Helgarpósturinn - 20.02.1995, Page 28

Helgarpósturinn - 20.02.1995, Page 28
28 MORGUNPÓSTURINN SPORT MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995 Finnst þér að notast eigi við myndbandsupptökur við úrskuroi mmmmS&MáMte&m „Mér finnst ekki hægt aö notast viö myndbands- upptökur nema allir ieikir séu teknirupp. Þaö erforsendan þannig að allir sitji viö sama borð. Ég er ekkert frá því að þaö geti gerst meö tíð og tíma. Hvaö varðar umrætt atvik þá verður aö segjast alveg eins og er að mér hefði fundist eðlilegt að dómararnir leiðréttu sín mistök. Það var ekkert óeðlilegt við þau í hita leiksins en svona eftir á hefðu þeir átt að draga þetta til baka.“ Viggó Sigurðsson, þjalfari Amar Biömsson, íþróttafrétta- maður „Ég verð eiginlega að svara þessu játandi. Það hefur verið tilhneiging til að gera það ekki en nú eru margar þjóðir farnar að nota þetta og t.d. í ensku knattspyrnunni, þar sem menn eru ní íhaldssamari en gengur og gerist, var leikmaður, sem datt á annan og var rekinn út af fyrir það, sýknaður af dómaranum eftir á þeg- ar sjónvarpsupptökur höfðu verið skoðaðar. Hann viðurkenndi ein- faldlega mistök sín og þar með var það leiðrétt. Sjálfur er ég ekki búinn að sjá atvik- ið með Patrek og Revíne en þetta er kannski klassískt dæmi um það hvernig myndbandsupptaka getur komið að gagni. Þess vegna verð ég að svara þessu játandi. Hins vegar eru myndirnar stundum villandi og segja ekki sannleikann. ( þessu verður að notast við augljós- ar sannanir en passa að ekki sé dæmt eftir myndum heldur aðeins notast við þær í neyð.“ Rögnvald Erlingsson, dómari „Nei, það finnst mér ekki. Mín rök eru þau að það myndi færa okkur aftur um nokkur ár. Fyrir nokkrum árum var þetta reynt í Svíþjóð og ástandið varð þannig að nánast hver einasti leikur var kærður. Þetta var orðið þannig að við lá að leikirnir færu ekki fram vegna kærumála á milli félaganna. Dómarinn fær ekkert að skoða aftur það sem hann gerir og menn hafa hingað til lifað við það að dómar hans eru endanlegir hvort sem um mistök er að ræða eða ekki. Þetta verður bara að standa, enda er það einfaldast fyrir alla þegar upp er staðið." Á dögunum dæmdi aganefnd HSÍ KA-mann- inn Patrek Jóhannesson í eins leiks bann fyr- ir brottvísun sem hann hlaut í leik gegn ÍH nokkrum dögum áður. Seinna kom í Ijós að brottvísunin var ekki réttmæt og segja menn tíma til kominn að endurskoða úrskurði aga- nefndarinnar. Handknattleikur: landsliðið Alsírmenn koma hinaað í aefingabuðir Handknattleikssamband Alsír hefur beðið Handknattleikssam- band Islands að útvega landsliði Al- sír aðstöðu fyrir æfmgabúðir frá 1. apríl næstkomandi. Ekki hefur enn borist staðfesting á því hversu lengi Iiðið mun dveljast hér á landi en Ólafur B. Schram, formaður HSÍ, átti allt eins von á því að um tveggja vikna dvöl yrði að ræða. Liðið mun dveljast í Hafnarfirði á meðan á dvöl stendur og verða íþróttahúsin við Kaplakrika og Strandgötu opin Alsírmönnunum. Ekki hefur enn verið rætt um hugs- anlega landsleiki liðsins við okkar menn en fastlega er búist við að af einhverjum landsleikjum verði. Þá hefur skrifstofu HSÍ einnig borist beiðni frá HM-liði Túnis þess efnis að leyft verði að koma með 25 manna hóp á heimsmeist- arakeppnina í vor. Um er að ræða sálfræðing, nuddara og aðra að- stoðarmenn auk leikmannahóps- ins. Er greinilegt að stefnt er að því að vel fari um Túnismennina á meðan á keppni stendur. -Bih Konráð Olavsson og félagar í íslenska landsliðinu í handknattleik leika að öllum líkindum gegn Alsírmönnum í byrjun apríl. Frá A til Ö með Ragnheiði Stephensen, leikmanni Stjörnunnar í handbolta Aö vera eða vera ekki: íþróttamaður Patrekur Bisness: Leikmannakaup KVll /nWntrlr\r>u tr Disclosure: Innilokunarkennd / / lyf l\JClf Erla Rafnsdóttir: Ákveðin *■' >C tram: Lið sem leiðinlegt er að tapa fyrir Garðabær: Bær sem gott er að búa í Heitt: Sturturnar í Laugardalshöllinni Innilegt: Samband karls og konu Jesús: Stærsta spurningarmerki sögunnar Karlmenn: Erfiðir að eiga við Lúxus: Spila handbolta með Stjörnunni Myndarlegur: Patrekur Jóhannesson þegar hann er með hár fylef: Herdís Sigurbergsdóttir Olöglegt: Það sem allir gera einhverntímann Patrekur Jóhannesson: Góðurá meðan hann hugsar Reykjavík: Ráðhúsið Samúel Örn: Góður fréttamaður Töff: frötin í Evu og Gaiierí Undarlegt: Víti í lok venjulegs leiktíma Vísindi: Skemmtileg Yndislegt: Að vinna íram 16:15 Þú: Ég? Ævintýri: Barnabækur Astridar Lindgren Omurlegt: Að vera alltaf í öðru sæti í bikarnum Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu Schmeichel hótar að leika ekki með Danski landsliðsmarkvörðurinn Peter Schmeichel lét hafa eftir sér á dögunum að svo gæti farið að hann léki ekki með landsliðinu í Evrópukeppni landsliða á Eng- landi á næsta ári. Hann segir að takist skipuleggjendum mótsins ekki að tryggja öryggi hans leiki hann ekki með. „Ég elska íþróttina en er ekki tilbúinn að deyja fyrir hana sökum einhverra brjálæð- inga,“ sagði Schmeichel í viðtali við enskt dagblað í gær, en hann varð Evrópumeistari með Dönum þegar þeir unnu keppnina í Sví- þjóð fyrir þremur árum.H Inter Milan Já en... Moratti tekurvið stjóminni ítalski olíubaróninn Massimo Moratti hefur keypt ítaiska stórlið- ið Inter Milan, en faðir hans var við stjórnvölinn hjá liðinu á gullaldar- árum þess. Yfírlýsing svohljóðandi var gefm út af Moratti og núver- andi eiganda liðsins, Ernesto Pellegrino, á laugardag. Pellegrino keypti liðið 1984 en ákvað svo að selja það nú og kemur það fáum á óvart þar sem gengi liðsins hefur ekki verið sem best síðustu árin. Vilja menn sjá breytingar þar á bæ og gera Inter að því stórveldi sem það var hér áður fyrr. Þrátt fyrir að iiðið hafi unnið sinn 13. deildar- meistaratitil 1989 og unnið Evrópu- keppni félagsliða í fyrra hefur það ávallt staðið í skugganum af hinu Milan-liðinu, AC Milan. Salan á að vera þáttur í að snúa þeirri þróun við.H Er Milton Bell rétti leikmaðurinn. Axel „Ég held að svo sé nema leikur- inn gegn Tindastóli hafi bara verið „one day wonder“. Fyrsti erlendi leikmaðurinn hjá okkur í vetur, Donavan Cassanave, var mjög skemmtilegur strákur og duglegur. Hann var bara ekki nógu góður að setja boltann ofan í körfuna. Næst- ur var Antoine Jones, sterkur leikmaður sem hefði hentað okkur mjög vel. Umboðsmaðurinn hans eyðilagði allt með því að setja upp hærra verð fyrir hann en upphaf- lega var samið urn. Sá þriðji var Mark Hadden og það eina sem ég hef um hann að segja er að ef Haukarnir vilja hann þá eiga þeir hann skilið. 9 V Ekkert lið f úr- valsdeildinni ( körfubolta hefur átt í jafnmiklu útlendingahall- æri og KR en þrír útlendingar hafa komið og farið. Það er því I ekki skrýtið þótt Axel Nikulásson, þjálfari úrvals- deildarliðs KR, sé að verða gráhærður. NU loksins virðast KR-ingar hafa fund- ið sér draumaleikmanninn en sá heitir Milton Bell, 24 ára gamall miðherji. f fyrsta leiknum hér á landi skoraði hann 33 stig og tók 22 fráköst. Sjald- séðar tölur sem ættu að segja mikið um getu hans.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.