Helgarpósturinn - 06.02.1995, Blaðsíða 2
2
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1995
h
Hvers vegna
Evrópufíokksþing é&m
EMávím fór út um ^
þúfurff
í fyrsta lagi
var boðað til auka-
flokkþingsins í bjart-
sýniskasti síðasta
sumar þegar
“skoðnakannanir
sýndu fylgi meðal
■ þjóðarinnar við inn-
göngu í Evrópusambandið og allir
héldu að Norðmenn færu inn. Eftir
að hið gagnstæða kom í Ijós hafn-
aði þjóðin inngöngu. Gróa var því
búin að klúðra þingi Jóns Baldvins
fyrir mörgum mánuðum.
í öðru lagi
grundvallast Evr-
ópustefna kratanna
á því að bundið
^verði í stjórnarskrá
■ að fiskurinn í sjón-
um sé sameign okk-
' ar allra og í fram-
haldi af því verði farið að skattleggja
sægreifana. Litli ALþýðuflokkurinn á
ekki roð í þá.
í þriðja lagi
vill ekki nokkur
flokkur eiga sam-
starf við flokk með
þessa stefnu. Pann-
ig að næsta ríkis-
stjórn tekur þetta
mál aldrei upp.
í fjórða lagi
er Ijóst að Evrópa
vill ekki ísland til sín
strax þótt Jón Bald-
vin vilji komast
þangað á stundinni.
í fimmta lagi
var svo mikið húll-
umhæ á ballinu á
laugardagskvöldið
að fáir höfðu sig
fram úr rúminu á
sunnudaginn til að
samþykkja það sem
formaðurinn lagði til. Og þeir sem
þó drösluðust út á Hótel Loftleiðir
voru svo syfjaðir að þeir voru tilbún-
ir að samþykkja hvaða dellu sem
væri til að komast aftur upp í rúm.
Samþykktin var því hjáróma fremur
en samhljóða.
Ingibjörg Sólrún útilokar borgarendurskoðanda frá fundum æðstu embættismanna
Sýnir embættis-
mönnunum hver
hefur valdið
Fyrir um það bil tíu dögum ritaði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir bréf
til borgarendurskoðanda, Símons
Hallssonar, þar sem hún tilkynnti
honum að nærveru hans væri ekki
óskað framar á daglegum fundum
hennar með æðstu embættismönn-
um borgarinnar. „Já, ég skrifaði
þetta bréf og Símon mætti ekki á
fundi í síðustu viku,“ sagði Ingi-
björg Sólrún í gærkvöldi. Aðrir
borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans
standa ekki að ákvörðuninni.
„Þetta er ákvörðun sem ég tek.
Þetta eru mínir fúndir með æðstu
mönnum í borgarkerfmu.“
Auk borgarstjóra sitja morgun-
fundina, aðstoðarmaður Ingibjarg-
ar Sólrúnar, Kristín Árnadóttir,
borgarritari meðan hann var, skrif-
stofustjóri borgarstjórnar, borgar-
lögmaður, borgarhagfræðingur,
borgarverkfræðingur og skrifstofu-
stjóri hans og forstöðumaður borg-
arskipulags. Tvennum sögum fer af
því hvers vegna borgarstjóri hefur
útilokað Símon. Sjálf gefur Ingi-
björg Sólrún þessa skýringu:
„Það er mín skoðun almennt að
borgarendurskoðun eigi að vera
sjálfstæð frá annarri stjórnsýslu í
borgarkerfinu. Það þarf að tryggja
að embættið sé það ekki bara form-
lega heldur í raun. Almenningur
verður að hafa tiltrú á embættinu
og stjórnsýslunni á að finnast að
borgarendurskoðun sé raunveru-
legt effirlitstæki. Mér finnst því ekki
eðlilegt að borgarendurskoðandi sé
á fundum þar sem æðstu menn í
stjórnsýslunni eru að ráðslagast
með hlutina. Það er náttúrlega í
verkahring borgarendurskoðanda
að hafa eftirlit með þeim.“
Einn af borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins segir þessa ráðstöf-
un borgarstjóra tengjast stærri
skipulagsbreytingum. Hugmynd
borgarstjóra sé að takmarka beinan
aðgang margra af æðstu embættis-
mönnum við sig og ráða inn fólk til
að mynda millilag stjórnenda milli
sín og þeirra í samræmi við hug-
myndir Stefáns Jóns Hafsteins
eftir úttekt hans á borgarkerfmu á
síðasta ári.
Það er opinbert leyndarmál að
flestir æðstu - embættismannanna
eru stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins og að Reykjavíkurlistinn
óttast að sú staðreynd geti valdið
þeim nokkrum vandkvæðum við
stjórn borgarinnar. Heimildir inn-
an Reykjavíkurlistans herma að eft-
ir að borgarstjóri gagnrýndi borg-
arendurskoðun opinberlega fyrir
slæleg vinnubrögð í tengslum við
útboðsmál borgarinnar hafi komið
til orðahnippinga milli þeirra á
morgunfundi embætttismann-
anna. Daginn eftir hafi hún svo
sent honum bréfið og með því vilj-
að sýna embættismönnunum hver
hefði valdið. Ingibjörg Sólrún vildi
ekki staðfesta að atburðarásin hafi
verið með þessum hætti og sagði að
ákvörðun hennar tengdist ekki
gagnrýni hennar á störf horgarend-
urskoðanda. „Þetta er ekki van-
traust á Símon og þessi ákvörðun er
alveg óháð því hvað mönnum fer á
milli á þessum morgunfundum en
það er auðvitað ýmislegt rætt þar.“
Á miðju síðasta ári var gerð
skipulagsbreyting á embætti borg-
arendurskoðanda. Áður hafði hann
ekki neina starfsmenn í sinni þjón-
ustu heldur naut hann aðstoðar
innri endurskoðunardeildar sem
heyrði undir fjármáladeild Reykja-
víkurborgar. „Eftir að ég tók við í
ársbyrjun 1994 fór ég að vinna að
því að fá fram þessa breytingu og
hún tók gildi 1. júlí.“ Símon segir að
embættið hafi orðið sjálfstæðara
með þessari breytingu. Ingibjörg er
einnig þeirra skoðunar að þær
breytingar hafi verið til bóta en
meira hafi þurft að gera.
„Ég veit ekkert hvað hún hefur í
huga með það,“ sagði Símon að-
spurður um hvort hann og borgar-
stjóri væru ekki sammála um
hvernig þróa ætti starf embættisins
og bætti við: „Enda er það mitt mál
en ekki hennar."
Símon neitaði því að samstarf
hans við borgarstjóra væri stirt og
vildi ekkert um ákvörðun Ingi-
bjargar Sólrúnar segja. Hún sagðist
ekki eiga von á að eftirmál yrðu
vegna ákvörðunar hennar. „Ég get
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri útilokar ekki að fleiri emb-
ættismenn verði útilokaðir frá fund-
um. „Þó að þessir menn sitji þessa
fundi er ekki þar með sagt að það
verði óbreytt áfram hvað alla varð-
ar. Ég gæti átt eftir að breyta þess-
ari samsetningu líka."
ekki skilið það. Þetta fyrirkomulag
er bara arfur frá fyrri tíð og það hef-
ur verið undir hverjum borgar-
stjóra komið hverjir sitja þessa
fundi. Þó að þessir menn sitji þessa
fundi núna er ekki þar með sagt að
það verði óbreytt áfram hvað alla
varðar. Ég gæti átt eftir að breyta
þessari samsetningu líka.“
Úr röðum Reykjavíkurlistans
heyrist að Ingibjörg ædi að stíga
skrefið til fúOs og koma embættinu
út úr Ráðhúsinu með því að flytja
skrifstofur þess í gamla Morgun-
blaðshúsið við Aðalstræti.
„Þú ert að færa mér fféttir ef
flytja á embættið í Morgunblaðs-
húsið,“ sagði Símon þegar það var
borið undir hann. -SG
Sækjum og sigrum
m
*
v||É> '■ ’
’Æfc y
Gunni Þórðar, Diddú og Jón Kjell við upptökur á HM-laginu í stúdío Sýrlandi í gærkvöldi.
I gærkvöldi var fyrirhugað að
ljúka upptökum á HM-laginu sem
er hátíðarlag samið í tilefni af
heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik sem hefst um miðjan maí
í Laugardalshöllinni. Þegar er búið
að hljóðsetja tónlistina en Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Björgvin Hall-
dórsson munu syngja lagið sem
geftð verður út á geisladiski í ís-
lenskri og enskri útgáfu. Sigrún
söng sinn hluta lagsins í gaer en
Björgvin komst ekki vegna veik-
inda. „Þetta er stórt og rismikið lag
og stór og mikil melódía,“ segir
hann. „Texti Davíðs er fínn og lag-
ið fallegt. Þetta er ekki svona týpískt
„allir-á-völlinn-og-skorið-öll-
mörkin-lag“ ef það má orða það
þannig. Ég veit ekki hvort það verði
beint vinsælt en það á örugglega
eftir að vekja mikla athygli.“
Lagið er eftir Gunnar Þórðar-
son sem segir það einfalt og samið
með það í huga að allir geti sungið
með. Textinn er hins vegar eftir
Davíð Oddsson, skáld og forsætis-
ráðherra. MORGUNPÓSTURINN hef-
ur textann undir höndum en Davíð
þvertók fyrir að hann yrði birtur í
blaðinu.
Texti Davíðs er óður til ættjarð-
arástar og hetjulundar og í honum
boðar hann trú, von og kærieika
þrátt fyrir miskunarleysi höfuð-
skepnanna. Björgvin reiknar með
að klára sinn hluta lagsins seinna í
vikunni. -LAE
Nú ætla þeir að banna
dauðarefsingar...
Já, þeir eru hræddir
um að það standi til
að fækka
þingmönnum.
Dagur í Röskvu
til Þjóðvaka
Nú fer að draga til tíðinda í há-
skólapólitíkinni, því kosningar þar
verða háðar áður en mánuðurinn er
allur. Hins vegar stendur all nokkur
styrr um það hvenær kosningarnar
skuli fara fram, því Röskvuliðar
(vinstrimenn) vilja fyrir alla muni að
gengið verði að kjörborðinu fyrir
helgina 25. febrúar meðan Vöku-
menn (hægrimenn) leggja allt kapp á
að kosningarnar verði ekki haldnar
fyrr en eftir helgina. Ástæðan fyrir
þessum sérkennilegu deilum mun
vera sú að Dagur Bergþóruson
Eggertsson, formaður Stúdenta-
ráðs og oddviti Röskvumanna, er
sagður ætla að verða á lista Þjóðvaka í
Reykjavík, en vill ekki tilkynna um
það fyrr en að háskólakosningunum
loknum. Síðustu forvöð til þess að til-
kynna lista til alþingiskosninga er sex
vikum fyrir kjördag, en sá frestur
rennur einmitt út fyrrnefnda helgi. ■
Davíð Oddsson forsætisráðherra
Sér engar breyting
ar á stefnu kraAa
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði það engar fréttir, að Al-
þýðuflokkurinn hefði einróma
samþykkt að stefna að aðildarum-
sókn Islendinga í Evrópusamband-
ið. Þá sagði hann annað í kosn-
ingastefnuskrá flokksins heldur
ekkí hafa komið sér á óvart, en í
henni er margt sem vart getur talist
sainræmast stefnu Sjálfstæðis-
flokksins. Hann taldi þó ekkert
hafa komið þar fram, sem koma
þarf i veg fyrir áframhaldandi sam-
starf flokkanna eftir kosningar. „Ég
sé ekki að það hafi orðið neinar
breytingar á stefnu Alþýðuflokks-
ins á þessu þingi. Þetta var þing
sem átti að halda eftir að Norð-
menn sögðu já, Norðmenn sögðu
hins vegar nei en þeir urðu að
halda þingið samt.“
Þá sagði Davíð ekkert hæft í því
að kalt væri á milli þeirra Jóns
Baldvins í kjölfar þess að Jóni Bald-
vini var ekki boðið að vera við-
staddur samningaviðræðurnar við
Flóabandalagið svokallaða. „Ég hef
talað við Jón oft síðan og hann hef-
ur ekkert minnst á það.“ Að öðru
leyti vildi Davíð ekkert tjá sig um
aukaflokksþing Alþýðuflokksins
og framtíð stjórnarsamstarfsins í
ljósi þess sem þar kom fram.B
1
i
1
»
1
!
f