Helgarpósturinn - 09.03.1995, Síða 2
2
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 9. MARS 1995
í þessu blaði
4
Leikstjóri í kröggum
Jonni Sigmars
í fangelsi
6
Stríðið í Breiðabliki
Bent bætir
vígstöðuna
9
Flutningar ráðuneyta
Milljónir á
niðurskurðar-
tímum
lO&ll
Herluf Clausen
Kominn í þrot
13&14
Pólítíkusarnir prófaðir
Misvel tengdir
tíðarandanum
H
Bara-rabb Magneu
Hippar á
heljarþröm
15
Freistandi frambjóðendur
Finnur Ingólfs
í grænni dragt
16
íslenskar leikkonur
Eru þær
þokkagyðjur?
20&21
Ástþór Magnússon
Athafnaskáld og
ævintýramaður
28
Kaupmennska á Internetinu
Smekkleysa
gerir innrás
29
Silfurskottumaðurinn
Eignast annað sjálf
31
Ingjaldur Hannibalsson
Hefur komið til
hundrað landa
Málvillur á kröfu-
spjöldum kennara!
Fyrst &fremst
BJÖRN ÖNUNDARSON er tengdur núverandi yfirtryggingalækni fjöl-
skylduböndum. BJARNI LEIFUR PÉTURSSON á 34. dóminn yfir höfði sér.
Einkavinavæðingin
enn á ferð
JúlIus Valsson yfírtrygginga-
læknir gekkst undir dómsátt vegna
skattsvika og greiddi 400 þúsund
krónur ofan á 25 prósenta álag.
Þegar hann starfaði hjá Trygginga-
stofnun vann hann einnig fyrir
tryggingarfélögin við gerð örorku-
mata án þess að greiða af því skatt.
Björn Önundarson hrökldaðist úr
þessu sama starfi fyrir sams konar
en umfangsmeiri skattsvik en systir
eiginkonu hans er tengdamóðir
Júlíusar. Stöðunefnd Landlæknis-
embættisins taldi Júlíus ekki koma
til greina sem arftaki Björns og Jón
Sæmundur Sigurjónsson var eini
aðilinn í tryggingaráði sem taldi
Júlíus koma til greina. Guðmundur
Árni Stefánsson, þáverandi heil-
brigðisráðherra, ákvað engu að síð-
ur að ganga fram hjá öðrum um-
sækjendum og réð Júlíus en allir
þekkja tengsl Guðmundar og
Björns Önundarsonar. Enn kom
smæð þjóðfélagsins fram við rann-
sókn á skattsvikum Júlíusar. Skúli
Eggert Þórðarson skattrannsókn-
arstjóri var óhæfur til að fjalla um
málið vegna tengsla við Júlíus og
það varð til þess að málið tafðist
enn frekar en orðið var.
Bjarni Leifur fær 34.
dominn
Bjarni Leifur Pétursson, sí-
brotamaður, sem var í viðtali við
MORGUNPÓSTINN síðasta fimmtu-
dag, fékk óvelkomna heimsókn
kvöldið áður en greinin birtist en
þar voru mættir lögreglumenn sem
börðu allt húsið utan og tóku hann
með sér niður á lögreglustöð. Til-
efnið var fölsuð ávísun frá því í júní
síðastliðnum. Nú bendir allt til þess
að Bjarni Leifur fái sinn 34. dóm.
Hrafn og Karl Th. í
vikublaoshugleiðingum
Alþýðublaðið fer mikinn núna
fyrir kosningarnar undir ritstjórn
Hrafns Jökulssonar og almenn
ánægja er sögð vera með störf hans.
Hrafn réð sig þó aðeins tímabundið
og það freistar hans víst lítt að stýra
þessu litla blaði þegar það missir að
verulegu leyti tilgang sinn að lokn-
um kosningum. Undanfarið hafa
gengið þær sögur að hann væri að
þrýsta á stjórnendur blaðsins að
gera það að vikublaði en án árang-
launa!
Menntun er nuðlind en stjórn-
völd skilju þuð ekki og eru óbyrgð-
arlaus!
Þessi vígorð ættu ekki að koma
neinum á óvart eftir þriggja vikna
verkfall, en það vekur óneitanlega
athygli að uppfræðarar æskunnar
gera sig seka um klaufalegar máJ-
villur. Og það á opinberum vett-
vangi þar sem
þeir eru teknir
í bólinu af veg-
farendum —
foreldrum og
nemendum
sem vita betur
og gætu: éfast
um gæði
menntunar-
innar.
Á nokkrum
kröfuspjald-
anna var talað
um lœkkun
kennsluskyldu.
Kennsíuskylda
getur aukist og minnkað en hvorki
hækkað né lækkað. Hugtakið
tímalaun er nýtt en því var flaggað
á einu spjaldanna. Nýyrðasmíð er
ekki gagnrýnisverð en orðinu var
af einhverjum ástæðunr skipt:
Titna Laun stóð þar fullum fetum,
eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Glöggir menn sem leið áttu um
torgið tóku einnig eftir því að
kröfuspjöldin voru langflest gerð
úr sama efnivið, það sást þegar
bakhlið þeirra blasti við. Sem
bendir til þess að íslenskukennari
hefur varla verið á staðnum þegar
kröfuspjöldin voru búin til.
urs. Ritstjórinn ber hins vegar al-
farið á móti þessu. Nýjustu kjafta-
sögurnar herma að Hrafn hafi feng-
ið Karl Th. Birgisson, ritstjóra
Heimsmytidar og fyrrverandi rit-
stjóra Pressunnar, í lið með sér til
að stofna nýtt blað, jafnvel viku-
blað.
Kvartað yfir Friðberti
Pálssyni við umboðs-
mann Alþingis
Samkvæmt traustum heimildum
MORGUNPÓSTSINS hefur umboðs-
maður Alþingis, Gaukur Jörunds-
son, haft til skoðunar um nokkurt
skeið kvörtun sem Samband ís-
lenskra kvikmyndaframleiðenda og
Samband kvikmyndaleikstjóra
lögðu fram vegna setu Friðberts
Pálssonat, forstjóra Háskólabíós, í
stjórn Norræna kvikmyndasjóðs-
ins. Að mati kvikmyndagerðar-
mannanna fer þetta tvennt ekki
saman en þeir vilja meina að
stjórnarseta Friðberts valdi hags-
munaárekstri. Máli sínu til stuðn-
ings benda þeir á að Háskólabíó
sæki óbeint um framleiðslustyrk í
Norræna kvikmyndasjóðinn, út á
mynd Jóhanns Sigmarssonar,
Eina stóra fjölskyldu, sem bíóið er
meðframleiðandi að, og beint um
dreifmgarstyrk út á þær norrænu
myndir sem það dreifir. En Há-
skólabíó hefur einmitt verið mjög
duglegt að sýna norrænar myndir.
Andlitslyfting á Veru
Nýr ritstjóri, Sonja B. Jóns-
dóttir heldur nú um taumana hjá
kvennablaðinu Veru sem hefur
fengið andlitslyftingu í tilefni rit-
stjóraskiptanna. I grein í nýjasta
tölublaðinu, sem fjallar um hverjir
það séu sem reka kvennapólitík og
gæta hagsmuna kvenna á Alþingi
kemst greinarhöfundur, Halldóra
Friðjónsdóttir, að því að það séu
einkum Kvennalistakonur og er
það vel í málgagni Kvennalistans.
Það er hins vegar hlálegt að eina
málefnið sem þingkonur allra
flokka, sextán talsins, náðu breiðri
samstöðu um var tillaga til þings-
ályktunar þess efnis að efla þyrfti
íþróttaiðkun kvenna. I annarri
grein í sama blaði, þar sem Auður
Styrkársdóttir heldur um penn-
ann, kemur fram að ísland er í
sjötta sæti meðal þjóðanna hvað
varðar hlufall þingkvenna. Ef að
þingkvenna Kvennalista nyti ekki
við væri ísland í 26 sæti.
Torfa blæddi á meðan
löggan fundaði
Torfi Geirmundsson, hár-
greiðslumeistari, bar lögregluyfir-
völdum ekki fagra söguna í frétt á
Stöð 2 um helgina. Síðastliðið
föstudagskvöld var Torfi með sýn-
ingu á LA Café en effir að henni
lauk varð hann fyrir tilefnislausri
árás af einum gestanna og skarst illa
á gagnauga. Árásarkonunni var
þegar stungið í lögreglubíl en Torfi
var hafður í gæslu lögregluþjóna
fyrir utan staðinn í hálftíma á með-
an beðið var eftir öðrum löggubíl.
Torfi er mjög ósáttur við fram-
komu lögreglunnar sem hann segir
hafa farið með sig eins og saka-
mann með því að láta hann húka
alblóðugan við Laugaveginn. Nú er
ástæðan fyrir biðinni líklega kom-
inn á daginn því á sama tíma og
Torfi beið blóðugur fýrir augum
gesta og gangandi var hálft lög-
reglulið borgarinnar upptekið með
bílaflotann parkeraðan fyrir utan
Brautarholt 30 þar sem fundur stóð
yfir hjá Lögreglufélagi Reykjavíkur
til klukkan hálfeitt um nóttina.
Efast um ágæti launa-
könnunar
Á morgun, föstudag, verður
blásið til opins fundar í Háskólan-
um um skýrslu Jafnréttisráðs um
launamun kynjanna. Hamrað hef-
ur verið á niðurstöðum hennar síð-
ustu vikur og ber þar allt að sama
brunni — konur njóta verri kjara í
öllu tilliti. Heyrst hafa efasemdar-
raddir um ágæti aðferðafræði Fé-
lagsvísindastofnunar sem vann
skýrsluna. Ekki hefur verið gefið
upp hvaða fýrirtæki lentu í úrtak-
inu sem hefur vakið grunsemdir
um að hlutfall dæmigerðra kvenna-
vinnustaða, þar sem karlar eru þó
við stjórnvölinn, sé allt of hátt sem
skekki heildarmyndina verulega. Þá
hefur skýrslan verið kynnt sem
samnorrænt verkefni en samt virð-
ist ekki hafa verið unnið eftir sömu
aðferðum hér og á hinum Norður-
löndunum. Það er því ekki ósenni-
legt að á fundinum verði krafist ná-
kvæmari svara.
FRIÐBERT PÁLSSON Kvikmyndaframleiðendur klöguðu hann til umboðsmanns Alþingis. GAUKUR JÖRUNDSSON þarf að meta hvort Friðbert sitji
beggja megin borðsins í stjórn Norræna kvikmyndasjóðsins. HRAFN JÖKULSSON er í vikublaðshugleiðingum. KARL TH. BIRGISSON er sagður í slag-
togi við Hrafn. SONJA B. JÓNSDÓTTIR hefur tekið við ritstjórnartaumunum á Veru.
Kennarar troðfylltu Ingólfstorg
með kröfuspjöld á lofti á mánu-
daginn. Slagorðin á spjöldunum
segja alla söguna um það sem
kennarar vilja með verkfalli sínu.
Kröfur þeirra má draga saman
nokkurn veginn svona:
Mintti vinnu, meira kaup!
Við krefjumst þess að menntun
okkar og úbyrgð vcrði metin til
Ja hjama, bara búiö að
loka hjá Lúffa!
Já, þetta er meira
ólánið.
Léttvigt
Heimtufrekjan í Stebba bróður
Þegar Stebbi bróðir flutti frá Akur-
eyri tfl Reykjavíkur um daginn kostaði
það bara nmmtíuþúsundkall. Stebbi er
nefhilega ein af þessum helvítis nánö-
sum sem heimta allt af ríkinu en tíma
ekki að borga krónu á móti. Sendibíl-
stjórinn, Stulli terta, er líka alræmdur
þjófur á keisarans fé. Ég hef það fýrir
satt að hann hafi meira að segja spurt
konuna hans Skúla skattrannsakara
hvort hún vildi nótu þegar hann flutti
píanóið fýrir hana á dögunum. Ég hef
off skammað Stebba bróður fýrir
þennan alvarlega siðferðisbrest og bent
honum á að rtkinu veiti ekki af hverri
krónu á þessum síðustu og verstu tím-
um sem sést auðvitað best á því hvað
menn hafa neyðst til að draga saman
seglin á þeim bænum á undanförnum
árum. Ef fólk heldur áfram að þver-
skallast svona við að borga skattinn
sinn, þá gæti svo farið að það þyrfti að
loka ennþá íleiri deildum á sjukrahús-
unum, nækka heimsóknargjaldið til
lækna, hækka skólagjaldið í Háskól-
ann, fækka enn plássunum á hjúkrun-
arheimilunum fýrir gamla liðið og svo
framvegis og svo ffamvegis, allt út af því
að gagar ems og Stebbi bróðir flytja
svart. Ég meina, afhverju heldur fólk að
að sé ekki búið að semja við kennara?
’að er verið að spara, það er ekkert
annað á bakvið það. Rfkíð sparar alveg
helling á verkfallmu og græðir svo slatta
líka af því allur skríllinn útá landi fer
beint í fiskinn og borgar skatt. Og losar
okkur við útlendingana í leiðinni, það
er nú ekki ónýtt. Og ef fólk hættir ekki
að haga sér eins og Stebbi bróðir og
Stulli terta, þá er eins víst að ríkið sjái sér
þann kost vænstan að sleppa þvi bara
alveg að semja við þessar kennarablæk-
ur, sem eru að vinna við eitthvað annað
en kennslu hálft árið hvort eð er. Nema
reyndar Stína mágkona, hún er rosal-
ega mikið að vinna alltaf í skólanum, en
ég er viss um að hún er algjört eins-
<fcmi í þessari stétt þó að nún sé nú
alltaf að nalda einhverju öðm ffarn af
einhverri misskilinni hógværð. Það
gæti meira að segja skapast svo alvarlegt
astand, ef Stebbi bróðir og hans nótar
fara ekki að taka sig á í skattamálunum,
að ríkisapparatið þurfi ekki bara að
spara í þjonustu sinni við almenning,
sem auðvitað er alltof mikil nú þegar,
heldur gæti svo farið að báknið þyrfti
að draga úr sínum eigin, prívat og per-
sónulegu og bráðnauosynlegu útgjöld-
um lika. Það kostar nú sitt að reka ríkið,
fólk verður að gera sér grein fyrir því.
Litlar 225 millur kostar það að nytja ut-
anríkisráðuneytið yfir Hlemm og
kaupa almennilega stóla og skápa og
gardínur ogsvona. Þetta er ekkert gefr
ms auðvitað, en þetta er bara eitthvað
sem verður að gera. Og þeir hjá Ijár-
málaráðuneytinu náðu meira ao segja
að spara 20 miUjónir miðað við kostn-
aðaráætlunina. Þeir hefðu átt að hafa
hana ennþá hærri, þá hefðu þeir sparað
ennþá meira auðvitað. En pað er ekki
hægt að ætlast til þess að menn fatti aUt.
Stebbi bróðir var reyndar eittlivað að
tuða um að það heíði verið nær að nota
þessar mUlur í eitthvað annað. Ráða
hundrað löggur í vinnu, bæta við 90
rúmum á emhveijum hjúkrunardeUd-
um fyrir gamla liðið eða feUa niður
skólagjöld í Háskólanum og eiga samt
100 mUlur í afgang. Eða hækka kaup
hjá kennurum um fjögurþúsundhaU á
mánuði. Enþessi heimtufrekja er auð-
vitað bara typísk fýrir Stebba og sýnir
bara hvað líann ber lítið skynbragð á
það sem máli skiptir í þessu pjóðfelagi.
Maður á ekki að spyijanvað ríkið getur
gert fýrir mann, heldur hvað maður
geti gert fvrir ríkið. Alltaf verið mitt
mottó. FeUa niður skólagjöldin, ekki
nemaþaðþó! Égheldþaðværi nærað
hækka þau, þá nennti þessi skríll
kannski að vinna eitthvað. Ég meina,
það dugar ekki að hafa utannkisráðu-
neytið í leigukompum hjá löggunni
forever. Hvað haldioi að útiendingam-
ir segi þegar þeir sjá svoleiðis sveitabú-
skap á ráoherranum, ha? Ogþað þýðir
lítið að flytia í nýtt hús ef gömfu gardín-
umar eru hara látnar hanga þar áffam
eins og ekkert sé sjálfsagðara. Hvað er
eiginlega að svona liði einsog Stebba?
Nei, égbara spyr.
Lalli Jones