Helgarpósturinn - 06.02.1995, Síða 31
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN SPORT
31
Bilið minnkar á milli Blackburn og United
Tottenham
gefur ekkert eftir
Andy Cole skoraði sigurmark Unitedgegn Villa.
Lið Tottenham er gjörsamlega
óþekkjanlegt frá því sem það var í
byrjun leiktímabilsins og topplið
Blackburn Rovers fékk aldeilis að
kenna á því í gær þegar það sótti
Á fullri ferð. Félagarnir Gheorghe
Popescu, Jiirgen Klinsmann og
Nick Barnby fagna marki þess
síðastnefnda í stórleik gærdags-
ins í ensku knattspyrnunni.
liðið heim á White Heart Lane í
Lundúnum. Mörk frá Þjóðverjan-
um Júrgen Klinsmann, Darren
Anderton og Nick Barnby gerðu
það að verkum að nú er bilið á milli
Blackburn og Manchester United
aðeins tvö stig.
United vann lið Aston Villa á
laugardaginn og var mark Andy
Cole það eina í leiknum. Þetta er
fyrsta mark Cole í tíu leikjum og
það fyrsta sem hann gerir fyrir sitt
nýja félag.
Liverpool náði stigi út út viður-
eign sinni við Nottingham Forest
þrátt fyrir að vera einum færri og
undir lengst af. Táningurinn Rob-
bie Fowler jafnaði metin á loka-
mínútunum eftir að mark Stan
Collymore virtist ætla að færa For-
est öll stigin þrjú. Á sama tíma
skellti QPR Newcastle-liðinu með
þremur mörkum gegn engu og
virðist nú sem allar meistaravonir
Newcastle-liðsins séu á bak og
burt.B
Spennandi leikur á Seltjarnarnesinu
KRkomið
Lagði Hauka í gærkvöldi.
Flestir áhorfendur á leik KR og
Hauka á Seltjarnarnesinu í gær-
kvöldi bjuggust við að berja þar í
fyrsta sinn augum nýjan útlending
KR-inga. Það kom því á óvart að sjá
óbreytt lið stilla sér upp í byrjun
leiks. Mark Haddden komst ekki í
hópinn og verður sendur heim á
morgun. Enn einu sinni eru KR-
ingar óheppnir með útlending. Þeir
hefðu betur farið að dæmi Hauka
og sleppt því alveg að eyða pening-
um sínum í skoðunarferðir fyrir lé-
lega bandaríska körfuknattleiks-
menn.
Leikurinn í gær var hörkuspenn-
andi frá upphafi til enda. KR- ingar
þurffu nauðsynlega á sigri að halda
til að forðast frekari niðurlægingu,
en liðið hefur tapað fyrir Snæfelli
og Skagamönnum í síðustu tveim-
ur leikjum. Haukar töpuðu síðast-
liðinn föstudag fyrir Tindastóli og
eiga í harðri baráttu við Skagamenn
um sæti í úrslitakeppninni.
KR-Haukar 76-75 (40-40)
Stig KR: Ósvaldur Knudsen 17, Ólafur
Jón Ormsson 16, Ingvar Ormarsson 14,
Birgir Mikaelsson 12, Falur Haröarson
11, Brynjar Harðarson 4, Óskar Krist-
jánsson 2.
Skot innan teigs: 50% (14/28), utan
41% (7/17), 3-stiga 38% (8/21), viti 59%
(10/17). Fráköst: 40 (12 i sókn) (Birgir
11), varðir 8 (Birgir 3), tapaðir 18, stolnir
8, stoðsendingar 21 (Falur 12).
Stig Hauka: Sigfús Gizurarson 24, Pétur
Ingvarsson 21, Jón Arnar Ingvarsson 11,
Björgvin Jónsson 8, Óskar Pétursson 7,
Sigurbjöm Bjömsson 4.
Skot innan teigs: 47% (14/30), utan
24% (5/21), 3-stiga 32% (6/19), viti 73%
(19/26). Fráköst 27 (7 i sókn), varðir 3
(Óskar 2), tapaðir 15, stolnir 13 (Sigfús
5, Pétur 5), stoðsendingar 10.
Leikurinn fór fremur rólega af
stað og gekk liðunum illa að hitta
lengi vel framan af. KR-ingar fengu
þó nokkuð af hraðaupphlaupum
enda Haukar ekki nógu snöggir að
bakka aftur í vörn þegar þeir misstu
boltann í sókninni. Pétur Ingvars-
son var að venju drjúgur í að stinga
sér inn á milli varnarmanna og
leggja boltann ofan í. Pétur er eld-
fljótur og nýtir hraða sinn alveg
einstaklega vel. KR-ingar léku mun
betur í sókninni en yfirleitt í vetur.
Boltinn gekk vel á milli manna og
þeir náðu oftar að senda boltann
undir körfuna en áður. Það hefur
einmitt verið eitt helsta vandamál
liðsins í vetur að stóru mennirnir
hafa ekki fengið úr nógu miklu að
moða. Nú var það Birgir Mikaels-
son sem lék manna best undir
körfunni og átti skínandi leik í fyrri
hálfleik, var ógnandi í sókninni og
lék afbragðsvel í vörninni einnig.
KR-ingar voru allan tímann mun
sterkari í fráköstum og komu þar
með í veg fyrir að gestirnir fengju of
mörg sóknartækifæri.
Staðan í hálfleik var 40-40. Það
var Ingvar Ormarsson sem kom
KR-ingum á bragðið í síðari hálf-
leik en Sigfús Gizurarson svaraði
fyrir Hauka með að skora tíu fyrstu
stig liðs síns í síðari hálfleik. Leikur-
inn var í járnum allan síðari hálf-
leikinn og hvorugt liðið komst utan
seilingarfjarlægðar frá hinu. Hauk-
ar virtust þó hafa undirtökin en
náðu aldrei að sigla fram úr. KR-
ingar voru ekki sáttir við dómara
leiksins, Kristin Albertsson og
Þorgeir Jón Júlíusson, en þeir
hafa oft dæmt mun betur en í gær-
kvöldi.
Spennan í lok leiksins var mjög
mikil. Ólafur Jón Ormsson skor-
aði þriggja stiga körfu þegar innan
við ein mínúta var eftir og kom
KR-ingum í 76-75. Sigfús missti síð-
an knöttinn fyrir að taka of mörg
skref og KR-ingar höfðu því gott
tækifæri til að gera út um leikinn.
Þeir nýttu sér það ekki og Haukar
höfðu því tækifæri til að tryggja sér
sigur á lokasekúndunum en skot
Sigurbjörns Björnssonar, þegar
þrjár sekúndur voru eftir, rataði
ekki rétta leið. Þá kom það Hauk-
um illa að hafa leikið prúðmann-
lega þar sem þeir voru ekki komnir
með átta villur og því gátu þeir ekki
komið KR-ingum á vítalínuna.
Bestir heimamanna voru Ós-
valdur Knudsen sem spilaði mjög
vel allan leikinn og virðist nýtast
mun betur sem varamaður en byrj-
unarmaður. Falur Harðarson
stjórnaði sínum mönnum vel og
skytturnar Ingvar og Ólafur Jón
áttu sínar stundir. Birgir lék frá-
bærlega í fyrri hálfleik og réði ríkj-
um undir körfunum. Hjá gestun-
um voru Pétur Ingvarsson og Sig-
fús Gizurarson bestir og Jón Arnar
Ingvarsson átti líka spretti. Hauk-
ar söknuðu Baldvins Johnsen
sem ekki lék með vegna meiðsla.
Falur, fyrirliði KR-inga, sagði
eftir leikinn: „Það er góð tilbreyting
að vinna Ieik.“ Aðspurður um út-
lendingamál sagði hann: „Það er
einn ljós punktur í þessu öllu sam-
an en það er að Hermann (Hauks-
son) er farinn að mæta affur á æf-
ingar. Það kemur til með að hjálpa
okkur mikið.“ „Það vantar stöðug-
leikann. Við spilum vel á móti
Keflavík og Njarðvík og töpum svo
fyrir Snæfelli. Við erum bara alltaf á
sama plani og hinir, hvort sem þeir
Rondey Robinson, Njarðvík, hefur hér betur í baráttunni við Hjalta
Pálsson og skorar tvö stig. Rondey og félagar afgreiddu Valsmenn ör-
ugglega og stefna hungraðir á íslandsmeistaratitilinn eftir tap í bikar-
úrslitunum.
eru góðir eða ekki nógu góðir. Við spurður við: „Við vinnum alla leik-
þurfum bara að ná stöðugleikan- ina sem eftir eru.“
um.“ Að lokum bætti hann að- -ÞK
Snóker
Jóhannes
langefstur
Jóhannes B. Jóhannesson
enn efstur í samanlagðri stiga-
keppni opnu forgjafarmótanna. Jó-
hannes bar sigur úr býtum í gærdag
á Billjardstofunni Klöpp og er
greinilegt að hann hefur umtals-
verða yfirburði þessa dagana.
í úrslitum vann Jóhannes Jakob
Hrafnsson, 3-0, en áður höfðu þeir
félagar unnið þá Zophanías Árna-
son og Guðbjörn Gunnarsson í
undanúrslitum.
Staðan í stigakeppninni er nú af-
ar spennando og er mikil barátta
um átta efstu sætin sem gefa rétt til
Englandsferðar. Jóhannes er efstur
með 335 stig og hefur hann unnið
þrjú mót af fimm, Ragnar Ómars-
son er annar með 155 stig, Zophan-
ías er þriðju með 140 stig, þá er
Gylfi Ingvarsson með 105 stig og
Jakob með 100 stig.
Lokamótið í röðinni fer fram
dagana 4.-5. mars og eru það Billj-
ardstofurnar á Klöpp og Ingólfs-
billjard sem hýsa atburðinn. -Bih
Það voru ungu mennirnir
börðust um sigurinn á snókermót-
inu við Klöpp um helgina. Jóhann-
es B. Jóhannesson (á myndinni til
hægri) og Jakob Hrafnsson léku til
úrslita og þeirri viðureign lyktaði
með sigri Jóhannesar sem enn er
langefstur í stigakeppninni.
Enski boltinn
Leikimir um helgina
Coventry - Chelsea 2:2
Flynn, Burley sm. - Stein, Spencer.
Everton - Norwich 2:1
Stuart, Rideout - Milligan
Ipswich - Crystal Palace 0:2
Dowie, Gordon víti
Leicester - West Ham 1:2
Robins - Cottee, Dicks víti
Man. Utd. - Aston Villa 1:0
Andy Cole
Nott. Forest - Liverpool 1:1
Collymore - Fowler
QPR - Newcastle 3:0
Ferdinand 2, Barker
Sheff. Wed. - Arsenal 3:1
Petrescu, Ingeson, Bright - Linighan
Southampton - Man. City 2:2
Coton sm., Le Tissier - Kernaghan, Flitchc-
roft
Wimbledon - Leeds 0:0
Tottenham - Blackburn 3:1
Staðan
Blackburn 27 58:24 59
Manchester Utd. 27 48:21 57
Newcastle 27 45:29 48
Liverpool 26 45:21 47
Nottingham Forest 27 40:29 46
Tottenham 26 44:37 42
Leeds 26 34:28 39
Sheff. Wednesday 27 36:33 39
Wimbledon 26 31:40 36
Norwich 26 25:29 34
Arsenal 27 30:31 33
Chelsea 26 34:37 32
Manchester City 26 35:41 32
Aston Villa 27 32:36 31
Southampton 26 37:42 30
Crystal Palace 27 21:26 30
QPR 25 38:44 30
Everton 27 27:36 30
West Ham 26 24:33 28
Coventry 27 25:45 28
Ipswich 27 29:55 20
Leicester 26 24:45 18
Markahæstir
27 - Alan Shearer, Blackburn.
23 - Robbie Fowler, Liverpool.
22 - Ashley Ward, Norwich.
20 - Chris Sutton, Blackburn.
20 - lan Wright, Arsenal.
19 - Jiirgen Klinsmann, Tottenham.
19 - Matt LeTissier, Southampton.
Körfuboltinn
A-riðill: L S T ST
Njarðvík 26 25 1 48
Skallagrímur 26 14 12 28
Þór Akureyri 25 13 12 26
Haukar 26 8 18 16
Akranes 26 7 19 14
Snæfell 25 2 23 4
B-riðill:
Grindavík 26 21 5 42
ÍR 25 18 7 36
Keflavík 26 17 9 34
KR 26 12 14 24
Tindastóll 26 9 17 18
Valur 25 8 17 16
Einarmeð
ævintýralega
sigurkörfu
Valur - Njarðvík 78-105
Islandsmeistarar Njarðvíkur áttu ekki í
miklum vandræðum með Valsmenn og
gerðu út um leikinn strax í fyrri hálfleik.
Þeir spiluðu stífa og grimma pressuvörn
sem bakverðir Vals réðu ekkert við. Leik-
urinn, sem var sjónvarpsleikur, var lítið
fyrir augað og gæði hans léleg.
Stigahæstir: Valur: Jonathan Bow 22.
Njarðvik: Rondey Robinson 24, Teitur
Örlygsson 15.
Skallagrímur
- Tindastóll 76-51
Skallagrimur burstaði Tindastól sem
hafði unnið þrjá leiki á undan. Hvorki
gekk né rak í sóknarleik Tindastóls sem
skoraði aðeins 51 stig í öllum leiknum,
nokkuð sem sést aðeins í yngri flokkun-
um. Það hefur aldrei verið vinsælt að fara
upp á Borgarnes og spila þar, sérstak-
lega nú í vetur þegar sterkt varnarlið
Skallagríms undir stjórn Tómasar Holt-
on er að gera það gott.
Grindavík - ÍA 105-77
Eins og í flestum leikjum þessarar um-
ferðar fór sigurliðið með stórsigur af
hólmi. Nýkrýndir bikarmeistarar Grinda-
víkur hristu af sér slenið frá umferðinni á
undan og krossfestu Skagapilta. Skaga-
menn hafa aðeins unnið einn leik af síð-
ustu átta leikjum sem segir mikið um
stöðu liðsins. Sennilega munu þeir enda
með næst slakasta árangurinn í deildinni
i vor og leika þar með við lið úr fyrstu
deild um úrvalsdeildarsæti.
Stigahæstir: Grindavik: Guðmundur
Bragason 22, Helgi J. Guðfinnsson
15. ÍA: Brynjar Karl Sigurðsson 27,
B.J. Thompson 25.
Keflavík - Þór Akureyri
95-92
Ævintýraleg þriggja stiga karfa Einars
Einarssonar, sex sekúndum fyrir leiks-
lok, tryggði sigur Keflavíkur i gærkvöldi.
Þórsarar geta engum öðrum en sjálfum
sér kennt um hvernig fór því þeir höfðu
pálmann i höndunum þegar stutt var eftir
af leiknum. En Keflvikingar sönnuðu það
að það þýðir aldrei að gefast upp og
uppskáru tvö dýrmæt stig.
Stigahæstir: Keflavík: Lenear Burns 20,
Davíð Grissom 18. Þór: Kristinn Frið-
riksson 32, Konráð Óskarsson 20.
Leik ÍR og Snæfells var frestað þar sem
Snæfellingar komust ekki til Reykjavíkur.