Helgarpósturinn - 13.02.1995, Síða 10

Helgarpósturinn - 13.02.1995, Síða 10
10 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995 Grafgotur Atvinnulífid eftirveltu Hálfopinber Meðfylgjandi skífurit sýnir skipt- ingu atvinnulífsins eftir eignar- haldi, þ.e. hvort um er að ræða einkafyrirtæki, opinbera starf- semi eða hálfopinbera starf- semi. Miðað er við veltutölur og þá sést að einkafyrirtæki ráða þremur fjórðu hlutum veltunnar. Opinber fyrirtæki velta fimmt- ung, en hálfopinber 8 prósent veltunnar. F- Bankarog sparisjóðir Aðrir Búnaðarbankinn Ef bönkum og sparisjóðum er skipt eftir veltu sést að Lands- bankinn er langstærstur, þá ís- landsbanki og Búnaðarbanki. SPRON er með 4 prósent og Sparisjóðurinn í Keflavík og Sparisjóðurinn i Hafnarfirði með þrjú prósent hvor. Tryggingar Vátryggingafélag íslands er stærsta tryggingarfyrirtæki landsins með 35 prósent velt- unnar. Stóru fyrirtæki Kolkrabb- ans svokallaða eru samtals með 44 prósent, Sjóvá þó mun stærra eða með 28 prósent. Trygging er með 6 prósent velt- unnar, og Skandia, Ábyrgð og Brunabótafélag íslands 2 pró- sent hvert. Víkingaskipið Orninn, annað tveggja siíkra skipa sem Norðmenn gáfu íslendingum árið 1974. Það hefur lítið verið notað og er nú geymt undir segli á Árbæjarsafni. Nýja víkingaskipið sem verið er að smíða og Reykjavíkurborg hefur styrkt með 10 milljóna króna framlagi mun ekki fá haffærnisskírteini og því ekki nýtast til að fræða reykvísk börn um lífið á sjón- um eins og áætl- að var. Borgin á hins vegar ann- að víkingaskip í ágætu standi sem geymt er í Árbæjarsafni Annað skipið ónothæfl - hitft Irtið notað Nú stendur yfir smíði á nýju vík- ingaskipi hér á landi og er áætlaður smíðiskostnaður 18 milljónir króna. Reykjavíkurborg styrkir smíði skips- ins með ío milljóna króna framlagi á forsendum sem þegar eru brostnar. Borgin samdi um að fá afnot af skip- inu í 50 daga á ári fyrir sinn snúð, og var ætlunin að nota það til að kynna reykvískum skólabörnum lífið í og á sjónum. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum þykir nú víst að skipið fái ekki haffærnisskirteini og því er útséð um að af þessum námskeiðum geti orðið. Þessar 10 milljónir hafa því farið fyrir lítið, þótt segja megi að vissulega sé nokkur fengur að skipi sem þessu, og hafa menn stungið upp á því bæði í gríni og al- vöru að nota það til að fara með ferðamenn í skoðunarferðir um Þingvallavatn í staðinn. Reykjavíkurborg á eitt víkinga- skip nú þegar, Örninn, annað tveggja slíkra skipa sem Norðmenn færðu íslendingum að gjöf í tilefni 1100 ára íslandsbyggðar árið 1974. Það er nú geymt undir segli á Árbæj- arsafni. Margrét Hallgrímsdóttir borgarminjavörður segir það vera í þokkalegu ástandi, þótt alltaf megi eitthvað laga. „Þetta skip sem verið er að smíða núna er af annarri gerð og öllu vandaðra en Örninn og meira í það lagt. Mér finnst því ekki hægt að setja þessi skip í eitthvert samhengi þannig séð, þetta er einfaldlega allt annað dæmi.“ Örninn hefur ekki verið notaður mikið á vegum borgarinnar á und- anförnum árum en nokkuð hefur verið um það að félagasamtök og kvikmyndagerðarmenn hafi fengið afnot afþví. „Við höfum lánað skát- unum skipið til að sigla því á tJlf- ljótsvatni og í kvikmyndir og fleira. Þannig að við höfum verið frekar jákvæð á að lána það þegar það hef- ur þjónað einhverjum jákvæðum tilgangi, til þess einfaldlega að það komist á flot, sem er mjög hollt fyr- ir skipið.“ Margrét sagði þó ólíklegt að skipið yrði lánað á víkingahátíð- ina sem halda á í Hafnarfirði í sum- ar og reyndar hefði ekki verið farið fram á neitt slíkt ennþá. Henni stendur enda ekki á sama um hverj- ir fá afnot af Erninum. „Það gerðist einu sinni þegar við lánuðum skipið til kvikmyndagerðar að Jakobi Frí- manni Magnússyni tókst að plata það út úr kvikmyndafyrirtæki Kristínar Jóhannesdóttur til að auglýsa rokkhátíð í Húnaveri, og það er svona dæmi um það sem við erum ekki hrifin af. Ég var rnjög ósátt við það, og ekki bætir úr skák að Kristín hefur enn ekki gert upp við safnið fyrir leiguna. En við met- um það bara hverju sinni hvort okkur finnst viðeigandi að lána skipið.“ Halldór Guðnason er minja- vörður á Byggðasafninu á Húsavík og hann segir systurskip Arnarins, Náttfara, ekki vera í góðu ásig- komulagi. „Það er kannski ekki í niðurníðslu, en það er skaddað eftir kvikmyndaleik hjá Hrafni Gunn- laugssyni og hefur ekki farið á flot síðan,“ sagði Halldór í samtali við blaðið. „Ég vil hins vegar taka það fram að Hrafn hefur gert öll sín mál upp í topp hér hjá okkur. Það er verið að vinna í þessu svona smátt og smátt en það eru engin áform uppi um hvernig það verður nýtt í framtíðinni. Það er alltaf verið að ræða málin, en hvað gert verður treysti ég mér ekki til að segja eins og er.“ Örninn er hins vegar í ágætu standi, eins og áður segir, og ef svo fer að Reykjavíkurkrakkar fá ekki að sigla um hafnarkjaftinn á nýja skip- inu, þá geta þau kannski brugðið sér í siglingu á honum um Úlfljótsvatn í staðinn á sumri komanda. -æöj Árni Baldursson auglýsir veiði á íslandi á 60 síðum á Internetinu Veiðimenn vekJdirí Intemetið Það er allt að færast í tölvutækt form, sama hvert litið er. Öll við- skipti eru meira eða minna að fær- ast inn í tölvurnar og í framtíðinni munu þau sjálfsagt eingöngu fara fram í gegnum tölvur,“ segir Árni Baldursson, sem rekur Stang- veiðifélagið Lax-á, en hann tók upp á þeirri nýbreytni um áramótin að auglýsa laxveiði á íslandi á Inter- netinu. Stangveiðifélagið Lax-á sel- ur veiðileyfi í margar af bestu lax- veiðiám landsins, til dæmis Laxá í Ásum, Miðfjarðará, Vatnsá og Laxá í Dölum, en Árni leggur einnig áherslu á að kynna silungs- og skot- veiði á netinu. Árni er búinn að koma sér upp um það bil sextíu síð- um í öllum þeim gagnabönkum, sem finnast á Internetinu, og er enn þá að bæta upplýsingum við. „Þetta eru almennar upplýsingar um veiði á Islandi, hvernig er hægt að komast hingað og hitt og þetta. Það eru mjög greinargóðar upplýs- ingar um laxveiði á Islandi. Það er sagt frá ánum og birt veiðikort af þeim og ljósmyndir, ég held að ég sé með einar fjörtíu litmyndir þarna inni. Að auki er ég með fluguveiðiskóla þarna inni og allar þessar upplýsingar eru á fjórum tungumálum: ensku, frönsku, spænsku og þýsku. Næst ætla ég að setja inn tölfræði yfir allar ár á ís- landi þannig að menn geti séð með- altalsveiði hverrar ár síðustu tíu ár. Svo stendur jafnvel til að setjaþarna inn kvikmynd á næstunni. Mögu- leikarnir eru óendanlegir.“ Árni bendir á að með Internet- inu nái hann ekki eingöngu óhemjumikilli útbreiðslu, það eru um það bil 30 milljónir notendur tengdir netinu, heldur spari hann einnig peninga með því að auglýsa Árni Baldursson meö Mósa. „Menn eru augnablik að fá upplýsingar þarna, sem þeir fundu kannski ekki áð- ur, eða voru marga daga að fá.“ á þennan hátt. „Ég hef verið að gefa út bæklinga fyrir einhverjar milljónir á nokk- urra ára fresti, en þarna losna ég við allan prentkostnað og póstburðar- gjöld, menn fá þetta bara beint til sín í tölvunni og allt í lit.“ Árni segist hafa fengið mjög góð viðbrögð við þessu tiltæki, í þann stutta tíma sem það hefur staðið og býst við því að það muni skila miklu þegar fram í sækir. „Tökum sem dæmi mann — til að mynda í Bandaríkjunum — sem langar til að fara að veiða og veit ekkert hvert hann á að snúa sér. Það eru meira eða minna öll fyrir- tæki komin með Internetið svo hann getur opnað tölvuna sína í vinnunni, farið inn í einhvern stór- an gagnabanka og lyklað inn: „Fis- hing in Iceland.“ Þá kemur upp á skjáinn: The Angling Club Lax-á og hann getur valið sér á og lesið sér til um hana og skoðað myndir af henni. Menn eru augnablik að fá upplýsingar þarna sem þeir fundu kannski ekki áður, eða voru marga daga að fá með milligöngu til dæm- is ferðaskrifstofa. Þannig að þessi upplýsingamiðill er ótrúlegur. Not- endurnir í dag eru gríðarlega marg- ir, en maður rennur blint í sjóinn með það hvort að þetta séu bara 30 milljónir tölvugúrúa eða hvort ein- hverjir veiðimenn séu þarna líka. Ef þeir eru ekki þarna núna held ég að þeir komi seinna." -jk

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.