Helgarpósturinn - 06.02.1995, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN SPORT
2SL
Skemmtilegasti bikarúrslitaleikur sögunnar
Ótrúlegur
darraðardans
þegarKA menn unnu Valsvélina í hreint ótrúlegum leik.
Það er víst óhætt að tala um
sunnudaginn 4. febrúar 1995 sem
einn stærsta bikardag í sögu ís-
lensks handknattleiks. Tveir stór-
kostlegustu bikarleikir sem undir-
ritaður hefur séð fóru þá fram og
íslenskur handknattleikur gat
hreinlega ekki fengið betri auglýs-
ingu til eflingar íþróttinni.
Leikur KA og Valsmanna hafði
strax alla burði til að verða söguleg-
ur. Um var að ræða tvö sterk og
góð lið, bæði með gríðarsterkar
varnir og marga af allra bestu leik-
mönnum íslendinga innanborðs.
Fyrirfram var þó búist við Val-
mönnum heldur sterkari, þeir voru
enda með hefðina með sér og
höfðu sigurtilfinninguna á hreinu
gegn liði norðanmanna sem aldrei
hafði unnið titil.
Strax í byrjun leiks kom þó í ljós
að ekki var hægt að líta á KA-liðið
sem minni spámenn. Byrjun þeirra
var afar kröftug og úthugsuð og
fjölmargar aðgerðir þeirra komu
hinu reynda liði Valsmanna í opna
skjöldu. Má þar til dæmis nefna að
þjálfari liðsins, Alfreð Gíslason,
hóf leikinn í sókninni sem miðju-
maður og naut sín þar einkar vel
sem stórskytta og hefur „gamli
maðurinn“ ekki leikið jafn vel í ára-
raðir. Þá kom einnig sterkt út að
Valdimar Grímsson var allan tím-
ann í að klippa út Jón Kristjáns-
son og þrátt fyrir að það tæki
greinilega nokkurn kraft úr sóknar-
leik Valdimars var þetta gríðarlega
mikilvæg flétta fyrir liðið.
KA-menn höfðu forystuna nær
allan leiktímann og náðu mest
fimm marka forystu í fyrri hálfleik,
10-5. Þá fór Valsvörnin að átta sig
meira á staðreyndum málsins og
smám saman small sókn þeirra bet-
ur saman, einkum með innáskipt-
ingu Valgarðs Thoroddsen en
fram að því hafði Frosti Guð-
laugsson leikið í hans horni og
Sveinn Sigfinnsson í því vinstra.
Það kom mjög vel út varnarlega en
síður sóknarlega og breytingin til
batnaðar var augljós þegar á leið.
Mikið bar á markvörðunum
tveimur og er óhætt að kalla
frammistöðu þeirra stórkostlega,
sérstaklega á mikilvægustu augna-
blikunum. Hvað eftir annað voru
Bikarmeistararnir í handknattleik karla árið 1995.
sóknir liðanna stöðvaðar af þeim
Guðmundi Hrafnkelssyni og Sig-
mari Þresti og meðal annars voru
alls sjö víti varin af þeim félögum.
Eitt vítið var þó sýnu mikilvæg-
ast. Það fengu KA-menn í stöðunni
20:20 þegar leiktíminn var úti.
Dómurinn sá var afar strangur, svo
ekki sé fastara að orði kveðið, og
má með sanni segja að markvarsla
Guðmundar frá Valdimar hafi
tryggt réttlætinu framgöngu.
Því þurfti að grípa til framleng-
ingar og í henni náðu KA-menn
snemma forystu, einkum með
glæsilegri frammistöðu Patreks, og
var forysta liðsins þrjú mörk þegar
tæpar tvær mínútur voru til leiks-
loka. Stemmning liðsins var mikil
og augljóst að þeir héldu að titillinn
væri í höfn. En svo var aldeilis ekki
og á einhvern óskiljanlegan máta
tókst KA-mönnum að missa gjör-
unninn leik niður í jafntefli á þess-
um stutta tíma. Því varð að fram-
lengja aftur og í þeirri framleng-
ingu tókst norðanmönnum að
knýja fram sigur, fyrst og fremst
með góðri vörn.
Það er ekki annað hægt en að
hrósa báðum liðum fyrir afar hetju-
lega baráttu og skemmtun sem
jaðraði við fullkomnun. Fjölmörg
glæsitilþrif litu dagsins ljós og þrátt
fyrir að í heildina hafi sigurvilji KA-
manna verið sterkari mátti ekki
miklu muna. Valsliðið sýndi gríð-
armikinn karakter í fyrri framleng-
ingunni með því að ná að jafha
leikinn en undir lokin var það bik-
arhungur „litla liðsins“ sem réði
úrslitum. Og kannski var það ein-
mitt málið, gulldrengirnir frá Hlíð-
arendanum hafa sjaldan tapað
Jón Kristjánsson var í strangri gæslu KA-manna allan leikinn. Hér er
hann þó í þann veginn að komast í gegn við lítinn fögnuð norðan-
manna.
ugglega frábær skemmtun.“
Þorbjöm Jensson, þjálfari Vals
„Þetta var akkúrat rétti leikurinn
fyrir áhorfendur. Ég man ekki eftir
því að tvisvar sinnum hafi þurft að
tvíframlengja og dramatíkin í þessu
var mikil. Leikir þessa liða hafa allt-
af verið frekar jafnir og það kom í
bakið á okkur að leika ekki nógu
vel. Það fór mikil orka í að vinna
upp forskotið og ég neita því ekki
að ég hélt að lukkan væri okkar
megin. En þeir stóðu sig frábærlega
og ég óska þeim innilega til ham-
ingju með það.“
Alfreð Gislason, þjálfari KA
„Þetta var ofboðsleg vinna. Það
var alltaf spurning hvorum megin
þetta myndi lenda og sem betur fer
varð það að lokum okkar megin.
Við vorum of fljótir á okkur að
fagna og það hefði getað verið dýr-
keypt. Við náðum góðum leik gegn
þessu stórkostlega liði og nú er bara
að fagna þessum fyrsta bikarmeist-
aratitli liðsins vel og lengi.“
Valdimar Grímsson, KA
„Manni leið ekkert allt of vel yfir
því að klikka í þessum færum en ég
hef reynt að spá bara í framtíðina í
þessum málum. Þetta var æðislegt
og að vinna gömlu félagana í svona
leik er ekkert voðalega leiðinlegt."
Sigmar Þröstur Óskarsson, KA
„Við unnum þá í rauninni þrisv-
ar og ég hef aldrei lent í öðru eins.
Við vorum á Hótel Örk fyrir leik og
fengum góða leiðsögn hjá Jóhanni
Inga Gunnarssyni sem sagði okk-
ur frá því góða og því slæma í leik
okkar. Ég held að hann eigi mikið í
þessum sigri.“ ■
Landsfrægir menn eins og þeir Steingrímur Ólafsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson komu út úr skápn-
um og felldu tár þegar að sigurinn var í höfn.
svona leikjum og KA-menn aldrei
unnið þá. Og löngunin til að breyta
því hefur einfaldlega orðið yfir-
sterkari. -Bih.
Valur - KA
26:27 (10:12)
Valur Dagur Sigurðsson 6(1),
Frosti Guðlaugsson 5, Júlíus
Gunnarsson 4, Ingi Rafn Jónsson
3, Valgarð Thorodssen 3(1), Jón
Kristjánsson 3(1), Geir Sveinsson
1, Sigfús Sigurðsson 1.
Guðmundur Hrafnkelsson varði
alls 19 skot þar af þrjú víti.
Brottvísanir: 10 mín.
KA: Patrekur Jóhannesson
11(1), Valdimar Grímsson 8(4),
Alfreö Gíslason 6, Leó Örn Þor-
leifsson 2.
Sigmar Þröstur Óskarsson varðl
alls 29 skot, þar af fjögur víti.
Brottvísanir: 14 mín.
Dómarar: Óli Ólsen og Gunnar
Kjartansson.
Menn leiksins: Sigmar Þröstur
og Patrekur hjá KA.
Geir Sveinsson, fyriríiði Vals
„Ég hef aldrei tapað úrslitaleik og
firinst það bara ekkert gaman. Þetta
hlýtur að hafa verið skemmtilegt á
að horfa en ég hélt að örlögin væru
okkar megin þarna undir lokin.“
Guðmundur Hrafnkelsson, Val
„Það er alltaf svekkjandi að tapa
svona leik. Við lentum snemma
undir og þurftum því að leggja
mikla vinnu í að vinna það upp.
Við fengum engu að síður mörg
tækifæri til að vinna leikinn en
nýttum þau ekki og því fór sem fór.
KA-menn komu okkur svolítið á
óvart með fantavörn og góðri sókn
og fyrir áhorfendur var þetta ör-
sögðu.