Helgarpósturinn - 24.11.1994, Qupperneq 28
28
24/NÓVEMBER - 1/DESEMBER1994
BUBBLEflJES
BÖSTAST Á
TOPPNUM
S V ÞV Titill Flytjandi
04 01 BUST BUBBLEFLIES
09 02 GIRL, YOU’LL BEAWOM... URGE OVERKILL
01 03 BANG AND BLAME R.E.M.
06 04 MAÐUR ÁN TUNGUMÁLS BUBBI MORTHENS
05 05 MYIRON LUNG RADIOHEAD
03 06 ZOMBIE THE CRANBERRIES
02 07 SECRET MADONNA
— 08 YELLOW LEADBETTER PEARLJAM
14 09 SWEETJANE COWBOY JUNKIES
07 10 WITH THE LID OFF LUCAS
— 11 LÖG UNGA FÓLKSINS UNUN
08 12 ABOUT A GIRL (Unplugged) NIRVANA
17 13 FEELING SO REAL MOBY
20 14 HIGHER ANDHIGHER JETBLACKJOE
— 15 THE WILD ONES SUEDE
10 16 FAR BEHIND CANDLEBOX
— 17 SLEIKTU MIG UPP SSSÓL
— 18 AÐEINS FYRIR ÞIG TWEETY
12 19 FADE IN TO YOU MAZZY STAR
11 20 THE STRANGEST PARTY INXS
kraumandi undir...
MURDEfí WAS THE CASE SNOOP DOGGY DOGG
ÞÚ DEYRÐIDAG KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI
TOMORROW SPOON
WORKAHOLIC BONG
Loksins, loksins! íslenskt topplag! Bubbleflies fara
með lagið Bust úr 4. sœti á toppinn. Hástökkvari
síðustu vikufer nú upp um 7 sœti í númer 2 en tvö
ný lög koma beint inn -á topp 10. Pearl Jam er há-
stökkvari vikunnar og á einnig hœsta nýja lagið,
Yellow Leadbetter. Þeirfara beint í 8. sœtið. Unun
kemur líka sterk inn með Lög unga fólksins, beint í
11. Fimm ný lög koma inn á listann þessa vikuna og
eru íslensku lögin í meirihluta. 6 lözgstefna upp á
við, 8 lögfalla á listanum ogi lagstendur í stað.
X-Domino's listinn er valinn vikulega af hlustendum og dagskrár-
gerðarmönnum X-ins. Listinn er frumfluttur á fimmtudögum kl.
16:00-18:00 og endurleikinn á laugardögum kl. 14:00-16:00. Það er
Einar Örn Benediktsson sem sér um’ann!
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1994
Topp
Margret Thatcher
erfagurlega tennt
með velskapaðan
hringlaga munn.
Dollý það er
afar vel
hönnuð
uppblásin
dúkka sem
ég kynntist
fyrir norða
Sverri Stormsker Koi
Bryndís
Schram sem
er óvenjulega
ungleg miðað
við að hafa
verið gift Jóni
Baldvini í öll
þessi ár.
Óskar skilyrði að
hún yrði í
kynþokka-
fullutn undir-
klœðnaði og
með svipuna
við hendina.
Linda Pé að sjálfsögðu.
Örugglega
kraftur í
stelpu sem
getur tekið
lögguna
svona föst-
um tökum.
Baldur Bragason tók mynd af Frakkanum
Manuel Vincent Colsy og ræddi við hann í leiðinni
um menningarbraginn í Reykjavík.
Feitur kokkur
með vindil
virkar
Manuel Vincent Colsy er
Frakki sem hefur búið í Reykjavík
síðan 1989. Hann hefur mestmegnis
unnið sem þjónn og starfar nú á
Café París. Manuel er hávaxinn, í
kringum hundrað og níutíu senti-
metrana, dökkhærður og grann-
vaxinn. Hann talar frekar hratt og
notar hendurnar ákaft. Islenskuna
talar hann ágætlega þó að franskar
áherslur og framburður sé áber-
andi. Manuel er nýorðinn þrítugur
og hefur búið í Reykjavík síðan
1989. Hann fluttist hingað með ís-
lenskri sambýliskonu sinni eftir að
þau höfðu búið saman í París í
nokkur ár. Þau slitu samskiptum
stuttu eftir að þau komu til íslands
en Manuel fór ekki strax til baka.
Hann kynntist stúlku að nafni
Stefanía og hún er ein orsökin fyr-
ir því að við getum fengið Café au
lait borið á borð til okkar með rétt-
um framburði. Manuel er lærður
teiknari og vinnur „frí-lans“ sem
slíkur. Manúel segir að það hafi
verið erfitt á íslandi í fyrstu.
„Eina vinnan sem ég gat fengið
var vinna í frystihúsi, smíðar, upp-
vask og þess háttar. Maður er búinn
að gera ýmislegt. Þetta verður betra
þegar maður getur farið að vinna
hjá sjálfum sér og getur gert meira
fyrir sjálfan sig.“
Saknar þú Parísar?
„Ég sakna ekki Parísar, frekar
hluta sem hægt er að gera í París. Ég
sakna þess að geta ekki keypt mér
gott rauðvín án þess að það kosti
tvöþúsund kall flaskan, ég sakna
þess að geta ekki boðið vinum mín-
um í almennilegan kvöldverð án
þess að vera blankur eftir á. Ég er
ekki haldinn heimþrá. Ég var líka
orðinn þreyttur á París, bjó þar í
fimmtán ár, vinnan, taka lestina
kvölds og morgna, of mikið af fólki,
stress, mikil traffík það er líka svo
gott að vera hérna. Maður er ör-
uggur úti á götu. Engin vandamál
með fólk.“
Hefur þú hugsað þér að vera hér
áfratn?
„Já, af hverju ekki? Kannski ekki
alla tíð en ég verð líka að spá í kon-
una mína en mig langar að flytja
aftur til Frakklands í nokkur ár eða
svo til að vinna í því sem ég hef
áhuga á. Að vinna hér sem frí-lans
teiknari er mjög erfitt, efnahagur-
inn liggur niðri og þetta er alls ekki
nægilega stabilt. Ég varð að finna
mér fasta vinnu og þess vegna er
maður þjónn. Konan mín á barn,
það gengur ekki að vinna í bransa
þar sem einn mánuðinn er til pen-
ingur en þann næsta kemur ekkert
inn. „Heyrðu elskan mín, það eru
núll krónur í innkomu þennan
mánuðinn.“
Hvað finnst þér um kaffthúsa-
menninguna hér í Reykjavík?
„Þetta er voðalega nýtt. Maður
sér að fólk er ekki enn búið að venj-
ast þessu. Allavega hagar það sér
þannig. Mjög ólíkt París til dæmis.
Hér vill fólk fá allt strax og spyr alls
kyns spurninga sem maður á ekki
að venjast erlendis þar sem kaffi-
húsamenningin er rótgróin. Stund-
um finnst manni þetta hálf fárán-
legt, það kemur fyrir að maður er
beðinn um hálfan lítra af espresso.
Búmm, ekki vildi ég vera nálægt
neinum sem myndi innbyrða það
mikið af koffeini. Hann færi beint
upp í loft. Þetta er samt allt í lagi, ég
er ekki að segja að þetta sé leiðinlegt
fólk. Þetta er bara svo nýtt fýrir
fólki. Ef við tökum París sem dæmi
þá kemur fólk inn, sest niður, horf-
ir á mannlífið, allt í rólegheitunum.
Hér þarf kaffið að vera komið á
borðið áður en fólkið er sest og ef
ekki þá er maður ásakaður um að
hafa gleymt því. Stundum er maður
spurður til dæmis á þennan hátt; „
Ffeyrðu, ertu búinn að gleyma sam-
lokunni minni eða hvað?“ og síðan
er fólk fúlt þegar maður útskýrir að
það þurfi að grilla grillaða samloku
og að það taki sinn tíma. Þetta er
ekki sett inn í örbylgjuofn, allt til-
búið á stundinni með „díng“. Ég er
þjónn en ekki galdramaður.“
Eru íslendingar of óþolinmóðir?
„Já. Eins og ég segi þá er þessi
menning ný og kaffihúsin spretta
upp um allt. Kaffitegundir og kaffi-
afbrigði sem fólk hefur aldrei heyrt
um eru til boða, það er ekki nema
von að ekki allir séu búnir að venj-
ast þessu. En fólk ætti ekki að þurfa
flýta sér alltaf svona mikið. Eg er
ekki að setja íslendinga niður á
neinn hátt en þetta er nýtt fyrir
þeim og sumir þeirra virðast ekki
vera búnir að ná tilganginum með
þessu öllu saman. Tökum áfengið
til dæmis, algjört tabú. Svo miklar
reglur, Ríkið, hér má kaupa en ekki
hér. Það er of ríkt í fólki að áfengi sé
eitthvað heilagt ef það á að njóta
þess þá verður það að vera al-
mennilega og á laugardögum. í
Frakklandi drekkum við oftar og
rólegar. Þegar á heildina er litið þar
að segja. Heima hjá mér setti
mamma mín rauðvín á borðið með
kvöldmatnum og ég fékk mitt glas
strax á meðan ég var lítill. Rauð-
vínsflaskan var ekki alltaf kláruð og
þess þurfti heldur ekki. Hér má
þetta ekki því að þá er eitthvað að
hjá svoleiðis fólki.
Síðan er það eitt sem mér finnst
vera mistök hér og það er það að
allir þeir er opna kaffihús í Reykja-
vík opna eitthvað annað, þetta er of
fínt allt saman. Of „fansý“, of fínt.
Mín uppáhalds tegund af kaffihúsi
er lítið og ódýrt þar sem fólk sest
niður og líður vel. Hægt að standa
Drottningin er vöknuð
Á barnum
með Andrési
Látið Andrés Magnússon leiða ykkur um iðandi kös baranna
Hótel Borg
PÓSTHÚSTRÆTI 11
★ ★★★★
Á sínum tíma gladdi það mjög mitt
litla hjarta þegar Davíð Oddsson,
þáverandi borgarstjóri, bjargaði Hótel
Borg undan klóm Alþingis, þó svo að
ég hafi reyndar haft afskaplega miklar
efasemdir um hlutverk borgarinnar í
veitingarekstri. Þess vegna gladdi það
mig enn meira þegar ofurhuginn
Tómas „Tommi“ Tómasson festi
kaup á þessari drottningu íslenskra
hótela með það fyrir augum að hefja
Borgina til vegs og virðingar á ný eftir
áratugalanga niðurlægingu og
skemmdarverk þeirra, sem hana ráku.
Það verður að segjast eins og er að þetta
hefúr Tomma tekist af stakri prýði og
smekkvísi að auki, sem er því miður
ekki alltaf gefin þegar íslendingar færast
mikið í fang. Þó svo að ég sem drykkju-
maður Morgunpóstsins eigi reyndar
einungis að halda mig við áfengið, get
ég ekki stillt mig um að geta þeirra
kræsinga, sem eru á boðstólum þar,
enda er barinn í raun einungis fram-
lenging á veitingasalnum. í stuttu máli
er Hótel Borg orðin að Paradís sælker-
ans. Til þess að bæta um betur er þjón-
ustan eins góð og frekast verður á kosið
og verðið er hreint út sagt hlægilegt.
Það er helst að vínið kosti skildinginn,
en það er heldur ekki skrýtið þegar haft
er í huga að það eru Höskuldur og
kompaní í Ríkinu, sem þar ráða mestu
um, en vínlistinn er í senn höfúgur og
göfugur. Nóg um það. Hér skal fjallað
um áfengisneyslu. Barinn er í fremri
salnum og þrátt fýrir stærðina lætur
hann lítið yfir sér. Vínúrvalið er mjög
mikið og gott og verðlagningin bara
eins og gengur og gerist á öðrum bör-
um. Þjónustan er vitaskuld í takt við
alla aðra þjónustu á Borginni. Þó bar-
inn sé prýðilega til þess fallinn að
standa við hann og súpa eins og karl-
mennum sæmir kjósa flestir að sitja í
hægindastólum eða við borð, enda eru
flestir gestirnir að bíða eftir borði í mat-
salnum. Það er hins vegar engin krafa
að menn hyggist setjast að snæðingi til
þess að þeir fái að njóta veiganna á
barnum. Það er líka hægt að fara hinn
gullna meðalveg og setjast við sushi-
barinn og raða í sig hráu fiskmeti. Sus-
hi-barinn hefúr líka þann kost að mað-
ur þarf ekki að panta sæti fyrirffam.
Stemmningin er alla jafna næstum há-
tíðleg, megnið af gestunum er komið til
þess að gera sér sannarlega glaðan dag.
Flestir eru flnir í tauinu, en þó hver á
sinn hátt. Það eru engar kröfúr gerðar
um klæðaburð, en þó svo að þarna
komi inn leðurklæddir foringjar og
silkivafðar gyðjur dettur bara engum í
hug að koma í úlpu. Það er allt leyfilegt
svo framarlega sem það er stíll yfir því.
Það er líka athyglisvert að fylgjast með
þeirri ágætu blöndu af fólki sem sækir
staðinn. Gestirnir eru á öllum aldri og
ekki verður maður var við kynslóðabil-
ið alræmda. Ég hugsa þó að yngra fólk-
ið sé í meirihluta, en miðað við lýsingar
ömmu minnar heitinnar sýnist mér að
stemmningin sé engu minni en þegar
hún brá þar undir sig betri fætinum á
fjórða áratugnum. Og óneitanlega er
reynt að gera út á svolítið gamaldags
stemmningu. Skammt frá bamum er
lítill pallur og þar leikur lítil hljómsveit
gömul og góð lög undir forystu harm-
onikkuleikarans Guðmundar
Steingrímssonar Hermanns-
sonar en hann er í senn fingrafimari
og ófalskari en Seðlabankastjórinn.
Menn sækja ekki í barinn á Hótel Borg
til þess að hella í sig og ræða stöðuna í
ameríska boltanum, en hann er kjörinn
til þess að dreypa á Dry Martini og
spjalla um dásemdir lífsins, hvort held-
ur er við kunningja, besta vin eða ástina
einu og sönnu.