hann fór nánast beint á
samning hjá Þjóðleikhúsinu eftir út-
skrift í vor og fer með titilhlutverkið í
Fávitanum, jólaleikriti Þjóðleikhúss-
ins. í allt sumar hefur hann verið að
trylla ungar stúlkur sem Berger í
Hárinu. Reyndir menn hafa áhyggjur
af þessum mjög svo skjóta frama
Hilmis og vona að hann brenni ekki
upp í ljósadýrðinni. Hilmir er vissu-
lega frábært efni en svo eru menn á
borð við Magnús Ólafsson sem
sanna það að sígandi lukka er oft best
í þessum efnum sem öðrum...
Bortja skaðabætur til að
eigið blað komi ekki út
Fjárhagslegt tjón HSI mikið.
Hrannar Arnarsson hjá Markaðsmönnum segir málið vera tilkomið vegna innanhússerja hjá
handknattleikshreyfingunni.
Nú er ljóst að ekkert verður af
útgáfu HSÍ-blaðsins á þessu ári
þrátt fyrir að allri vinnslu og söfnun
auglýsinga í blaðið sé lokið. Ástæð-
an er sú að auglýsingarnar tóku of
mikið frá auglýsingasölu í kynning-
arrit HM’95-nefndarinnar sem
koma á út í janúar. Þrautalendingin
verður líklega sú að HSÍ greiði fyr-
irtækinu Markaðsmönnum, sem sá
um öflun auglýsinga, skaðabætur
fýrir að hætta við útgáfu á eigin
blaði.
Málið er allt hið undarlegasta og
ber aðilum innan handknattleiks-
hreyfíngarinnar ekki saman um
hver beri ábyrgðina á því hvernig
komið er. Málið hefur valdið mikl-
um titringi og segir einn nefndar-
manna að málið hefði valdið ótrú-
legum fjárhagsskaða fyrir hand-
knattleikshreyfmguna. Sérstaklega
þykir málið flókið þar sem HSí
hegðar sér greinilega mjög sjálf-
stætt í þessu máli og telur sitt blað
ekki þurfa að tengjast blaði útgefnu
af HM ‘95-nefndinni, þrátt fyrir að
sú nefnd starfi í nánu samstarfi við
sambandið vegna væntanlegrar
heimsmeistarakeppni.
Komu að sviðinni jörð
Þrátt fyrir að ákveðið hefði verið
að gefa HSÍ-blaðið út og undirbún-
ingur við það stæði yfir virðist aðil-
um í HM-nefndinni ekki hafa verið
kunnugt um málið. Allavega var
ekki gert ráð fyrir því þegar ákveðið
Ólafur B. Schram formaður HSÍ.
„Fólk gerir engan greinarmun á
HM-nefndinni annars vegar og
HSÍ hins vegar og þess vegna
gekk þetta svona illa.“
var að gefa út dýrt og vandað kynn-
ingarrit fyrir væntanlega heims-
meistarakeppni í janúar á næsta ári.
HM-nefndin ákvað sjálf að standa
að undirbúningi og efnisvinnslu
fyrir það blað og voru þeir Pétur
Ormslev og Geir Sveinsson,
landsliðsfyrirliði, ráðnir til að safna
auglýsingum í blaðið. Vegna um-
fangs, gæða og langs líftíma ritsins
var ákveðið að selja heilsíðuna á
250.000 krónur sem er með því
hæsta sem gerist en á sér þó for-
dæmi til dæmis í kynningarritinu
„ísland - sækjum það heint“ sem
gefið var út í sumar og dreift var á
sams konar hátt.
Þegar auglýsingasölumennirnir
fóru að hringja út og taka púlsinn á
markaðnum kom svo í ljós að fýrir
lá sviðin jörð, flestir, sem á annað
borð höfðu áhuga á að auglýsa,
höfðu þegar keypt auglýsingu í
HSÍ-blaðið og gerðu engan grein-
armun á blöðunum, sögðust bara
hafa keypt auglýsingu í handbolta-
blað. Verðið á þeim auglýsingum
var enda mun lægra, éða sem nam
75.000 kr. á heilsíðuna. Árangurinn
varð því lítill og upp kom ágrein-
ingur um hver bæri sökina á því
hvernig komið væri.
Hefðu ekki
þurft að skarast
Hrannar Arnarsson, eigandi og
framkvæmdastjóri Markaðsmanna,
segir að hann hafi aldrei unnið neitt
fyrir HM’95-nefndina og sé því
ekkert að taka neitt frá henni. Hins
vegar hafi hann unnið fyrir HSl og
um þau störf hafi verið fullt sam-
komulag. „Við vorum tilbúnir með
allar auglýsingar í blaðið og ætlum
því ekki að blanda okkur í þeirra
[þ.e. HSÍ] innanhússerjur.“
Hrannar segir að þrautalending-
in verði líklega sú að HSI blási sitt
eigið blað af og greiði fyrirtækinu
útlagðan kostnað og vinnu. „Hins
vegar held ég að málin hefðu ekki
þurft að fara svona. Þetta voru tvö
ólík blöð og í raun þurftu þau ekk-
ertað rekast á. Það var því ekki HSl-
blaðinu að kenna að erfiðlega geng-
ur að safna auglýsingum í HM’95-
blaðið.“
Gekk ekki að
gefa út tvö blöð
Ólafur B. Schram vill ekki
kannast við að hætt hafi verið við
útgáfu HSI-blaðsins vegna útgáfu
kynningarritsins. „Við komumst
einfaldlega að því, eftir fyrra blaðið,
að útgáfan stóð vart undir kostnað-
inum. Innheimtur gengu illa og sá
ávinningur sem við bjuggumst við
skilaði sér ekki.“
Og er nú búið að blása blaðið af?
„Já, það er útlit fyrir það. Við
höfum ákveðið að vera ekki að
safna auglýsingum í tvö blöð á
sama tíma. Fólk gerir engan grein-
armun á HM-nefndinni annars
vegar og HSl hins vegar og þess
vegna gekk þetta svona illa. Við
höfum því ákveðið að fresta allri
blaðaútgáfu, annarri en á kynning-
arritinu, fram yfir keppnina."
Og það þýðir líklega töluvert tap
fyrir HSl?
„Við metum það þannig að betra
sé að hætta við HSÍ-blaðið en
kynningarritið. Við eigum eftir að
leysa þetta við Markaðsmenn en ég
sé fyrir mér að við greiðum þeim
fýrir þá vinnu sem þeir hafa innt af
hendi.“
Batteríið veikt fyrir
svona hasar
Heimildamaður MORGUN-
PÓSTSINS innan handknattleiks-
hreyfingarinnar segir að þetta sé allt
hið undarlegasta mál. Samskiptin á
milli HSI og HM-nefndarinnar sé
ekki nógu góð og það megi rekja til
þess þegar Jón Ásgeirsson var
formaður HSl.
„Nú hafa orðið breytingar á for-
mennsku, skipt hefur verið um
framkvæmdastjóra og nýr forntað-
ur er kominn í framkvæmdanefnd
HM’95. Þetta hefur allt gerst á einu
ári og þetta lítur allt furðulega út,
sérstaklega fyrir IHF, alþjóðasam-
bandið, þar sem breytingar verða
ekki á yfírstjórn svo áratugum
skipti,“ segir heimildarmaðurinn.
Sami maður segir að nokkuð hafi
áunnist í að bæta þessi samskipti en
þá hafi þetta mál dúkkað upp og
sett allt í háaloft aftur. Svo gripið sé
til hans eigin orða: „Batteríið er allt
of veikt fýrir svona hasar.“ -Bih
Magnús Ver og Forbes Cowan í morðbolta, sem er ein keppnisgreinin.
Tröllí
Höllinni
Á sunnudag verður haldið
kraftamót í Laugardalshöll sem ber
titilinn „Sterkustu menn jarðarinn-
ar“ hvorki meira né minna.
Dvergakast er ekki meðal keppnis-
greina en kynnir verður Valtýr
Björn. Sterkasti maður heims,
Magnús Ver er að jafna sig eftir
meiðsl og tekur því ekki þátt en er
þess í stað mótshaldari fýrir hönd
Islenskra aflraunamanna. Fulltrúi
Islands er Andrés Guðmundsson
alías „Neptúnus". Aðrir keppendur
eru Mannfred Höber frá Austur-
ríki. Hann er með stærstu hand-
leggi heims. Næsta má telja tröllið
Ted van Derparre frá Hollandi
(2,13 metrar á hæð og 160 kíló),
Forbes Cowan lrá Skotlandi og
llkka Kinnunen frá Finnlandi.
-JBG
Fíkniefnalögreglan og Hvolsvallarlögreglan uppræta
vopnabúr á bænum Núpi
Höddi feiti böstaður
Hagiabyssur, skammbyssa og riffíll með hljóðdeyfí í hlöðunni.
Hörður Gunnar Ingólfsson,
betur þekktur undir nafninu
Höddi feiti, var „böstaður“ af
fíkniefnadeild lögreglunnar og
Hvolsvallarlögreglunni á þriðju-
daginn.
Höddi hefur um eins og hálfs
árs skeið búið á bænum Núpi í ná-
grenni Hvolsvallar en með honum
hafa einnig verið aðrir þekktir
smákrimmar. Áður bjó hann í
þekktri íbúð á Bræðraborgarstíg.
Höddi feiti er á fertugsaldri og á að
baki mjög langan feril vegna fíkni-
efnamisferlis og skrautlegt saka-
vottorð. Síðustu árin hefur minna
borið á honum vegna fíkniefna-
sölu en talið er að hann hafi ein-
beitt sér að bruggi, enda er hagn-
aðarvonin síst minni og refsingar
þar mun lægri en í fíkniefnavið-
skiptum.
Þegar lögreglan réðist til inn-
göngu á sveitabænum Núpi fundu
þeir 20 lítra af Ianda, 100 lítra af
gambra í suðu og eimingartæki
auk kannabisplöntu, fíkniefna-
áhöld og eitthvað af eiturlyíjum í
duftformi. Mesta athygli vakti þó
vopnasafn kappans sem saman-
stóð af tveimur haglabyssum,
önnur afsöguð, skammbyssu, riffli
með hljóðdeyfi, gaddakylfu, lás-
boga og vel á annan tug voldugra
hnífa.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
vopnasafn er gert upptækt hjá
Hödda en hann hefur einkum haft
dálæti á hnífum og safnað þeim.
Þegar lögreglan réðist til inngöngu
á þriðjudaginn var Höddi staddur
í höfuðborginni. ■