Helgarpósturinn - 06.02.1995, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN ERLENT
13
Walesa Póllandsforseti
Fallinn þjódardýiiingur
Síðará þessu árímun Lech Walesa Póllandsforseti lerta endurkjörs. Fátt bendir hins vegartilþess að Pólverjar muni
leyfa honum að sitja áfram næstu fimm árín. Forsetinn þykir einangraður, gamlir stuðningsmenn hafa snúið við
honum baki, og hann er ásakaður fyrir að stjóma með miklum yfirgangi og litlu viti.
Sætið við hlið Walesa er autt á athöfn til minningar um fórnarlömb Auschwitz-búðanna. Það var ætlað Elie Wiesel, friðarverðlaunahafa Nóbels.
Hann kom ekki.
Þegar Lech Walesa var kjörinn
forseti fyrir næstum fimm árum
hlaut hann atkvæði 6o af hundraði
kjósenda. Vinsældir hans hafa
skroppið saman og samkvæmt ný-
legum skoðanakönnunum eru það
ekki nema 20 af hundraði kjósenda
sem lýsa stuðningi við hann. Það er
kannski kaldhæðnislegt að miklu
vinsælli en hann eru menn á borð
við Wojciech Jaruselski, hers-
höfðingjann sem stóð fýrir því að
sett voru á herlög í Póllandi 1981, og
Aleksander Kwasniewski, leið-
togi stjórnmálaflokks sem var reist-
ur á rústum gamla Kommúnista-
flokksins, og Andzrej Olec-
howski, fyrrum utanríkisráðherra.
I liðinni viku beindist athygli
heimsins aftur að Walesa, enda
fóru þá fram ýmislegar athafnir til
að minnast þess að liðin eru fimm-
tíu ár síðan rússneskir hermenn
lögðu undir sig útrýmingarbúðirn-
ar í Auschwitz. Walesa er þekktur
fyrir annað en að vera neinn sér-
stakur vinur gyðinga og menn
bjuggust við hinu versta af honum.
Ekki brást hann því. í ræðu sem
Walesa hélt af þessu tækifæri láðist
honum að geta þess að flestir fang-
arnir sem nasistar myrtu í Au-
schwitz voru gyðingar. Þetta er afar
viðkvæmt máí, svo viðkvæmt að
við minningarathöfn sem haldin
var í Kraká var autt sæti við hlið
Walesa. Það var ætlað rithöfundin-
um og Nóbelsverðlaunahafanum
Elie Wiesel. Hann ákvað að koma
ekki og var við aðra minningarat-
höfn sem haldin var á sama tíma.
Hlegið að Walesa
Lech Walesa er vissulega þjóð-
hetja. Engum einstökum manni er
það fremur að þakka að kommún-
ismanum í Póllandi var loks komið
á kné. En Pólverjar eru orðnir
þreyttir á honum. Walesa, sem er 51
árs, hefúr lengi verið frægur fyrir að
vera orðhákur hinn mesti og getur
verið meinhæðinn með afbrigðum
ef svo ber undir. Þeirri gáfu hefur
hann ekki týnt niður. Hann á enn
afar auðvelt með að koma fólki til
að hlæja. Hins vegar er hláturinn
kannski ekki jafn dillandi og hér
áður og raunar er haft á orði að
menn séu farnir að hlæja á vitlaus-
um stöðum; þeir séu farnir að hlæja
að Walesa sjálfum. Og er illa komið
fyrir þessum forðum þjóðardýr-
lingi sem lengi naut djúprar virð-
ingar ef farið er að álíta hann hálf-
gerðan kjána.
Þjóðin virðist líka hætt að treysta
fosetanum. Samkvæmt nýlegri
skoðanakönnun sem birtist í dag-
blaðinu Trybuna telja 70 af hundr-
aði Pólverja að hann sé ekki starfi
sínu vaxinn. Nie, sem er vinsælt
háðtímarit, birtir á hverjum degi
fýrirsögn þar sem valdaferill Wa-
lesa er talinn niður. Þar stendur:
„Það eru bara ★★★★ dagar eftir undir
Walesa."
Walesa ræðst
gegn þinginu
Nú styttist óðum í forsetakosn-
ingar í PóUandi. Það er í annað
skipti sem Pólverjar kjósa sér for-
seta eftir fall kommúnismans og nú
gæti vel farið svo að afturbatamað-
ur úr röðum kommúnista nái kjöri.
Það þykir Walesa versta tilhugsun
og er jafnvel sagt að hann muni
svífast einskis til að hanga í völd
sín; þá muni hann nota aðferðir
sem gögnuðust vel í baráttunni
gegn kommúnistum en eru
kannski síður við hæfi í lýðræðis-
samfélagi.
Walesa hefur að undanförnu átt í
allsherjarstríði við Waldemar
Pawlak forsætisráðherra. Hann
hefur ekki farið dult með að til þess
að ná því markmiði sé hann jafnvel
tilbúinn til að leysa upp þing lands-
ins, Sejm Því hafa þingmenn mót-
mælt hástöfum, bæði vinstrimenn
og hægri -, og sýnir glöggt hversu
Walesa er einangraður að í at-
kvæðagreiðslu í þinginu um þessar
fyrirætlanir forsetans greiddu 376
þingmenn atkvæði á móti, 16 voru
með en 16 sátu hjá. Þingmenn
ályktuðu að það væri fullkomin
lögleysa að leysa upp þingið og ef
það gerðist væri ekki annað hægt
en að draga forsetann fyrir stjórn-
arskrárdómstól.
Walesa virðist ekki ætla að láta
undan. Ríkisstjórn Pawlaks er sam-
steypustjórn Pólska bændaflokks-
ins (PSL) og Vinstri lýðræðis-
bandalagsins sem er eins konar
dótturflokkur gamla Kommúnista-
flokksins. Meðlimir beggja þessara
flokka voru við völd á tíma komm-
únista. Walesa deilir við Pawlak um
allt milli himins og jarðar. Hörð-
ustu deilurnar hafa verið um fjárlög
og einkavæðingu, um hvor þeirra
hafi rétt til að skipa embættismenn
og um sjálft valdsvið forsetans. Það
er í deilunum um fjárlögin að Wa-
lesa þykist hafa fundið átyllu sem
geri sér kleift að leysa upp þingið,
en samkvæmt lögum eiga þau þeg-
ar að vera samþykkt og frágengin.
Walesa vill meirí völd
Forseti þingsins, Jozef Oleksy,
hefur sagt að þingmenn muni ein-
faldlega ekki hlýða Walesa ef hann
reyni að beita þá slíku gerræði og
enn er alsendis óvíst hverjar mála-
lyktir verða. Hugsanlega fer þingið
hvergi. Máski verður mynduð ut-
anþingsstjórn til bráðabirgða. Hin-
ir svartsýnustu óttast jafnvel að for-
setinn muni reyna að stjórna um
hríð með stuðningi vina sinna úr
hernum.
Þingmenn telja að Walesa sé það
ekki óljúft að til valda komist um
tíma máttvana bráðabirgðastjórn.
Þá muni hann geta látið verulega að
sér kveða og hreykt sér af því að
hann sé eini lýðræðislega kjörni
leiðtogi landsins. Walesa hefur
reyndar aldrei farið leynt með að
hann vill meiri völd og helst vildi
hann að pólska forsetaembættið
yrði sniðið eftir því franska eða
bandaríska.
Skoðanakannanir sýna hins veg-
ar að mikill meirihluti kjósenda
kærir sig ekki um það, heldur vill
hann þingbundið lýðræði þar sem
forsetanum er ekki ætlað annað
hlutverk en að miðla málum þegar
allt virðist komið í óefni. Stjórnar-
skrá Póllands þykir ekki merkilegt
plagg og margt óljóst í henni, en
sérstakt samráðsþing er nú að
störfum og hefur það verkefni að
semja nýja stjórnarskrá. Líklega
verður síðan kosið um hana í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Andstæðingar
Walesa óttast hins vegar að hann
muni reyna að koma því til leiðar
að umræðan um stjórnarskrána
snúist fyrst og fremst um persónu
hans.
Umkríngdur
jámönnum
Walesa er gagnrýndur fyrir ýmis-
legt fleira. Gömlu félagarnir hans
úr Samstöðu hafa flestir snúið við
honum baki og sama má segja um
stétt menntamanna sem áður hafði
mikið dálæti á honum. Honum er
legið á hálsi fyrir að hafa átt þátt í
að spilla fyrir fimm ríkisstjórnum
sem setið hafa við völd í Póllandi á
valdatíma hans. Hann er sagður
bera lítið skynbragð á daglega pólit-
ík og álasað fyrir að hann sé full-
komlega ófær um að gera mála-
miðlanir. Hann þykir einangraður
þar sem hann situr í höll sinni og
sagt að þar sé hann umkringdur
tómum jámönnum. Þessum
mönnum hefur hann lyft til æðstu
metorða; fyrrum bílstjóri hans,
Mieczyslaw. Wachowski, er sér-
stakur ráðgjafi forsetans og hefur
ráðuneytisstjóratign.
Ekki vakti það heldur mikla
hrifningu þegar hann ákvað fýrir
skömmu að flytja aðsetur sitt úr
Belweder-höll og yfir í Nami-
estnikowski-höll í miðborg Varsjár.
f þeirri byggingu sátu forðum tíð
rússneskir ríkisstjórar sem réðu yfir
Póllandi í nafni tsarsins. Það hefúr
kostað hundruð milljóna að gera
upp höllina og þykir mörgum Pól-
verjum versta bruðl.
En þar inni situr nú Walesa og
andspænis honum er bronsmynd
af manni sem hann dáir mest aílra,
Jozef Pilsudski marskálki, sem
eitt sinn var einvaldur í Póllandi.
Pilsudski þótti kænn maður og
Walesa vonar að sjálfur hafi hann
nóga kænsku til að sitja í fimm ár í
viðbót á forsetastóli. Hins vegar
bendir fátt til þess að Pólverjar veiti
honum umboð til þess.
- eh.
byggt á Reuter og The European.
Isabella Rosselini
missir vinnuna
Þokkagyðjan Isabella Rosselini
hefur undanfarin fjórtán ár verið
eins konar andlit snyrtivörufýrir-
tækisins Lancome. Hún hefur prýtt
ótal auglýsingar fyrirtækisins sem
hefur vaxið ár frá ári. En allir góðir
hlutir taka endi og líklega sjáum við
Rosselini ekki í Lancome-auglýs-
ingum framar. Fyrirtækið hefur
nefnilega slitið samningi sínum við
hana og hyggst leita á ný mið. Orð-
rómur hefur verið á kreiki um að
fyrirtækið telji Rosselini vera orðna
of gamla til að selja snyrtivörur, en
hún er 42 ára. Talsmenn fýrirtækis-
ins neita því.B
Faðir Oprah
í klandn
Faðir sjónvarpsstjörnunnar
Oprah Winfrey verður leiddur fyr-
ir dómara og þarf að gefa skýringu
á framferði sínum við unga konu
sem segir að hann hafi sýnt sér
dónaskap. Faðir Oprah, Vernon
Winfrey, er fyrrum hárskeri og
bæjarráðsmaður í Nashville. Konan
leitaði til hans í von um að hann
gæti aðstoðað sig við að fá styrk til
háskólanáms. Vernon Winfrey var
reiðubúinn að gera það, en þó að-
eins með því skilyrði hún veitti
honum blíðu sína. Segir konan að
hann hafi flett sig klæðum og
heimtað að hún hefði við sig
munnmök.B
Christo hugsar
stórt
Christo, sá
frægi listamaður,
hugsar ekki smátt.
Hann er frægur
fýrir að pakka alls
kyns hlutum inn í
segldúk og það
hefúr hann nýskeð
gert við skrúfu-
verksmiðju listá-
hugamanns nokk-
urs í Wúrttemberg
í Þýskalandi. Alls munu hafa farið
um 900 fermetrar af bómullardúk í
verkið. Þetta er þó bara eins og
nokkurs konar lokaæfing fyrir
'Christo, því hann hefur fengið leyfi
til að klæða þýska þinghúsið í Berl-
ín inn í silfurlitaðan dúk. Það ætlar
hann að gera í sumar og mun hann
þurfa um 75 þúsund fermetra af
klæði í verkið.É
Christo
Þjóðveijar móðga
Noregskóng
Norðmenn eru afar móðgaðir út
í Þjóðverja þessa daga, enda finnst
þeim að þýskir hafi sýnt sjálfum
þjóðhöfðingja norskra, Haraldi
konungi, argasta dónaskap.
Þannig er mál með vexti að Har-
aldur var nýskeð í opinberri heim-
sókn í Þýskalandi. Honum fýlgdi
náttúrlega hópur blaðamanna og
var einn þeirra frá Bild Zeitung,
mjög víðlesnu dagblaði sem þó
þykir ekki sérlega áreiðanlegt.
Blaðamanni Bild fannst lítið til
Haralds koma og skrifaði grein um
hann á forsíðu undir fyrirsögninni:
„Haraldur konungur: Af hverju er
hann svona kuldalegur?“
í greininni stóð meðal annars
orðrétt: „Hann veifar ekki, tekur
ekki í höndina á neinum. Það örlar
varla á brosi. Ekki talar hann vin-
gjarnlega við almenning. Hann
steig út úr bláum Mercedes 600.
Hann var þungur í bragði, kaldur á
svip. Hann leit hvorki til hægri nér
vinstri. Hann veifaði ekki, brosti
ekki. Eins og vélmenni gekk hann
eftir götunni, með hægri höndina
djúpt í frakkavasanum.“
Þetta þykir Norðmönnum
slæmt að lesa. Þeir viðurkenna
máski að Haraldur sé fremur feim-
inn að eðlisfari, hann gangi að
sönnu ekki um veifandi, en að
Þjóðverjum finnst Haraldur
þumbaralegur.
hann sé ekki besti maður — það
geta Norðmenn aldrei samþykkt.B
Vændi
— einfaldlega
atvinna
Hollenskar vændiskonur hafa
með sér samtök, það mætti jafnvel
kalla það eins konar verkalýðsfélag.
Þessi félagsskapur sem gengur und-
ir nafninu Rode Draad lýtur forystu
Margot Alvares, 36 ára vændis-
konu. Henni hefur tekið það sárt
hversu lítillar virðingar vændiskon-
ur njóta og því hefur hún staðið
fyrir herferð til að reyna að bæta
ímynd þeirra í vitund almennings.
Liður í herferðinni eru auglýs-
ingar sem hafa birst í hollenskum
blöðum og límdar á veggi. Á einni
auglýsingunni gefúr að líta konu-
rass og hangir utan á honum keðja
og hengilás. Á auglýs-
ingunni stendur: „Opið
frá níu til fimm.“ Þar
fyrir neðan stendur
slagorð hollenskra
vændiskvenna:
„Vændi. Einfaldlega at-
vinna.“
Margot Alvares við-
urkennir raunar að
starfsgreinin sé ögn ut-
an ramma þess sem tal-
ið er venjulegt. En, bæt-
ir hún við, „það er líka
starf kvenlæknis eða út-
fararstjóra“.B
Opið frá níu til fimm.