Helgarpósturinn - 13.02.1995, Qupperneq 5
'MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN
5
108. grein almennra hegningarlaga um sérstaka æruvernd
opinberra starfsmanna lifir góðu lífi eftir að mannréttindanefnd
dómsmálaráðherra fór höndum um hana
Hefur aðallega veríð
notuð vegna löggunnar
Af viðbrögðum manna við dómi
mannréttindadómstóls Evrópu 25.
júní 1992 i máli Þorgeirs Þorgeir-
sonar rithöfundar var gert ráð íyrir
því að 108. grein almennra hegning-
arlaga yrði feild út en dómstóllinn
taldi að tjáningarfrelsi Þorgeirs hefði
verið skert með því að dæma hann
eftir því.
Skömmu eftir þetta eða 8. júlí 1992
skipaði Þorsteinn Pálsson dóms-
málaráðherra nefnd sem átti að
kanna hvort þörf væri á því að hafa
sérstaka vernd fyrir opinbera starfs-
menn eins og felst í 108. grein al-
mennra hegningarlaga. Greinin fel-
ur sem kunnugt er í sér sérstaka
æruvernd til handa opinberum
starfsmönnum.
Nefndin skrifaði bréf til Þorsteins
Pálssonar 9. október 1992 þar sem
kom fram að með því að inna af
hendi greiðslur til Þorgeirs sam-
kvæmt dómnum og kynna hann hér
á landi þá væri fúllnægt þeim kröf-
um sem dómurinn felur í sér á
hendur íslenskum stjórnvöldum.
Eftir þetta hélt nefndin áfram að
starfa að lögfestingu mannréttinda-
sáttmálans.
Hagræði fyrir opinbera
starfsmenn
En þegar kom að því að taka af-
stöðu til 108. greinar almennra hegn-
ingarlaga klofhaði nefndin. Segir til
dæmis meirihlutinn í áliti sínu en
hann skipuðu þau Ragnhildur
Helgadóttir, fyrrverandi ráðherra,
Hallur Magnússon blaðamaður.
FÍestir voru á því að hann yrði síð-
astur íslendmga til að vera
dæmdur eftir hinni illræmdu 108.
grein hegningarlaga.
Björn Bjarnason alþingismaður,
Markús Sigurbjörnsson núver-
andi hæstaréttardómari og Eiríkur
Tómasson lagaprófessor: „Hins
vegar er Ijóst að visst hagrœði er í því
fyrir opinberan starfsmann að geta
leitað til ákœruvaldsins um mála-
rekstur fyrir sína hönd lít af þeim
skammaryrðum, móðgunum eða að-
dróttunum sem lýst er í 108. grein. “
Telur meirihlutinn að í ljósi þess
að opinberir starfsmenn eiga oft erf-
itt með að bera hönd fyrir höfúð sér
vegna þagnarskylduákvæða geti ver-
ið þörf fyrir slíkt ákvæði. Gefa þeir
Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra. Skipaði nefnd til að
kanna áhrif Þorgeirsdómsins.
Nefndin klofnaði en meirihlutinn
telur alit eins líklegt að halda inni
108. greininni.
upp þrjá möguleika, sem ýmist fela í
sér að fella niður greinina eða láta
hana standa með breytingum.
Meirihlutinn telur sig hafa fundið
hliðstæðu í dönsku hegningarlögun-
um og sé oftar dæmt eftir því þar.
Refsingin er þó mun minni þar auk
þess sem dönsku lögin hafa ekki
hina sérstæðu setningu sem er í 108.
greininni og hefur sært réttlætis-
kennd manna mest; „aðdróttun, þótt
sönn sé, varðar sektum efhún er borin
fram á ótilhlýðilegan hátt.“ Þetta
ákvæði virðist þó ekki fá hljóm-
grunn hjá neinum þeim er kemur að
málinu, hvorki meirihluta nefndar-
innar né minnihluta.
Sex hæstaréttar-
dómarfrá 1961
Við starf nefndarinnar kom fram
að ffá 1961 til 1992 var sakfellt sex
sinnum í Hæstarétti sam-
kvæmt greininni. Þegar
dómarnir eru skoðaðir kem-
ur í ljós að í langflestum til-
vikum eru þeir notaðir í
sambandi við atyrði gagnvart
lögreglumönnum, bæði
munnleg og skrifleg. Svo var
í tilviki Þorgeirs.
1 minnihlutaáliti Ragnars
Aðalsteinssonar hæstarétt-
arlögmanns kemur fram að
hann telur að ekki sé þörf á
sérstakri vernd opinberra
starfsmanna og sækir hann
rök fyrir því í því dómasafni
sem áður er getið. Telur
hann þetta réttarástand
stríða gegn grunnreglu ís-
lenskrar stjórnskipunar um
jafnræði borgaranna. Leggur
Ragnar til að greinin verði af-
numin. Rétt er að taka fram
að í umræðum á Aiþingi fyr-
ir skömmu gaf hins vegar
Þorsteinn Pálsson dóms-
málaráðherra til kynna að
þessum lögum verði breytt.
Áður hefur verið flutt þings-
ályktunartillaga um að hún
verði felld niður en hún fékk
ekki afgreiðslu. -SMJ
Nefndarmenn sem áttu að ákveða hvort opinberir embættismenn þyrftu sérstaka vernd: Ragnhildur Helgadóttir, Björn Bjarnason, Markús
Sigurbjörnsson, EiríkurTómasson, Ragnar Aðalsteinsson.
Njörður seqir Olaf Jóhann eiqa marqt ólært
I febrúarhefti Scanor-
ama, flugblaði SAS, er
viðtal viö Ólaf Jó-
HANN ÓLAFSSON rit-
höfund og Sony-
mann. Þar er ferill Ól-
afs Jóhanns rakinn
undir fyrirsögninni
„Digital Whiz Kid“.
Þar kemur
meöal annars
fram að Ól-
afur Jó-
hann hef-
ur yndi af
því aö
drekka
rauðvín
og það
sé þaö
helsta
sem hann á
sameiginlegt
með söguper-
sónu sinni, Pet
er Peterson, í bókinni Fyrirgefningu
syndanna eöa Absolution. Þar er
sagt að bókin hafi selst í 16 þús-
und eintökum á íslandi sem sé
met og vitnað í NjöRÐ P.
Njarðvík sem segir að Ólafur
Jóhann sé að sönnu efnilegur þó
að hann eigi margt ólært sem rit-
höfundur. Einnig er sagt
að árangur Ólafs Jó-
hanns megi að hluta
rekja til þess að hann
sefur einungis fjóra
tíma á sólarhring og
að hann sé ákaflega
skipulagður og eigi
auðvelt með að ein-
beita sér. Greinin/viðtal-
ið er mjög á jákvæðu
nótunum - enda ekki
nokkur ástæða til ann-
ÁRVÍK
ÁRMÚL11 • REYKJAVÍK • SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295
Miðbær Reykjavíkur
Maður laminn
Um kl. 3 aðfaranótt laugardags sjúkrabíll kom á vett-
var maður sleginn í götuna í Hafn- vang. Hann var fluttur
arstræti við Naustin. Maðurinn á slysadeild en árásar-
meiddist töluvert og var með maðurinn er enn
áverka í andliti og alblóðugur þegar ófundinn. ■
Hvalfjarðarströnd
Ók í skafl og valt
Lögreglunni í Borgarnesi barst
tilkynning um bílveltu á Hvalfjarð-
arströnd um kl. 23.50 á föstudags-
kvöldið. Nokkur skafrenningur
hafði verið á svæðinu og eftir að
hafa ekið í smáskafl sem var á veg-
inum missti ökumaður Ford Pick-
up-bifreiðar stjórn á bíl sínum.
Bíllinn þeyttist upp í
ruðning við veginn og
snerist og endaði á
toppnum. Ökumaður-
inn var einn á ferð og
slapp án alvarlegra
meiðsla en bíllinn er
mikið skemmdur. ■
Suðurnes
Fyllerí í Keflavík
Mikil ölvun var í Keflavík um
helgina. Vakthafandi varðstjóri
Keflavíkurlögreglunnar sagði í sam-
tali við MORGUNPÓSTINN að það
væri „slappt ef það er ekki fyllerí
föstudags- og laugardagskvöld og
rúmlega það,“ eins og hann orðaði
það. Enginn þurfti þó að gista fanga-
geymslurnar í Keflavík.
Aðspurður um háreysti
sagði varðstjórinn:
„Við erum hættir að
taka eftir því þótt ein-
hver réttir öðrum á
lúðurinn, það er ekki
til frásagnar.“ ■
Frábærir HANKOOK vetrarhjólbarðar á einstöku verði!
SKÚTUVOGI2
PJir-i SÍMI 68 30 80
145R12 4.990 2.990 stgr 185/60R14 7.490 4.490 stgr
155R12 -5t2S0™ 3.130 stgr 195/60R14 O...QAA. 4.880 stgr
135R13 -4t7§0 2.860 stgr 175/70R14 -OtOOO' 3.990 stgr
145R13 5,100 2.980 stgr 185/70R14 -6:940- 4.160 stgr
155R13 -5t360- 3.215 stgr 195/70R14 -7Æ30 4.690 stgr
165R13 3.340 stgr 205/75R14 9:080 5.460 stgr
175/70R13 5Æ50- 3.480 stgr 165R15 -o^ocr 3.780 stgr
185/70R13 'ör46ö- 3.850 stgr 185/65R15 7:960 4.470 stgr
175R14 0.400 3.850 stgr 195/65R15 OÆ40 5.300 stgr
185R14 Í5200 4.280 stgr 205/60R15 9Æ20- 5.770 stgr
Jeppadekk 25% afsl.
235 / 75 R 15 kr LO Peö kr 7.650 stgr 30-9.50 R 15 kr.10.550 kr.7.912 8t9r
31-10,50 R 15 kr.Vh950 kr8.960stgr 33-12.50 R 15 kr.T4:440- kr.10.830 stgr
Vörubíladekk 25% afsl.
12 R 22,5 /16PR kr.33.7G(L kr.25.275 stgr 315/80 R22,5 kr,38;980 kr.29.235 stgr