Helgarpósturinn - 06.02.1995, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
3
350 króna stöðumælasekt varð að 50 þúsund
króna skuld
Missti bflinn
vegna stöðu-
mælasektar
Lögmönnum í sjálfsvald sett hve háa innheimtuþóknun þeirreikna sér.
Ragnar Aðalsteinsson formaður stjórnar Lögmannafélagsins. Stjórnin afgreiðir á miðvikudaginn mál
manns sem missti bifreið sína vegna stöðumælasektar. Greiðandinn segir innheimtuaðgerðir lögmanns
„brot á reglum, sem gilda í mannlegum samskiptum, misbeiting á valdi og tilraun til fjárkúgunar."
Lögmannafélag íslands fjallar nú
um mál manns sem lenti í því að
missa bílinn sinn eftir að 350 króna
stöðumælasekt varð að 50 þúsund
króna skuld sem hart var gengið eftir
í innheimtu.
Það var í október 1993 sem maður-
inn fékk stöðumælasekt á Akureyri
upp á 350 krónur. Vegna trassaskapar
viðkomandi og flutninga láðist að
greiða skuldina og í maí 1994 sendir
lögmaður „beiðni um nauðungar-
sölu“ á bifreið hans vegna skuldar að
upphæð 11.436 krónur auk vaxta og
áfallandi kostnaðar. Vegna flutninga
dróst uppboðsbeiðnin en var síðan
tilkynnt nú í desembermánuði.
Maðurinn ætlaði að greiða þessar
tæpu 12 þúsund krónur til þess að
komast hjá uppboði en var þá til-
kynnt símleiðis að hann þurfi að
greiða 21.471 krónur til að forða upp-
Soði. Það sætti hann sig ekki við og
benti lögmanninum á að ef Bifreiða-
sjóður Akureyrar teldi sig eiga frekari
kröfu þá ætti að senda bréf ásamt
nýrri sundurliðaðri kröfu. Hann
greiddi kröfuna upp á tæpar 12 þús-
und krónur og fulltrúi sýslumanns
frestaði uppboðinu.
Lögmannsstofan sendi hins vegar
upphaflegu beiðnina um nauðungar-
sölu aftur þar sem handskrifað var að
eftirstöðvar væru rúmar 10 þúsund
krónur, að viðbættum kostnaði við
vörslusviptingu. 40 mínútum síðar
kom enn símbréf þar sem sagt er að
ofan á 10 þúsund krónurnar bætist
kostnaður við vörslusviptingu.
Nokkrum dögum síðar var bifreið
mannsins tekin af lögreglu og flutt til
sýslumanns og í kjölfarið fékk hann
upplýsingar um að krafan væri nú
35.765 krðónur auk vaxta og frekari
kostnaðar við uppboð.
„Þannig hafði stöðumælasekt vax-
ið úr 350 krónur í árslok 1993 í 47.201
krónur hinn 19 desember 1994, á rétt
rúmu ári og hún er enn að vaxa.
Þetta nemur um 13.500 prósenta
hækkun.“ Hann segist geta sjálfum
sér um kennt fyrir að hleypa málinu
svo langt að til uppboðs komi en hins
vegar séu allir sammála um að fram-
koma lögmannsins „sé hastarleg, svo
ekki sé meira sagt, og að aðgerðir
þeirra til að hækka kostnað minn
vegna málsins, eftir að ég hef greitt
upphaflega kröfu þeirra, séu ekki
eðlilegar, jafnvel forkastanlegar,"
eins og hann orðar það í bréfi til Lög-
mannafélagsins. „Ekki treysti ég mér
til að dæma um þetta út frá lögum en
siðgæðisvitund mín og réttlætis-
kennd segir mér að hér sé á ferðinni
brot á reglum, sem gilda í mannleg-
um samskiptum, misbeiting á valdi
og tilraun til fjárkúgunar.“
Marteinn Másson, framkvæmda-
stjóri Lögmannafélagsins, sagði að
ekki væri rétt að fjalla um málið að
svo stöddu en sagði að það yrði
væntanlega tekið til lokaafgreiðslu
hjá stjórninni á mið-
vikudaginn.
Lögmenn
ákveða sjálfir
þóknun sína
Eins og MORGUN-
PÓSTURINN hefur ítrek-
að greint frá er inn-
heimtukostnaður lög-
manna mjög hár hér á
landi og allt að fjórfalt
hærri en til dæmis i
Noregi. I febrúar á síð-
asta ári felldi Sam-
keppnisráð þann úr-
skurð að Lögmannafé-
laginu væri óheimilt að
gefa út gjaldskrá til við-
miðunar fyrir félaga
sína. Því geta lögmenn
sjálfír ákveðið hversu
háa þóknun þeir reikna
sér fyrir að sjá um inn-
heimtu fjárkrafna.
Skuldarar hafa hins veg-
ar ekkert um það að
segja hverjum er falið að
innheimta skuld þeirra
og verða því að greiða
uppsett verð.
„Við höfum gert allt
sem við gátum,“ segir
Ragnar Aðalsteins-
son, formaður Lög-
mannafélags Islands.
„Við reyndum að halda
í þann þátt gjaldskrár-
innar sem að þessu lýtur
þannig að menn hefðu
einhverja viðmiðun."
Sigríður Arnardótt-
ir, lögfræðingur Neyt-
endasamtakanna, hefur
gagnrýnt mjög að „inn-
heimtumönnum er í
sjálfsvald sett hversu
háa innheimtuþóknun
þeir reikna sér“ og vilja
samtökin að settar verði
reglur um innheimtu-
þóknanir.
Runólfur Ágústs-
son, fulltrúi sýslu-
mannsins, gagnrýnir
þetta kerfi harkalega í
nýlegri blaðagrein.
Hann segir að lögmenn
virðist í „auknum mæli
nota gjaldtöku af skuld-
urum til að fjármagna
aðra starfsemi sína.“
Sem dæmi nefnir hann
að þóknun þeirra fyrir
að mæta í fjárnámsfýrir-
töku hjá sýslumanni
hafi verið 2.828 en nú
séu hins vegar fjölmörg
dæmi um 15 þúsund
króna reikning fyrir
slíkt 6-8 mínútna „mót“
og allt upp í 40 þúsund
krónur. -pj
ManrvQöldi í
miðbænum
Mikill mannfjöldi var í miðbæn-
um aðfaranótt sunnudags. Lögregl-
an telur að um 2.500 manns hafi ver-
ið samankomnir í miðbænum þegar
mest var á milli 3.30 og 4.30 eftir að
skemmtistaðir höfðu lokað. Sá fjöldi
er í hærri kantinum en svipað og var
um síðustu helgi. Mun minna er að
gera eftir föstudagskvöldin og nú um
helgina voru á milli 1000 og 1500
manns eftir að stöðum
lokaði. Þrátt fyrir mik-
inn fjölda aðfaranótt
sunnudagsins þurfti
lögreglan ekki að hafa
mikil afskipti af fólki og
einungis tveir voru
teknir fyrir ölvuna-
rakstur sem telst mjög
lítið.B
SAFIR
STOP
ÞURFTIRÐU
AÐ LÁTA
STAÐAR NUMIÐ
í BÍLA-
HUGLEIÐINGUM
VEGNA
VERÐSINS?
Frá 588.000,- kr.
148.000,-kr. út og
14.799,- kr.
í 36 mánuði.
Frá 677.000,- kr.
169.250,- kr. út og
17.281,- kr.
í 36 mánuði.
SAMARA
677
Frá 624.000,- kr.
156.000,- kr. út og
15.720,- kr.
í 36 mánuði.
SPORT
624
Frá 949.000,- kr.
237.250,- kr. út og
24.101,-kr.
í 36 mánuði.
949.
Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum
ýmsa aðra greiðslumöguleika.
Tekið hefur verið tillit til vaxta í útreikningi á
mánaðargreiðslum.
IMjla'
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BEINN SÍMI: 553 12 36