Helgarpósturinn - 06.02.1995, Síða 14
14
MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1995 5
Útgefandi
Ritstjórar
Fréttastjórar
Framkvæmdastjóri
Auglýsingastjóri
Miðill hf.
Páll Magnússon, ábm.
Gunnar Smári Egilsson
Sigurður Már Jónsson
Styrmir Guðlaugsson
Kristinn Albertsson
Örn ísleifsson
Setning og umbrot
Filmuvinnsla og prentun
Morgunpósturinn
Prentsmiðjan Oddi hf.
Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum
og kr. 280 á fimmtudögum.
Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku.
Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 100 króna afslátt.
Greiðum skuldina
Einhver mestu spjöll, sem Islendingar hafa unnið á lífríki
landsins, eru tvímælalaust virkjanirnar þrjár í Soginu. Sýnu
alvarlegust og áþreifanlegust er þó eyðileggingin af völdum
Steingrímsvirkjunar, sem tekin var í notkun 1960.
I afbragðsgóðri grein í Morgunblaðinu fyrir skömmu lýsir
Össur Skarphéðinsson, umhverfisráðherra, því hvernig ein-
stæður urriðastofn Efra-Sogs og Þingvallavatns lét undan
síga þegar virkjunin nánast girti fyrir ána. „Mikilvægum rið-
stöðvum og gjöfulum uppeldissvæðum var svipt undan
urriðanum, og jafnframt þvarr hin mikilvæga fæðulind, sem
fólst í bitmýinu, sem hvarf þegar straumurinn stöðvaðist.“
En menn létu ekki við svo búið standa, heldur bættu gráu
ofan í svart með því að dreifa ómældum skömmtum af DDT-
skordýraeitri um árbakkana, sem drap bæði fluguna og fisk-
inn.
Þessar framkvæmdir röskuðu öllu lífríki í Þingvallavatni,
Úlfljótsvatni og Efra-Sogi, sem tengir vötnin, og drápu í
dróma einhvern merkilegasta stórurriðastofn í veröldinni.
Stofninn var rómaður um allan heim og útlendingar lögðu á
sig löng ferðalög og mikinn tilkostnað til að komast í tæri við
þennan stórfenglega fisk.
í grein Össurar má lesa eftirfarandi: „Stærð einstakra
urriða sem uxu fram úr Efra-Sogi skapaði frægð stofnsins á
sínum tíma. En rannsóknir á seinni árum hafa sýnt, að stofn-
inn í Efra-Sogi var ekki aðeins einstakur vegna þess hversu
óvanalega stórir urriðarnir gátu orðið. Athuganir írskra vís-
indamanna á arfgerð Sogsbúans hafa leitt í ljós að hann til-
heyrir hinum upprunalega stofni urriðans sem leitaði upp í
ferskvatn þurrlendisins í lok síðustu ísaldar, og lokaðist þar
inni þegar jökullinn hopaði frá Evrópu.“
En það er ekki bara að uppeldis- og lífsskilyrði stórurriðans
hafí veríð eyðilögð. Eitthvað hefur gerst, sem einnig veldur
því að laxastofninn í Soginu er ekki nema svipur hjá sjón
miðað við það sem hann var fyrir nokkrum áratugum. Ofan-
íkaupið fór svo forgörðum mikil náttúruperla, sem voru
Gljúfrin, - hinn gamli farvegur Efra-Sogs milli vatnanna
tveggja.
Því er þessi hrakfallasaga riíjuð upp hér, að nú berast frétt-
ir af því að á næstu árum eru fyrirhugaðar viðgerðir og end-
urbætur á virkjununum þremur í Soginu fyrir að minnsta
kosti tvo milljarða króna. Af því tilefni ættu þar til bær
stjórnvöld og Landsvirkjun að staldra við. Þessar virkjanir
eru ekki lengur nauðsynlegar til að tryggja nægilega raforku-
framleiðslu í landinu og nær væri að nota þessa fjármuni til
að endurheimta þau verðmæti, sem glötuðust þegar þær
voru reistar.
Hér skal tekið undir það, sem umhverfisráðherra sagði í
fyrrnefndri blaðagrein: „Sérstæð náttúra er hluti af þeirri arf-
leifð, sem er engu síðri en sagan og menningin. Hana verður
að varðveita, og henni ber að bæta þau spjöll sem maðurinn
af gáleysi vinnur. Á 50 ára afmæli lýðveldisins ætti því Lands-
virkjun að gera gangskör að því að opna farveg Efra-Sogs á
nýjan leik. Erlend reynsla sýnir, að tiltölulega auðvelt yrði að
ná aftur upp urriðastofninum, sem svæðið var frægt fyrir.
Þannig yrði greidd skuld við lífríki sögufrægasta staðar á ís-
landi, - skuld, sem er löngu komin á gjalddaga.“
Páll Magnússon
Pösturinn
Vesturgötu 2, 101 Reykjavík,
sími 552-2211 fax 552-2311
Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2243 Tæknideild: 552-4888
Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 552-2241 Dreifing: 552-4999
Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577
Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00 til 17:00
Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og fimmtudaga
frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00
Auglýsingadeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00,
aðra virka daga frá 9:00 til 17:00
Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 17:00 virka daga,
til 21:00 á briðju- og miðvikudögum og milli 13:00 oq 21:00 á sunnudöqum.
Veikomnir á staðinn
góðir gestir, fatahengið
tii vinstri og gjörgæslan
til hægri.
■■ :
Það er langbest að
stofna eigin flokk
„Ég nenni ekki að eyða tíma í að
vintia með Þjóðvaka. “
Jóhannes Gunnarsson neytandi
Nálin í heystakknum
„Við œtl-
um að reyna
aðfmna að-
ila til að
kotna lífi í
íslenskt atvinnulíf.“
Davíð Scheving Thorsteinsson
galdramaður
Auðtrúa þjóð
„Þeir sem þurfa að leita til heil-
brigðiskerfisins
vegna sjúkdóma,
slysa eða ann-
arra áfalla, hafa
yfirleitt
treyst því
orðalaust
aðlœknar
viti hvað
þeir eru
að gera — hafi alla þá þekkingu og
fœrni sem þarf til að takast á við
vandann. “
Elías Snæland Jónsson
Margur heldur mig sig
„Við nœrumstágamansögum um
kynlíf og óförum fólks íþeim efnum
en getum svo ekki rcett þessi mál op-
inskáttþráttfyrir alltþetta svokail-
aða frjálslyndi. “
Hlín Agnarsdóttir leikstjóri
Flokkakerfiö og Þjóðvaki
Á síðustu áratugum hafa komið ^^^^^^^ma^^^mmmmmmmm ★ Skilgreind forgangsröðun út-
fram framboð sem fengið hafa
hljómgrunn fólksins og ógnað hafa
gamla flokkakerfinu. Fæst þessara
framboða hafa náð varanlegri fót-
festu í íslenskum stjórnmálum, en
tilurð þeirra flestra hefur verið að
svara kalli þjóðarinnar um breyt-
ingar og jöfnuð í íslensku þjóðfé-
lagi. Hið staðnaða flokkakerfi hefur
í krafti ofurvalds rótgróinna
flokksmaskína sinna, náð að hrista
af sér slík framboð. Saman leggjast
þeir nú í að beina spjótum sínum
og málgögnum að nýrri hreyfingu
fólksins, sem ógnar sérhagsmuna-
samtrygginga- og valdakerfi þeirra.
Vakning fólksins
I þetta sinn mun það ekki takast.
Markviss undirbúningur hreyfing-
arinnar, skipulag og málefnastaða
og sá kraftmikli hljómgrunnur sem
þessi hreyfmg hefur um land allt
mun tryggja að nú er að hefja
göngu sína öflug hreyfing, sem
mun hafa varanleg áhrif í þjóðfé-
laginu og íslensku stjórnmálalífi.
Með þessari hreyfingu er leystur
úr læðingi kraftur fólksins sjálfs,
sem sameinar félagshyggjufólk í
öfluga hreyfingu sem tryggi jöfnuð,
réttlæti og afkomuöryggi allra
þannig að hér er búin ein þjóð í
einu landi. Vakning fólksins er
sterkasta aflið til breytinga og það
skynjar fólk um allt land.
Þverkiofnir
Eftir landsfund hreyfmgarinnar
gerðu flokksmálgögnin mikið úr
ágreiningi 5-6 einstaklinga sem
ekki fengu allt sitt fram í sjávarút-
Þungavigtin
■ -» ý JÓHANNA
jA SlGURÐARDÓTTIR
alþingismaður
vegsmálum og landbúnaðarmál-
um. Allir flokkar eru þó þverklofnir
í afstöðu sinni til þessara mála, þó
margra ára tilraunir til málamiðl-
ana innan flokkanna hafí verið
reyndar. Engan þarf því að undra
þó tillögur um róttæka uppstokkun
á grundvallaratvinnuvegi þjóðar-
innar sem sum ganga gegn megin-
markmiði um hámarksafrakstur af
auðlindinni þurfi nokkurrar skoð-
unar við hjá nýrri hreyfingu -
hreyfmgu sem þó leggur upp með
djarfari og framsæknari tillögur í
sjávarútvegsmálum en flokkakerf-
ið.
Sérstaða Þjóðvaka
Þar sem reynt hefur verið að láta
afstöðu örfárra einstaklinga skyggja
á málefnalegan landsfund er rétt að
drepa á nokkrum áhersluatriðum
hreyfingarinnar sem útfærð voru á
landsfundinum, sem í veigamikl-
um atriðum sker sig frá flokkakerf-
inu;
★ Uppstokkun á ónýtu launa- og
lífeyriskerfi, rneðal annars að lífeyr-
issjóðum verði fækkað og afnumið
það kerfi sem tryggir æðstu emb-
ættismönnum margfaldar Iífeyris-
greiðslur úr opinberum sjóðum.
gjalda og áætlun um þróun tekna
og útgjalda frá upphafi til loka kjör-
tímabils.
★ Mótuð verði opinber fjöl-
skyldustefna, þar sem meðal annars
verði lögð áhersla á forvarnar- og
fýrirbyggjandi aðgerðir og átak til
að byggja upp fjölþætt menntakerfi
sem er forsenda framfara í atvinnu-
lífinu.
★ Aðgerðir til að létta skatta- og
skuldabyrði tekjulágra heimila.
★ Afli fari um innlenda fiskmark-
aði, erlendum aðilum leyft að fjár-
festa í sjávarútvegi að 20% hluta, að
því skilyrði uppfylltu að kveðið sé á
um þjóðareign fiskistofna í lögum
með auðlindagjaldi sem tryggir
sameiginlega eign landsmanna á
fiskistofnum og að afli fari um inn-
lenda fiskmarkaði. Kannað verði að
takmarka togveiði á grunnslóð og
hvort annað fyrirkomulag veiði-
stýringar, svo sem svæðakvóti,
veiðarfærakvóti eða kvóti á einstak-
ar gerðir fiskiskipa sé heppilegra en
núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi.
★ Almennar reglur settar um sið-
skiptasiðferði í fyrirtækjum og
stofnunum - ábyrgð stjórnenda
aukin og komið í veg fyrir einokun,
samtryggingu og hagsmunatengsl.
★ Reglur settar til að hindra hags-
munaárekstra, misbeitingu valds
og fyrirgreiðslu í opinberum
rekstri.
★ Lög um starfsemi stjórnmála-
flokka, opinbera birtingu á fjárreið-
um þeirra og hve háar fjárhæðir
stjórnmálaflokkar mega þiggja af
einstökum aðilum til reksturs starf-
semi sinnar.
★ Þingmenn sitji ekki í bankaráð-
um og sjóðsstjórnum.
★ Bankastjórar verði ráðnir á
grundvelli faglegra sjónarmiða en
ekki vegna hagsmuna einstakra
flokka.
★ Fyrirkomulag húsnæðis-
greiðslna alþingismanna endur-
skoðuð.
★ Bílahlunnindi ráðherra og
bankastjóra afnumin.
★ Þingmönnum Þjóðvaka og
öðrum fulltrúum settar siðareglur
sem birtar verði opinberlega.
★ Dagpeningar æðstu manna
stjórnkerfisins afnumdir í núver-
andi mynd.
★ Risnu- og ferðakostnaður skor-
inn niður um fjórðung.
★ Stjórnlagaþing skipað þjóð-
kjörnum fulltrúum taki stjórnar-
skrána í heild sinni til endurskoð-
unar, ekki síst mannréttindaákvæði
hennar og kosningareglur, svo og
að skerpa skil milli framkvæmda-
vaids og löggjafarvalds, til dæmis
með því að ráðherrar afsali sér
þingmennsku, afnema heimild til
bráðabirgðalaga, auka rétt fólks til
þjóðaratkvæðagreiðslu, endur-
skoða ráðherraábyrgð, svo og
skráðar og óskráðar reglur sem
ríkja um embættisfærslu í opin-
berri stjórnsýslu svo sem embættis-
veitingar og ráðstöfun opinberra
fjármuna, fækka þingmönnum í 50
og auka valfrelsi kjósenda með per-
sónukjöri.
Stjórnlagaþing lyki hlutverki
sínu með því að frumvarp til nýrra
stjórnskipunarlaga 'yrði lagt undir
bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hið staðnaða flokkakerfi
hefur í krafti ofurvalds
rótgróinna flokksmaskína
sinna, náð að hrista afsér
slíkframboð. Saman leggj-
ast þeir nú í að beina
spjótum sínum og mál-
gögnum að nýrri hreyfingu
fólksins, sem ógnar sér-
hagsmuna- samtrygginga-
og valdakerfi þeirra.
Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Erlendsson,
Jón Steinar Gunnlaugsson, Ólafur Ragnar Grimsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.
I
<
©