Helgarpósturinn - 06.02.1995, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1995
MORGUNPOSTURINN ERLENT
19
Courtney Love: „Blaðamenn hérna eru farnir að veðja um hvort hún komist lifandi frá Astralíu."
frægðarsól hennar stöðugt. Hún
hefur birst á forsíðum ótal tímarita.
Hún er orðin það sem heitir á
vondu máli „kúltfígúra“; í erlend-
um blöðum stendur að hún sé
verðugasti fulltrúi þeirrar kventeg-
undar sem kölluð er „girlies“ eða
„babes“, en það eru ungar konur
sem hafa verið skilgreindar eitthvað
á þessa leið: þær vilja í senn vera
villtar og kvenlegar, frjálsar og eig-
ingjarnar, þær eru ekki hræddar við
að ganga í skrítnum fötum, þær
gefa gamaldags femínisma langt
nef, heldur hafi þær skapað nýja
kvenmynd sem feli í sér: mikið
kynlíf, mikla skemmtun og
alls enga óbeit á karlmönn-
um.
Aðrir hafa orðið til að
bendla Courtney Love við þá
manntegund sem kölluð er
„white trash“ eða hvítur
skríll; það er fullkomlega
menningarsnautt lágstéttar-
fólk með vondan smekk en
skammast sín ekkert fyrir
það.
Courtney Love kallar fram
sterk viðþrögð hjá fólki.
Annað hvort eru menn með
henni eða á móti henni, það
virðist ekki vera til neinn
millivegur í því efni. Hún var
vissulega þekkt áður en hún
giftist Kurt Cobain, en fræg
varð hún ekki fyrr en eftir
hjónabandið — og frægust
þó eftir andlát hans. Þeir sem
eru andsnúnir henni segja að
þetta hafi allt verið úthugsað
hjá Courtney Love; hún hafi
einungis gifst Cobain sér til
frægðarauka, hún hafi valdið
ófriði í Nirvana, hljómsveit-
inni hans, hún hafi vanið
hann á að taka heróín, hún
hafi verið vond við hann —
sumir ganga jafnvel svo langt
að halda því fram að hún hafi
hrakið hann út í ótímabæran
dauða.
Margt misfallegt er semsé
skrifað um Courtney Love.
Þegar árið 1992 birtist um
hana grein í bandaríska
;tímaritinu Vanity Fair. Þar
var því haldið fram að hún
hefði notað heróín meðan
hún var þunguð af dóttur
sinni Frances Bean. En
,ekki einu sinni höfundur
^greinarinnar, Lynn Hir-
schberg, gat þvertekið fyrir
rað hún væri heilluð af Co-
urtney Love. „Það getur ver-
ið að hún sé alveg hryllileg.
„Samt getur maður ekki ann-
;að en horft á hana.“
Einn vina Courtney Love
úr rokkbransanum er Billy
Corgan úr hljómsveitinni
Smashing Pumpkins. Hann
segir um vinkonu sína: „Það
,er til fallegra fólk en hún og
j’ það eru margir sem spila bet-
ur á gítar. En enginn hefur
kraft og útgeislun Courtney.“
Dauðafíkn
Cobains
Courtney Love er 29 ára. Móðir
hennar var þekktur sálfræðingur
sem hafði ánetjast hugmyndum
hippa um blóm og frið. Courtney
ólst upp meðal fólks sem iðkaði
kommúnulíf og velti fyrir sér kenn-
ingum sálfræðingsins Janovs um
frumöskrið. Æska hennar og ung-
lingsár voru heldur óróasöm; eng-
inn gat almennilega haft stjórn á
þessari óstýrilátu stúlku og hún
þvældist milli ættingja og vina
móður sinnar í Bandaríkjunum og
á Nýja-Sjálandi. Ung fór hún að
spila í hljómsveitum, margir félagar
hennar þaðan hafa síðar orðið
þekktir meðal áhugafólks um rokk.
En ekki gat hún lifað af músíkinni
og um tíma vann hún fyrir sér sem
nektardansmær. Stuttu eftir að
henni tókst að koma út fyrstu plötu
sinni og hljómsveitarinnar Hole
kynntist hún Kurt Cobain.
Það endaði með skelfingu eins og
fýrr segir og reyndar virðast voða-
atburðir sjaldan langt undan þegar
Courtney Love er annars vegar, því
stuttu eftir sjálfsmorð Cobains
andaðist Kirsten Pfaff, bassaleik-
ari Hole, eftir að hafa tekið of stór-
an skammt af heróíni.
Courtney Love hefur reynt að
kveða niður gróusögurnar um þátt
sinn í dauða Cobains. Hún sagði
fyrir skömmu í viðtali við tímaritið
Rolling Stone að stuttu eftir
fæðingu dóttur þeirra hefði
Cobain reynt að telja hana á
að fremja með sér sjálfsmorð.
Móðir Cobains hefur tekið
máli tengdadóttur sinnar og
segir: „Ef Courtney hefði ekki
verið til staðar hefði hann
gert þetta miklu fýrr.“
Þorrablót
Hátíðarbúningur
íslenskra karlmanna
Til þessa hafa íslenskir karlmenn ekki átt
hátíðarbúning samboðnum upphlut eða
skautbúningi íslenskra kvenna. Því þótti
tilhlýðilegt á afmælisári lýðveldisins að
efna til samkeppni um hönnun
hátíðarbúnings. Þann 5. júní 1994voru
úrslit birt og fyrir valinu var búningur
Kristins Steinars Sigríðarsonar hönnuðar
í Bandaríkjunum sem m.a. hefur getið sér
frægðar fyrir að hanna dragt á
forsetafrúna núverandi, Hilary Clinton
sem hún klæddist þegar forsetinn sór
embættiseið.
Hátíðarbúningur þessi hefur notið mikilla
vinsælda frá því farið var að framleiða
hann og færst hefur í vöxt að íslenskir
karlmenn óski eftir að klæðast
búningnum á tyllidögum, svo sem 17.
júní, 1. desember, skólaútskriftum,
opinberum athöfnum hérlendis og
erlendis og við öll önnur hátíðleg
tækifæri.
Cobain virðist semsé hafa verið
haldinn dauðafíkn. Samt lýsir Co-
urtney Love hjónabandi þeirra sem
besta skeiði lífs síns. Eftir henni er
haft: „ímyndaðu þér að vera ást-
fanginn, þú átt líka besta vin í
heimi, alvöru sálufélaga. Þú getur
varla trúað því hvað þú ert heppin.
Til viðbótar er hann fallegur. Og
ríkur. Og rokkstjarna. Og besti
elskltugi í heimi. Og hann vill eign-
ast börn, þig hefur alltaf langað til
að eignast börn. Og hann skilur
hvað þú ert að fara og hann getur
klárað setningarnar fyrir þig. Þetta
er eina djöfulsins hamingjan sem ég
hef fundið í lífi mínu. Og svo er
þetta allt tekið frá þér.“
Lifir hún af?
Greinin hófst í Ástralíu þar sem
Courtney Love er á hljómleika-
ferðalagi. Þar virðist hún lifa ansi
hratt. Blaðamaður sem fýlgdist
með henni fyrir breska tónlistar-
blaðið Melody Maker skrifar að
máski sé skemmtilegt að fylgjast
með þessum helsta óþekktarormi
rokksins. Hins vegar hafi það sínar
dökku hliðar. Har.n segist óttast að
Courtney Love sé að týna glórunni.
„Blaðamenn hérna eru farnir að
veðja á milli sín um hvort hún
komist lifandi frá Ástralíu.“
Melody Maker hefur komist yfir
lista yfir ýmiss konar varning sem
Courtney Love og Hole vilja að sé í
búningsklefanum fyrir og eftir tón-
leika. Blaðið birtir listann, líklega
sem vísbendingu um hversu heitt
sé í kolunum á hljómleikaferðalagi
Courtney Love. Hann er svohljóð-
andi:
„1 búningsklefanum skal vera: 18
stórar flöskur af Evian-vatni og 10
stór handklæði; 1 kassi af ýmsum
gosdrykkjum (Diet Coke, Classic
Coke, appelsíni, Sprite eða 7up); 10
lítrar af ávaxtasafa (greip, appelsínu
og trönuberja); 1 líter af góðu
skosku viskíi (Black Label Johnnie
Walker); 1 líter af góðu vodka (Stol-
ichnaya, Absolut eða
Moskovskaya); 1 líter af Bailey’s Ir-
ish Crearn; 2 kassar af flöskubjór
(Beck’s, Heineken, Corona
o.s.frv...ALLS EKKI BUDWEIS-
ER); 1 lítill bakki af blönduðu sæl-
gæti; laukdýfa; bakki með úrvali af
kjötáleggi og ostum (kalkún,
skinku o.s.frv.); úrval af nýbökuðu
brauði (hveiti, grófu, rúg o.s.frv.);
úrval af kexkökum; nýtt kaffi og í
það (sykur og gervisykur, mjólk,
ekki gervimjólk); úrval af tei
(Twinings, English Brekfast, Ka-
mómillu, Hibiscus); 2 pakkar af
Winston eða Marlboro lights sígar-
ettum; tveir pakkar af Dunhill síg-
arettum; Colgate eða Crest tann-
krem; talkúmduft; svitalyktareyðir
(Secret); 1 pakki af riffluðum
smokkum (ekki með sæðisdrep-
andi kremi); C-vítamín sem hægt
er að tyggja; glös, diskar, skálar,
hnífar, gafflar, skeiðar og sex
drykkjarkönnur; Kleenex pappírs-
þurrkur; átta pör af boxaranærbux-
um (karlmannastærðin L); nýtt
svæðisdagblað og nýtt heimsblað);
tvær 35mm filmur (önnur 24
mynda 400 asa svarthvít, hin 24
mynda 400 asa í lit); ein Polaroid-
spectra filma; ekkert rauðvín; eng-
an Alka-Selzer.“
-eh.
endursagt úr Focus
og Melody Maker.
Húsnæðisstofnun ríkisins
auglýsir hér með til umsóknar
LÁN OG STYRKI
til tækninýjunga og annarra
umbóta í byggingariðnaði, skv. heimild
í lögum nr. 97/1993
Umsækjendur geta verið einstaklingar,
fyrirtæki og stofnanir.
Við mat á verkefnum sem berast verður haft að
leiðarljósi að þau stuðli að:
■ Framþróun í byggingariðnaði og/eða
tengdum atvinnugreinum.
■ Aukinni framleiðni í byggingarstarfsemi.
• Lækkandi byggingarkostnaði.
® Betri húsakosti.
■ Aukinni þekkingu á húsnæðis- og byggingarmálum.
■ Tryggari ogbetri veðum fyrir fasteignaveðlánum.
B Almennum framförum við íbúðarbyggingar, bæði í
hönnun, framkvæmdum og rekstri.
B Endurbútum á eldri húsakosti.
Athugið:
Ekki verða veitt lán eða styrkir til verkefna sem miða að
innflutningi eða sölu á erlendum byggingarvörum, né heldur sölu
á byggingarvarningi hérlendis.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar er að fá hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins og Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.
& HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI: 569 6900 (kl. 8-16)
BRÉFASÍMI: 568 9422 • GRÆNT NÚMER (uton 91-svæðisins): 800 69 69