Helgarpósturinn - 20.02.1995, Síða 30
30
MORGUNPÓSTURINN SPORT
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995
16 liða úrslit ensku bikarkeppninnar fóru fram um helgina
Enski boltinn
Úrslit í bikarkeppninni
UHámir slógu
út Leicester
Á hugaveröur valkostur fyrir
konur á öllum aldri til að
koma sér í toppform og
öðlast aukinn lífskraft.
fingar sem sameina mýkt,
einbeitingu og öndun.
B ætir svefn, meltingu og
alla almenna líðan.
Leikfimi
íþróttamiðstöðinni
Seltjarnarnesi
Uppl. í síma 23913
KLIPPTU ÚT MIÐANN OG HANN GILDIR SEM 200 KR. AFSLÁTTUR
Leikið var í ensku bikarkeppninni
um helgina og voru alls átta leikir á
dagskrá í bikarnum, en í úrvalsdeild
fóru fram tveir leikir. Everton stal sen-
unni með því að valta yfir Norwich,
5:0; Tottenham og Southampton gerðu
jafntefli og verða því að eigast við á ný;
fyrstudeildarlið Úlfanna sló út Leicest-
er; og Liverpool náði aðeins jafntefli á
heimavelli gegn Wimbledon. Þá unnu
meistarar Manchester United öruggan
sigur á Leeds.
í úrvalsdeild fóru fram tveir leikir.
Coventry vann öruggan sigur á West
Ham og gat hinn nýi framkvæmda-
stjóri liðsins, Ron Atkinson, vart
rythmic leikfimi
6 vikna
á aðein
hugsað sér betri byrjun. Pet-
er Ndlovu og Mike Marsh
skoruðu mörk Norwich,
hvor í sínum hálfleiknum.
Þá vann Aston Villa góðan
útisigur gegn Sheffield Wed-
nesday í sjónvarpsleiknum.
Dean Saunders skoraði
bæði mörk Villa og var það
seinna einkar glæsilegt. Leik-
menn Wednesday voru með
eindæmum lánlausir upp
við mark Villa og var hreint
fyrirmunað að koma tuðr-
unni í netið.
Leikmenn Everton lögðu
til hliðar áhyggjur vegna
slæmrar stöðu liðsins í deild-
inni á laugardag er liðið tók
á móti Norwich í bikar-
keppninni. Þeir fóru hreint á
kostum og skoruðu án þess
að andstæðingarnir næðu að
svara fyrir sig, og var þetta
stærsti sigur liðsins í langan
tíma. Sænski landsliðsmað-
urinn Anders Limpar hóf
markasúpuna strax á 7. mín-
útu og eftir það fékk ekkert
stöðvað liðið. Ekki bætti svo
úr skák fyrir Norwich að
varnarmaðurinn Jon
Newsome var rekinn af
leikvelli í síðari hálfleik
vegna tveggja gulra spjalda.
Tottenham varð að sætta sig
við jafntefli heima gegn
Southampton. Jiirgen
Klinsmann kom Tottenham
yfir á 21. mínútu með marki
eftir góðan undirbúning
Teddys Sheringham. Að-
-x§
eins mínútu síðar felldi Justin Ed-
enburgh Jeff Kenna innan víta-
teigs og úr vítaspyrnunni skoraði
Matthew Le Tissier. lan Walker,
í marki Tottenham, var með hend-
ur á boltanum en inn fór hann
engu að síður. Liðin eigast við að
nýju 1. mars næstkomandi á heima-
velli Southampton, The Dell.
Fyrstudeildarlið Millwall, sem sló
út úrvalsdeildarliðin Arsenal og
Chelsea, varð að sætta sig við tap
gegn QPR á Loftus Road. Á síðustu
mínútu leiksins var dæmd víta-
spyrna á Millwall eftir að leikmaður
liðsins hafði handleikið knöttinn
innan teigs. Úr spyrnunni skoraði
síðan Wilson og kom þar með liði
sínu áfram í keppninni. Leikmenn
Millwall voru óheppnir að skora
ekki og áttu til að mynda skot í tré-
virkið átta mínútum fyrir leikslok.
írski sóknarmaðurinn David
Kelly, sem skoraði mark írlands
gegn Englandi í landsleiknum
fræga á dögunum, gerði eina mark
leiksins er Wolverhampton sló út
úrvalsdeildarlið Leicester. Markið
þótti allglæsilegt. Fyrstudeildarlið
Watford setti félagsmet er liðið hélt
hreinu í níunda leiknum í röð. Það
var líka það eina merkilega við tíð-
indalítinn og markalausan leik
gegn Crystal Palace. Liðin mætast á
ný 1. mars og þá verður á brattan að
sækja fyrir Watford því í þetta sinn
verður leikið á heimavelli Palace.
Newcastle komst í átta liða úrslit
bikarkeppninnar í fyrsta sinn í ní-
tján ár er liðið sigraði Manchester
City örugglega á heimavelli sínum,
St. James’s Park, í gærdag. Keith
Gillespie hélt upp á 20. af-
mælisdaginn með tveimur
mörkum. Gillespie, sem ný-
verið kom frá Manchester
United í gegnum kaup United
á Andy Cole frá Newcastle, skoraði
fyrra markið eftir hræðileg mistök
markvarðar City, Andy Dibble, en
hann hugðist hreinsa frá marki
sínu en gaf þess í stað beint á Gille-
spie. Þjóðverjinn Uwe Rösler jafn-
aði skömmu síðar en John Beres-
ford kom Newcastle aftur yfir.
Gillespie kórónaði síðan frábæra
frammistöðu sína með sínu öðru
marki í seinni hálfleik. Meistarar
Manchester United unnu öruggan
sigur á Leeds á Old Trafford í
Manchester. Það var fyrst og fremst
slæm byrjun Leeds sem varð liðinu
að falli. Á fýrstu fjórum mínútum
leiksins skoruðu þeir Steve Bruce
og Brian McClair sitt markið hvor,
bæði eftir eitraða hornspyrnu frá
Ryan Giggs. Ghana-maðurinn
Anthony Yeboah minnkaði mun-
inn snemma í seinni hálfleik, en
gamla brýnið Mark Hughesp gull-
tryggði sigur United átján mínút-
um fýrir leikslok. Lið Leeds olli
nokkrum vonbrigðum í leiknum
og hefði sigur United getað orðið
miklu stærri. Liverpool fékk á sig
mark strax á 2. mínútu gegn Wim-
bledon en Robbie Fowler tókst að
jafna í fyrri hálfleik. Wimbledon,
sem lék án fyrirliðans Vinnys Jo-
nes en hann var ákærður fýrir að
hafa bitið í nef fréttamanns í vik-
unni, var síðan óheppið að stela
ekki sigrinum undir lokin er Efan
Ekoku skaut í slá.
I átta liða úrslitum bikarkeppn-
innar eigast síðan við:
LiverpoolAA/imbledon
- Tottenham/Southampton
Everton - Newcastle
Watford/Crystal Palace
- Wolverhampton
Manchester United - QPR
Áætlað er að leikirnir fari fram
helgina 11., 12. og 13. mars.B
Úkralnuleikmaöurinn i liði Manchester
United, Andrei Kanchélskis, og David
Wetherall hjá Leeds eigast hér við í
leik liðanna i ensku bikarkeppninni i
gær. Kanchelskis og félagar höfðu
betur og mæta QPR á Old Trafford í
átta liða úrslitum keppninnar.
Everton - Norwich 5:0
Limpar 7., Parkinson 24., Rideout 56.,
Ferguson 63., Stuart 88.
QPR - Millwall 1:0 |
Wilson 90. (vsp.)
Tottenham - Southampton 1:1
Klinsmann 21. - Le Tissier 22. (vsp.) .
Watford - Crystal Palace 0:0 I
Wolverhampton - Leicester 1:0
Kelly 34.
Newcastle - Man. City 3:1
Gillespie 18., 64., Beresford 34.
- Rösier29.
Liverpool - Wimbledon 1:1 j
Fowler 33. - Clarke 2. "
Man. Utd. - Leeds 3:1
Bruce 1., McClair4., Hughes 72.
- Yeboah 53.
Úrslit í úrvalsdeild
Coventry - West Ham 2:0
Ndlovu 25., Marsh 67.
Sheff. Wed. - Aston Villa 1:2
Bright 71. - Saunders 26., 44.
Staðan í úrvalsdeild
Blackburn 28 61:25 62
Man.Utd. 28 51:21 60
Newcastle 28 47:30 51
Liverpool 27 46:22 48
Nott. Forest 28 41:31 46
Tottenham 27 45:38 43
Leeds 26 34:28 39
Sheff. Wed. 29 38:38 39
Aston Villa 29 41:38 37
Wimbledon 27 32:47 36
Norwich 27 27:31 35
Arsenal 28 31:32 34
Coventry 29 29:45 34
Chelsea 27 35:38 33
Man. City 27 35:44 32
Southampton 27 39:44 31
QPR 26 39:45 31
Everton 28 29:38 31
Crystal Pal. 28 21:28 30
West Ham 28 26:37 29
Ipswich 27 29:55 20
Leicester 27 25:46 19
Markahæstir
28 - Alan Shearer (Blackburn)
24 - Robbie Fowler (Liverpool)
23 - Ashley Ward (Norwich,
þar af 17 fyrir Crewe)
22 - Matthew Le Tissier
(Southampton)
20 - Chris Sutton (Blackburn),
lan Wright (Arsenal),
Júrgen Klinsmann (Tottenham)
17- Andy Cole (Man. Utd, þar af
15 fyrir Newcastle)
Úrslit í 1. deild
Bolton - Barnsley 2:1
Bristol - Oldham 2:2
Burnley - Grimsby 0:2
Luton - Swindon 3:0
Middlesbro - Charlton 1:0
Southend - Sheff. Utd. 1:3
Sunderland - Portsmouth 2:2
Tranmere - Reading 1:0
WBA - Notts County 3:2
Staðan í 1. deild
Bolton 31 52:33 54
Tranmere 31 49:35 53
Mlddlesbro 29 42:26 52
Wolves 29 52:39 50
Reading 31 35:28 50
Sheff. Utd. 31 51:35 49
Grimsby 31 49:40 47
Watford 30 35:28 47
Luton 30 41:40 43
Barnsley 29 37:38 42
Millwall 28 36:32 40
Charlton 30 43:46 39
Oldham 30 41:40 39
Derby 29 35:31 39
WBA 31 28:38 37
Southend 31 32:57 36
Stoke 28 29:34 36
Port Vale 28 34:36 35
Portsmouth 30 32:43 34
Bristol 32 30:43 34
Sunderland 30 30:31 33
Swindon 29 36:49 32
Burnley 28 28:42 27
Notts County 32 35:48 26
REYKJAVIK - KOPAVOGUR - SIMI 554-4444
REYKJAVÍK - VESTtJRBÆR - SÍMI 562-9292
IIAI NARI .IÖRDUR - GARDABÆR - SÍMI 565-2525
engutn vornum vit).
- ■ .. . ,
4
i4
4