Helgarpósturinn - 13.02.1995, Blaðsíða 30
30
MORGUNPÓSTURINN SPORT
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995
SKREPPUM
SAMAN
og minnkum
vanda-málið
NUPO 1ÉTT
Lenear Burns gnæfir hér hátt yfir aðra og treður með tilþrifum en nærstaddir leikmenn halda sig í öruggri fjarlægð.
Troöslukeppnin
Hardin
troðkóngur
Troðslukeppnin í ár var mun
betri en oft áður. Tilþrifin voru
stórbrotin og sýndu keppendur
bæði frumleika og kjark. Greinilegt
var að flestir þeirra höfðu æft sig og
voru með fyrirfram ákveðnar
troðslur. Það var reyndar ansi
bagalegt að tveir þátttakendur sem
áttu að taka þátt voru ekki mættir á
svæðið og John Torrey (Tinda-
stóll) vildi ekki vera með. Það kom
þó ekki að sök þar sem keppendur
sýndu mikla takta. 1 úrslit komust
Haukamaðurinn Þór Haraldsson,
Njarðvíkingurinn Rondey Robin-
son, Þórsarinn Sandy Anderson
og Raymond Hardin sem spilar
með Snæfelli. Þessir kappar sýndu
frábærar troðslur í úrslitunum.
Fyrirkomulagið var þannig að
hver leikmaður mátti reyna þrisvar
og töldust bestu tvær troðslurnar til
stiga. Fimm málsmetandi menn
sátu í dómnefnd og gáfu þeir ein-
kunnir á bilinu einn til tíu.
Úrslitin réðust eftir aukatroðslur
Robinson og Hardin sem voru
jafnir að stigum eftir hefðbundna
keppni. Það var Hardin sem hirti
verðlaunin eftir stórfenglega loka-
troðslu.
Þriggja-stiga skotkeppnin
Hadden
kom, sá
og sigraði
Mark Hadden, sem hefur átt við
erfiðar svefntruflanir að stríða,
sigraði þriggja-stiga skotkeppni
Stjörnuleiksins eftir harða baráttu
við Grindvíkinginn, Marel Guð-
laugsson. Hadden þessi hefur ver-
ið undir miklu álagi að undan-
förnu eftir hann skrapp saman um
tíu sentimetra!
Fyrirkomulag keppninnar var
þannig að menn fengu 50 sekúnd-
ur til að skjóta 15 boltum á mis-
munandi stöðum. Þrír boltar voru
á hverjum stað og gaf hver þeirra
eitt stig nema sá síðasti sem gaf tvö.
Hittni keppenda var almennt mjög
slök. Leikmenn fengu ekki nema
8,1 stig af 20 mögulegum. Þeir sem
kornust áfram í úrslit voru: Brynj-
ar Karl Sigurðsson, ÍA, Marel
Guðlaugsson, Grindavík, Halldór
Kristmannsson, ÍR, Helgi Jónas
Guðfinnsson, Grindavík, Krist-
inn Friðriksson, Þór Akureyri og
Mark Hadden, Haukum, sem
sigraði eins og áður sagði.
-ÞK-eþa
Stjörnuleikur KKÍ
Lítið um
vamir
B-riðill sigraði 199-198í tvíframlengdum leik.
Stjörnuleikir eru yfirleitt ekki
skemmtilegir en þó má hafa gaman
að öllu tilstandinu ef vel er að stað-
ið. Troðslu- og skotkeppnir geta oft
verið spennandi og leikirnir sjálfir
bjóða oft upp á ágætis tilþrif og
jafnvel örlitla spennu. Aftur á móti
eru gæðin sjaidnast upp á marga
fiska og sú varð sannarlega raunin á
laugardaginn þegar úrvalslið A-rið-
ils og B-riðils mættust í Stjörnuleik
KKl. Það varð ljóst strax í byrjun að
stigaskorið yrði ekkert venjulegt.
Leiktíminn var lengri en í venjuleg-
um úrvalsdeildarleik eða fjórum
sinnum tólf mínútur eins og tíðkast
í NBA. í hálfleik var staðan 83-82
leikmönnum A-riðils í hag, þrátt
fyrir að B-riðill hafi leitt mest allan
hálfleikinn. Það þarf ekki að fara
mörgum orðum um varnarleikinn
enda var hann enginn. Þegar sást til
eins leikmanns sýna varnartilburði
var hann samstundis tekinn út af.
John Torrey (Tindastóli),
Lenear Burns(Keflavík), Sandy
Anderson (Þór Akureyri) og Ron-
day Robinson (Njarðvík) sýndu
nokkrar frábærar troðslur í fyrri
hálfleiknum og lá við að körfustoð-
irnar gæfu sig. Þetta hélt lífinu í
áhorfendum í fyrri hálfleik.
Hálfleikurinn teygðist mjög á
langinn vegna þriggja-stiga
keppninnar og troðslukeppninn-
ar. Því var ekki furða að leik-
mennirnir væru hálfslompaðir
þegar leikur hófst á ný í síðari
hálfleik. Ekki hjálpaði það að
sumir höfðu belgt sig út af popp-
korni og sælgæti. Síðari hálfleikur
bauð upp á það sama og hinn
fyrri; háloftatroðslur, fáránleg
mistök, slakan varnarleik og al-
mennt kaos. Leikmenn fundu sig
misvel í leiknum og áttu útlensku
leikmennirnir sérstaklega glaðan
dag. Þetta minnti þá á gömlu
góðu dagana á borgarleikvöllun-
um. Eini íslendingurinn sem lét
virkilega að sér kveða var Þórsar-
inn Kristinn Friðriksson sem
raðaði niður langskotunum eins
og honum einum er lagið.
Raymond Harding sigraði í
troðslukeppninni en var hins veg-
ar ekki með í leiknum.
Áhorfendur voru flestir orðnir
þreyttir á síendurteknum troðslum
en undir lok Ieiksins tóku þeir aftur
við sér. Ronday Robinson jafnaði,
165-165, tólf sekúndum fyrir lok
venjulegs leiktíma.
Þá tók við framlenging þar sem
Teitur Örlygsson fór á kostum og
skoraði meðal annars tvær þriggja
stiga körfur. Hann gat þó nagað sig
í handarbökin fýrir að tryggja A-
riðlinum ekki sigurinn því þegar
fjórar sekúndur voru eftir fór hann
á vítalínuna og með því að hitta úr
báðum vítaskotunum hefði lið
hans sigrað með einu stigi. En hann
hitti aðeins úr öðru skotinu og þar
með var jafnt 183-183.
I seinni framlengingunni tókst
loks liði B-riðilsins, sem flestir
höfðu spáð sigri fyrirfram, að síga
fram úr og sigra, 199-198. Þá voru
liðnar 210 óspennandi mínútur frá
því að leikurinn hófst.
John Rhodes, B-riðlinum, var
valinn maður leiksins af sérlegri
dómnefnd. Mátti halda að hann
hafi verið sá eini sem hafði gaman
að leiknum, aðrir voru áhugalausir
á milli þess sem þeir sáu færi á að
troða. Það er þó kannski ekki ein-
vörðungu við leikmennina að sak-
ast heldur bauð umgjörðin upp á
þetta. Dæmi eru til þess að leik-
menn hafi ekki vitað að þeir ættu
að spila fýrr en þeir lásu það í blöð-
unum. Eins og hvað körfuknatt-
leikssambandið stóð vel að undir-
búningi bikarúrslitaleiksins er
furðulegt hversu slælega var staðið
að þessum leik.
Stjörnuleikurinn ætti að vera
einn af hápunktum körfuboltaver-
tíðarinnar en til þess þarf mikla
hugarfarsbreytingu. Bæði þjálfarar
og leikmenn verða að gera sér grein
fyrir því að áhorfendur vilja sjá al-
vöru baráttu en ekki sætabrauðs-
leiki.
fi INFORM IIX r® < ^Ér
/ / - Utbreiddasti gagnagrunnur Islands STRENGUR hf. - í stööugri sókn
áUNIX Stórhöfða 15, Reykjavík, sími 587 5000
A-riðill - B-riðill 198:199
Staðan f hálflelk var
83:82. Tvíframlengja þurfti
leikinn. Að loknum venju-
legum leiktíma var staðan
165:165 og eftir fyrri fram-
lengingu 183:183.
Stig A-liðs: Kristinn Frið-
riksson 51, Rondey Robin-
son 33, Sandy Anderson
27, Teitur Örlygsson 23,
Pétur Ingvarsson 22, BJ
Tompson 19, Jóhannes
Kristbjörnsson 9, Brynjar
Karl Sigurðsson 6, Sigfús
Gizurarson 4 og Jón Arnar
Ingvarsson 4.
Stig B-liðs: Lenear Burns
35, John Rhodes 30, Guð-
jón Skúlason 26, John
Torrey 25, Marel Guð-
laugsson 23, Jonathan
Bow 23, Guðmundur
Bragason 18, Falur Harðar-
son 8, Jón Örn Guðmunds-
son 5, Jón Kr. Gíslason 5
og Ólafur Ormsson 1.
Dómarar: Jón Bender og
Björgvin Rúnarsson,
dæmdu lítið.
Maður leiksins var valinn
John Rhodes, |R. ■