Helgarpósturinn - 09.03.1995, Qupperneq 4
4
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 9. MARS 1995
Allt stefnir í að Jóhann
Sigmarsson leikstjóri verði
á bak við lás og slá þegar
mynd hans, Ein stórfjöl-
skylda, verður frumsýnd 31.
mars.
Jóhann Sigmarsson, leikstjóri
myndarinnar Ein stór fjölskylda, er í
slæmum málum þessa dagana. Allt
lítur út fyrir að honum verði gert
að íklæðast „KR-búningnum“
þann 24. rnars næstkomandi og
hefja afplánun um það bil mánaðar
fangelsisdóms vegna ítrekaðra um-
ferðarlagabrota. Þetta er vægast
sagt bagalegt fyrir Jóhann þar sem
Ein stór fjölskylda verður frumsýnd
31. mars. Hrakfarirnar eltu Jóhann
á röndum á meðan gerð myndar-
innar stóð yfir og varð hann meðal
annars að hætta tökum tímabundið
vegna fjárskorts.
Forsaga þessa nýjustu vandræða
er sú að jóhann var sviptur ökurétt-
indum árið 1992 eftir að hafa verið
gripinn ölvaður við akstur. Hann
trassaði að borga sektina sem hann
fékk fyrir þetta athæfi, og það sem
verra var, settist aftur ölvaður und-
ir stýri. Sú ökuferð endaði með
skelfmgu við gatnamót Sæbrautar
og Laugarnesvegar þegar hann velti
farartæki sínu með þeim afleiðing-
um að það skemmdist mikið.
Þetta var sumarið 1992 þegar
gerð myndarinnar Veggfóður stóð
yfir. Friðrik Þór Friðriksson hafði
lánað Jóhanni og Júlíusi Kemp,
leikstjóra myndarinnar, sendi-
ferðabíl til að nota við kvikmynda-
gerðina og svo óheppilega vildi til
að bíllinn sem Jóhann velti var ak-
kúrat sá bíll. Eins og gefur að skilja
var Friðriki ekki skemmt en fyrirgaf
þó Jóhanni með semingi.
Þetta urðu þó ekki endalokin á
hremmingum Friðriks í sambandi
við bíla og Jóhann. Friðrik tók þátt
í að fjármagna Eina stóra fjölskyldu
og liður í því var að lána ýmis tæki
og tól til kvikmyndagerðarinnar,
þar á meðal sömu sendibifreið og
Jóhann hafði áður farið langleiðina
með að eyðileggja. Þetta var í fyrra-
sumar og búið var að koma bílnum
í stand aftur. En það var ekki að
sökum að spyrja, aftur tók Jóhann
bílinn traustataki, og enn fullur. Að
Jóhann Sigmarsson „Það er nú ekki þannig að þetta sé neitt
til að stæra sig af. En jú, jú, þetta er alveg rétt.“
þessu sinni lauk ökuferðinni við
hringtorgið á Hringbraut; nánar
tiltekið á hvolfi á því miðju við
vægast sagt litla hrifningu eigand-
ans, Friðriks Þórs.
Það er fýrir þessi afglöp sem Jó-
hann þarf nú að afplána sína refs-
ingu og þeirra vegna getur svo farið
að hann missi af frumsýningu
myndarinnar sem hann hefur unn-
ið sleitulaust að í tvö ár.
Jóhann er um þessar mundir
staddur í Kaupmannahöfn á loka-
sprettinum við að Ijúka ffágangi
myndar sinnar og náði MORGUN-
POSTURINN tali af honum þar.
„Það er nú ekki þannig að þetta
sé neitt til að stæra sig af. En jú, jú,
þetta er alveg rétt, þetta var nokk-
urn veginn svona. Ég hefverið boð-
aður í afplánun þann 24. mars en ég
veit ekki alveg hvernig það fer.
Vonandi get ég fengið að ffesta
þessu eitthvað svo ég geti verið við-
staddur frumsýninguna."
Helga kennd
við alla flokka
Því var slegið upp á útvarpsstöð-
inni Bylgjunni t gær að Kvenna-
listakonan Helga Sigurjónsdótt-
ir væri á leiðinni í Framsóknar-
flokkinn en hún var, cins og kunn-
ugt er, efst í forvali Kvennalistans á
Reykjanesi en var látin vfkja fyrir
Kristínu Halldórsdóttur.
{ samtali við Morgunpóstinn
kvað Helga þetta vera af og frá en
sagði jafnframt að tjöðrina sem
breyttist í hænur væri sjálfsagt að
finna í þeirri staðrcynd að hún hélt
erindi hjá Framsóknarflokknum í
gær um kvennabaráttu í tilefni af 8.
rnars, alþjóðlegum baráttudegi
kvenna. „Ég hef haldið slfk erindi
af og til í mörg ár, enda hef ég verið
á vettvangi kvennabaráttu í 25 ár og
haft heilmikið um að segja hvernig
hún hefur þróasl á þessum aldar-
fjórðungi. Samkvæmt þjóðsögunni
hef ég hins vegar verið á leiðinni í
alla flokka nema Sjálfstæðisflokk-
inn cftir atburðina á Reykjanesi.“
Aðspurð um hvort hún væri bú-
in að segja sitt síðasta unt það mál
kvað hún svo ekki vera. „Ég mun
gera grein fyrir þessum hlutum í
rituðu máli og horfa þá tii kvenna-
baráttunnar eins og hún er í heild
sinni. Það sem gerðist voru minnst
alvarlegir hlutir fyrir mig persónu-
lega en stórmál fýrir kvennabarátt-
una. Ég sit enn sem bæjarfulltrúi
fyrir Kvennalistann í Kópavogi og
starfa þar nteð ágætum konum. En
ég mun ckki segja mig úr Kvenna-
listanum fyrr en ég er 100 prósent
sannfærð urn að hann sé búinn að
glutra niður kvennabaráttunni í
heild sinni. ÞKÁ
komin
heim
„í nánustu framtíð vona ég að
við eigum bara rólegheitalíf
heima að dunda við börnin og
svona,“ segir Aðalsteinn Jóns-
son, faðir barnanna tveggja,
sem lögregla og fíkniefnalög-
regla leituðu að að ósk barna-
verndaryfirvalda í Reykjavík í
rúman hálfan mánuð um síð-
ustu áramót. Á þriðjudag fengu
Aðalsteinn og Sigrún Gísla-
dóttir, sambýliskona hans,
börnin aftur í sína vörslu en þau
hafa verið vistuð undanfarna
tvo mánuði í rannsóknarvistun
á vegum barnaverndaryfirvalda.
„Við erum kát og börriin
glöð. Ég veit nú eiginlega ekki
hvað kom út úr þessari rann-
sóknavistun, maður er bara
sáttur við að vera búinn að fá
börnin heim,“ segir Aðalsteinn.
„Næstu þrjá mánuði mun til-
sjónarmaður heimsækja okkur
reglulega en mér er fjandans sama
um það. Börnin eru komin inn á
heimilið og það er nóg fyrir mig.
Við ætlum bæði að vera heima
næstu mánuðina en hvað það verð-
ur lengi veit ég ekki. Ég er alveg
sáttur við það og geri mér vonir um
að málinu sé nú lokið.“
Aðspurður segist Aðalsteinn ekki
búast við að barnaverndaryfirvöld
aðhæfist neitt frekar vegna brott-
náms hans á yngra barninu af
barnaspítala Hringsins. ■
Aðalsteinn Jónsson og Sigrún
Gísladóttir með börn sín, Ás-
gerði Lilju eins árs og Jón Val-
geir fjögurra mánaða, á heimili
sínu í gær. Stríðinu við barna-
verndaryfirvöld er lokið.
Guðmundur Örn
Ragnarsson prest-
ur segir niðurröð-
unina á lista kristi-
legrar stjórnmála-
hreyfingar stjórnast
af framboði og eft-
irspurn eftir fólki.
Höfum nóg
af mannslcap
Gengið hefúr verið frá niður-
röðun í fýrstu 7 sæti lista kristi-
legrar stjórnmálahreyfingar í
Reykjavík. Árni Bjöm Guðjóns-
son húsgagnasmíðameistari er í
fýrsta sætinu í Reykjavík en Guð-
mundur Örn Ragnarsson prest-
ur leiðir listann á Reykjanesi.
Kristileg stjórnmálahreyfing býð-
ur einnig fram á Suðurlandi.
Guðmundur segir fólkeklu ekki
ástæðuna lyrir því að hreyfingin
hefur ekki látið uppi hverjir skipa
neðri sætin á listanum heldur eigi
eftir að ganga frá röðuninni í þau
sæti. Það vekur athygli að einungis
ein kona er í einu af sjö efstu sæt-
unum í Reykjavík en Guðmundur
segir það ekki endurspegla afstöðu
hreyfingarinnar til jafriréttismála.
„Það er hægt að túlka það hvernig
sem er en þetta er bara spurning
um framboð og eftirspurn eftir
fólki. Það eru margar konur í
hreyfingunni en þær vildu bara
ekki sitja í efstu sætunum." -lae