Helgarpósturinn - 20.02.1995, Síða 8

Helgarpósturinn - 20.02.1995, Síða 8
8 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995 - Bréf til blaðsins Fjöður sem verpir fúleggjum f viðtali við Magnús Guðmunds- son, sem birtist í Morgunpóstinum 16. febrúar sl. undir fyrirsögninni „Greenpeace ræðst gegn þorskveið- um“, fer kvikmyndagerðarmaður- inn offari sem fyrri daginn. Ég vil ekki þreyta lesendur Morgunpósts- ins með því að svara ásökunum Magnúsar í smáatriðum, enda væri það að æra óstöðugan. Sannleikurinn er sá að Green- peace berjast fyrir verndun fisk- stofna svo tryggja megi nýtingu þeirra fyrir núlifandi og komandi kynslóðir. Markmið samtakanna er að stjórnun fiskveiða miðist við að varúðarreglur séu hafðar í fyrir- rúmi; að ekki verði veitt meira en öruggt er talið að fiskstofnar þoli; að afla sé ekki hent fyrir borð; að takmarka meðafla eins og kostur er og að ekki sé beitt veiðarfærum sem valda óverjandi skaða á lífríki sjáv- ar. Vert er að geta þess að íslend- ingar hafa um áraraðir kapprætt um hvort nýta skuli ákveðin veið- arfæri og þá hvar. Það þarf því ekki að koma á óvart að umhverfis- verndarsamtök skuli láta sig þetta mál skipta. Alþjóðlega hafa Greenpeace einkum unnið á vettvangi Ráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðar, sem hófst 1993 og er áætlað að Ijúki í júlí á þessu ári. Markmið Greenpeace er að gerður verði bindandi alþjóðlegur sáttmáli um veiðar á úthöfunum, en í því tilliti hafa samtökin notið góðs af afstöðu fslands. Það er kunnara en frá þurfi að segja að víða um heim hefur átt sér stað stiórnlaus rán- yrkja á fiskstofnum. í nánd við fs- land má nefna þrjú svæði sem brýnt er að sátt náist um nýtingu á. Það er Smugan í Barentshafi, síld- arsmugan milli fslands og Noregs og Reykjaneshryggur. Verndun og skynsamleg nýting fiskstofna er eitt stærsta hagsmuna- mál íslendinga. Yfirvofandi hrun fiskstofna víða um heim er gífurleg ógnun við vistkerfi sjávar, en ekki síður þá er byggja afkomu sína á fiskveiðum. Ástandið í fiskibæjum á ströndum Nýfundnalands er ís- lendingum vel þekkt. Umhverfis- verndarsinnar eiga því samleið með fslendingum í þessu mikilvæga máli. Greenpeace telja fískveiðistjórn- un á íslandi mun ábyrgari en al- mennt gerist í heiminum. Engu að síður er víst að hefðu ráðamenn á íslandi borið gæfu til að fara að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar væri ástand þorskstofnsins ekki jafnbágt og raun ber vitni. Enn- fremur, ef ráðamenn hafa hugrekki til að fara að vísindalegri ráðgjöf við ákvörðun heildarafla má ætla að stofninn nái fýrr kjörstærð. Þetta er það vandamál sem ræða þarf. Það vandamál geta engir aðrir leyst en fslendingar sjálfir. Óháð umhverfisverndarsamtök gegna því hlutverki að setja þrýsting á stjórn- völd og upplýsa almenning um ástand mála og krefja þau til ábyrgðar. Þetta gildir ekki síst um fiskveiðistefnu ESB, sem er í mol- um og hefur valdið gífurlegu tjóni, til dæmis í Norðursjó. íslendingar eiga gríðarleg sókn- arfæri á fiskmörkuðum erlendis. Almenningur á Vesturlöndum mun í auknum mæli sækjast eftir „grænum“ vörum. Þetta er þegar tilfellið með föt, mat, pappírsvörur og marga aðra vöruflokka. Enginn framleiðandi horfir framhjá mögu- leikum til að nýta sér þessa til- hneigingu á markaðnum. Jafnframt gera menn sér grein fýrir að fölsk markaðsfærsla mun að lokum hitta þá sjálfa fyrir. Sá fiskur sem veiðist við ísiand er nánast ómengaður og takist fslendingum að ná tökum á stjórnun fiskveiða til samræmis við ýtrustu kröfur um umhverfisvernd má auðveldlega markaðssetja ís- lenskan fisk sem græna vöru. f þessu máli geta íslensk fyrirtæki Arni Finnsson skrifar „Það er harla hœpið að œtla aðframlag Magnúsar Guð- mundssonar komi umrœðu um umhverf- ismál að nokkru gagni, svo náskyld sem hans starfsemi er baráttu hœgriöfga- samtaka gegn öllu því sem nefnist umhverf- isvernd. “ haft hag af samvinnu og samstarfi við umhverfisverndarsamtök. Líkt og töframaðurinn dregur kanínur úr hatti sínum flýgur sama hænan í sífellu úr hatti Magnúsar. Tilurð hænunnar er fjöður sem í meðförum Magnúsar verpir fúf- eggjum. Með jöfnu millibili koma upp sögur um að nú hyggist Green- peace berjast gegn fiskveiðum. Greenpeace-samtökin hafa jafn- harðan borið þessa sögu til baka, en allt hefur komið fyrir ekki. Sértrúarsamtök spá heimsendi með nýjum ártöfum þegar heimur- inn ekki ferst á tilsettum tíma. Magnús baktryggir sig í lok viðtals- ins með því að segja: „Ég á ekki von á því að það verði neinar sérstakar aðgerðir gegn íslandi á næstunni." Kaupa Skagfirðingar tannlausa og halta hesta af svona mönnum? Fyrir Magnús Guðmundsson,- prívat og persónulega, verpir fyrr- nefnd hæna gulleggjum. Hann hef- ur um árabil haft atvinnu af því að rægja og rakka niður umhverfis- verndarsamtök. Til þess er hann kostaður af hagsmunasamtökum í kjarnorkuiðnaði, en einnig öfga- samtökum yst á hægri væng banda- rískra stjórnmála. Það er harla hæpið að ætla að framlag Magnús- ar Guðmundssonar komi umræðu um umhverfismál að nokkru gagni, svo náskyld sem hans starfsemi er baráttu hægriöfgasamtaka gegn öllu því sen nefnist umhverfis- vernd. Greenpeace undirstrika nauðsyn þess að hagsmunaaðilar, eins og Fiskifélag íslands, beiti sér af krafti fyrir verndun hafsins gegn meng- un. Hvort heldur er um að ræða þrávirk eiturefni sem berast lanveg að ellegar geislavirk efni frá THORP í Sellafield. Framundan eru tveir mikilvægir fundir á ís- landi. Annars vegar þing Norður- landaráðs 27.2-1.3. og hins vegar 6.3.-10.3. undirbúningsfundur fýrir Ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um mengun frá landstöðvum sem haldinn verður í Washington í nóv- ember. Við vonum að framlag Fiskifélagsins til þeirrar umræðu verði með málefnalegri hætti en Magnús Gumundsson býður upp á. F.h. Greenpeace, Árni Finnsson Fyrsta skrefiö til að kapalvæða ísland stigið. son með nýja sjónvarpsstöð í burðarliðnum í Bíókóngurinn samstarfi við f Reykjavfk kapalvs Póstur og sími ætlar að vera búinn að kapalvæða tíu þúsund heimili á Reykjavíkursvæðinu fyrir 1. október og fimm hundruð á Akureyri. Póstur og sími stefnir að því að stíga fýrsta skrefið til að kapalvæða ísland í haust, en í vikunni auglýsti Póst- og símamálastofnun eftir til- boði í ljósleiðara og svokallaða kó- axstrengi, sem samsvarar því að tíu þúsund notenda kerfi á Reykjavík- ursvæðinu og fimm hundruð not- enda kerfi á Akureyri verði tilbúið 1. október. Takist vel til segir Jón Þóroddur Jónsson, verkfræðing- ur hjá Pósti og síma, að farið verði á fullum hraða í að kapalvæða allt landið, en það eigi ekki að taka langan tíma ef nægilegt fjármagn sé fýrir hendi. Með ljósleiðarakerfinu, sem byggist á svokölluðu stafrænu, gegnsæju, bandbreiðu notenda- kerfi, verður settur upp endabún- aður heima hjá hverjum notanda. Bæði sími, sjónvarp og önnur fjar- skipti munu færast yfir á þetta nýja notendakerfi í framtíðinni. Segir Jón Þóroddur nýja kerfið meðal annars þýða það að myndlyklar, eins og við þekkjum þá í dag, verði óþarfir í framtíðinni. Endabúnað- urinn, eða set-top-boxin eins og þau heita á ensku, verði eðli máls- ins samkvæmt í eigu Pósts og síma og þjóni sama tilgangi og mynd- lyklarnir gera fyrir Stöð 2 í dag. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum MORGUNPÓSTSINS mun þetta skref Pósts og síma hafa kynt undir gamla drauma nokkurra að- ila um að setja á stofn nýja sjón- varpsstöð áður en langt um líður, en kjarninn í þessum sjónvarps- hópi eru þeir Arni Samúelsson, eigandi Sambíóanna, Saga-Film, Pétur Steingrímsson hjá Japis og Vilhjálmur Steinþórsson hjá Texta hf„ sem jafnframt er rétthafi sjónvarpsleyfisins. Auk þess munu margir aðrir aðilar hafa sýnt þessari nýju sjónvarpsstöðvarhugmynd áhuga eftir að það fréttist að Póstur og sími ætlaði að vinda sér í þessar tilraunaaðgerðir. Að sögn eins úr hópnum stendur hugmyndin og fellur með því hvað Póstur og sími gerir, enda greikki fullkomið ljós- leiðarakerfi talsvert leiðina að nýrri sjónvarpsstöð. Sagði þessi aðili af- dráttarlaust að þótt málið væri á frumstigi væri hópnum full „al- vara“ og með „alvöru“ sjónvarps- stöð í huga. Ekki vildi hann útiloka að tilraunaútsendingar hæfust á þessu ári, en framhaldið byggðist nú á því hversu hratt og hvenær búið yrði að kapalvæða Reykjavík. Hann hélt því fram að tiltölulega auðvelt væri að kapalvæða tíu þús- und íbúðir, því byrjað yrði á blokk- um og nýjum hverfum þar sem eitthvað er fyrir af tiltækum bún- aði. Að sama skapi taldi hann meiri kostnað felast í því að kapalvæða eldri íbúðarhverfin. Aðspurður sagði Jón Þóroddur Alþýðubandalagið og óháðir lögðu fram stefnuskrá sína í tíu liðum á stefnuþingi í Rúgbrauðsgerðinni í gær. Rar var meðal annars að finna áætlanir sem stuðla eiga að stórauknum hagvexti á næsta kjörtíma- bili, ef Aþýðubandalagið fær einhverju ráðið Leitað í smiðju Austurlanda Tævan, Singapúr og Malasía eru fyrirmyndir alþýðubandalagsmanna í efnahagsmálum Ólafur Ragnar Grímsson, Bryndís Hlöðversdóttir og Ögmundur Jónasson á blaðamannafundi að loknu stefnuþingi Alþýðubandalagsins og óháðra í Rúgbrauðsgerðinni í gær. Stefnuskrárþingi Alþýðubanda- lagsins og óháðra fyrir komandi AI- þingiskosningar lauk í Rúgbrauðs- gerðinni í gær. í lok þingsins var lögð fram tíu punkta stefnuskrá, þar sem megináhersla er lögð á atvinnu, mennta- og velferðarmál. „Við er- um afar ánægð það að á stefnuþing- inu var sett fram skýr vinstrilína sem greinir okkur með afgerandi hætti frá því hálfkáki sem víða hefur tíðkast í hinum svokölluðu félags- hyggjuflokkum,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Al- þýðubandalagsins, í samtali við MORGUNPÓSTINN. „Það hefur oft verið kvartað undan því að línur séu býsna óskýrar í kosningum á íslandi og við teljum okkur hafa skýrt þær verulega með stefnuyfirlýsingu okk- ar. Miðað við þá ólgu, sem hefur ríkt á vinstri vængnum að undan- förnu, þar sem Framsókn hefur ver- ið að færast inn á miðjuna, Þjóðvaki að tætast í sundur og Kvennalistinn er kominn í útrýmingarhættu, þá teljum við það mikilvægt að við myndum nokkurs konar kjölfestu og þar með raunverulegan valkost við íhaldið." Með því sem kallað er „Útflutn- ingsleiðin“ stefnir Alþýðubandalag- ið að því að útrýma atvinnuleysi á komandi kjörtímabili og skapa 2.000 ný störf á fýrstu tólf mánuð- um þess. Þessi leið „felur í sér hundruð nýrra hugmynda um breytingar á efnahagslífi og atvinnu- þróun“ segir í stefnuyfirlýsingunni. Ein af þessum hundruðum hug- mynda, að sögn Ólafs Ragnars, er að nýta þau viðskiptasambönd sem gamalgróin innflutningsfýrirtæki hafa erlendis til að skapa aukin út- flutningstækifæri. „Annað dæmi um þetta er til dæmis það, að fyrir- tæki, sem veitir fjármagn til starfs- menntunar fyrir starfsmenn sína og þróunarstarf og annað, fái skatta- ívilnanir sem virka hvetjandi í þessu samhengi. Aukinn útflutningur á að hafa algjöran forgang, enda er hann frumforsenda þess að við náum upp þeim hagvexti hér á Iandi sem nauð- synlegur er til að við getum áfram talist samkeppnishæf við önnur lönd. Og þá er ég að tala um hag- vöxt upp á 4-5 prósent að lágmarki," sagði Ólafur. Fyrírmyndin sótt tif Austur-Asíu Að sögn Ólafs sækir Alþýðu- bandalagið fýrirmyndina að hinu „nýja forriti í hagstjórn á íslandi“, eins og það er kallað í stefnuyfirlýs- ingunni, fyrst og fremst til Austur- Asíuríkja á borð við Singapúr, Tæ- van og Malasíu, en einnig til evr- ópskra smáríkja á borð við Dan- mörku og Lúxemborg. Lögð er áhersla á aukin viðskipti við Asíu- og Ameríkuríki auk suðurhluta Afr- íku. „Þetta byggist fýrst og fremst á því að leysa úr læðingi þá krafta sem fýrir eru í atvinnulífinu með nýjum vinnuaðferðum. Nýlega kom út skýrsla Alþjóðabankans, sem heitir Efnahagsundrið í Austur-Asíu, þar sem því er lýst nákvæmlega hvaða aðferðum var beitt til þess að ná 6-12 prósent hagvexti í þessum löndum. Þessi skýrsla staðfestir að við erum á réttri leið í okkar hugmyndum, sem við höfðum unnið áður en hún kom út.“ Ef tillögur alþýðubandalags- manna ná fram að ganga á næsta kljörtímabili er ætlunin að færa 5-7 milljarða króna innan skattkerfisins til lág- og miðtekjuhópa strax á fyrsta ári nýrrar ríkisstjórnar. Þetta á meðal annars að gera með því að hækka skattleysismörkin, koma á fjármagnstekjuskatti og „raunveru- legum hátekjuskatti". Ölafúr Ragn- ar vildi ekki segja til um hvar skatt- leysismörkin kæmu til með að liggja ef flokkur hans fengi ráðið, en reiknaði með að hátekjuskattur yrði lagður á hjón með meira en 350-450 þúsund króna mánaðartekjur. „Þessi skattur færi síðan stighækk- andi eftir það. Það er ekki til það land í okkar hluta heimsins sem ekki hefur annaðhvort fjármagns- tekjuskatt eða sérstakan hátekju- skatt eða hvort tveggja, og það höf- um við verið að benda á þegar talað er um að ísland eigi að vera hluti af hagkerfi heimsins. Við erum eina landið í Vestur-Evrópu sem er skattaparadis fyrir fjármagnseigend- ur og hátekjufólk. Og þessu viljum við breyta.“ Launahækkanir og aukið fé til menntunar í atvinnumálum fer Alþýðu- bandalagið ffam á 10-15.000 króna launahækkun til handa þeim lægst launuðu. „fslensk fyrirtæki búa nú- orðið við svipað raungengi og vaxtastig og samkeppnisaðilar þeirra í nágrannalöndunum," segir Ólafúr Ragnar. „Þar við bætist að á síðustu árum hefur verið létt af þeim 7 milljarða skattabyrði í sam- anburði við það sem annars staðar gerist. Það gengur einfaldlega ekki upp að allir þættir séu sambærilegir nema launin, og við munum knýja á um að þar verði breyting á.“ Einn aðaláherslupunktur stefnu- skrárinnar er að færa framlög til menntunarmála í sama horf og tíðkast á hinum Norðurlöndunum, en í dag eru framlög til menntunar- mála hér á landi með því lægsta sem tíðkast innan OECD. Aðspurður kvað Ólafur Alþýðubandalagið ekki stefna að aukinni skattlagningu til að standa straum af þessum breyt- ingum, né heldur að því að bregða niðurskurðar- hnífnum á loft ann- ars staðar í ríkisrekstrinum umfram það sem þegar er. „Síður en svo, og reyndar steftium við að því að bæta almenningi ýmislegt sem núverandi ríkisstjórn hefur á hann lagt undir formerkjum sparnaðar og niður- skurðar. Við ætlum að draga úr og jafnvel afnema þau gjöld, sem fólk verður nú að greiða vegna læknis- þjónustu og skólagöngu. Forsendan fýrir auknu framlagi til menntunar- mála er fyrst og ffemst þessi aukni hagvöxtur, sem við hyggjumst ná fram með aðgerðum okkar í efna- hagsmálum.“ -æöj

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.