Helgarpósturinn - 13.02.1995, Side 4
4
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995
Alþýðubandalagiö
óskar eftir umræöum
um kaup íslenska út-
varpsfélagsins í DV
Ekki spum-
ing um pól-
rta'sk völd
segirJón Ólafsson.
„Við erum fyrst og fremst að
hugsa um viðskipti, þetta er ekki
spurning um pólitísk völd eins og
Svavar lætur liggja að. Þetta er mjög
góður leikur til að styrkja framtíðar-
möguleika fyrirtækjanna. Við verð-
um að horfa á að það er ný tækni að
koma fram og við erum að fara inn í
mikla tölvuöld. Þetta er liður í að
bregðast við því. Ef við gerum það
ekki sitjum við bara eftir, svo einfalt
er það,“ segir Jón Ólafsson, stór
hluthafi í Islenska útvarpsfélaginu hf.
og nýr stjórnarmaður í Frjálsri fjöl-
miðlun hf., útgáfufélagi DV eftir að
fýrrnefnda félagið keypti 35 prósenta
hlut í því síðarnefnda. Tilefni þessara
orða Jóns er ósk Alþýðubandalagsins
um utandagskrárumræðu á Alþingi
um þessi kaup en Alþýðubandalags-
menn telja að með þeim hafi Islenska
útvarpsfélagið og Frjáls fjölmiðlun
náð stöðu á íslenskum íjölmiðla-
markaði sem jafnvel geti reynst lýð-
ræðinu hættulegt.
„Okkur þykir augljóst að það sé
ískyggileg valdasamþjöppun fram-
undan á íslenskum fjölmiðlamark-
aði. Þetta er nú atriði sem menn hafa
beinlínis tekið á til dæmis í Banda-
ríkjunum með löggjöf, en þar er ekki
heimilað að ljósvakamiðlar eigi í
blöðum eða öfúgt í stórum stíl.
Hérna ætla menn að flétta þetta sam-
an og það er nokkuð áhyggjuefni.
Hérna verður um að ræða risa á fjöl-
miðlamarkaðnum sem gerir Morg-
unblaðið eiginlega minnst, þá tel ég
ekki Alþýðublaðið með,“ segir Svav-
ar Gestsson, þingmaður Alþýðu-
bandalagsins. Og Svavari finnst vera
heldur mikil hægri slagsíða á um-
ræddum félögum.
„Það er bersýnilegt að Sjálfstæðis-
flokkurinn er með þessa miðla. Þetta
eru stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins, félagsmenn eða jafnvel
forystumenn floklcsins sem standa
að þessum ákvörðunum, til viðbótar
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur vita-
skuld á Morgunblaðið. Þetta er dálít-
ið ískyggilegt.“
Það kann hins vegar að vera að
það sé ekki alls kostar rétt hjá Svavari
að það hafi eingöngu verið sjálf-
stæðimenn sem stóðu að umrædd-
um kaupum því MORGUNPÓSTUR-
INN hefur heimildir fyrir því að Jón
Ólafsson hafi verið umfangsmikill
styrktaraðili Nýs vettvangs á sínum
tíma og R-listans í borgarstjórnar-
kosningunum í vor. Aðspurður um
þetta svarar Jón:
„Ég kýs að láta allt ósagt um mínar
pólitísku gjörðir. Ég vil meina að ég
sé ósköp hlutlaus maður.“ -jk
Svavar Gestsson „Það er bersýni-
legt að Sjálfstæðisflokkurinn er
með þessa miðla.“
Sigrún Gísladóttir og Aðalsteinn
Jónsson á heimili föður Aðalsteins
í gær. Það var í fyrsta skipti sem
þau fá að vera eftirlitslaus með
börn sín eftir að þau voru vistuð af
barnaverndaryfirvöldum 5. janúar
síðastliðinn.
Sigrún
Gísladóttir
og Aðalsteinn
Jónsson voru á
flótta með börn
sín undan
barnaverndar-
yfirvöldum í
tvær vikur í
kringum ára-
mótin. Yfirvöld
höfðu loks
hendur í hári
barnanna 5.
janúar og for-
eldrarnir hafa
ekki fengið þau
aftur
„Eins hægl að svipta mann lrfi“
segir faðir bamanna.
„Þetta er alveg hrikalega erfitt. ar:
Það er okkur þvert um geð að
kvelja börnin með því að skilja við
þau þegar kvölda tekur,“ segir Að-
alsteinn Jónsson. Börn hans og
Sigrúnar Gísladóttur, sem eru 3
mánaða og rúmlega árs gamalt,
eru enn í umsjón barnaverndaryf-
irvalda en mál þeirra vakti mikla
athygli í kringum síðustu áramót
þegar umfangsmikil lögregluleit
var gerð að börnunum. Aðalsteinn
nam á brott yngra barn sitt og Sig-
rúnar 23. desember síðastliðinn af
barnaspítala Hringsins en foreldr-
höfðu tímabundið verið
sviptir forræði þess og óttuðust að
forræðissviptingin yrði til fram-
búðar.
Sigrún fór huldu höfði með
börnin í tvær vikur en eftir að lög-
reglan komst á snoðir um dvalar-
stað eldra barnsins skilaði hún
yngra barninu á Landspítalann að-
faranótt 5. janúar.
Aðalsteinn segir að málið sé nú í
nokkurs konar kyrrstöðu en hon-
um hefur ekki verið birt ákæra fyr-
ir að, taka barnið í óþökk barna-
verndaryfirvalda. Komi það til
segist hann sjálfur muna ákæra
barnaverndaryfirvöld fyrir fram-
göngu þeirra í málinu. Börnin er
unú vistuð á vistheimili barna-
verndar við Hraunberg í Breið-
holti og heimsækja Aðalsteinn og
Sigrún þau daglega.
„Börnin hafa það eins og best
getur orðið án foreldra og við er-
um hjá þeim um 4 til 5 tíma á
dag,“ segir Aðalsteinn. „Þetta
ástand gæti varað í 4 til 6 vikur í
viðbót en ég býst fastlega við að
við fáum börnin þá aftur.“
Samvinna barnaverndaryfir-
valda og foreldranna hefur verið
mun betri eftir að málið komst í
hámæli í fjölmiðlum en mikils
vantrausts gætti áður þeirra á
milli.
„Ég held að þeir hafi hugsað
sinn gang og það hafa ekki verið
neinar erjur okkar á milli eftir ára-
mót. Ég sagði strax í upphafi að ég
vildi samvinnu í stað þess að þurfa
að sitja og standa eftir skipunum
barnaverndaryfirvalda," segir Að-
alsteinn.
„Það er alveg eins hægt að svipta
mann lífi eins og að taka af manni
börnin. Ég held að það sé miklu
skynsamlegra að skjóta menn og
taka síðan börnin í stað þess að
stía börnum og foreldrum þeirra í
sundur.“
Aðalsteinn segir að börn hans
og Sigrúnar spjari sig vel en hann
hefur farið reglulega með þau í
læknisskoðanir eftir að þau voru
vistuð á Hraunbergi. I gær fengu
Aðalsteinn og Sigrún í fyrsta skipti
að fara eftirlitslaust út með börnin
og fóru þau með börnin í afmæli
tií afa þeirra.
-lae
Kennaradeilurnar í hnút
Iflair á verkfalli
Rúgbrauðsgerðin í gær þar sem viðræður kennara og ríkisvaldsins
fara fram. Margir kennarar eru farnir að sjá fyrir sér langt verkfall.
Auknar
Líkurnar á að kennaraverkfall
skelli á næstkomandi föstudag auk-
ast nú dag frá degi eftir að Hið ís-
lenska kennarafélag og Kennara-
samband íslands höfnuðu tilboði
samninganefiidar ríkisins á laugar-
dag. Hljóðaði tilboðið upp á 500
milljóna heildarlaunahækkun til
kennara, eða sem samsvarar 7 pró-
senta hækkun á heildarlaunakostn-
aði til skólakerfisins. I staðinn vildi
samninganefndin að kennarafélögin
opnuðu vinnutímaákvæði kjara-
samninga sinna með ýmsum hætti.
Þar á meðal fór nefndin fram á að
kennsludögum yrðu fjölgað og
breytingar yrðu gerðar á útlagningu
vinnutíma þannig að auðveldara
yrði að koma við lagabreytingum ef
af yrði.
Kennarar voru hins vegar ekki til
viðræðu um þessi mál þar sem þeir
segja ríkisvaldið vilja kaupa aukna
vinnu afar lágu verði: Nánar tiltekið
vildi ríkisvaldið með þessu tilboði
sínu kaupa 12 aukakennsludaga af
kennurum á ári. Því væri þetta í
raun engin launahækkun, en eins og
komið hefur fram fara kennarafé-
lögin fram á grunnkaupshækkun.
Samkvæmt tilboðinu var fyrir-
hugað að breytingarnar tækju tvö
og hálft ár. Segja talsmenn HÍK og
Kl að engan hvata um samnings-
tíma fýrir kennara hafi verið að
finna í tilboðinu og vildu ganga svo
langt að kalla þennan „pappír“ sem
samninganefndin lagði fram ekki
tilboð um kjarasamning við kenn-
arafélögin heldur eingöngu hug-
myndir ríkisvaldsins um á hvaða
verði þeir vilji kaupa vinnu af kenn-
urum. í raun væri sá þáttur aðeins
lítill partur af umræðunni, jafn-
framt sem forystumenn kennarafé-
laganna hefðu ekkert umboð tii að
ræða m álin úr samhengi við leið-
réttingu á grunnlaunum. Að mati
Elnu Katrínar Jónsdóttur, for-
manns HÍK, ríkir lítill skilningur af
hálfu samninganefndar ríkisins á
þörfum kennara og skólanna yfir-
leitt. „Þetta eru bara sömu útúr-
snúningarnir og venjulega,“ segir
hún (sjá nánar viðtal við hana í Ná-
vígi).
Eins og komið hefúr fram dugir
verkfallssjóður Kennarasambands
Islands til að greiða kennurum inn-
an sambandsins laun í um það bil
tvo og hálfan mánuð. Af viðtölum
MORGUNPÓSTSINS við nokkra
kennara að dæma búast þeir flestir
við, eftir nýjasta tilboð ríkisvaldsins,
að muni ganga langt á verkfallssjóð-
inn og gott betur. Þeir eru í senn
svartsýnir og móðgaðir yfir tilboði
ríkisvaldsins.
Komi til verkfalls á föstudag
munu 4778 félagar í Kl og HlK
leggja niður vinnu og 57 þúsund
nemendur sitja eftir aðgerðalausir.
Fundur hófst á milli ríkis og
kennara strax í morgun. -GK