Helgarpósturinn - 13.02.1995, Page 31
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN SPORT
31
Valsvélin hikstaði í Víkinni
Rúnar Sigtryggsson skýtur hér að marki gegn sínum gömlu félögum í Val. Dagur Sigurðsson reynir hvað hann getur til að stöðva hann en Jón
Kristjánsson er agndofa yfir þessu.
Leikur Vals og Víkings í Nissan-
deildinni í handbolta fór fram í
gærkvöld. Valsmenn komu mun
ákveðnari til leiks en andstæðing-
arnir og náðu strax óskastöðu með
góðum varnarleik og útfærðum
hraðaupphlaupum sem oftar en
ekki skiluðu mörkum. Víkingar
hins vegar virkuðu ekki nógu sann-
færandi og voru einatt skrefinu á
eftir Valsmönnum, þangað til um
tíu mínútur voru til leiksloka ,þá
tóku þeir völdin í sínar hendur og
gerðu út um leikinn með frábærri
vörn og góðum sóknarleik.
Vörn Valsliðsins var sterk þar til í
lokin þegar þeir réðu ekki við þann
kraft og þá miklu baráttu sem kom-
in var í lið Víkinga. Víkingsliðið
sýndi mjög mikinn „karakter“ þeg-
ar þeir breyttu stöðunni úr 14-18 í
19-19 á fimm mínútum, þegar ailt
benti til þess að Valsmenn myndu
hafa sigur í þessum mikla baráttu-
leik. Þess má geta að Sigurður
Sveinsson lék ekkert með Víking-
um í síðari hálfleik en það var ekki
að sjá á leik þeirra að þeir söknuðu
kappans því Árni Friðleifsson
leysti hann af og lék hreint út sagt
stórkostlega og skoraði sjö glæsileg
mörk, þar af sex í seinni hálfleik.
Vafalítið besti leikur Árna í langan
tíma. Árni var ánægður í leikslok: „
Þettað er búið að vera svona stíg-
andi hjá mér í vetur, ég er í góðu
formi þessa dagana, þetta er bara
spurning um að klára sig þegar
maður fær tækifæri og ég tel þetta
hafa verið verðskuldað tækifæri.
Það er ekkert nema bjart framund-
25-22
Mörk Víkings: Árni F.7, Gunn-
ar G.6, Rúnar S.5/4, Birgir S.3,
Bjarki S.3, Sigurður S.1.
Varin skot: Reynir Reynisson
13.
Utan vallar: 6. mín.
Mörk Vals: Júlíus G.8, Jón K.
5/1, Dagur S.4, Frosti G.3,
Finnur J.1, GeirS.1.
Varin skot: Guðmundur Hrafn-
kelsson 15.
Utan vallar: 6. mín.
Dómarar: Egill Már og Örn
Markússynir. Góðir.
Maður leiksins: Árni Friðleifs-
son, Víkingi.
an hjá okkur, við förum í úrslitin
með því hugarfari að taka einn leik
fyrir í einu og framhaldið kemur
síðan í ljós.
Brúnin var þung á Valsmönnum
í lok leiks enda ekki nema von þeg-
ar lið hefur haft yfirhöndina allan
leikinn og missir síðan dampinn í
lokin. Þorbjörn Jensson var ekki
ánægður með sína menn: „ Við
byrjuðum að spila afar illa þegar
staðan var 14-18 og sóknirnar verða
of stuttar. Vörnin fór að bresta og
við hleyptum skotum í gegn sem
við eigum að verja, það kom alltof
langur kafli þar sem við misstum
leikinn úr höndunum og náðum
aldrei að komast til baka aftur.
Vörnin hjá okkur gekk upp þangað
til um tólf mínútur voru eftir, þá
brást hún allsvakalega. Við örvænt-
um nú ekkert þrátt fyrir tapið því
Jón Kristjánsson hefur verið
meiddur á olnboga síðan í bikar-
leiknum og Dagur steig upp úr
flensu í dag. Við eigum sem betur
fer eitt tækifæri enn til þess að
vinna deildarbikarinn heima gegn
Stjörnunni.“
Hjá Víkingum lék Árni Frið-
leifsson á aís oddi eins og áður
sagði og markvarsla Reynis Þórs
Reynissonar vó þungt á lokakafl-
anum. Valsmenn hafa oft leikið
betur en þeir gerðu í gær og á loka-
kaflanum léku þeir afleitlega. Júlí-
us Gunnarsson var langbestur
þeirra og skoraði átta mörk, greini-
legt er að Júlli ætlar að selja sætið í
liðinu dýrt en eins og flestir vita er
Ólafur Stefánsson kominn á ról
eftir meiðsl og er farinn að banka á
dyrnar hjá Þorbirni þjálfara. Guð-
mundur Hrafnkelsson varði
einnig ágætlega á köflum eða alls
fimmtán skot.
-ÞSG
Italska knattspyrnan
Efstu liðin unnu leiki sína
Juventus náði að kæista fram sigurgegn nýliðum Barií sjónvarpsieiknum. Zola var bjargvættur Parma
gegn Padova og Cagliari náðijafntefii á San Siro. Þá er Batistuta tekinn til við fyrri iðju og skoraði hann tvö
marka Fioæntina gegn Genoa.
Juventus heldur þriggja stiga for-
ystu í ítölsku 1. deildinni eftir leiki
gærdagsins. Lítið var um óvænt úr-
slit í gær. Þrjú efstu liðin unnu öll
leiki sína en Sampdoria skaust upp
í fjórða sæti eftir sigur á Reggiana.
Fyrir leiki gærdagsins var Vincenz-
os Spagnolo minnst, en hann var
myrtur fýrir utan Ferrari leikvang-
inn í Genoa fýrir hálfúm mánuði.
„Knattspyrna á að sameina en ekki
sundra okkur,“ sagði Roberto
Mancini, fýrirliði Sampdoria, áður
en leikur liðsins gegn Genoa hófst.
Juventus þurfti að hafa mikið
fyrir sigrinum á Bari. Alessandro
Del Piero skoraði íyrra mark Juve
úr umdeildri vítaspyrnu á 40. mín-
útu, og einni mínútu fýrir leikslok
bætti Ciro Ferrara öðru marki við.
Leikmenn Bari áttu síst minna í
leiknum og voru óheppnir að skora
ekki. Einum leikmanni úr hvoru
liði var vikið af leikvelli. Parma
marði sigur á Padova á Padova með
marki frá Gianfranco Zola í seinni
hálfleik. Argentínumaðurinn Abel
Balbo skoraði öll þrjú mörk Roma
í sigri á Inter. Fyrsta markið var
stórglæsilegt, beint úr aukaspyrnu á
fjórðu mínútu leiksins. Á San Siro-
leikvanginum í Milan áttust við
heimamenn og Cagliari. Fyrirfram
var búist við auðveldum sigri Mil-
an, en annað kom á daginn. Ro-
berto Muzzi kom gestunum yfir í
fyrri hálfleik er rangstöðutaktík
Milan brást. Varnarmaðurinn
Christian Panucci jafnaði síðan
með skalla í seinni hálfleik eftir
harða hríð að marki Cagliari. Val-
erio Fiore í marki Cagliari var í
miklu stuði en aukin heldur björg-
uðu marksúlurnar í tvígang, í bæði
skiptin eftir skot frá Marco Sim-
one. Lazio lék í 71 mínútu einum
færri eftir að Jose Chamot hafði
verið rekinn í sturtu í íýrri hálfleik.
Þeir áttu aldrei möguleika gegn
Torino og töpuðu, 2:0. Sampdoria
er nú komið í íjórða sæti deildar-
innar eftir sigur á Reggiana á
heimavelli sínum. Padovano kom
gestunum yfir í fýrri hálfleik en fé-
lagi hans, Sgarbossa, sparaði leik-
mönnum Sampdoria ómakið og
skoraði sjálfsmark á síðustu mín-
útu hálfleiksins. Það var síðan hinn
hárlitli Lombardo sem tryggði
Sampdoria öll þrjú stigin með sig-
Abel Balbo skoraði öll þrjú mörk
Roma gegn Inter.
urmarki í blálokin. I gærkvöldi bar
síðan Napoli sigurorð af Cremo-
nese. Rincon skoraði eina mark
leiksins í seinni hálfleik.B
Handbolti
1. deild 21. umferð
Stjaman - HK 36:15 (13:10)
Jafnræði var með liðunum framan af
en í seinni hálfleik skoraði HK aðeins
fimm mörk og var því lítil fyrirstaða
fyrir Garðbæinga. Dimitri Filipov var
markahæstur Stjörnumanna með tíu
mörk en þeir Sigurður Bjarnason,
Konráð Olavson og Magnús Sigurðs-
son skoruðu fimm mörk. Markahæstur
HK-manna var Björn Hólm Þórsson
með fjögur mörk.
UMFA - Haukar 29:20 (13:6)
Afturelding náði góðri forystu strax f
upphafi leiks og jók hana jafnt og þétt
til leiksloka. Ingimundur Helgason
skoraði átta mörk en Róbert Sighvats-
son var með sex mörk fyrir Aftureld-
ingu. Gústaf Bjarnason skoraði fimm
mörk fyrir Hauka. Markverðir liðanna
voru í aðalhlutverki i leiknum. Ás-
mundur Einarsson varði alls 26 skot
fyrir Aftureldingu en Bjarni Frostason
varði 21 skot fyrir Hauka.
FH - KA 25:27 (12:12)
Leikurinn var æsispennandi allan tím-
ann og jafnræði með liðunum. Ný-
krýndir bikarmeistarar KA voru þó
sterkari á lokasprettinum og stóðu
uppi sem sigurvegarar f lokin. Valdi-
mar Grímsson og Erlingur Kristjáns-
son skoruðu fimm mörk hvor fyrir
norðanmenn en markahæstur FH-inga
var Hálfdán Þórðarson með átta mörk.
ÍH - ÍR 18:30
KR - Selfoss 24:24
Staðan
Valur 21 502:429 33
Stjarnan 21 573:502 32
Víkingur 21 582:514 31
FH 21 524:586 28
Afturelding 21 542:475 27
KA 21 527:489 25
ÍR 21 504:511 23
Haukar 21 552:530 21
Selfoss 21 469:523 16
KR 21 470:520 13
HK 21 450:555 3
ÍH 21 411:572 1
2. deild
Framarar deildarmeistarar í 2. deild
Fram tryggði sér í gærkvöldi meistara-
titil 2. deildar er liðið lagði Fylki að velli
f íþróttahúsinu í Austurbergi, 16:25.
Það var aðeins í byrjun sem jafnræði
var með liðunum en síðan sigldu
Framarar framúr. Staðan í hálfleik var
7:11, og f síðari hálfleik juku Framarar
forskotið jafnt og þétt og unnu örugg-
an sigur. Hilmar Bjarnason var marka-
hæstur Safamýrarpilta með níu mörk,
en þeir Magnús Baldvinsson og Gylfi
Birgisson skoruðu fjögur mörk hvor
fyrir Fylki.
Nú tekur við úrslitakeppni 2. deildar
sem í taka þátt sex efstu liðin f deild-
inni: Fram, Grótta, Breiðablik, Fylkir,
Þór og (BV. Keppnin er deildarkeppni
þar sem allir keppa við alla, heima og
heiman, og verða leikirnir þvi tíu tals-
ins á hvert lið. Fram fær með sér fjög-
ur stig, Grótta tvö stig og Breiðablik
eitt stig. ■
ítalski boltinn
Úrslit
Bari - Juventus 0:2
Del Piero 40. (vsp.), Ferrara 89.
Brescia - Foggia 1:0
Battistini 89.
Fiorentina - Genoa 3:1
Batistuta 23. og 57., Costa 25.
- Skuhravy 35.
Milan - Cagliari 1:1
Panucci 52. - Muzzi 13.
Parma - Padova 1:0
Zola 71.
Roma - Inter 3:1
Balbo 4., 31. og 71. - Seno 14.
Sampdoria - Reggiana 2:1
Sgarbossa 45. (sm.), Lombardo 88.
- Padovano 31. (vsp.)
Torino - Lazio 2:0
Pele 52., Angloma 74.
Napoli - Cremonese 1:0
Ftincon 56.
Staðan
Juventus 19 32:20 42
Parma 19 31:15 39
Roma 19 26:13 34
Sampdoria 19 32:17 31
Lazio 19 37:24 31
Fiorentina 19 34:26 30
AC Milan 18 21:15 29
Cagliari 19 19:19 26
Torino 19 19:20 26
Bari 19 22:27 26
Inter 19 19:16 24
Napoli 19 24:29 24
Foggia 19 20:25 24
Cremonese 19 16:23 18
Genoa 18 20:29 17
Padova 19 18:41 17
Reggiana 19 14:26 12
Brescia 19 10:27 12
Markahæstir
17 - Gabriel Batistuta (Fiorentina)
13 - Abel Balbo (Roma)
11 - Guiseppe Signori (Lazio)
10 - Gianluca Vialli (Juventus)
7 - Alen Boksic (Lazio), Fabrizio
Ravanelli (Juventus), Alessandro
Del Piero (Juventus)